Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2009, Page 22
Föstudagur 3. júlí 200922 Helgarblað
RAFBÍLAR INNAN FIMM ÁRA
Metnaðarfullt verkefni stefnir að því að
rafmagnsbílavæðing hér á landi verði
langt á veg komin árið 2012 og stendur til
að flytja inn 1.500 rafknúna smábíla á næst-
unni á sama verði og er sett á hefðbundna
smábíla. Hekla stefnir að því að hefja inn-
flutning árið 2010 á rafbílum fyrir almenn-
an markað. Venjulegur rafmagnsbíll dug-
ar að minnsta kosti 100 kílómetra á milli
hleðslna og hefur stóru verkefni verið ýtt
úr vör til að setja upp hleðslustaura um
allt land.
Verkefninu 2012 Nýtt upphaf var
hleypt af stokkunum á síðasta ári.
Því er ætlað að koma að rafmagns-
bílavæðingu hér á landi og stendur
til loka ársins 2012. Sighvatur Lárus-
son, verkefnisstjóri hjá 2012, stefn-
ir að því að þá verði rafmagnsbíla-
væðing komin mjög langt á veg hér
á landi. Hann segir verkefnið gríðar-
stórt og krefjist hugarfarsbreytinga
hjá fólki. Félagið ætlar að hefja um-
fangsmikla kynningu á rafmagnsbíl-
um inni í háskólum og framhalds-
skólum í haust, sem lið í að opna
huga fólks fyrir rafmagnsbílum.
„Við ætlum okkur að setja upp
kerfi sem samanstendur af rafmagns-
póstum til að hlaða bíla. Þetta kerfi
er þannig að þú stingur bílnum í
samband og þá þekkir kerfið bílinn
þinn, hvaða rafhlöðu hann notar og
svo framvegis. Þá getur fólk hlað-
ið bílana sína á venjulegum hrað-
hleðslustaurum sem verða mjög víða
um land,“ segir Sighvatur. Með hrað-
hleðslustaurum ætti það ekki að taka
nema 10 mínútur að ná um það bil
80 prósent hleðslu á rafmagnsbílana.
Algengt er að rafmagnsbílar komist
frá 100 kílómetrum og allt upp í 500
kílómetra á hverri hleðslu. Aðallega
eru rafmagnsbílar hugsaðir til notk-
unar í borgum.
Á sama verði og Yaris
Sighvatur segir að 2012 hafi þegar
verið gengið frá pöntun á 1.500 raf-
magnsbílum sem verði fluttir hing-
að til lands á næstu misserum. Hann
vill að svo stöddu ekki upplýsa um
hvaða tegundir þeir eru. Hann seg-
ir hins vegar að bílarnir verði í svip-
uðum stærðarflokki og Volkswagen
Polo og Toyota Yaris og á sambæri-
legu verði. Hátt verð á rafmagnsbíl-
um hefur verið eitt af því sem hefur
hamlað útbreiðslu þeirra hingað til.
„Við erum að ganga frá samningum
við fleiri aðila og ég vona að fleiri
fari að selja rafmagnsbíla. Við get-
um ekki sett upp risastórt kerfi ein,
en við erum að ýta því af stað með
„Ef allir bílar á landinu
væru rafmagnsbílar
myndum við nota 50
megavött til að knýja
þá alla áfram og það
þarf ekki að virkja neitt
fyrir þá orku.“
valgeir örn ragnarsson
blaðamaður skrifar: valgeir@dv.is
2012 „ísland hentar best í heimi
fyrir rafmagnsbíla. Við erum með
svaðalega flottan infrastrúktúr
hér á landi og það sem við erum
að gera er að ýta þessu áfram
síðustu fimm metrana, “ segir
sighvatur lárusson.
MYnD HeiÐa HelgaDÓTTir
DV0906253121
Ketill Pálsson fer ferða sinna innanbæjar á gömlum Peugot-rafmagnsbíl:
skilur alla eftir á ljósum
Ketill Pálsson hefur ekið um á Peug-
ot 106-rafmagnsbíl undanfarna tvo
mánuði. Hann sá bílinn, sem var flutt-
ur inn til landsins árið 1997, auglýst-
an í Bændablaðinu og ákvað að slá til.
Hann segist ekki sjá eftir því að hafa
keypt bílinn, enda reiknast honum
til að það kosti eina krónu að keyra
hvern kílómetra. „Ég er í skýjunum
yfir þessu. Þetta er ekkert vesen. Mað-
ur bara stingur þessu í hvaða inn-
stungu sem er, hvort sem er 10 amp-
era innstungu eða 16 ampera. Ef ég er
búinn að keyra eitthvað áður en ég fer
í vinnuna legg ég honum bara nálægt
húsinu og sting í samband. Mér hef-
ur fundist ég vera eins og kúreki með
hestinn minn,“ segir Ketill.
Bíllinn er sem fyrr segir kominn
nokkuð á aldur, en hann hefur dugað
eigendum sínum vel hingað til. Hann
er keyrður 37 þúsund kílómetra og í
honum eru ennþá upphaflegu raf-
geymarnir. „Það er ekkert viðhald á
þessu,“ segir hann.
Ketill segist nota bílinn innan-
bæjar og hann dugi vel til þess.
„Þetta passar innanbæjar, til að
keyra í og úr vinnu.“ Rafmagnsbíll-
inn er ekki eins kraftmikill og hefð-
bundnir bílar, en Ketill segir hann
gæddan öðrum eiginleikum. „Hann
nær 90 til 100 kílómetra hraða, en
ef ég er að keyra upp Ártúnsbrekk-
una, þá hef ég hann upp í 70. Við-
bragðið er hins vegar miklu betra og
ég skil alla við hliðina á mér eftir á
ljósum.“
Fyrir utan viðbragðsflýtinn og erf-
iðleika upp Ártúnsbrekkuna, nefn-
ir Ketill að rafmagnsbíllinn sé mjög
hljóðlátur. „Það heyrist í vökvastýr-
inu, en maður heyrir ekkert í honum.
Ég myndi mæla með þessu við alla.
Ég hef átt japanskan bíl og sætin og
fjöðrunin í þessum eru í klassa fyrir
ofan hann.“
Rafmagnsbílar eru ekki ódýrustu
bílarnir á markaðnum og segir Ketill
að hans hafi kannski verið dýr mið-
að við jafngamlan bensínbíl af sömu
stærð. Hann sé hins vegar mjög spar-
neytinn og þægilegur í rekstri. „Þetta
er eins og keyra sjálfskiptan bíl, það
eru tveir pedalar í gólfinu og svo ýtir
maður á takka til að fara aftur á bak.
Í gær keyrði ég 65 kílómetra á hleðsl-
unni. Ég mældi hann einu sinni, þá
var ég um það bil 3,5 klukkutíma að
fullhlaða hann.“
Hjörtur gauti Ketilsson sonur Ketils Páls-
sonar á rafmagnsbílinn með pabba sínum.
MYnD sigTrYggur ari JÓHannsson
græn stæði rafbílaeigend-
ur geta hlaðið bílana sína
ókeypis í Bankastrætinu.
MYnD HeiÐa HelgaDÓTTir