Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.2009, Blaðsíða 38
38 föstudagur 24. júlí 2009 helgarblað
Viðhaldsfríar
ÞAKRENNUR
Smiðjuvegi 4C
Box 281 202 Kópavogur
Sími 587 2202 Fax 587 2203
hagblikk@hagblikk.is www.hagblikk.is
Varmaskiptasamstæður
loftræstistokkar og tengistykki
Hágæða
Þegar hús eru klædd með „viðhaldsfrírri“ klæðningu er nauðsynlegt að nota „viðhaldsfríar“ þakrennur.
Rennurnar frá Grövík Verk í Noregi eru gerðar úr 0,9 mm áli og tærast ekki, ryðga, né brotna.
Fyrsta rennan var framleidd árið 1956 og er enn í notkun.
Litir til á lager: Svartar, hvítar, rauðbrúnar og ólitaðar.
A
u
g
l.
Þ
ó
rh
ild
ar
1
4
6
0
.2
4
fram neinar hausatalningar innan
flokksins og það eina sem ég vissi um
einstök atkvæði í málinu var það sem
menn höfðu sagt við mig persónu-
lega,“ segir Ásmundur.
AlgjörlegA misboðið
„Þegar ég heyri þetta er mér algjör-
lega misboðið,“ heldur Ásmundur
áfram um hótanir Samfylkingarinn-
ar. „Við verðum að átta okkur á því
að það er þingræði í landinu. Það er
þingið sem ræður en ekki einhverj-
ir einstakir ráðherrar innan stjórnar-
flokkanna. Sérstaklega í málum sem
er búið að semja um með þeim hætti.
Ég tek samt ákvörðun um að taka nafn
mitt af tillögunni en læt alla vita alveg
skýrt að svona hlutir eigi ekki heima
inn á Alþingi. Ég kalla það ekki flótta
þó ég taki nafnið af tillögunni því ég
lét vita af hverju það var og hvatti alla
til þess að styðja hana,“ segir hann.
„Það var mikill þrýstingur af hálfu
Samfylkingarinnar í þessu máli. Þetta
er hennar höfuðmál og hún beitti
ótrúlegum vinnubrögðum til að
koma þessu máli í gegn. Meira ætla ég
ekki að segja um það. Málið fór samt
í gegnum þingið þar sem þingræðið
fékk að ráða og það er lýðræðislegt. Ég
er auðvitað svekktur yfir niðurstöð-
unni um ESB en það er engin reiði í
mér. Ég hef talið Íslandi best borgið
utan ESB með stuttum boðleiðum,
sjálfstæði, lýðræði og þeim áhuga á
stjórnmálum sem við höfðum. Þetta
er bara fyrsta orustan í þessu. Við
vinnum stríðið. Það er alveg klárt,“
segir Ásmundur ákveðinn en hvernig
sér hann samstarfið við Samfylking-
una í framhaldi af þessu?
„Tímarnir fram undan verða rosa-
lega þungir og það mun reyna á sam-
starfið. Það er alveg klárt. Ég ætla
ekkert að fullyrða eitt eða neitt um
hvernig þessu samstarfi reiðir af. Auð-
vitað eru skoðanaskipti um öll mál og
menn verða að hafa þroska til að ná
lendingu í þeim málum sem verið er
að takast á við. Ég styð að sjálfsögðu
þessa ríkisstjórn til allra góðra verka
enda blasa hér við ægileg verkefni eft-
ir 18 ára valdatíð Sjálfstæðisflokksins.
Ég vil að þessi ríkisstjórn haldi og reisi
hér landið við. En ég vil líka uppfylla
stjórnarskrárbundna skyldu mína
sem þingmanns um að fylgja eigin
samvisku og standa vörð um þing-
ræðið í landinu,“ segir Ásmundur.
berst utAn Alþingis
Ásmundur er nú kominn í þá að-
stöðu að vera í ríkisstjórn sem er búin
að leggja inn umsókn í Evrópusam-
bandið. Hann getur þó séð jákvæða
hluti við það. „Kannski er samt, þrátt
fyrir að þessi orusta hafi tapast, gott
að þarna á milli séu einstaklingar sem
hafa efasemdir um málið. Baráttan
verður minni inni á þinginu til þess
að stöðva málið þar. Eftir þetta held
ég líka að það vaki ekki fyrir neinum
að beita sér fyrir því að stöðva mál-
ið nema niðurstaðan í þessu samn-
ingaferli verði svo óhagstæð að menn
geti ekki annað gert,“ segir Ásmund-
ur sem mun nú berjast gegn ESB utan
Alþingis.
