Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2009, Síða 13
Föstudagur 3. júlí 2009 13Fréttir
STARFSMENN KAUPÞINGS FENGU 23,5 MILLJARÐA
hELSTU LáN
hREIÐAR MáR
SIGURÐSSON
2,7 MILLJARÐAR
SIGURÐUR
EINARSSON
2,6 MILLJARÐAR
MAGNÚS
GUÐMUNDSSON
2,3 MILLJARÐAR
INGÓLFUR
hELGASON
1,7 MILLJARÐAR
INGVAR
VILhJáLMSSON
1,7 MILLJARÐAR
ÞORVALDUR L.
SIGURJÓNSSON
1,6 MILLJARÐAR
áRMANN
ÞORVALDSSON
1,5 MILLJARÐAR
STEINGRÍMUR
KáRASON
1 MILLJARÐUR
KRISTJáN
ARASON
893 MILLJÓNIR
FROSTI REYR
RÚNARSSON
472 MILLJÓNIR
hELGI
SIGURÐSSON
450 MILLJÓNIR
BJARKI
DIEGO
647 MILLJÓNIR
SVALI
BJÖRGVINSSON
375 MILLJÓNIR
GUÐNý ARNA
SVEINSDÓTTIR
582 MILLJÓNIR
STARFSMAÐUR: STAÐA hJá KAUPÞINGI: UPPhæÐ Í LáNABÓKINNI
Í MILLJÓNUM
SVÖR:
Ármann Harri Þorvaldsson Forstjóri singer og Friedlander (dótturfélag) 1.456,80 Ekki náðist í hann
Bjarki H. diego Framkvæmdastjóri útlána 646,9 Vildi ekki tjá sig
Friðrik stefán Halldórsson Framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs 300,4 tjáði sig
Frosti reyr rúnarsson Forstöðumaður verðbréfamiðlunar 472,1 Ekki náðist í hann
guðni Níels aðalsteinsson Framkvæmdastjóri fjárstýringar 416,7 Ekki náðist í hann
guðný arna sveinsdóttir Framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs 581,6 Vildi ekki tjá sig
Hafliði Kristjánsson Framkvæmdastjóri lífeyris- og tryggingasviðs 344 tjáði sig
Hannes Frímann Hrólfsson aðst.framkvæmdastjóri fjárstýringar og markaðsviðskipta 405,1 Vildi ekki tjá sig
Heikki juhani Niemelae Forstjóri Kaupþings í Finnlandi 518,7 Ekki reynt að ná í hann
Helgi sigurðsson Yfirlögfræðingur Kaupþings 449,5 Vildi ekki tjá sig
Helgi Þór Bergs Framkvæmdastjóri Kaupþings í lundúnum 1.091,10 Ekki náðist í hann
Hreiðar Már sigurðsson Forstjóri Kaupþings á íslandi 2.734,40 Ekki náðist í hann
Ingólfur Helgason Forstjóri Kaupþings 1.708,30 Vildi ekki tjá sig
Ingvar Vilhjálmsson Framkvæmdastjóri markaðsviðskipta 1.662,30 Ekki náðist í hann
johnie Wilson Brögger Framkvæmdastjóri hjá Kaupþingi í lúx 859,6 Ekki reynt að ná hann
Kristján arason Framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs 893,2 tjáði sig
Magnús guðmundsson Forstjóri hjá Kaupþingi í lúx 2.271,60 Ekki reynt að ná í hann
sigurður Einarsson stjórnarformaður Kaupþings 2.636,70 Ekki náðist í hann
stefán Ákason Forstöðumaður skuldabréfamiðlunar 298,4 Ekki náðist í hann
steingrímur P. Kárason Framkvæmdastjóri áhættustýringar 1.013,80 Ekki náðist í hann
svali Björgvinsson Framkvæmdastjóri starfsmannasviðs 375,2 tjáði sig
Þorvaldur lúðvík sigurjónsson Framkvæmdastjóri eigin viðskipta á íslandi 1.613,50 Vildi ekki tjá sig undir nafni
Þórarinn sveinsson Framkvæmdastjóri útlána 742,8 Vildi ekki tjá sig
Heild: 22 Heild: 23.492,7
Listinn yfir Lán tiL 22 starfsmanna Kaupþings í LoK júní sumarið 2006. Listinn breyttist vitanLega á næstu tveimur árum, fram að
banKahruninu. einhverjir hættu í banKanum, tiL dæmis þorvaLdur LúðvíK sigurjónsson, og nýir starfsmenn Komu í staðinn. List-
inn veitir því eKKi heiLdaryfirLit yfir Lán tiL starfsmanna banKans við banKahrunið í haust þó Listinn sé sá sami að mestu Leyti.
KÚLULáN STARFSMANNA KAUPÞINGS
forstjórinn á íslandi tjáir sig ekki
DV hefur gengið erfiðlega að fá aðra
fyrrverandi starfsmenn, sem fengu
lánin, til að tjá sig um þau. Ingólfur
Helgason, forstjóri Kaupþings á Ís-
landi, vildi aðspurður ekki tjá sig um
lánveitingarnar. Í lánabókinni kemur
fram að Ingólfur fékk rúmlega 1700
milljóna króna lán til að kaupa hluta-
bréf í bankanum. Hann rekur nú ráð-
gjafafyrirtækið Consolium ásamt
Hreiðari Má Sigurðssyni, fyrrverandi
forstjóra Kaupþings-samstæðunnar á
Íslandi.
