Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2009, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2009, Blaðsíða 28
Föstudagur 3. júlí 200928 Helgarblað Um fátt hefur verið meira skrifað og skrafað en ótímabært fráfall konungs poppsins, Michaels Jackson. Samkvæmt frásögnum þeirra sem upplifðu síðustu daga hans var eins og hann vaknaði til lífsins á einni síðustu æfingunni og varð eins og fólk átti að venjast á árum áður. SÍÐUSTU STUNDIR JACKSONS Michael Jackson á æfingu „Við sátum bara opinmynnt – þetta var frábært... hann var ennþá fær um allt.“ Síðasta kvöld ævi sinnar var Jack- son við æfingar í Los Angeles þar sem farið var í gegnum alla tón- listardagskrá tónleikaraðarinnar sem fyrirhuguð var í Lundúnum og átti að hefjast í upphafi júlí. Und- anfarna tvo mánuði höfðu æfing- ar staðið yfir og var haft á orði að Michael Jackson hefði vart verið nema skugginn af sjálfum sér þar til undir það síðasta. Dorian Holley, raddþjálfari fyr- ir tónleikaröðina sem sá um radd- þjálfun Jacksons síðan 1987, sagði að við undirbúning fyrri tónleika- ferða hefði ekki verið óalgengt að áheyrnarprufur væru framkvæmd- ar með myndböndum og alls ekki óalgengt að hann og Jackson hitt- ust aðeins tvisvar eða þrisvar á eins árs tímabili. Fyrir tónleikana nú kvað við annan tón og Micheal Jackson var miklu viðriðnari ferlið en áður tíðk- aðist og var í nánari tengslum við starfsfólk og tónlistarmenn. Of magnvana Eftir dauða Jacksons hafa birst frá- sagnir af heilsuleysi hans síðustu dagana fyrir andlát hans. Í breska blaðinu Daily Mail var sagt að Jack- son hefði verið of magnvana til að dansa, syngja og jafnvel tala vik- urnar fyrir dauða hans. Hvort sem það á við rök að styðjast eða ekki á Dorian Holley ekki orð til að lýsa frammistöðu Jacksons síðustu vik- una: „Hann var á sviði með þessum dönsurum, öllum á þrítugsaldri, en þú gast ekki slitið augun af hon- um... Við sátum bara opinmynnt – þetta var frábært... hann var ennþá fær um allt.“ Að sögn Holleys var ljóst að á miðvikudaginn fyrir dauða hans hafi Jackson séð að allt var loks- ins að smella saman. „Það var stór stund,“ sagði Holley í viðtali við Time. Patrick Woodroffe ljósameistari hafði svipaða sögu að segja. Wood- roffe sagði að Michael Jackson hefði verið í góðu formi á þriðju- dagskvöldið. „Hann kom á svið klukkan níu að kvöldi og við litum öll hvert á annað og eitthvað sagði okkur að hann raunverulega hefði þetta,“ sagði Woodroffe. Woodroffe sagði að það hefði verið eins og Jackson hefði haldið aftur af sér þar til þá og „skyndilega var flutning- ur hans eins og hans var minnst á árum áður“. En að kvöldi miðvikudags mætti Jackson þremur tímum of seint á æfingu og var að sögn viðstaddra áhugalaus og þróttlítill. Háður lyfjagjöf Fregnir af meintri lyfjanotkun Michaels Jackson eru ekki nýjar af nálinni, en eins og við var að bú- ast fengu þær vængi í kjölfar dauða hans og sagt að hann hefði verið háður Demerol, morfíni og allt að fimm öðrum lyfjum þeirra á meðal kvíðastillandi lyfinu Xanax. Í kjölfar dauða hans var ýjað að því að hann hefði daglega fengið skammt af Demerol, sem getur valdið hjarta- stoppi. Samkvæmt fréttum var Jackson verulega háður verkjalyfjum undir það síðasta og álagið vegna æfing- anna var ekki til þess fallið að draga úr þörfinni. Vefsíða TMZ, Thirty Mile Zone, var í fararbroddi fréttaflutnings af andláti Jacksons og ástandi söngv- arans undir það síðasta, en vefsíð- an mun vera afar vel tengd í heimi hinna frægu. Morguninn sem Jack- son dó er talið að hann hafi feng- ið eða verið gefin sprauta af Dem- erol, en einkalæknir Jacksons var þá staddur á heimili Jacksons í Los Angeles. Á vefsíðu TMZ er vitnað í ónafngreindan heimildamann: „Skömmu eftir að hafa fengið Demerol varð andardráttur hans grunnur og hægur. Andardráttur hans varð hægari og hægari þar til hann stöðvaðist.