Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.2009, Side 14
föstudagur 26. júní 200914 Fréttir
Þrálátur orðrómur er um að Íslend-
ingar tengist endurreisn Kaupþings
í Lúxemborg og tengist með ein-
hverjum hætti yfirtöku breska fjár-
festingarsjóðsins Blackfish Capital
á bankanum. Rowland-fjölskyldan í
Bretlandi er helsti eigandi Blackfish
en félagið hefur ekki áður fjárfest í
fjármálafyrirtækjum.
Þeir sem DV hefur haft sam-
band við verjast allra frétta eða svara
spurningum hvorki játandi né neit-
andi.
Þeir Íslendingar sem gætu kom-
ið til greina sem hugsanlegir eigend-
ur eru Bakkavararbræður, þeir Ágúst
og Lýður Guðmundssynir og Robert
Tschenguiz, sem var í senn eigandi
og stórtækur lántakandi hjá Kaup-
þingi. Ekki er víst að fyrrverandi eig-
endur eða stjórnendur gamla Kaup-
þings geti átt samstarf við Tschenguiz
eftir það sem á undan er gengið.
Þá stendur skilanefnd Kaupþings í
málaferlum við Tschenguiz.
Auk þerra eru nefndir Sigurður
Einarsson, fyrrverandi stjórnarfor-
maður Kaupþings, og Hreiðar Már
Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri
bankans. Sigurður býr í London og
stundar þar fjármálaráðgjöf. Ekki er
loku fyrir það skotið að hann og fleiri
tengdir gamla Kaupþingi hafi komið
að málum hjá Blackfish Capital án
þess þó að vera formlegir eigendur
að endurreistum bankanum í Lúx-
emborg. Þeir gætu verið verktakar,
starfsmenn eða ráðgjafar án þess að
eiga hlut í bankanum.
Lánardrottnar samþykkir
Ljóst er að eftir miklu er að slægj-
ast en yfirvöld í Lúxemborg hafa
lagt talsvert á sig til þess að bjarga
bankanum frá gjaldþroti. Fram hef-
ur komið að belgísk stjórnvöld sam-
þykktu um 28 milljarða króna lán til
Lúxemborgar vegna bankans. Yf-
irvöld þar verja annarri eins upp-
hæð til að greiða fyrir yfirtökunni.
Samtals fær endurreistur bank-
inn 320 milljónir evra að láni í
reiðufé. Nafni hans verður breytt
í Banque Havilland S.A.
Í byrjun júní samþykktu helstu
lánardrottnar Kaupthing bank í
Lúxemborg áætlun um endur-
skipulagningu bankans , en þeir
eiga nær allar útistandandi kröfur
í gamla bankann. 23 af 25 bönkum,
sem lánað höfðu Kaupþingi sam-
þykktu einnig áætlunina um endur-
skipulagningu bankans. Í tilkynningu
um yfirtökuna segir að með sam-
þykki lánardrottna fái allir viðskipta-
vinir Kaupthing Bank í Belgíu, Sviss
og Lúxemborg, um 23 þúsund við-
skiptavinir, innistæður sínar greiddar
að fullu. Íslenska ríkið taki auk þess
ekki á sig neinar skuldbindingar
né leggi til fjármuni vegna endur-
skipulagningarinnar. Fram kom
að aðgangur íslenskra stjórn-
valda að upplýsingum innan
úr bankanum um einstaka viðskipta-
vini yrði fyrir hendi.
Tengsl við Bakkavararbræður
Sigrún Davíðsdóttir, fréttaritari RÚV,
gerði sérstaka grein fyrir Blackfish
Capital og Rowland-fjölskyldunni
í pistli fyrir um 10 dögum. Þar kom
fram að faðir og sonur, David og Jon-
athan, stýri Blackfish en hann er rek-
inn á Ermarsundseyjunni Guern-
sey, sem er þekkt skattaskjól. Í pistli
hennar kom fram að til er félag í Lúx-
emborg sem tengist bræðrunum
Lýði og Ágústi Guðmundssonum.
Það er að sínu leyti stofnað af tveim-
ur félögum á eyjunni Tortola. Þessu
félagi stjórna tveir sjóðir á Guernsey
tengdir Blackfish.
Þetta bendir til þess að einhver
tengsl séu milli Existabræðranna
Lýðs og Ágústs annars vegar og Row-
lands-fjölskyldunnar hins vegar. Þá
rekur Sigrún einnig að sjóður í eigu
Roberts Tschenguiz, TDT, tengist
einnig Rowland-fjölskydlunni með
þeim hætti að hann er að hluta und-
ir stjórn félags sem heitir Investec,
sem skráð er á Guernsey og tilheyr-
ir fjölskyldunni. Því er haldið fram
að Tschenguiz hafi notað TDT- sjóð-
inn til þess að koma eignum undan
skilanefnd Kaupþings sem á í mála-
ferlum við hann.
