Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.2009, Síða 36
föstudagur 26. júní 200936 Helgarblað
Best klæddu karlar landsins
Björn sveinbjörnsson ntC
„Herra tíska í strákaheiminum og veit nákvæmlega hvað
klukkan slær. Hann er samt ekki yfirdressaður eins og gerist
með marga í þeim bransa.“
„Kærastinn hennar svövu í 17 klæðir sig strákslega. Er töffari án
þess að kalla eftir athyglinni og fer aldrei yfir strikið.“
„Bjössi er auðvitað alltaf flottur til fara. Einstaklega smekklegur,
mætti reyndar fara meira í liti.“
„Bjössi hennar svövu í 17 er alltaf flottur.“
Ásgrímur Már Friðriksson fatahönnuður
„flottur, með stíl sem maður hefur ekki séð áður.“
„alltaf smart og hefur auga fyrir því sem er flott.“
„sætur og flottur og lætur engan segja sér í hverju hann á að
vera. Velur sér alls konar föt í alls konar búðum.“
Gunnar Hilmarsson hönnuður
„Langflottast klæddur. alltaf. trendsetter sem þorir og leggur
línurnar fyrir hina. Vildi að það væri fleiri eins og hann.“
„alltaf í nýjustu tísku en mætti klippa á sér hárið.“
„Hefur þennan kúl stíl. Hugsar um að honum líði vel, strigaskór
við allt. svona james Bond-gæi.“
eiður smári Guðjohnsen knattspyrnumaður
„alltaf smart og þorði að mæta í bleikri skyrtu hér um árið fyrstur
manna.“
„Oftast fyrir okkar augum í fótboltabúning en hefur sérlega
afslappaðan og smart fatasmekk. Klæðir sig flott við hvert tilefnið.
jafnflottur í jakkafötum og gallabuxum og bol.“
„Með spaðalúkkið á hreinu og nennir að hafa fyrir því að vera töff.“
logi Geirsson handboltakappi
„Logi er alveg með þetta, nett kærulaus og ekki of stífur en samt
smart. Meira að segja hárið er tipp topp. flottur frá toppi til táar.“
„Mikill tískuáhugamaður og hugsar ekki bara um hárið sem hann
hefur alltaf vel stælað með gelinu silver. Ekki þessi jakkafatatýpa
heldur meira afslappaður.“
svavar Örn tískulögga
„alltaf með útlitið á hreinu án þess að hafa nokkuð fyrir því.“
„alltaf flott klæddur, alveg sama hvort hann er í vinnu eða úti á
lifinu...hann hefur svona gucci-stíl!“
Henrik Björnsson singapore sling
„Kom támjóum skóm, þröngum gallabuxum og sólgleraugum
innandyra á tískukortið. stendur alltaf við sama 60’s rokk og ról
lúkkið sem er svalt.“
„töff týpa, svartur og spaðalegur.“
kormákur og skjöldur
„ansi flottar týpur sem fara ótroðnar slóðir. skemmtilega
íhaldssamir með nettan húmor fyrir sjálfum sér. smart og taka
sinn stíl alla leið.“
„nostalgía og fyrri tíma. herramenn. nenna að hafa fyrir
hlutunum.“
Vilhjálmur Vilhjálmsson lögfræðingur
„alltaf flottur í tauinu, klassiskur og flottur í heild sinni.“
„flottur og snyrtilegur. alltaf jafnmikill kynþokki yfir honum. Veit
nákvæmlega hvað hann vill og tekst vel til.“
M
yn
d
V
a
ll
i