“ Löng sjúkrasaga Sennilega má til sanns vegar færa að farið hafi að halla undan fæti í heilsufarslegu tilliti árið 1984, tveimur árum eftir að hann gaf út metsöluplötuna Thriller. Við gerð aulýsingar fyrir Pepsi brann hann illa eftir að eldur komst í hár hans og sagt að í kjölfar óhappsins hafi hann orðið háður verkjalyfjum og fylgdi sú fíkn honum það sem eftir var ævi hans. Sagt er að sú fíkn hafi ágerst í kjölfar slyss sem hann lenti í við æfingar vegna hljómleikaferð- ar 1993 og enn frekar vegna þrauta í baki sem hann fékk árið 2005 þegar réttað var yfir honum vegna ásak- ana um barnaníð. Talið er að Michael Jackson hafi farið í sína fyrstu lýtaaðgerð árið 1984 til að laga brunasárin, sem hann fékk við gerð Pepsi-auglýs- ingarinnar, og að síðar hafi hann lagst alloft undir hnífinn vegna að- gerða á nefi, höku og vörum. Jackson var iðinn við að neita sögusögnum um lýtaaðgerðir, en viðurkenndi 1988 í sjálfsævisögu sinni Moon Walk að hafa feng- ið tvær „nefaðgerðir“ og eina að- gerð til að fá hökuskarð. Hann vís- aði alfarið á bug fullyrðingum um að hann væri að lýsa húð sína að ásettu ráði, en skellti skuldinni á sjúkdóm sem hafði áhrif á litarefni húðar hans. Áhyggjur vegna þyngdar Jack- sons voru oft og iðulega viðraðar og ýjað að því að hann þjáðist af átröskun. Samkvæmt breska slúðurblað- inu The Sun var Michael Jackson um 50 kíló þegar hann lést og inni- hald maga hans var eingöngu pillur sem voru að hálfu uppleystar. Höf- uð hans var nánast hárlaust og var Jackson með hárkollu þegar dauða hans bar að. Nokkur rifbein voru brotin, sennilega vegna lífgunartil- rauna. Mjaðmir, læri og axlir Jacksons voru með fjölda stungusára, að öll- um líkindum vegna lyfjagjafa und- anfarinna ára og hann hafði fjöldi öra á höfði vegna lýtaaðgerða. KLuKKan 12.21 var Hringt í neyðarLínuna. 911: Neyðarvörður 33, hvaðan hringir þú? Hringjandi: Ég þarf sjúkrabíl eins fljótt og auðið er. Hvað er heimilisfangið? Los Angeles Kalifornía, 90077. Carolwood? Carolwood Drive, já. úr hvaða símanúmeri hringir þú? Við erum með karlmann hérna sem þarfnast hjálpar. Hann er hættur að anda, hann andar ekki og við erum að reyna hjartahnoð, en hann er ekki, hann er ekki... Hve gamall er hann? Hann er 50. Hann er meðvitundarlaus, hann andar ekki? Nei, hann andar ekki. Og hann er einnig meðvitundarlaus? Já, hann er meðvitundarlaus. Ókei. Er hann á gólfinu, hvar er hann núna? Hann er í rúminu, hann er í rúminu. Ókei, setjið hann á gólfið. Ókei. Ókei, komum honum á gólfið. Ég ætla að hjálpa þér með endurlífgun, ókei? Við þörfnumst hans... við þörfnumst... já, við erum á leið til ykkar. Við erum á leiðinni. Ég ætla eftir fremsta megni að aðstoða þig í gegnum símann. Við erum á leiðinni. Hefur einhver litið á hann? Já, við erum með einkalækninn hérna hjá honum. Nú eruð þið með lækni þarna? Já. En hann sýnir enga svörun enga sv... nei... hann bregst ekki við endurlífgun- inni eða öðru. Ó, ókei. En við erum á leiðinni. Ef þið eruð að reyna endurlífgun og fáið leiðbeiningar frá lækni er hann hærra settur en ég. Og hann er á staðnum. Ókei sá einhver hvað gerðist? Nei, bara læknirinn. Hann er sá eini sem var hér. Ókei og sá læknirinn hvað gerðist? Læknir, sástu hvað gerðist? (Ógreinileg rödd) Ef þú gætir bara... Við erum á leiðinni. Við erum á leiðinni. Ég er að koma upplýsingun- um áfram til neyðarvarðanna sem eru á leiðinni. Þakka þér fyrir. Hann er að reyna hjartahnoð en hann bregst ekki við neinu. Gerðu það Ókei, ókei, við erum á leiðinni. Við erum í innan við mílu fjarlægð og verðum komnir eftir skamma stund. Þakka þér, þakka þér. Ókei. Hringdu aftur ef þú þarfnast frekari aðstoðar. Þakka þér fyrir. Michael jackson var úrskurðaður látinn klukkan 14.26, að staðartíma í los angeles, fimmtudaginn 25 júní. KOLbeinn þOrsteinssOn blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is „...skyndilega var flutningur hans eins og hans var minnst á árum áður.“ í München í þýskalandi jacksons er minnst um víða veröld. „HANN ER HÆTTUR AÐ ANDA“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.