Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.2009, Side 18
18 föstudagur 24. júlí 2009 fréttir
ÓDÝRT SUMARFRÍ Í
Sú tíð er liðin að allar
heimSinS vellyStingar Séu
hræódýrar í Kaupmanna-
höfn fyrir oKKur íSlend-
inga. Því halda margir
landSmenn að eKKi Sé hægt
að SpóKa Sig í borginni einS
og Kóngur einS og áður fyrr.
Það er meSti miSSKilningur
Því Það er vel hægt að njóta
SumarfríSinS í KóngSinS
Kaupmannahöfn og eKKi
Koma heim með feitan mínuS
á KrediKortinu.
umsjón lilja katrín
Ódýrt far
Far til Kaupmannahafnar
aðra leiðina kostar frá 12.900
krónum með Iceland Express.
Hátískufatnaður á grínverði
Kvenfataverslunin Gina Tricot býður upp á hátískufatnað á hreint
fáránlegu verði. Verslunin er meira að segja ódýrari en H&M í mörgum
tilfellum og þá er nú mikið sagt. Auk þess sem seldur er hátískufatn-
aður er einnig hægt að festa kaup á guðdómlegu skarti, töskum,
sokkabuxum, nærfötum og náttfötum í versluninni. Algjör snilldar-
verslun þar sem hægt er að gleyma sér.
staðsetning: Købmagergade 19 og Frederiksberggade 23 á Strikinu.
Heimasíða: www.ginatricot.com
Köben
Ókeypis samgöngur
Kaupmannahafnarkortið, eða CPH card, er einstaklega sniðugt fyrir
ferðamenn í Kaupmannahöfn, bæði fyrir þá sem eru að heimsækja
borgina í fyrsta sinn og fyrir vana. Með kortinu er hægt að fá aðgang
að um það bil sextíu söfnum og annarri afþreyingu, ókeypis ferðir með
lestum, strætó og metró, afslátt af aðgangseyri á áhugaverðum stöðum,
viðburðum, veitingahúsum og bílaleigu ásamt ítarlegum leiðarvísi með
korti af borginni. Hægt er að velja milli 24 klukkutíma og 72 tíma korts.
Hægt er að kaupa kortið á www.visitcopenhagen.is og þarf að bóka það
með sjö daga fyrirvara áður en haldið er til Kaupmannahafnar.
Brjálað bíó
TP Musik Marked er frábær verslun fyrir
tónlistar- og kvikmyndaáhugamenn. Þar
er hægt að fá allt það nýjasta á ótrúlegu
verði - til dæmis nýjar myndir á aðeins
fimmtíu danskar krónur, eða um tólf
hundruð íslenskar krónur. Ýmis tilboð
eru í gangi í versluninni hverju sinni
þar sem hægt er að fá kvikmyndir á allt
niður í tíu danskar krónur eða aðeins
tæplega 250 íslenskar.
staðsetning: Amagertorv 19 á
Strikinu.
Heimasíða: www.tpmusik.dk
Styrktu gott málefni
Second hand-verslunin Fisk er ekki eins og aðrar
second hand-verslanir. Þar er hægt að versla og fá sér
köku og kaffi með góðri samvisku. Verslunin er nefni-
lega rekin af Hjálparstofnun kirkjunnar og rennur allur
ágóði til barna og kvenna í þróunarlöndunum. Fötin
sem seld eru í Fisk eru bæði fyrir karla og konur og eru
það besta sem neyðarhjálpin fær gefins. Fatnaðurinn
er síðan endurhannaður af hönnuðum Fisk sem
allir vinna sjálfboðavinnu. En það eru ekki einungis
föt sem fanga athygli gesta í Fisk heldur líka gömul
húsgögn sem búið er að endurhanna ásamt ýmsu
glingri og smámunum. Verðið er í algjöru lágmarki
og hægt að festa kaup á einstökum vörum sem ekki
er hægt að fá neins staðar annars staðar. Kökurnar og
kaffið er líka ódýrt - aðeins 35 danskar, eða rúmlega
átta hundruð krónur, fyrir kökusneið og kaffibolla.
staðsetning: Skt. Peders Stræde 1
Heimasíða: www.noedhjaelp.dk/fisk