Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2009, Qupperneq 15
Föstudagur 3. júlí 2009 15Helgarblað
„ÍSLENDINGANA
SKORTI REYNSLU“
„Ég var ekki á móti kaupum Kaup-
þings á Singer & Friedlander árið
2005. Ég taldi kauptilboð Kaup-
þings í bankann mjög gott fyrir
hluthafa Singer & Friedlander. Það
var skylda mín að hámarka hagnað
hluthafa,“ segir Tony Shearer sem
var forstjóri Singer og Friedlander
árið 2005 þegar Kaupþing keypti
breska bankann.
Sigurður Einarsson, fyrrverandi
stjórnarformaður Kaupþings, hef-
ur gagnrýnt Shearer fyrir að hafa
fullyrt á fundi við breska fjármála-
eftirlitið í upphafi ársins að stjórn-
endur Kaupþings hafi verið óhæfir
til að reka banka í Bretlandi. Sagði
Sigurður að Shearer hefði sagt
þetta þar sem stjórnendur Kaup-
þings hafi ekki óskað eftir starfs-
kröftum hans eftir að Kaupþing
keypti breska bankann.
Í samtali við DV segir Shearer að
það séu tvær ástæður fyrir því að
hann taldi stjórnendur Kaupþings
óhæfa til að reka breskan banka.
„Í fyrsta lagi voru þeir að lána háar
fjárhæðir til stjórnenda sinna til
hlutabréfakaupa í eigin banka. Slík-
um vinnubrögðum var ég ekki van-
ur.“ Shearer nefnir að það hafi verið
ýmislegt annað sem hann taldi að
væru ekki heppilegir stjórnarhætt-
ir hjá mönnum sem ætluðu sér að
stjórna banka á Lundúnasvæðinu.
„Í öðru lagi taldi ég Íslending-
ana skorta reynslu í rekstri alþjóð-
legra banka. Reynsluleysið sást í
ákvörðunum sem þeir tóku sem ég
taldi rangar,“ segir hann. Hins vegar
hefði hann ekkert slæmt um fólkið
sjálft að segja. Það hafi flest verið
mjög indælt. „Það var vel menntað
og ekkert út á það að setja. Ég taldi
það hins vegar ekki hafa burði til að
reka banka af þeirri stærðargráðu
sem Singer & Friedlander var árið
2005. Það hafði ekki nægilega al-
þjóðlega reynslu,“ segir hann.
„Þetta er með ólíkindum,“ seg-
ir Shearer þegar honum er tjáð að
um 20 stjórnendur hjá Kaupþingi
hafi fengið í kringum 24 milljarða
íslenskra króna í lán hjá Kaupþingi
til hlutabréfakaupa. Hann seg-
ir það líka sláandi að stjórn bank-
ans hafi ákveðið það á fundi tveim-
ur vikum fyrir yfirtöku bankans að
fella niður persónulegar ábyrgðir
starfsmanna. „Vissulega eru lán af-
skrifuð hjá bönkum þegar fólk get-
ur ekki borgað þau. Hins vegar er
með ólíkindum að persónulegar
ábyrgðir séu felldar niður. Ég hef
aldrei heyrt um slíkt,“ segir hann.
Að hans mati er það líka sláandi
að Helgi Sigurðsson, yfirlögfræð-
ingur Kaupþings, hafi verið feng-
inn til að segja til um hvort niður-
felling á persónulegum ábyrgðum
stæðust lög. „Þarna er um augljósa
hagsmunaárekstra að ræða,“ segir
Shearer.
