Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.2009, Page 13
föstudagur 26. júní 2009 13Fréttir
New York hefði heppnast með af-
brigðum vel, voru stærstu trompin
ennþá eftir.
Um kvöldið hafði verið boðið til
gala-kvöldverðar í Lincoln Center, þar
sem ekkert var til sparað. Inn í upplýsta
menningarmiðstöðina í hjarta New
York borgar streymdi prúðbúið fólk,
karlmennirnir flestir klæddir í kjólföt
og með þverslaufu. Heimildarmenn
DV segja að nokkrir hafi brugðið á það
ráð að leigja sér kjólföt til að stinga ekki
í stúf. Einn karlmaður sem var í kvöld-
verðarboðinu íklæddur jakkafötum og
bindi segir að sér hafi liðið hálfskringi-
lega, því að nær allir hinir hafi verið
með þverslaufu í kjólfötum. „Ég hef
ekki klæðst svoleiðis síðan ég fermdist
og datt ekki í hug að ég þyrfti nokkurn
tímann á kjólfötum að halda aftur.“
Til leiks hafði verið boðaður sjálfur
Winton Marsalis, nífaldur Grammy-
verðlaunahafi og fyrsti djassleikarinn
til að fá Pulitzer-verðlaun fyrir upptök-
ur á djasstónlist. Enn eitt trompið sem
Glitnir hafði á hendi. Fyrir lesendur
sem ekki þekkja vel til í djassheimin-
um, ættu Grammy-verðlaunin 9 að
segja nóg um þá virðingu sem Mars-
alis nýtur og hann er óumdeilanlega
einn færasti djasstónlistarmaður sam-
tímans. Einn viðmælandi sem þekk-
ir vel til í tónlistarbransanum orðaði
það svo: „Margir myndu gefa af sér
aðra höndina fyrir að fá að fara á tón-
leika með Winton Marsalis, en ég veit
ekki hvort hópurinn sem var í saln-
um þarna hafi skilið almennilega hve
stórt nafn var að spila. Allavega sner-
ust samræðurnar við matarborðið um
eitthvað allt annað en tónlist.“ Á með-
an ljúfir tónar snillingsins ómuðu um
salinn skáru gestir steik sína og með-
læti af sérstakri háttvísi, enda viðeig-
andi að sýna á sér sparihliðina í sam-
kvæmi sem þessu.
Eins og femínistar að lofa Geira í
Goldfinger
Til að gefa kvöldverðinum aukinn
þunga var forsetinn aftur mættur til
leiks. Hann var þó ekki aðal heiðurs-
gesturinn. Þann heiður hlaut enn eitt
númerið, sjálfur George Soros, einn
þekktasti fjárfestir heims. Ríkari en allir
útrásarvíkingarnir til samans. Maður-
inn sem tók stöðu gegn breska pund-
inu og var á þessum tíma einn af 30 rík-
ustu mönnum heims: „Það snobbuðu
allir rosalega fyrir að hafa Soros þarna
og hann var umsetinn um leið og mat-
urinn var búinn. Þetta var svipað og að
sjá lítil börn hitta íþróttastjörnu,“ seg-
ir einn viðmælenda DV. Forsetinn hélt
af þessu tilefni ávarp, þar sem hann
mærði Soros mjög og sagði það heið-
ur fyrir sig og Dorrit eiginkonu sína að
fá að sitja með honum til borðs. Við-
mælandi DV segir að einn gestanna
hafi ekki staðist mátið og komist svo að
orði yfir ræðu Ólafs Ragnars: „Gamli
kommúnistinn að ausa lofi yfir þenn-
an frjálshyggjuhákarl. Þetta er eins og
að fá formann femínistafélagsins til að
lýsa því yfir hvílíkt stórmenni Geiri í
Goldfinger sé.“
DV hefur því miður ekki getað
komist yfir þetta ávarp Ólafs Ragnars.
Ekki var hægt að fá það frá forsetaemb-
ættinu þar sem líklegt er að um verið
um tækifærisræðu hafi verið að ræða
sem ekki hafi verið skrifuð upp til birt-
ingar. Því er hún ekki inni á vef forseta-
embættisins líkt og margar ræður for-
setans.
„Er hann búinn að spila Nínu?“
Eftir margra rétta kvöldverð og dans-
leik var boðað til eftirpartís, þar sem
bara Íslendingar áttu að vera. Þar hafði
verið kallaður til Jónsi í Í svörtum föt-
um, sem átti að spila fram á rauðanótt.
Í dimmu herberginu, þar sem partí-
ið var haldið var búið að dekka enn
eitt hlaðborðið. Þeir víkingar sem enn
voru ekki mettir gátu þarna enn og
aftur gætt sér á dýrindis veitingum af
öllu tagi. Jónsi vakti mikla kátinu sem
endranær. Sumir voru þó heldur seinir
til leiks og frammi á gangi komu tveir
menn hlaupandi og var þeim nokkuð
niðri fyrir að sögn eins viðmælanda
DV. „Er hann búinn að spila Nínu?“
sagði annar þeirra og ekki laust við að
á honum hvíldu nokkrar áhyggjur yfir
því að hafa misst af einhverju stóru.
