Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.2009, Blaðsíða 12
12 föstudagur 24. júlí 2009 fréttir
Hin nýja valdastétt
Þegar íslenska bankakerfið hrundi
fyrir nærri 10 mánuðum gripu
stjórnvöld til ráðstafana sem áttu
að tryggja eðlilega greiðslumiðl-
un og gjaldeyrisviðskipti. Verkefn-
ið var ærið og óvænt því skyndilega
voru allir stærstu bankarnir, Glitnir,
Kaupþing og Landsbankinn, komn-
ir í fang ríkisins. Sett voru umdeild
neyðarlög þar sem skilið var á milli
gömlu og nýju bankanna. Fjármála-
eftirlitið skipaði í skyndingu fimm
manna skilanefndir yfir alla gömlu
bankana. Bankaráð voru sömuleiðis
valin til þess að stýra nýju bönkun-
um sem tóku við innlendum skuld-
bindingum, innistæðum og eignum
á móti þeim úr gömlu bönkunum.
Síðar átti eftir að skipa skilanefndir
yfir Straum Burðarás og SPRON, sem
einnig komust í greiðsluþrot. Skila-
nefndirnar voru skipaðar lögfræð-
ingum, endurskoðendum og hag-
fræðingum, sem oftar en ekki höfðu
reynslu af bankastarfsemi. Það átti
síðar eftir að vekja spurningar um
hæfi nokkurra þeirra til starfans.
Í upphafi voru skilanefndar-
menn á launum hjá FME. Athug-
un DV í upphafi árs leiddi í ljós að
margvísleg tengsl voru á milli skila-
nefndarmanna. Auk þess var til þess
tekið að skilanefndarmenn þáðu
laun sín nær undantekningarlaust
sem verktakar. Reikningar voru því
sendir fyrir þjónustu þeirra frá lög-
mannsstofum, endurskðunarfyrir-
tækjum eða einkahlutafélögum sem
skráð voru heima hjá stöku skila-
nefndarfulltrúa. Fyrstu þrjá mánuð-
ina frá bankahruninu voru að jafn-
aði innheimtar 3,2 milljónir króna
fyrir hvern skilanefndarmann, sem
meðal annars skýrðist af gríðarleg-
um vinnustundafjölda á reikningum
sem bárust Fjármálaeftirlitinu.
Eftir því sem næst verður kom-
ist var samið um fastar greiðslur til
lögfræðinga en taxti endurskoðenda
var að jafnaði lægri. Að jafnaði inn-
heimta lögfræðingar um 17 þúsund
krónur á tímann en endurskoðendur
nokkru minna.
Umsýslan eykst
Verkefni skilanefndarmanna er að
standa vörð um eigur bankanna,
halda verðgildi þeirra sem hæstu,
semja við kröfuhafa og reyna eftir
megni að komast hjá lögsókn kröfu-
hafanna. Samskipti þeirra voru og
eru að mestu við erlenda viðskipta-
vini íslensku bankanna eins og aug-
ljóst var á fundum sem skilanefnd-
irnar hafa haldið með kröfuhöfum.
Að mörgu leyti er starf á vegum
skilanefndanna hreinræktuð banka-
starfsemi ef frá er talið að gömlu
bankarnir stunda engin útlán leng-
ur. Starfsemi þeirra jókst jafnt og þétt
fram eftir vetri og hefur mönnum tal-
ist til að nú starfi 200 til 300 manns á
vegum skilanefndanna allra. Þá hef-
ur það gerst að skilanefndirnar sjálf-
ar eru ekki lengur á launum hjá hinu
opinbera heldur fá þær laun fyr-
ir störf sín af starfsemi hinna föllnu
banka og vaxtatekjum þeirra.
Fyrir utan umfangsmikla starf-
semi á vegum skilanefndanna í
gömlu bönkunum hafa nú einnig
verið skipaðar slitastjórnir. Þeim er
sérstaklega ætlað að kalla eftir kröf-
um í þrotabúin, gera grein fyrir þeim
og ráða fram úr málum komi upp
ágreiningur við kröfuhafa og taka
afstöðu til einstakra krafna. Í hverri
slitastjórn eiga sæti þrír fulltrúar, allt
lögfræðingar, endurskoðendur eða
viðskiptafræðingar.
Við þetta má bæta að gömlu
bankarnir njóta í raun greiðslu-
stöðvunar og var skipaður einn eft-
irlitsmaður með greiðslustöðvun við
hvern banka, allt lögfræðingar.
Með endurfjármögnun bankanna
var ákveðið að bjóða stærstu erlendu
kröfuhöfunum að taka yfir rekstur
nýja Kaupþings og Glitnis. Þetta gæti
gerst í fyrsta lagi um næstu áramót ef
kröfuhafar á borð við Deutsche Bank
þekkjast slíkt boð. Fari svo má búast
við að skilanefndir gömlu bankanna
verði leystar upp en hluta starfs-
manna þeirra verði boðin áfram-
haldandi störf.
Margvísleg tengsl
Í skilanefnd Kaupþings sitja Stein-
ar Þór Guðgeirsson lögfræðing-
ur, Guðni Aðalsteinsson rekstrar-
hagfræðingur, Knútur Þórhallsson
endurskoðandi, Jóhannes Rúnar
Jóhannsson lögfræðingur og Theo-
dór Sigurbergsson endurskoðandi.
