Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.2009, Blaðsíða 14
14 föstudagur 24. júlí 2009 fréttir
Undanfarnar vikur hefur DV sagt ít-
arlega frá því sem á gekk í partístandi
þegar risið var sem hæst á íslensk-
um auðmönnum. Ferð Glitnis til
New York reis þar hátt, þar sem ní-
faldur Grammy-verðlaunahafi spil-
aði undir dýrindis steikaráti slaufu-
og kjólfataklæddra viðskiptavina og
starfsmanna bankans. Ferðin kost-
aði meira en 100 milljónir og kol-
sprengdi allar kostnaðaráætlan-
ir. Skömmu síðar fór bankinn með
lykilstarfsmenn sína til Turnberry í
Skotlandi, þar sem herbergið kostaði
röskar 70 þúsund krónur á nóttina og
sérhönnuð Glitnishúsgögn prýddu
veislusali. Fljótlega eftir það fór að
molna undan partídeild Glitnis, sem
taldi þegar mest lét átta starfsmenn.
En veislurnar voru ekki bara í út-
löndum og ekki bara hjá Glitni. Hér
heima var margt brallað
líka og eflaust á enn eftir
að segja svakalegustu
sögurnar af veislu-
haldinu í ofal-
inni Reykjavík á
þenslutímum.
Nokkrum við-
mælendum
DV, sem sóttu
margar veislur
og samkom-
ur þegar allt
lék í lyndi, ber
þó saman um
að hátíðarkvöld-
verður UN��EF
í Listasafni
Reykjavíkur hafi verið toppurinn hér
heima. Ekki endilega vegna þess að
upphæðirnar hafi þar verið hæstar
og vissulega fór peningurinn í gott
málefni. Heldur vegna þess að þar
varð keisarinn fyrst allsber. Plebba-
skapur hinna nýríku opinberaður á
styrktarsamkomu fyrir fátæk börn.
Jafnvel þarna, þegar þolið gagnvart
bruðli var í hámarki, ofbauð nokkr-
um gestum svo svakalega að þeir
gengu út af samkomunni.
FL Group og Fons lofuðu
skólum í Afríku
Kvöldverðurinn 1. desember 2005
átti sér nokkurn aðdraganda, því að
fyrr um daginn höfðu nokkur íslensk
fyrirtæki lagt stórfé til styrktar UN�-
�EF til að hita upp fyrir kvöldið. Í
frétt Ríkisútvarpsins af málinu sagði
meðal annars: „Einn stærsti styrkt-
arsamningur sem gerður hefur ver-
ið hér á landi við hjálparstofnun var
undirritaður í morgun þegar þrjú ís-
lensk fyrirtæki undirrituðu samning
við Barnahjálp Sameinuðu
þjóðanna. Þetta voru FL
Group, Baugur Group
og Fons. Fyrirtæk-
in styrkja UN��EF
um 135 milljón-
ir á þremur árum
og skiptist upp-
hæðin jafnt milli
fyrirtækjanna, 15
milljónir króna á
hvert þeirra á ári.
Peningarnir verða
notaðir til að gera
upp um 50 skóla,
þjálfa 50 kennara
og standa und-
ir skólagöngu 24
þúsund barna í
Gínea
Bissá.“ Líklega hafa ekki allir pening-
arnir skilað sér, enda fór FL Group í
þrot áður en árin þrjú voru liðin og
ekki liggur fyrir hvort Fons og Baug-
ur borguðu sinn skerf árið 2008, þeg-
ar lausafé var orðið vægast sagt lítið í
félögunum tveimur.
James Bond var fluttur til
landsins ásamt breskum
blómaskreytingamönnum
En þá að aðalatriðinu, kvöldinu
sjálfu í Listasafni Reykjavíkur. Þar var
búið að skipuleggja uppboð, til að ná
inn meiri peningum en því sem hafði
verið lofað af fyrirtækjunum þremur
fyrr um daginn. Samkoman fór fram
1. desember 2005 að kvöldi dags. Að-
alræðumaður kvöldsins var sjálfur
Roger Moore, sem í mörg ár hefur
lagt UN��EF lið. Kannski táknrænt
að fullveldisdagurinn skyldi valinn
til að sýna göfuglyndi Íslands fyrir
framan sjálfan James Bond. Gestum
varð strax ljóst að ekkert hafði verið
til sparað. Samkoman sem var öll hin
glæsilegasta, var í boði áðurgreindra
fyrirtækja, Baugs, Fons og FL Group.
