Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.2009, Síða 18
Þeim tilmælum hefur verið beint
til leikskóla Kópavogsbæjar að þeir
kaupi matinn sem boðið er upp á í
leikskólum bæjarins af Krónunni.
Þetta staðfestir Björn Hermanns-
son, innkaupastjóri Kópavogsbæj-
ar. Björn segir að Kópavogsbær hafi
gert samning við Krónuna um að fyr-
irtækið selji matvöru til leikskólanna
en 18 slíkir eru í Kópavogsbæ og eru
um 2.000 börn í þeim.
Innkaupastjórinn segir að þó að
samningurinn hafi verið gerður sé
stjórnendum leikskólanna á endan-
um í sjálfsvald sett hvort þeir kaupi
matinn af Krónunni eða annars stað-
ar: „Við erum ekki að pína einn eða
neinn til að eiga í viðskiptum við
Krónuna. En við höfum beint þeim
tilmælum til þeirra að þeir prófi
þetta,“ segir Björn en flestir leikskól-
ar bæjarins eru byrjaðir að versla við
Krónuna að sögn innkaupastjórans.
Krónan er í eigu Kaupáss hf. sem
aftur er í eigu eignarhaldsfélagsins
Norvik. Stærsti hluthafi Norvik er Jón
Helgi Guðmundsson, oft kenndur
við BYKO, en hann hefur stutt dug-
lega við bakið á uppbyggingu í Kópa-
vogsbæ í gegnum tíðina. Meðal ann-
ars lofaði hann hæsta styrknum fyrir
byggingu óperuhúss sem Kópavogs-
bær ætlaði að reisa í bænum á sínum
tíma og sat hann í stjórn sem skip-
uð var í kringum byggingu hússins.
Eins vakti það mikla athygli árið 2007
þegar tölublað tímaritsins Ísafoldar
var tekið úr sölu í verslunum Kaup-
áss en talið var að það tengdist um-
fjöllun um Gunnar Birgisson, fráfar-
andi bæjarstjóra í Kópavogi, sem var
að finna í því.
Betra að versla við smásölu-
fyrirtæki
Ástæðurnar fyrir því að samningur-
inn var gerður var sá að innkaupa-
deild Kópavogsbæjar sá mikla hag-
ræðingu í því að gera samning við
einn aðila um kaup á matvöru fyrir
leikskólana og að best væri að gera
samning við smásöluaðila frekar en
heildsöluaðila: „Við töldum að það
væri best að fara inn á neytenda-
markaðinn því þar værum við ör-
uggust um að fá lægsta verðið vegna
þess að heildsölufyrirtæki voru að
fara að hækka verð um 80 prósent.
Fyrirtæki á neytendamarkaði eru
alltaf í verðsamkeppni, meðal ann-
ars vegna verðkannana ASÍ, og því
töldum við betra að versla við þau,“
segir Björn.
Samkvæmt upplýsingum frá inn-
kaupdeild Reykjavíkurborgar eru all-
ir samningar um matarinnkaup fyrir
leikskóla borgarinnar við heildsölu-
aðila en ekki smásöluaðila. Meðal
annars er borgin með samning með
Stórkaup. Samkvæmt innkaupa-
deildinni hefur það hingað til ver-
ið mat þeirra að hagkvæmara sé að
versla við heildsöluaðila en smá-
söluaðila.
Hagræðing ein af ástæðunum
Björn segir að ein af ástæðunum fyr-
ir því af hverju valið var að ganga
til samninga við eitt fyrirtæki um
matarkaupin hafi einnig verið að
talið hafi verið betra að samræma
innkaupastefnu bæjarins af hag-
ræðingarástæðum. Meðal annars
vegna þess að 15 prósent af öllum
reikningum Kópavogsbæjar á síð-
asta ári, um 8.000 reikningar, hafi
verið vegna matarkaupa leikskóla
bæjarins. Björn segir að það að
versla við einn aðila sé einnig mik-
ill vinnusparnaður fyrir matráðana
í leikskólunum sem fái nú eina eða
tvær matarsendingar í viku en ekki
margar sendingar auk þess sem
mikið sparist í pappírskostnaði
með að fá reikningana senda frá
færri aðilum.
Ekkert útboð fór fram
Kópavogsbær ákvað því í kjölfarið
að leita til þriggja smásölufyrirtækja
eftir samningum um matarkaupin:
Bónuss, Nettó og Krónunnar. Björn
segir að ástæðan fyrir því að geng-
ið hafi verið til samninga við Krón-
una sé að fyrirtækið hafi boðið upp
á heimsendingu á matvörunni sem
og rafræn skil á reikningum. Þetta
hafi Bónus hins vegar ekki get-
að gert og því hafi verið gengið til
samninga við Krónuna.
Björn segir hins vegar að ekkert
eiginlegt útboð hafi farið fram á mat-
arkaupunum áður en ákveðið var að
ganga til samninga við Krónuna.
föstudagur 26. júní 200918 Fréttir
Vaxtalaus
þjónustulán
0% vextir!
í allt að 12 mánuði
Þegar nauðsynlegt er að ráðast í viðhald eða viðgerðir á bíl frá HEKLU borgar sig að leita
ekki langt yfir skammt. HEKLA býður nú upp á vaxtalaus lán til að standa undir kostnaði á
viðgerðum*. Þannig getur þú tryggt endingu og öryggi bílsins án þess að það setji stórt strik
í heimilisbókhaldið. Pantaðu tíma hjá þjónustudeildum HEKLU strax í dag í síma 590 5030.
Hér tökum við á móti þínum bíl
*h
ám
ar
ks
up
ph
æ
ð
á
va
xt
al
au
su
m
g
re
ið
sl
uk
or
ta
sa
m
ni
ng
i e
r 5
00
.0
00
k
r.
og
lá
gm
ar
ks
up
ph
æ
ð
er
k
r.
60
.0
00
. L
án
tö
ku
gj
al
d
er
3
%
.
Atvinnubílar
LAUGAVEGUR
168 170-172 174
N
Ó
AT
Ú
N
BRAUTARHOLT
SKODA
MITSUBISHI AUDI
VOLKSWAGEN
Laugavegi 168-174 · 590 5000 · hekla.is · hekla@hekla.isÞjónustuver og þjónustumóttökur eru opnar frá 8-18 alla virka daga · Pantanasími 590 5030 · thjonusta@thjonusta.is
Stjórnendur leikskóla Kópavogs hafa fengið tilmæli um það frá innkaupadeild bæjarins að þeir versli við
Krónuna. Samningur um matarkaupin hefur verið gerður við Krónuna án þess að útboð hafi farið fram. Að
mati innkaupastjóra Kópavogsbæjar er hagstæðara að eiga viðskipti við smásöluaðila en heildsölur. Reykja-
víkurborg verslar hins vegar að mestu við heildsölur.
sagt að kaupa í krónunni
„Við erum ekki að pína
einn né neinn til að eiga
í viðskiptum við Krón-
una.“
IngI F. VIlHjálmsson
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
leikskólinn Arnarsmári Innkaupastjóri
Kópavogsbæjar segir að ekki sé verið að
pína stjórnendur leikskóla Kópavogsbæjar
til að versla við Krónuna þó að þeim
tilmælum hafi verið beint til þeirra.
ATH sAmsETT mYnD