Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.2009, Qupperneq 26

Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.2009, Qupperneq 26
Vitlaus slagorð! Svarthöfði hefur lengi rann-sakað þann gerviveruleika sem fyrirtæki reisa í kringum ímynd sína til að tæla al- menning til fylgis við sig. Sum slag- orðin reynast nefnilega vera hrein andstæða við raunveruleikann. V irðing, réttlæti“ eru til dæmis einkennisorð verkalýðsfélagsins sem hefur sýnt mesta virðing- arleysi og óréttlæti allra verkalýðsfé- laga. Gunnar Páll Pálsson, formaður Virðingar/réttlætis, ákvað að fella niður persónulegar ábyrgð- ir starfsmanna Kaupþings á sjálfkúlulánum sem ætlað var að blekkja upp hlutabréfaverð. Sjálfur sýndi hann umbjóðendum sínum, búðar- starfsmönn- um, þá fádæma virðingu að taka sér banka- stjóralaun sem eru margföld á við laun búðarstarfsfólks. Hans laun hækkuðu um 63% á meðan fólkið sem hann sýndi virðingu og réttlæti fékk bara 14% hækkun. Ef slagorð- ið hefði verið satt hefði það verið óvirðing og óréttlæti. K B banki skreytti sig með fullyrðingunni „traustur banki“. Eftir að hann fór á hausinn í haust lærðu allir að þetta var í reynd ótraustur banki. Og kannski meira eins og vogunar- sjóður en banki. Landsbankinn var einna snjallastur í sínum áróðri þegar hann full-yrti að viðskiptavinir fengju „aukakrónur, þær koma bara“. Í sjónvarpsauglýs- ingunum mátti sjá að taumlausar aukakrón- urnar hundelta saklaust fólk á götum úti og sitja um það á vinnu- stöðum. Nú er ljóst að þessar sturl- uðu aukakrónur komu frá Hollandi, Bretlandi og jafnvel Finnlandi, í 650 milljarða króna heimsyfirráðaplotti sem heitir Icesave. Sparisjóðurinn Byr er einna kræfastur. Á sama tíma og hann auglýsti að takmark hans væri „fjárhagsleg heilsa“ viðskiptavina sinna stund- aði hann fjárhagslegt fjöldamorð á þeim. Hann hækkaði húsnæðislán fólks um 20% á einu ári. Glitnir hafði álíka ósvífna nálgun þegar hann full-yrti: „Fjárhagsleg vel-gengni þín er okkar verk- efni.“ Hvers vegna er Glitnir þá að hirða íbúðir og bíla af fjölda við- skiptavina, þegar þeir gátu ekki lengur borgað lánin sem hann hækkaði? Það mætti halda að verkefni bankans hafi þvert á móti verið að svipta fólk eign- um sínum. Enda er sann- leikurinn um banka sá að þeir græða á að taka eignir af fólki. Glitnir má eiga það að hann sagði sannleikann af gáleysi árið 2006, þegar hann fór í samstarf við Krabba- meinsfélagið undir slagorðinu: „Hættan er ljós.“ föstudagur 26. júní 200926 Umræða Sandkorn n Þrátt fyrir að LÍÚ-forkólfum og mörgum útgerðarmönnum lítist bölvanlega á fyrningar- leiðina sem stjórnvöld hafa boðað geta þau huggað sig við að eiga skoðanabróður í sum- um málum í hlutverki sjávarút- vegs- og landbúnað- arráðherra. Jón Bjarna- son hefur lýst sig and- vígan aðild- arumsókn að ESB, sem hefur verið eitur í beinum LÍÚ, auk þess sem hann hefur sagt að ekki verði ráðist í breytingar á fiskveiðistjórnuninni nema í sátt við þá sem eiga hagsmuna að gæta í greininni. Eins og sjá má í DV í dag eru skiptar skoð- anir um ágæti fyrningarleiðar en heldur fleiri fylgjandi henni en andvígir. n Þrátt fyrir þá hörðu gagnrýni sem Útlendingastofnun og starfsmenn hennar hafa mátt þola finnast þeir sem vilja gegna starfi forstjóra stofn- unarinnar í fjarveru Hildar Dungal, sem er í leyfi frá störf- um. Dóms- og kirkjumála- ráðuneytið auglýsti forstjóra- stöðuna lausa til umsóknar í hálfs árs afleysinga- vinnu og urðu fjórir lögfræð- ingar til að sækja um starfið. Þau eru Elín Jónsdótt- ir, Hreiðar Eiríksson, Jóhann Baldursson og Rósa Dögg Flosadóttir. Hreiðar er sá eini af umsækjendunum sem vinnur á Útlendingastofnun en hin eru áhugasöm um að ganga til liðs við þessa einna umdeildustu stofnun landsins, þó tímabundið sé. n Þeir sem starfa að góðgerð- armálum þekkja að það getur reynst þrautin þyngri að fá fé til