Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2009, Síða 80
n Brúðkaup fótboltastjörnunn-
ar Grétars Rafns Steinssonar og
fegurðardrottningarinnar Manu-
elu Óskar Steinsson um síðustu
helgi hefur vakið mikla athygli. DV
fjallaði um lífverðina sem turtildúf-
urnar höfðu sér til fulltingis á stóra
deginum. Þorbjörg Marinósdóttir,
blaðakona Séð og Heyrt, bloggaði
um fréttina og blöskraði umgjörð
brúðkaupsins. Margir skrifuðu at-
hugasemdir við færsluna og þar lét
Karen Lind Tómasdóttir, fegurð-
ardrottning og vinkona Manuelu,
hressilega til sín taka:
„Þið eruð að tala um
fólk hérna, ekki steina
á götunni sem hafa
ekki hjartslátt,“ ritar
Karen Lind og finnst
miður hvernig fólk
talar um vinkonu
hennar. „Mikið
er leiðinlegt
að sjá hvað
þið gleypið
við hlutum án
þess að hafa
nokkra stoð
fyrir þeim.“
Alltaf jafn hátt á
honum risið!
Fréttaskot 512 70 70
DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til fréttar. fyrir fréttaskot sem Verður
aðalfrétt á forsíðu greiðast 25.000 krónur. fyrir besta fréttaskot Vikunnar greiðast allt
að 50.000 krónur. alls eru greiDDar 100.000 krónur fyrir besta fréttaskot hVers mánaðar.
„Þetta er nú ekkert nýtt. Það eru á
annað hundrað greinar sem hafa
birst í erlendum blöðum um safnið.
Þetta er alltaf stöðugt,“ segir Sigurður
Hjartarson, safnstjóri Hins íslenska
reðursafns á Húsavík.
Danska blaðið Ekstra Bladet sýnir
safninu mikinn áhuga á vefsíðu sinni
um þessar mundir og fjallar sérstak-
lega um það á þeim hluta síðunnar
sem fjallar um ferðalög.
Sigurður var ekki búinn að sjá
umfjöllun Ekstra Bladet þegar blaða-
maður hafði samband við hann en
umfjöllunin kemur honum alls ekki
á óvart.
„Það er alltaf einhver áhugi að
utan. Þetta er náttúrulega klassískt
safn.“
Í reðursafninu er að finna 209
reðra og reðurhluta frá 46 dýrateg-
undum. Alltaf bætist í safnið og hef-
ur það sjaldan eða aldrei verið vin-
sælla.
„Ég hef ekki fengið eintök síðan
í haust. Þá fékk ég ofsalega falleg-
an rostung og hvalategund sem ég
átti ekki áður. Það er alltaf að koma
eitthvað nýtt. Svo eru alltaf að koma
inn listgripir, þannig að safnið er í
blóma,“ segir Sigurður. Íslendingar
ættu því að nýta tækifærið í sumar-
fríinu og heimsækja safnið sem verð-
ur örugglega stútfullt af Dönum eftir
glæsilega umfjöllun í Ekstra Bladet.
liljakatrin@dv.is
Manuela er
ekki steinn
Sjóðheitur
SPÁNN
ALLT INNIFALIÐ!*
Ferðaskrifstofa
Leyfishafi
Ferðamálastofu
Benidorm Verð frá:
69.900kr.
Brottför 11 júlí. 5 dagar m/v 2 fullorðna og 2 börn
*Allar máltíðir, kaffi og kökur milli mála , ís fyrir alla
og allir drykkir.
Fyrstur kemur, fyrstur fær.
Skráðu þig í netklúbb Plúsferða og
vertu fyrstur til að fá bestu tilboðin!
Nánari upplýsingar og bókanir
á www.plusferdir.is
Hið íslenska reðursafn vekur athygli erlendra fjölmiðla:
„saFniÐ er Í BlÓMa“
n Athafnamaðurinn Ásgeir Kol-
beins, eða Rauði turninn eins og
hann er stundum kallaður, situr
ekki aðgerðalaus í sumar. Ásgeir
opnar skemmti- og veitingastað á
næstunni við hliðina á Jacobsen í
Austurstræti með tveimur félögum
sínum. Mikið er lagt í staðinn sem
verður með glæsilegasta móti. Mik-
il áhersla er einnig lögð á að spila
gæðatónlist fyrir gesti og gangandi.
Á daginn verður boðið upp á góm-
sætan mat og mun matseðillinn
vera í léttari kantinum og á afar við-
ráðanlegu verði. Ætla
má að Ásgeiri reyn-
ist auðvelt að fylla
staðinn af gestum,
nótt sem nýtan dag,
þar sem hann er
ekki ókunnugur
skemmtanalíf-
inu og annál-
aður partí-
pinni.
Ásgeir opnar
skeMMtistaÐ
n Ásgeir Þór Davíðsson, betur
þekktur sem Geiri á Goldfinger, er
mjög virkur Facebook-notandi og
skemmtir sér við að taka hin ýmsu
persónuleikapróf. Hann tók nýlega
prófið „Hvaða raðmorðingi ertu?“
og fékk niðurstöðuna Ted Bundy,
en hann er einn alræmdasti rað-
morðingi Bandaríkjanna. Þetta leist
Geira ekki á þrátt fyrir að í lýsingu á
Ted Bundy, og þar af leiðandi Geira,
standi að honum líki kvenfólk og
láti ekkert stöðva sig. Geiri bjóst
nefnilega bara alls ekki
við því að vera líkt
við raðmorðingja þó
hann hafi tekið prófið
því eins og hann segir
á síðunni sinni hélt
hann kannski að það
yrði svarmöguleiki
sem myndi tjá
Geira að hann
væri alls enginn
raðmorðingi.
geiri er
ted Bundy
Já, halló! á reðursafninu er meira að
segja reðursími.