Hann segist hafa haft áhyggjur
af því þegar árið 2005 þegar Kaup-
þing keypti Singer & Friedland-
er að illa gæti farið fyrir íslensku
efnahagslífi. Hann hafi kom-
ið til Íslands það ár í þriggja daga
veiðiferð „til þessa ótrúlega fallega
lands,“ segir hann. „Ég hitti mikið
af helstu viðskiptamönnum lands-
ins. Þetta var mjög indælt fólk. Hins
vegar kom það mér ekki fyrir sjón-
ir sem fólk sem gæti stjórnað rekstri
af þeirri stærðargráðu sem það var
að taka þátt í,“ segir Shearer. Hann
segist þekkja nokkur dæmi þess að
íslenskir viðskiptamenn hafi keypt
fyrirtæki á Bretlandseyjum á yfir-
verði. „Ég fann það ekki þegar við
vorum að ganga frá sölunni á Singer
& Friedlander að ég væri að eiga við
mjög séða fjármálamenn í yfirtök-
um á fyrirtækjum,“ segir Shearer.
Hann segist eiga erfitt með að
leggja mat á það hvort það sé und-
arlegt að enginn hafi enn verið
ákærður á Íslandi vegna fjársvika
eftir bankahrunið árið 2008. „Það
hefur enginn enn verið ákærður
í Bretlandi. Þetta tekur oft langan
tíma í réttarkerfinu,“ segir Shear-
er. „Ég get ekki dæmt um það hvort
niðurfelling persónulegra ábyrgða
á lánum stjórnenda Kaupþings
standist lög. Ég hef hins vegar aldrei
heyrt um slíkar niðurfellingar,“ segir
hann. Hann segir að í Bretlandi geti
fjármálafyrirtæki ekki lánað sínum
eigin starfsmönnum til hlutabréfa-
kaupa í eigin fyrirtæki.
Að sögn Shearers var tvennt sem
hann sagði við breska fjármálaeftir-
litið þegar hann var kallaður á fund
til þeirra. „Ef þeir hefðu sinnt hlut-
verki sínu í að hafa eftirlit með ís-
lenskum fjármálafyrirtækjum og
skoðað efnahagsreikninga þeirra
hefði átt að stoppa þá af. Það á bæði
við um eftirlitsaðila í Bretlandi og
á Íslandi,“ segir hann. Hins vegar
hefðu þeir átt að átta sig á því eft-
ir að hafa átt fundi með íslenskum
stjórnendum að þá skorti alþjóð-
lega reynslu. „Þeir hefðu átt að gera
eitthvað en gerðu það ekki,“ segir
Shearer. Hann segir að breska fjár-
málaeftirlitið hafi notað þá afsökun
í samtali við sig að þeir hefðu ávallt
þurft að ráðfæra sig við íslenska
fjármálaeftirlitið. „Það er hins veg-
ar afsökun sem ég kaupi ekki“ seg-
ir hann.
annas sigmundsson
blaðamaður skrifar: as@dv.is
Tony shearer segist hafa haft áhyggjur af því þegar árið 2005 þegar Kaupþing
keypti Singer & Friedlander að illa gæti farið fyrir íslensku efnahagslífi.
Tony shearer Fyrrverandi
forstjóri singer og Friedland-
er hafði efasemdir um
Kaupþingsmenn.
Hátíðarmatseðill
Forréttur
Koniaksbætt humarsúpa
Aðalréttur
Steikt Lúðufiðrildi með
hvítlauksristuðum
humarhölum og humarsósu
Dessert
Hátíðardessert
Forréttur
Súpa dagsins
Aðalréttur
Hunangsgljáð andabringa
„Orange” með rusty kartöflum
og ristuðu grænmeti
Dessert
Hátíðardessert
Forréttur
Koniaksbætt humarsúpa
Aðalréttur
200 gr. ristaðir humarhalar
með mangó-chilli cous cous,
salat og kartöflubátar
Dessert
Hátíðardessert
Forréttur
Súpa dagsins
Aðalréttur
Glóðuð Nautalundarpiparsteik,
ristaðir humarhalar, grænmeti
og rjómalöguð piparsósa
Dessert
Hátíðardessert
Laugaás 30 ára
25. júní