„Nú verður unnið meira utan
þings og þar mun ég koma að þessu
eins og hver annar borgari í landinu.
Ég hef starfað mikið með Heimssýn-
armönnum sem eru mikið gegn um-
sókn að ESB og við erum að stofna
félög úti um landið. Þeir halda fyrir-
lestra um landið og ég hef boðið fram
krafta mína í það,“ segir hann.
esb er Að verðA
bAndAríki evrópu
„Ég hef ekkert legið á þeirri skoð-
un minni að lykilatriðið fyrir Ísland
er að halda fullu sjálfstæði og fullri
reisn ásamt því að við höfum allt kerf-
ið í höndum okkar og stjórnum laga-
umgjörðinni eins og við getum,“ seg-
ir Ásmundur en hver er framtíðarsýn
hans fyrir Ísland? „Mín framtíðarsýn
er sú að í þessu sem við erum að fara
að ganga í gegnum megum við ekki
glopra niður sjálfsvirðingu okkar og
trú á það að hægt sé að byggja upp
betra samfélag. Við megum ekki selja
frá okkur dýrmætar grunnatvinnu-
greinar eins og sjávarútveg og land-
búnað. Nú verðum við að búa þannig
um hnútana að íslensk framleiðsla
geti vaxið og dafnað. Þá eru okkur all-
ir vegir færir.“
Hann segir ESB vera að þróast í
Bandaríki Evrópu. „Til lengri tíma eru
alltaf að færast meiri og meiri völd til
Brussel. Það sést til dæmis í Lissabon-
sáttmálanum. Við erum í raun að fara
að ganga inn í miðstýrt sambands-
ríki, ekkert ólíkt Bandaríkjunum. ESB
er að þróast í það að verða Banda-
ríki Evrópu. Helsti munurinn er sá að
ESB er á ýmsum sviðum að taka sér
meira vald til Brussel, burt frá sjálf-
stæðum þjóðríkjum, en Washington
frá fylkjum Bandaríkjanna. Til lengri
tíma litið er þetta mjög varhugavert
og ólýðræðislegt þótt í fyrstu kunni
innnganga í ESB að virðast eftirsókn-
arverð fyrir suma. Það er enda bull-
andi óánægja með ESB innan margra
ESB-ríkja.“
gæti séð frAm-
tíðinA á Alþingi
„Mér finnst þetta skemmtilegt en
þetta er krefjandi,“ svarar Ásmund-
ur spurður undir lokin um þingstarf-
ið. „Ég hef alltaf haft gaman af pólitík
en núna er þetta erfitt og tekur á. Það
eru miklir umbrotatímar en ég hef
fulla trú á öllu því sem er að gerast í
íslensku samfélagi,“ segir Ásmundur
sem gæti vel hugsað sér framtíð á Al-
þingi en hann veit nákvæmlega hvar
hætturnar liggja í þeim efnum.
„Það sem er mikilvægast í þessu er
að týna aldrei rótunum. Það er mjög
auðvelt að gera innan veggja Alþing-
is og gleyma því sem fleytti þér þang-
að inn. Það er mjög auðvelt að verða
samdauna þessu einhvern veginn.
Ég hef sagt það við mitt fólk að það sé
grasrótarinnar að halda mér við efn-
ið. Fari ég út af brautinni verður fólk
að láta mig vita. Ef mér tekst það að
tapa ekki þessari tengingu gæti ég vel
hugsað mér að gera þetta lengi. En
enginn veit sína ævina fyrr en öll er.
Ég hef heldur engar áhyggjur af því að
hætta á Alþingi því þá fer ég bara aftur
í sveitina,“ segir bóndinn og yngsti al-
þingismaður Íslands, Ásmundur Ein-
ar Daðason. tomas@dv.is
„Ég hef einsett mér það frá því ég
tók sæti á Alþingi að í öllum stór-
um málum skyldi ég reyna að
skilja þau alveg í hörgul og taka
svo ákvörðun sem ég persónulega
er sáttur við.“
Alþingi Miklar deilur hafa
verið á Alþingi vegna ESB
og Icesave.