Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.2009, Side 33
föstudagur 26. júní 2009 33Helgarblað
„Því fylgir alltaf álag þegar einn úr fjölskyld-
unni er í stjórnmálum. Áreitið er stöðugt og
það er sjaldnast friður,“ segir Ágústa Johnson,
framkvæmdastjóri Hreyfingar, en Ágústa er
eiginkona Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, alþing-
ismanns Sjálfstæðisflokks og fyrrverandi heil-
brigðisráðherra.
Ágústa stóð þétt við hlið síns manns í gegn-
um allan þann ólgusjó sem síðustu mánuðir
hafa verið fyrir Guðlaug Þór, íslenska efnahags-
kerfið og landið í heild sinni. Þegar bankarnir
hrundu var engum hlíft og þegar hið svokall-
aða styrkjamál Sjálfstæðisflokksins kom upp
beindust öll spjót að Guðlaugi.
Vegið að hennar manni
Um páskana komst upp um milljónastyrki sem
Sjálfstæðisflokkurinn hafði þegið og var Guð-
laugur Þór harkalega gagnrýndur fyrir aðild
sína að málinu. Styrkjamálið vakti mikla reiði
og veikti stöðu Guðlaugs sem féll fyrir vikið
niður um sæti í alþingiskosningunum vegna
útstrikana.
Ágústa er allt annað en sátt við gagnrýnina
sem Guðlaugur fékk og segir að vegið hafi ver-
ið að hennar manni. „Helstu kostir Guðlaugs
eru hversu heiðarlegur og pottþéttur hann
er. Þarna sá ég hve auðvelt er að koma af stað
ósannindum um fólk og afar erfitt að verjast
því þegar slík rógsherferð er farin af stað. Það
þarf svo lítið til að hefja neikvæða umræðu og
eftir að bloggið varð vinsælt er hægt að rústa
mannorði fólks með kjaftagangi einum sam-
an sem oft á tíðum er á engum rökum reistur.
Guðlaugur taldi sig vera að hjálpa flokknum
en hann hefur aldrei komið nálægt fjármál-
um flokksins og aldrei vitað neitt um þau mál.
Flokkurinn stóð illa fjárhagslega og hann
hringdi nokkur símtöl til að hvetja menn til að
afla fjár fyrir flokkinn.
Á þessum tíma lá hann með alvarleg bruna-
sár á sjúkrahúsi og átti enga von á að þetta
kæmi í bakið á honum eins og raun bar vitni.
Mér fannst þetta afskaplega ljótt og ósann-
gjarnt. Því miður var oft farið ranglega með
staðreyndir í fjölmiðlum og erfitt að leiðrétta
slíkt þegar það hefur verið birt,“ segir hún og
bætir við að stuðningur innan flokksins hefði
mátt vera meiri.
„Það var margt mjög rætið sem gekk nafn-
laust á blogginu og margir af hans samherj-
um hefðu að mínu mati alveg mátt styðja hann
betur. Mér fannst þetta styrkjamál blásið mik-
ið upp og reynt að búa til eitthvað meira úr því
en það í raun var. Það kom vel í ljós síðar þegar
upp komst um svipað athæfi Samfylkingarinn-
ar. Þá var áhugi fjölmiðla ekki mikill á málinu.
Það var að mínu mati mjög áberandi og lýsandi
á hversu ólíkan hátt fjölmiðlar nálguðust þessi
mál.“
Þrýsti á guðlaug að hætta
Ágústa segir að styrkjamálið hafi gengið svo
nærri Guðlaugi um tíma að hún hafi viljað
að hann hætti í pólitík og myndi snúa sér að
öðru.
„Ég þrýsti á hann að hætta því mér finnst
ekki þess virði að leggja sig fram við hlutina
þegar þú færð bara skít og leiðindi að launum.