Sömu menn virtust ekki leggja mjög við
hlustir þegar Marsalis hafði leikið list-
ir sínar fyrr um kvöldið, enda var hug-
ur þeirra þá allur við sósuna og kart-
öflurnar. Þeir sem höfðu ekki hlustað
alveg nógu vel á Marsalis yfir matnum
þurftu samt ekkert að örvænta, því að
á hótelherberginu að kvöldi dags beið
nýjasti geisladiskurinn hans í körfu
með úrvali af Blue Lagoon-snyrtivör-
um, sem eru jú táknrænar fyrir hina
hreinu orku landsins bláa.
Þó að ferðin glæsilega til New York
hafi kannski ekki skilað tilætluðum ár-
angri og öll áform um orkuútrás séu
töluvert smærri í sniðum nú en þarna
var, verður Glitnir seint sakaður um að
hafa ekki barist til síðasta blóðdropa.
„Inside my heart is breaking, my mak-
eup might be fading, but my mind still
stays strong. The show must go on,“
söng Freddy Mercury um árið. Hvort
þetta hafi verið haft að leiðarljósi skal
ósagt látið, en óneitanlega sýndi Glitn-
ir mikla þrautseigju og þolgæði í að
halda góðærinu gangandi. Þar á bæ
börðust menn gegn kreppunni lengur
en flestir aðrir og létu ekki bölmóðinn
sigra sig.
Greinin er byggð á viðtölum við gesti
Glitnis í ferðinni til New York í sept-
ember 2007.
NOKKRIR FERÐALANGANNA
Í BOÐSFERÐINNI
n BjarNi BENEdiktssoN,
þáverandi þingmaður og stjórnarfor-
maður olíufélagsins n1 og núverandi
formaður sjálfstæðisflokksins. segist
ekki hafa flogið með ferðalöngunum
út til new York heldur hafi hann
flogið með annarri vél Icelandair. Var
í ferðinni vegna starfs síns hjá n1 þar
sem hann var stjórnarformaður þar
til í desember 2008. „Þetta var fyrst
og fremst ráðstefna um orkumál
þar sem forseti íslands var mættur
og starfsmenn úr iðnaðarráðuneyti
Bandaríkjanna. Ég mætti til að taka
þátt í því og svo var kvöldverður þar
á eftir. Mér var boðið sem viðskipta-
manni bankans,“ segir Bjarni. Hann
segir að það eftirminnilegasta
við ferðina hafi verið fyrirlestur
starfsmanns iðnaðarráðuneytisins
um orkumál og einnig ræða Ólafs
ragnars grímssonar um orkumál.
n ÁrNi siGfússoN, bæjarstjóri í
reykjanesbæ og stjórnarformaður
Hitaveitu suðurnesja. Var boðið
í ferðina sem stjórnarformanni
Hitaveitu suðurnesja. „já, þetta var
góð ferð. Ég er alltaf edrú þannig að
ég man þessar ferðir vel. Þetta var
mjög fróðlegt og skemmtilegt. Menn
voru stoltir af forseta sínum á þessum
tíma; fyrir það hvað hann flutti mál
sitt vel um tækifæri íslands á sviði
orkumála,“ segir Árni.
n Þór siGfússoN, fyrrverandi
forstjóri sjóvár og formaður samtaka
atvinnulífsins. Ekki náðist í Þór við
vinnslu fréttarinnar. Leiða má líkur að
því að Þór hafi verið í boðsferðinni
vegna starfs síns hjá samtökum
atvinnulífsins.
n MaGNús kristiNssoN, straumi-
Burðarási. Ekki náðist í Magnús við
vinnslu fréttarinnar.
n Þórður MÁr jóhaNNEssoN
hjá straumi-Burðarási Vildi hvorki
staðfesta né neita að hann hefði verið
í ferðinni. „Ég hef ekkert um þetta að
segja.“
n ÁrNi MaGNússoN, fyrrverandi
félagsmálaráðherra og starfsmaður
glitnis. Var starfsmaður glitnis á
þessum tíma og stýrði orkuútrás
bankans.
n jóN jósEp sNæBjörNssoN.
(jónsi í í svörtum fötum). jón sá um
að skipuleggja viðburði og boðsferðir
fyrir glitni á þessum tíma. Þetta
var eitt af hans fyrstu verkum fyrir
bankann. jón jósep segist ekki geta
tjáð sig um ferðina. „samkvæmt
samningi mínum er ég bundinn
trúnaði gagnvart bankanum líkt og
aðrir bankastarfsmenn. Ég má ekki
ræða um þetta.“
n ólafur raGNar GríMssoN
forseti íslands. Hélt ræðu á ráðstefnu
um orkumál sem haldin var í new
York. dV gat ekki fengið ræðu
forsetans úr ferðinni og hún er ekki
aðgengileg á vefsvæði forsetaemb-
ættisins.
n lÁrus WEldiNG bankastjóri. Var
forstjóri glitnis á þessum tíma.
„Ég er alltaf edrú þannig að ég man alltaf þessar
ferðir... Menn voru stoltir af forseta sínum á þess-
um tíma; fyrir það hvað hann flutti mál sitt vel um
tækifæri Íslands á sviði orkumála.“
„HOW BIG IS THIS GLITNIR?“