Steinar Þór er formaður nefndarinn-
ar og einn af eigendum Lögfræði-
stofu Reykjavíkur. Meðeigandi hans
er Lárentsínus Kristjánsson, lög-
fræðingur sem nú er orðinn formað-
ur skilanefndar Landsbankans eft-
ir að Lárus Finnbogason hætti þar
störfum fyrirvaralaust. Eftir því sem
næst verður komist er ekki ætlunin
að ráða mann í sæti Lárusar.
Lárentsínus er sjálfstæðismað-
ur og formaður Lögmannafélags
Íslands. Stjórn félagsins ályktaði
nýverið, meðal annars um hæfi. Í yf-
irlýsingunni segir orðrétt: „Að gefnu
tilefni má í þessu samhengi nefna
álitaefni um hæfi einstakra embætt-
ismanna. Um hæfi gilda settar laga-
reglur sem ber að virða. Varhugavert
er að rannsakendur eða handhafar
opinbers valds freisti þess að ná fram
úrlausn um álitaefni af því tagi með
málflutningi í fjölmiðlum.“ Fullvíst
má telja að þarna sé átt við Sigríði
Benediktsdóttur hagfræðiprófessor,
sem situr í rannsóknarnefnd Alþing-
is, en Jónas Fr. Jónsson, fyrrverandi
forstjóri FME, hafði kvartað yfir um-
mælum sem hann taldi að bökuðu
henni vanhæfi í nefndinni.
Lárentsínus er starfsfélagi Ólafs
Garðarssonar lögfræðings á Lög-
fræðistofu Reykjavíkur, en hann er
eftirlitsmaður með greiðslutstöðvun
Kaupþings og nú kominn í slitastjórn
Kaupþings. Fleiri lögfræðingar af
umræddri lögfræðistofu hafa komið
við sögu skilanefndanna.
Guðni Níels Aðalsteinsson situr
í skilanefnd Kaupþings. Hann var
áður framkvæmdastjóri fjárstýring-
ar Kaupþings og var meðal þeirra
sem fengu niðurfellda persónu-
lega ábyrgð á lánum til hlutabréfa-
kaupa í bankanum. Árið 2006
hafði hann fengið 417 milljónir
króna að láni hjá Kaupþingi til
kaupa á hlutabréfum í bank-
anum og líkast til tekið úr 20
milljóna króna arð.
Er kunningjaveldið
óhjákvæmilegt?
Formaður skilanefndar Glitn-
is er Árni Tómasson end-
urskoðandi. Með honum
í nefndinni eru Heimir Haraldsson
endurskoðandi, Þórdís Bjarnadótt-
ir lögfræðingur, Erla S. Árnadóttir
lögfræðingur og Kristján Óskarsson
rekstrarhagfræðingur. Í slitastjórn
Glitnis hefur verið skipaður Páll Ei-
ríksson lögfræðingur, en hann er
bróðursonur Árna. Erla starfar á lög-
fræðistofunni Lex ásamt Lilju Jón-
asdóttur sem skipuð hefur verið í
slitastjórn Straums Burðaráss. Á lög-
fræðistofunni starfar einnig Þórunn
Guðmundsdóttir, en Lex hefur verið
helsta lögmannsstofa Björgólfsfeðg-
anna.
Áðurnefnd Erla í skilanefnd er eig-
inkona Jóns Finnbjörnssonar héraðs-
dómara sem hefur meðal
annars vald til þess
að úthluta
þrotabú-
um til lög-
fræðinga
og skipa
skipta-
stjóra.
Jóhann haUksson
blaðamaður skrifar: johannh@dv.is
skilanefnd straums:
n Reynir Vignir, formaður endurskoð-
andi
n Kristinn Freyr Kristinsson endurskoð-
andi
n Arna Guðrún Tryggvadóttir
endurskoðandi
n Elín Árnadóttir lögfræðingur
n Ragnar Þórður Jónasson lögfræð-
ingur
slitastjórnir bankanna
Lögfræðingar:
Glitnir
n Steinunn Guðbjartsdóttir
n Einar Gautur Steingrímsson og
n Páll Eiríksson.
Gamla kaupþing
n Ólafur Garðarsson
n Davíð B. Gíslason
n Feldís L. Óskarsdóttir
Gamli Landsbankinn
n Kristinn Bjarnason
n Halldór Bachman
n Herdís Hallmarsdóttir.
straumur:
n Hörður Felix Harðarson
n Ragnar H. Hall
n Lilja Jónasdóttir.
spron:
n Hlynur Jónsson
n Jóhann Pétursson
n Hildur Sólveig Pétursdóttir
skilanefndirnar Eggert Páll Ólafsson lögfræðingur skilanefndar Landsbankans ásamt Árna Tóm-
assyni formanni skilanefndar Glitnis og Steinari Þór Guðgeirssyni formanni skilanefndar Kaupþings.
Myndin er af fundi skilanefndanna með Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingrími J. Sigfússyni síðastlið-
inn mánudag þegar kynnt var samkomulag skilanefndanna og stjórnvalda við erlenda kröfuhafa.
Lögmenn á góðri stund Steinar Þór
Guðgeirsson, formaður skilanefndar
Kaupþings, ásamt Jóni Steinari Gunn-
laugssyni hæstaréttardómara. Steinar og
nokkrir aðrir lögmenn af Lögfræðistofu
Reykjavíkur koma mjög við sögu
skilanefndanna.
starfsmaður ólafs
ólafssonar Árni Tómasson,
formaður skilanefndar
Glitnis, situr í stjórn Alfesca.
Glitnir á hagsmuna að gæta
gagnvart Ólafi vegna lána.