Hann hugsaði sig vel um en pólitíkin er hans líf
og yndi og honum fannst ekki koma til greina
að hætta. Auðvitað skemmdi þetta fyrir honum
að vissu leyti en við höfum fundið fyrir gríð-
arlegum stuðningi frá öllum hans góðu liðs-
mönnum sem hefur verið ómetanlegur styrkur.
Guðlaugur hefur verið afskaplega virkur í sam-
skiptum við grasrótina og hann hefur mikla
ánægju af því að vera í samskiptum við fólk.
Hann verður fljótur að ná sínum fyrri styrk og
er nú þegar kominn í góðan gír þótt í stjórnar-
andstöðu sé. Það mun svo koma í ljós hve lengi
þessi ríkisstjórn hangir, það getur allt gerst í
pólitíkinni.“ Spurð um skoðun sína á styrkjum
segir Ágústa að styrkir hafi alltaf verið til staðar
og þurfi að vera svo stjórnmálaflokkar geti ver-
ið starfræktir.
„Í flestum tilfellum eru það stuðningsmenn
sem leggja, oftast fremur lágar upphæðir, af
mörkum og aldrei nokkurn tíma á þeim tíma
sem ég hef fylgst með hef ég orðið vör við að
þeim fylgi einhverjar skuldbindingar. Eins veit
ég að Gulli myndi aldrei láta setja sig í ein-
hverja slíka strengi. Hann vinnur ekki þannig
enda komast menn ekki langt á þann hátt.“
rækta hjónabandið
og fjölskyldulífið
Ágústa segir álagið á fjölskylduna hafa verið
mikið á þessu tímabili. „Auðvitað reyndi þetta
talsvert á okkur. En við ýmsu má búast, það
getur allt gerst í pólitík,“ segir hún og bætir við
að þau hafi rætt við eldri börnin um það sem
var að gerast og sér í lagi þegar umræðan var
neikvæð í garð Guðlaugs.
„Það hefur ýmislegt gengið á og við vitum
ekki alltaf hvað þau heyra í sínu umhverfi og
viljum að þau séu vel upplýst. Við getum ekki
greint að þetta hafi haft neikvæð áhrif á þau
sem betur fer. Við erum samheldin sem fjöl-
skylda og leggjum okkur fram um að stilla frí-
tíma okkar saman til að gera eitthvað skemmti-
legt, það er einfaldlega nauðsynlegt til að
rækta hjónabandið og fjölskyldulífið. Við erum
dugleg að stunda útivist eins og hjólreiðar og
göngu og skreppum í styttri og lengri ferðir út
á land. Einn af ókostunum við stjórnmálin er
sá að það er sjaldnast hægt að skipuleggja fram
í tímann því við vitum yfirleitt ekki hvenær við
komumst í frí.“
eignaðist tVíbura 38 ára
Ágústa og Guðlaugur Þór kynntust árið 1997 en
þá tóku þau þátt í prófköri fyrir borgarstjórnar-
kosningar og deildu, ásamt Baltasar Kormáki
og Eyþóri Arnalds, kosningaskrifstofu.
„Hugmyndin var að fá ungt fólk úr atvinnu-
lífinu í borgarpólitíkina og ég endaði sem vara-
maður í borgarstjórn. Eftir að hafa rekið fyrir-
stolt af honum
„Á þessum tíma lÁ Hann
með alvarleg brunasÁr Á
sjúkraHúsi og Átti enga
von Á að þetta kæmi í bak-
ið Á Honum eins og raun
bar vitni. mér fannst
þetta afskaplega ljótt
og ósanngjarnt.“
glæsileg Ágústa
ber aldurinn vel og
er ein af glæsilegri
konum landsins.
mynd heiða helgadóttir
falleg fjölskylda guðlaugur og
Ágústa ásamt tvíburunum Þórði Ársæli
og sonju dís og önnu Ýr dóttur Ágústu.
Á myndina vantar rafn franklín.
mynd bragi Þór jósefsson