Boðsgestir á samkomuna voru nokk-
ur hundruð og margir þeirra töldust
þá meðal ríkustu manna Íslands. Í
hópnum voru meðal annarra Pálmi
Haraldsson og frú, Hannes Smára-
son og frú, Bolli í Sautján og frú,
auk margra fleiri áhrifamanna. Einn
heimildarmaður DV segir að sér-
stakt matarstell hafi verið flutt inn
fyrir gestina og að nýju gólfteppi
hafi verið komið fyrir sérstaklega
fyrir kvöldverðinn. „Og það voru
ekki bara dauðir hlutir fluttir inn,
því að það komu líka blómaskreyt-
ingamenn frá London, eingöngu til
að skreyta veislusalinn,“ segir einn
heimildarmaður sem var
á staðnum kvöldið
umrædda. Þó að
vissulega hafi
boð af þessu
tagi tíðk-
ast víða úti í
hinum stóra
heimi má
setja spurn-
ingarmerki
við lúxus af
þessu tagi,
þegar ætlun-
in er að safna
peningum
fyrir bláfá-
tæk börn.
Mörgum þætti eflaust smekklegra
að hafa boðið sjálft ódýrara og geta
þá látið meira renna til malaríuneta,
vítamína og bólusetningar fátækustu
barna heims.
Sigur Rós voru boðnar 3
milljónir fyrir að troða upp
Strákarnir í hljómsveitinni Sigur Rós
virtust átta sig á þessu og þeir voru
jarðbundnari en margir aðrir. Sigur
Rós hafði verið beðin um að spila á
góðgerðarkvöldverðinum og tekið
vel í það. Þar sem um var að ræða
góðgerðarstarf gerðu þeir ekki ráð
fyrir að fá krónu fyrir viðvikið. En
samkvæmt heimildum DV fengu
þeir upphringingu frá fulltrúa Baugs
sem spurði þá hvað þeir tækju fyrir
að spila á samkomunni. Nokkurt fát
kom á fulltrúa Sigur Rósar, sem sagði
í gríni að þeir kostuðu þrjár milljón-
ir. Það var umsvifalaust samþykkt
án frekari málalenginga. Í hugum
hljómsveitarmeðlima kom hins veg-
ar aldrei til greina að þiggja pening-
inn, þannig að þeir létu hann renna
beint aftur til UN��EF.
Tuttugu milljóna króna
málverk Hallgríms
Að kvöldverðinum sjálfum. Þó að
sumum gesta hafi ofboðið var ljóst
að öðrum leiddist ekki að fá að sýna
veldi sitt. Heimildarmaður DV sem
var á staðnum segir svona frá: „For-
rétturinn var varla kominn á borðið
þegar margir þarna inni voru orðnir
ofurölvi. Stemningin var mjög und-
arleg í alla staði og manni krossbrá
við að sjá ástandið á sumum strax
snemma í matnum. Það var mik-
ið fyllerí og einhvern veginn hálf-
gerð vanvirðing við allt og alla sem
lá í loftinu.“ Rúsínan í pylsuendan-
um var svo uppboðið sjálft, þar sem
margt var í boði. Þegar til þess kom
hafði erindreki UN��EF og aðalgest-
ur kvöldsins, sjálfur Roger Moore,
látið sig hverfa. Hann fékk því ekki
að berja oflátungshátt íslenskra auð-
manna augum, kannski sem betur
fer kynnu sumir að segja. Á uppboð-
inu var meðal annars boðið í ómálað
verk eftir Hallgrím Helgason, söng
feðganna Garðars �ortes og Garðars
Thors �ortes, lúxusflugferð til Suður-
Afríku, bassa áritaðan af Sting, auk
þess sem boðið var upp á lestur veð-
urfrétta á NFS í einn dag. Strax var
ljóst að ekkert af ofangreindu yrði
ódýrt. Eftir mikla keppni fór söngur
feðganna á fimm og hálfa
milljón, bassinn frá
Sting seldist á sjö og
hálfa milljón og ferð-
in góða til Suður-
Afríku fór á tuttugu
milljónir. Toppnum
náði þó listaverkið
frá Hallgrími sem
fór á tuttugu og
eina milljón króna.