starfseminnar, sérstak- lega þegar þjóðfélög ganga í gegnum samdrátt í efnahags- lífinu og hvað þá hreinræktaða kreppu eins og þá sem Íslend- ingar upp- lifa núna. Þeir eru þó enn til sem vilja leggja sitt af mörk- um eins og sést á því að Emil Hallfreðs- son er nú búinn að ákveða að bjóða upp treyju brasilíska knattspyrnusnillingsins Kaká, sem hann fékk eftir viður- eign þeirra í ítölsku deildinni í fyrra. Emil og Kaká léku þá með Reggina og AC Milan en Kaká hefur síðan þá verið seldur til Real Madrid fyrir metfé. Treyja Kaká, sem hann gaf Emil, er nú til uppboðs á fótboltavefnum Fotbolti.net og er lægsta boð hundrað þúsund krónur en áskilið að fjárhæðin fer öll til góðgerðarmála. LyngháLs 5, 110 reykjavík Útgáfufélag: útgáfufélagið Birtíngur ehf. Stjórnarformaður: hreinn Loftsson framkvæmdaStjóri: elín ragnarsdóttir ritStjórar: jón trausti reynisson, jontrausti@dv.is og reynir traustason, rt@dv.is fréttaStjórar: Brynjólfur Þór guðmundsson, brynjolfur@dv.is og Þórarinn Þórarinsson, toti@dv.is auglýSingaStjóri: ásmundur helgason, asi@birtingur.is dv á netinu: dv.is aðalnÚmer: 512 7000, ritStjórn: 512 7010, áSkriftarSími: 512 7080, auglýSingar: 512 70 50. umbrot: dv. Prentvinnsla: Landsprent. dreifing: árvakur. dv áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. „Við ákváðum að taka þetta nafn upp þessum gömlu kempum til minningar og heiðurs.“ n Magnús Ver Magnússon sem var að opna kraftaklúbbinn Jakaból en í þeim fyrri stigu menn eins og Jón Páll sín fyrstu skref. – DV. „Tveir menn að ræða alteregóin saman.“ n Gunnar Hansson um samtal sitt við Frank Hvam þar sem þeir ræddu um persónur sínar úr þáttunum Sigtið og Klovn. Gunnar undirbýr þátt um grín á Norðurlöndunum. – Fréttablaðið „Við getum alls ekki kvartað yfir þessu.“ n Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari um riðilinn sem Ísland dróst í á EM í handbolta. Á pappírunum auðveldasti riðillinn. – Morgunblaðið. „Þetta er ein veisla.“ n Árni Johnsen um kalkúnana sjö sem hann er að rækta ásamt félögum sínum í Bjarnarey. – Fréttablaðið. „Hollywood-þema með indverskum mat.“ n Logi Geirsson um partí ársins sem hann heldur ásamt Björgvini Gústavssyni landsliðsmarkmanni vegna hárgelsins The Silver. – Fréttablaðið. Stétt strútanna Leiðari Góðu áhrifin af hruninu áttu að verða þau að við myndum, sem einstakl-ingar og þjóð, endurskoða hug okkar til margra mála og hugðarefna okk- ar. Þannig sáu margir fyrir sér að fram færi mik- il hugarfarsleg endurnýjun þar sem við lærð- um af mistökum okkar og byggjum í haginn fyrir framtíðina. Já, þrátt fyrir allar hörmungar hrunsins fór ekki svo að við kæmum ekki auga á björtu hliðarnar. Og vissulega höfum við orðið vör við marg- víslega hugarfarsbreytingu, einkum og sér í lagi hjá almenningi sem á kannski ekki annarra kosta völ. Þetta birtist meðal annars í breyttum neysluvenjum en ekki síður í vaxandi áhuga fólks á þjóðfélagsmálum og þátttöku í mótmæl- um svo dæmi séu tekin. Við getum ekki fullyrt hversu víðtæk þessi hugarfarsbreyting almenn- ings er eða hvert hún skilar okkur en við verð- um þess vör að hún á sér stað. En þá kemur að þeim sem ráða ferðinni. Fólkinu sem stendur ekki á Austurvelli og bein- ir kröfum sínum að fólkinu á Alþingi heldur þingmönnunum á bak við múrsteina og gler- rúður. Ein spurning vaknar furðu oft þegar ég fylgist með umræðum á Alþingi, hlusta á orð þingmanna og horfi á látbragð þeirra: Lærðu stjórnmálamennirnir virkilega ekkert af hrun- inu? Við horfum upp á sömu leiksýningarnar í ræðustól Alþingis eftir hrun og við horfðum upp á fyrir hrun. Við hlýðum á málflutning sem gef- ur okkur á köflum ekki ástæðu til að ætla ann- að en að enn séu flokkshagsmunir eða skipting í stjórn og stjórnarandstöðu of oft ráðandi þátt- ur í ákvarðanatöku manna. Enn og aftur verð- um við vitni að því að stjórnmálamenn eru upp til hópa ófærir um