Samkvæmt lánabók Kaupþings frá
sumrinu 2006 var Hreiðar Már með
rúmlega 2,7 milljarða lán til hluta-
bréfakaupa í Kaupþingi. Hreiðar átti
hins vegar hluti í Kaupþingi sem námu
tæpum 6,4 milljörðum samkvæmt árs-
reikningi eignarhaldsfélags árið 2007
ásamt rúmum 120 milljónum króna
í Exista. Í ársreikningi kemur fram að
eignarhlutir Hreiðars í Kaupþingi og
Exista hafi verið veðsettir til trygging-
ar skuldum eignarhaldsfélagsins sem
námu samtals rúmum 4,2 milljörðum
í árslok 2007. Þessar langtímaskuldir
eignarhaldsfélags Hreiðars eru í árs-
reikningnum sagðar vera kúlulán til
greiðslu á árinu 2011.
Hreiðar og Ingólfur voru í umræð-
unni í lok maí þegar gerð var húsleit
hjá Consolium vegna rannsóknar-
innar á kaupum sjeiksins Al-Thanis á
hlutabréfum í Kaupþingi skömmu fyr-
ir bankahrunið í haust. DV hefur held-
ur ekki náð í Hreiðar til að spyrja hann
út í réttmæti lánveitinganna.
þrír á listanum fóru í skilanefnd
Kaupþings
Margir af þeim sem eru á listanum
hafa verið nokkuð í fréttum frá efna-
hagshruninu í haust. Til að mynda var
greint frá því þegar skilanefnd var skip-
uð yfir Kaupþing eftir að Fjármálaeftir-
litið tók bankann yfir að Bjarki Diego,
sem verið hafði framkvæmdastjóri
útlána í bankanum, og Guðný Arna
Sveinsdóttir, sem var yfir fjármála- og
rekstrarsviði bankans, hefðu verið ráð-
in í skilanefndina. Bjarki var með tæp-
lega 650 milljóna króna lán samkvæmt
lánabókinni frá sumrinu 2006 og Guð-
ný Arna var með rúmar 580
milljónir.
Þau hættu þó í skilanefnd
bankans í kringum 20. október, tæp-
um tveimur vikum eftir að hann hafði
verið yfirtekinn af Fjármálaeftirlit-
inu, og tóku við störfum í Nýja Kaup-
þingi. Bjarka og Guðnýju var svo gert
að hætta í bankanum um áramótin
ásamt Þórarni Sveinssyni, sem einnig
er á listanum með rúmlega 740 millj-
óna króna lán, og Jónasi Sigurgeirs-
syni og Benedikt Sigurðssyni, sem ekki
eru á listanum. Guðný vildi ekki tjá sig
um lánveitingarnar í samtali við DV og
Bjarki ekki heldur en sagði þó að lán-
ið hefði verið á hans kennitölu við fall
bankans í haust. Persónuleg ábyrgð
Bjarka fyrir láninu hefur því líkast til
verið felld niður þann 25. september
síðastliðinn.
Þegar Bjarki og Guðný hættu í skila-
nefndinni var annar maður á listan-
um úr lánabókinni ráðinn inn í skila-
nefndina, Guðni Níels Aðalsteinsson.
Guðni er ennþá í skilanefndinni en
hann hafði fengið samtals 417 millj-
óna króna lán til hlutabréfakaupa
samkvæmt lánabókinni.
þeir heppnu voru hættir
Flestir þeirra sem eru á listanum frá
sumrinu 2006 voru ennþá starfandi í
bankanum þegar hann var tekinn yfir
af Fjármálaeftirlitinu í haust. Hins veg-
ar eru að minnsta kosti þrír sem hættu
í bankanum fyrir hrunið. Þorvaldur
Lúðvík Sigurjónsson, sem er skráður
með rúmlega 1600 milljóna króna lán,
hætti hjá Kaupþingi í september 2006
og stofnaði fjárfestingabankann Saga
Capital fljótlega þar á eftir og er for-
stjóri bankans í dag. Þorvaldur vill að-
spurður ekki láta hafa neitt eftir sér um
lánveitingarnar. Hins vegar má reikna
með að Þorvaldur hafi grætt hundruð
milljóna króna þegar hann lét af störf-
um og seldi hlutabréf sín í bankanum.
Heimildir DV herma að Þorvaldur hafi
verið rekinn úr Kaupþingi og má að
sumu leyti segja að það hafi verið lán
í óláni fyrir hann vegna þess að Saga
Capital lifir enn eftir að hafa fengið
lánafyrirgreiðslu frá ríkinu á meðan
Kaupþing féll í haust.
„Að einhverju leyti
voru þetta of háar
fjárhæðir eftir á
að hyggja, það er
ekki spurning.“