Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2009, Page 38
Föstudagur 3. júlí 200938 Helgarblað
að þingstarfið er illa skipulagt. Það er
eins og menn kunni ekki að skipu-
leggja þetta almennilega. Það væri
hægt að gera þetta mun betur,“ segir
Þór sem veit þó vel af ábyrgð sinni á
staðnum.
„Þetta er ekki þannig vinna að
maður geti hætt á morgun. Það eru
rúmlega fimmtán þúsund manns
sem kusu Borgarahreyfinguna og
maður ber ábyrgð gagnvart þeim.
Það tók mig smá tíma að átta mig á
hversu mikil ábyrgð fylgir þessu starfi
en hún er mikil og maður verður að
fara vel með hana,“ segir Þór Saari.
Sama jarmandi sauðahjörðin
„Það hefur heldur ekkert breyst á
þinginu,“ heldur Þór áfram um Al-
þingi. „Þarna eru sömu aðferðir og
sömu vinnubrögð en það er bara
búið að skipta um nöfn á flokkunum
sem eru í stjórn. Þarna er gamla fjór-
flokkapólitíkin í gangi sem hefur ver-
ið Íslandi til svo mikils skaða á síð-
ustu áratugum og það er mjög erfitt
að horfa upp á þessa hugsunarlausu
pólitík halda áfram þrátt fyrir allt sem
á undan er gengið. Sérstaklega þegar
maður er svona nýr á þingi.“
Þór kaus vinstri græn í þarsíðustu
kosningum. Hann segist þó nú hafa
séð með berum augum hvernig
flokkurinn sem hann leit nokkuð
upp til hefur snúist í lið með firring-
unni. „Vinstri græn hafa lengi stað-
ið einarðlega á móti firringunni sem
var í gangi en því miður hafa þau
snúist í lið með henni þegar þau
komust til valda. Nú er VG orðinn
beinn gerandi í Hrunadansinum og
heldur honum áfram. Þarna er líka
nákvæmlega sama leiðtogadýrkunin
og er í Samfylkingunni og Sjálfstæð-
isflokknum. Ung vinstri græn eru til
dæmis engu skárri en Heimdelling-
arnir. Þetta er alveg sama jarmandi
sauðahjörðin. Það er mjög erfitt að
horfa upp á þetta því maður hélt
lengi framan af að vinstri græn væru
öðruvísi en um leið og þau komust til
valda fóru þau beint í sama mótið og
hinir. Því miður,“ segir Þór.
Hrunið skammarlegt
Í þessari viku hefur DV birt sóðaleg-
ar staðreyndir um spillinguna innan
Kaupþings upp úr lánabók bankans
frá því 2006. Þar kemur meðal ann-
ars fram að Kristjáni Arasyni, eigin-
manni Þorgerðar Katrínar Gunnars-
dóttur, var veitt 893 milljóna króna
kúlulán sem síðar var afskráð. „Þetta
er dæmi um þá gjörspillingu sem
hefur verið hér í gangi. Kaupþing hef-
ur keypt sér aðgang að ráðamönnum
með því að gefa mökum þeirra svona
gríðarlega fyrirgreiðslu. Svo fella þeir
niður skuldina þegar einsýnt er að
viðtakandi lánsins verður ekki millj-
arðamæringur af láninu,“ segir Þór
ákveðinn.
„Mér finnst að Þorgerði Katrínu
sé ekki stætt sem þingmanni leng-
ur né sem varaformanni Sjálfstæð-
isflokksins. Hrunið hér heima stafar
af samkrulli peningaafla og stjórn-
málaflokka, sérstaklega Sjálfstæðis-
flokksins sem er komið bersýnilega
í ljós. Þetta er skammarlegt og það
þarf að hreinsa almennilega út úr
þessu kerfi. Þetta er ömurleg spilling
sem er enn ömurlegra að horfa upp
á,“ segir Þór.
Vandamálin gleymast
á hálendinu
Þegar blaðamaður náði í Þór var
hann svo utan þjónustusvæðis að
alþingismaðurinn þurfti að nota
gamla góða bílasímann til að ná
almennilegu sambandi. Gemsinn
dugði ekki. Það er nefnilega þannig
að Þór er mikil útivistartýpa. „Ég
leigði mér sumarbústað og hef ver-
ið að þvælast hér um hálendið. Ég
reyni að gera það þegar tækifæri
gefst,“ segir Þór sem var á leið-
inni í vænan göngutúr eftir spjall-
ið. Deginum áður hafði hann tek-
ið aðra fimm klukkustunda göngu.
En um hvað hugsar Þór þegar hann
gengur um fjöll og firnindi Íslands?
Hann tekur sér allavega andlegt frí
frá vandamálum landsins „Þegar
ég er á göngu úti í náttúrunni hef-
ur hún yfirhöndina yfir vandamál-
unum alveg leikandi létt,“ segir
sjómaðurinn, hagfræðingurinn og
alþingismaðurinn Þór Saari kátur
í bragði.
tomas@dv.is
„Þetta er dæmi um þá gjörspillingu sem hefur
verið hér í gangi. Kaupþing hefur keypt sér að-
gang að ráðamönnum með því að gefa mökum
þeirra svona gríðarlega fyrirgreiðslu.“
Borgarahreyfingin Varð til fyrir framan alþingishúsið í vetur þegar fólk mótmælti
vegna hrunsins. MYND RAKEL ÓSK SIGURÐARDÓTTIR
„Wall Street var ótta-
lega einkennilegur
vinnustaður. Þetta er
heimur sem er mjög
skrítinn og mér hugn-
aðist hann nú ekki en
það var áhugavert að
kynnast því engu að
síður.“
Þingmaðurinn Þór saari
finnst alþingi ekki spennandi
vinnustaður og sér ekki fram
á að starfa lengi þar.
MYND RÓBERT REYNISSONÖmmubakstur ehf.
Kársnesbraut 96a | 200 kópavogi | S: 545 7000
Veljum
íslenskt
gott í dagsins önn...
Ömmu
kleinur
Ömmu
spelt
flatkökur
Ömmu
flatkökur