að taka þátt í málefnalegri umræðu og reyna um of að slá keilur, tala í fyr- irsögnum og koma höggi á andstæðinginn frek- ar en að rökræða málin skynsamlega. Hver get- ur borið virðingu fyrir mönnum og konum sem bera sig svona að? Enda glatar Alþingi virðingu sinni jafnt og þétt. Virðingu sem fæst ekki eða glatast eftir því hvort þingmenn beri bindi eður ei. Virðingu sem hefur ekkert með það að gera hvort talað er um háttvirta þingmenn og hæst- virta ráðherra eða Bjarna og Jóhönnu og Stein- grím J. Virðingu sem fæst aðeins með vitsmuna- legri stjórnmálaumræðu en við verðum því miður svo oft vitni að á Alþingi. Því þar til stjórn- málastéttin hættir að stinga höfðinu í sandinn og viðurkennir að hún þurfi að taka upp betri siði, málefnalegri umræður og afstöðu byggða á einhverju haldbærara en metnaði og skotgrafa- hernaði eykst virðingin ekki. Eða hvað varð um loforðið um opnari stjórn- sýslu og minni leynd? Hvað varð um fyrirheitin um að færa almenningi aftur völdin? Hvað varð um öll fögru orðin um að líta í eigin barm og endurmeta stefnu og starfsaðferðir? Af hverju gleymdist þetta allt 26. apríl, daginn eftir kosn- ingar? brynjólfur þór guðmundsson fréttastjóri skrifar. Lærðu stjórnmálamennirnir virkilega ekkert af hruninu? bókStafLega Ég vil ekki vera lúser Tveir menn, sem voru nokkuð áber- andi í Austurstrætinu núna síðustu árin, höfðu þann háttinn á að heilsa mér alltaf af einlægri kurteisi. Ann- ar var klæddur einsog melludólgur í suðuramerískri bíómynd og hinn var klæddur einsog leðurjakkatöff- ari frá bresku fiskiplássi eða kola- námu. Og nú eru þeir horfnir úr strætinu báðir tveir, Björgólfur Guð- munds og Lalli Johns. Annar er á bak við lás og slá en hinn lætur ekki sjá sig í strætinu. Ég nefni þá félaga hérna vegna þess að þeir tilheyra tíma sem ég sakna. Þeir eru eðalmenni. Ég vil ekki vera lúser og ég sakna þess þeg- ar allir Íslendingar voru sigurvegar- ar, jafnvel þótt þetta hefði allt verið plat. Já, jafnvel þótt útrásarvíkingar flýi nú land og jafnvel þótt „Aum- ingja Siggi hann þorir ekki heim“ hafi öðlast alveg nýja merkingu. Ég gef eiginlega skít í allar fjand- ans skýringarnar sem menn eru að flíka þessa dagana. Og þá er mér ná- kvæmlega sama hvort menn eru að tala um Icesave, rannsókn sérstaks saksóknara eða hvað allt þetta kjaft- æði nú kallast. Það má setja mann sem stelur poka af kartöfluflögum í gæsluvarðhald og loka hann inni í langan tíma fyrir það eitt að hafa sýnt maga sínum örlitla virðingu á kostn- að heiðarleikans. En svo eru alvöru glæpamenn stikkfrí og hvarflar varla að nokkrum manni að nefna það að koma þeim bakvið lás og slá. Hérna þarf að fara að svipta dul- unni af réttlætinu – opinbera, þótt ekki væri nema ögn af mannlegri einlægni, sanngirni, heiðarleika og reisn. En slíkt verður einungis gert með því að leyfa okkur öllum að taka þátt í samfélaginu á nákvæm- lega sömu forsendunum. Og hvað er með allt þetta sem er velt yfir á okkur sem höfum akkúr- at ekkert til saka unnið? Ég er bara venjulegur maður, ég hef séð af nán- ast öllum verkefnum sem til stóð að framkvæma á því ári sem núna er hálfnað. Ég er samt sem áður tilbú- inn til að axla ábyrgð og taka þátt í því að byggja hérna upp. En ég hlýt að gera þá kröfu að breiðu bökin og miklu magarnir fáu einhverja betri útreið en niðurgreidda stólpípu og endalausar krásir af nægtaborði for- tíðar. Já, hvað með þennan bévítans hátekjuskatt. Hversvegna í andskot- anum er ekki hægt að hafa hann 20% eða allavega öllu hærri en hann er áætlaður í dag? Hvern er eiginlega verið að vernda? Núna hljóta ragn og raus úr reiðikistu minni hann sem gengur hérna laus og hinn sem situr inni. kristján hreinsson skáld skrifar „Ég gef eiginlega skít í allar fjandans skýringarnar sem menn eru að flíka þessa dagana.“ SkáLdið Skrifar
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.