Líkur eru því leiddar að því að
stórir eigendur gamla Kaupþings
og helstu stjórnendur bankans eigi
þátt í endurreisn Kaupþings í Lúx-
emborg, sem tekur til starfa í næsta
mánuði undir nýju nafni.
Margt bendir til þess að stórir eigendur gamla Kaupþings og jafnvel fyrrverandi stjórnendur eigi drjúgan
hlut að máli við að endurreisa Kaupþing í Lúxemborg. Tengsl eru milli Rowland-fjölskyldufyrirtækisins
breska, Roberts Tschenguiz og Bakkavararbræðra. Vísbendingar eru um að Sigurður Einarsson og fleiri
fyrrverandi stjórnendur hafi með einhverjum hætti komið að endurreisn Kaupþings í Lúxemborg.
Kaupþingsmenn
ganga aftur í Lúx
Þetta bendir til þess að
tengsl séu á milli Ex-
istabræðranna Lýðs og
Ágústs annars vegar og
Rowland-fjölskyldunn-
ar hins vegar.
Jóhann haukSSon
blaðamaður skrifar: johannh@dv.is
Fundur í Exista Lýður guðmunds-
son (t.v.) og Ágúst guðmundsson
(fyrir miðju): tengsl eru milli þeirra
og rowland-fjölskyldunnar.
Fyrrverandi stjórnarformaður
sigurður Einarsson veitir
fjármálaráðgjöf í London. Hann
þekkir innviði bankastarfsemi
Kaupþings í Lúxemborg
nefndur til sögunnar robert
tschenguiz er meðal þeirra sem eru
nefndir í tengslum við bankann.
Spænski bankinn Aresbank hefur
stefnt Nýja Landsbankanum, Fjár-
málaeftirlitinu og ríkissjóði. Verður
málið tekið fyrir í Héraðsdómi Reykja-
víkur á miðvikudag í næstu viku. Bank-
inn á kröfu á hendur Landsbankanum
sem enn er inni í gamla bankanum.
Telur bankinn að það standist ekki lög
að færa ekki kröfuna yfir í nýja Lands-
bankann. Ekki liggur ljóst fyrir hvern-
ig skuld Landsbankans við spænska
bankann kom til.
Eitt af því sem forsvarsmenn
spænska bankans setja fyrir sig er að
þeim þykir sér mismunað. Þannig
hafi innistæða þeirra og annarra fjár-
málastofnana ekki verið flutt yfir í nýja
bankann. Hins vegar hafi aðrir sem
áttu sambærilegar innistæður, en voru
ekki fjármálastofnanir, fengið sínar
innistæður fluttar yfir í nýja bankann.
Í samtali við DV segir Jóhannes
Karl Sveinsson, hæstaréttarlögmað-
ur og verjandi Fjármálaeftirlitsins og
ríkissjóðs, að spænski bankinn hafi
talið sig eiga hefðbundna innistæðu í
Landsbankanum í haust þegar bank-
inn var yfirtekinn af Fjármálaeftirlit-
inu. Um sé að ræða fimm millifærslur
sem hafi borið umsamda vexti á láns-
tímanum. Þetta hafi ekki verið hefð-
bundnir samningar heldur skamm-
tímasamningar.
„Þeir vilja meina að um sé að ræða
innistæður og því hafi þær átt að flytj-
ast yfir í nýja bankann. Fjármálaeftir-
litið segir þetta hins vegar hefðbundna
lánveitingu,“ segir Jóhannes. Að sögn
hans var málið fyrst tekið fyrir í síðustu
viku. Nú sé verið að úrskurða um hvort
kalla eigi til matsmann.
Jóhannes segir að málflutning-
ur fari fram í haust. „Þetta gæti tek-
ið 12 til 18 mánuði ef þetta fer fyrir
Hæstarétt,“ segir hann. Hann telur
að niðurstaða í málinu muni ekki
setja efnahagsreikninga gamla og
nýja Landsbankans í uppnám. „For-
dæmisgildið snýst um að þarna er
verið að skýra ákvarðanir Fjármála-
eftirlitsins síðan í október. Þetta mál
mun þó ekki kollvarpa neinu,“ segir
hann.
Annað mál gegn Fjármálaeftir-
litinu er að sögn Jóhannesar komið
styttra á leið. Er þar um að ræða 26
banka sem ætla í mál við Fjármála-
eftirlitið þar sem þeir telja ákvörðun
þess að yfirtaka SPRON ólögmæta.
Að sögn Jóhannesar er það mál þó
komið styttra á veg en mál Ares-
bank.
annas@dv.is
Spænski bankinn Aresbank dregur Nýja Landsbankann, Fjármálaeftirlitið og ríkissjóð fyrir dómstóla:
spánverjar í mál vegna Landsbanka
Rifist um lánveitingu spænski bank-
inn aresbank telur sig eiga hefðbundna
innistæðu hjá Landsbankanum. Því er
fjármálaeftirlitið ekki sammála.