Hallgrímur sjálfur
óttaðist fyrir fram
að enginn myndi
bjóða í málverkið.
Hann áttaði sig greini-
lega ekki á stemn-
ingunni hjá fólkinu
í salnum og var víst
steinhissa á með-
an á upp-
boðinu stóð. Hallgrímur sagði í frétt-
um NFS daginn eftir: „Nei, ég verð
nú að segja það að ég átti nú eigin-
lega ekki von á því að þeir vildu hafa
mig með á uppboðinu, það er svo
langt síðan ég hef málað mynd, mér
finnst þetta… þetta kom á óvart og
sérstaklega náttúrulega upphæðin…
það er hætt við að maður verði svo-
lítið skjálfhentur við verkið.“ Þegar
DV biður hann um að rifja þetta upp
segir Hallgrímur: „Verkið fór minn-
ir mig á 21 milljón króna… verkið
varð því mega „challenge“ fyrir mig
út af verðinu, stillti mér upp við vegg.
Ég vissi ekki hvernig ég ætti að geta
málað verk sem væri svona mikils
virði, hummaði þetta fram af mér í
3 ár… en á endanum tók ég 3 kaup-
lausa mánuði í þetta haustið 2007 og
skilaði þessu um áramótin 2007–08.
Kaupandi var einn af minni útrás-
arvíkingunum.“ Sá sem um ræðir er
Þorsteinn M. Jónsson, eða Steini í
Kók eins og hann er jafnan kallaður.
Hallgrímur bætir við að á samkom-
unni hafi verið allir helstu auðmenn
Íslands.
Landsbankamann dreymdi
um að lesa veðurfréttir
Sjónvarpsáhugamaður í hópi bjóð-
enda náði að krækja í lestur veður-
frétta á NFS í einn dag fyrir tvær og
hálfa milljón króna. Heimildarmenn
DV segja að sá sem átti sér þann
draum að feta í fótspor Sigga storms
hafi verið háttsettur starfsmaður
Landsbankans. Hann var kampa-
kátur eftir að hafa hreppt hnossið
og sagði í samtali við NFS
að þann dag sem hann
myndi starfa yrði sól í
viku. Því miður fyrir
Landsbankamann-
inn varð aldrei af
lestri veðurfregn-
anna á NFS og
sjónvarpsferill-
inn bíður því enn
um sinn.
Þorsteinn
Pálsson gekk út
Heimildarmaður
DV sem var á sam-
komunni segir að sér
hafi fyrst ofboðið þegar
Hannes Smárason,
þáverandi
keypt lika veðrið
Glæsileg veisla sem íslenskir auðmenn héldu til styrktar UNI-
CEF í desember 2005 var einn af hápunktum góðærisins. Það
var ekkert til sparað og þótti efnaminni veislugestum snobb-
ið og plebbaskapurinn yfirgengilegur hjá hinni nýríku stétt
Íslendinga. Útrásarvíkingar eyddu tugum milljóna króna á
uppboði til styrktar UNICEF. Hannes Smárason og eiginkona
hans kepptust um að bjóða í sama hlutinn og Steini í Kók eyddi
21 milljón í hvítan striga.
SöLvi TRyGGvASon
blaðamaður skrifar solvi@dv.is Roger Moore Gamli James Bond hefur
snúið sér að vinnu fyrir UNICEF. Moore
var kynnir kvöldsins en lét sig hverfa
snemma.
ÓSleSið
Hannes Smárason
Bauð ríflega í muni á
uppboðinu í keppni
við eiginkonu sína.
Þorsteinn Pálsson
Fyrrverandi forsætisráðherra.
Pálmi Haraldsson
Eignarhaldsfélag Pálma
lofaði skólum í Afríku.