Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.2009, Side 42
Umsjón: Kjartan GUnnar Kjartansson, kgk@dv.is
Birkir Jón Jónsson
alþingismaður
Birkir fæddist á
Siglufirði og ólst
þar upp. Hann
var Grunnskóla
Siglufjarðar, lauk
stúdentsprófi frá
Fjölbrautaskóla
Norðurlands
vestra á Sauð-
árkróki, stund-
aði nám í stjórn-
málafræði við HÍ,
og lauk BA-prófi í
viðskiptafræði frá
HÍ 2009.
Birkir starf-
aði á bensínstöð-
inni á Siglufirði
á unglingsár-
unum, starfaði
við Sparisjóð
Siglufjarðar með
skóla. Hann var aðstoðarmaður fé-
lagsmálaráðherra 2000-2003, varð
alþm. Norðausturkjördæmis fyr-
ir Framsóknarflokkinn 2003, situr í
bæjarstjórn Fjallabyggðar frá 2006.
Birkir var forseti nemendafélags-
ins í Fjölbrautaskóla Norðurlands
vestra, sat í stjórn Félags ungra
framsóknarmanna á Siglufirði, var
varaformaður SUF um skeið, sat í
stjórn Bridgesambands Íslands, var
formaður framkvæmdasjóðs fatl-
aðra 2007 og sat í stjórn hússjóðs Ör-
yrkjabandalagsins 2003-2007. Hann
hefur verið formaður atvinnumála-
nefndar Fjallabyggðar frá 2006, sat
í fjárlaganefnd Alþingis 2003-2007
og var formaður 2006-2007, sat í fé-
lagsmálanefnd 2003-2007, í félags-
og tryggingamálanefnd 2007-2008,
samgöngunefnd 2003-2004, var for-
maður iðnaðarnefndar 2004-2006,
sat í sjávarútvegsnefnd 2004-2005,
landbúnaðarnefnd 2006-2007, við-
skipta-
nefnd
2007-2009
og situr í
efnahags-
og skatta-
nefnd
frá 2008.
Hann sat
í Íslands-
deild þing-
manna-
nefndar
EFTA 2003-
2005 og
2006-2007,
í Íslands-
deild Vest-
norræna
ráðsins
2008-2009
og í Ís-
landsdeild Evrópuráðsþingsins frá
2009.
Fjölskylda
Systkini Birkis eru Ólafur Jónsson, f.
17.6. 1971, sparisjóðsstjóri á Siglu-
firði; Steinar Jónsson, f. 8.9. 1972,
húsasmíðameistari á Álftanesi;
Ingvar Jónsson, f. 4.11. 1980, húsa-
smiður og hestamaður í Reykjavík.
Foreldrar Birkis eru Jón Sigur-
björnsson, f. 24.10. 1950, fyrrv. fram-
kvæmdastjóri Sjúkrahúss Siglu-
fjarðar og nú fjármálastjóri við MH
í Reykjavík, og Björk Jónsdóttir, f.
15.8. 1951, bankastarfsmaður.
Það stóð til að halda mikla af-
mælisveislu að Ketilási í Fljótum
í Skagafirði þar sem m.a. Magnús
Stefánsson og félagar í Upplyftingu
ætluðu að troða upp, en sökum
óvissu um sumarstarfstíma hins háa
Alþingis verður afmælinu frestað
um óákveðinn tíma.
30 ára á föstudag 60 ára á föstudag
Haraldur Sturlaugsson
fyrrv. framkvæmdastjóri Haraldar Böðvarssonar
Haraldur fæddist á Akranesi og ólst
þar upp. Hann var í ensku- og versl-
unarnámi í Englandi 1966-68 og lauk
prófi frá Samvinnuskólanum á Bifröst
1970.
Haraldur starfaði við útgerð og
fiskvinnslu hjá Haraldi Böðvarssyni
hf. frá 1970 og var framkvæmdastjóri
fyrirtækisins 1976-2004.
Haraldur sat í vara- og aðalstjórn
Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna,
í vara- og aðalstjórn síldarútvegs-
nefndar, í stjórn Félags síldarsaltenda
á Suður- og Vesturlandi, í stjórn
Tryggingamiðstöðvarinnar, stjórn
Marels hf., aðalstjórn Skeljungs, í
stjórn Nótastöðvarinnar á Akranesi, í
stjórn HB Granda, í stjórn LÍÚ, stjórn
Coldwater Seafood Corporation og í
stjórn Rannsóknarráðs ríkisins.
Haraldur hefur komið mikið að
stjórn knattspyrnumála á Akranesi og
hlotið viðurkenningar fyrir þau störf
frá KSÍ og ÍSÍ. Hann æfði og keppti í
knattspyrnu með ÍA frá unga aldri,
varð Íslandsmeistari í efstu deild með
ÍA 1970, 1974 og 1975, Íslandsmeistari
í 2. deild með ÍA 1968 og lék sjö lands-
leiki með íslenska A-landsliðinu.
Haraldur annaðist útgáfu bókar-
innar Sjötíu ár á sjó og landi, 1976, og
sá um gerð heimildarmyndarinnar
um HB & Co á Akranesi 1986.
Fjölskylda
Haraldur kvæntist 7.5. 1972 Ingibjörgu
Pálmadóttur, f. 18.2. 1949, hjúkrunar-
fræðingi og fyrrv. alþm. og heilbrigð-
is- og tryggingaráðherra. Hún er dótt-
ir Pálma Eyjólfssonar, f. 22.7. 1920,
d. 12.10. 2005, fyrrv. sýslufulltrúa, og
Margrétar Ísleifsdóttur, f. 8.10. 1924,
fyrrv. tryggingafulltrúa.
Synir Haralds og Ingibjargar eru
Sturlaugur, f. 9.8. 1973, sjávarútvegs-
fræðingur í London, kvæntur Þórunni
Baldursdóttur og eiga þau fimm börn;
Pálmi, f. 2.8. 1974, viðskiptafræðingur
á Akranesi, kvæntur Elfu Ingvadóttur
og eiga þau þrjú börn; Ísólfur, f. 2.2.
1979, framkvæmdastjóri á Akranesi,
kvæntur Aldísi Birnu Róbertsdóttur
og eiga þau tvö börn; Haraldur, f. 20.3.
1989, nemi.
Systkini Haralds eru Matthea Krist-
ín, f. 20.5. 1947; Sveinn, f. 9.6. 1951;
Rannveig, f. 27.4. 1954; Sturlaugur, f.
5.6. 1958; Helga Ingunn, f. 5.10. 1963.
Hálfsystir Haralds, samfeðra, var
Ingunn Helga, f. 17.10. 1941, d. 15.10.
2007, búsett í Bandaríkjunum síðustu
árin.
Foreldrar Haralds voru Sturlaug-
ur H. Böðvarsson, f. 5.2. 1917, d. 14.5.
1976, útgerðarmaður á Akranesi, og
k.h., Rannveig Böðvarsson, f. 8.7.
1924, d. 28.9. 2005, húsmóðir.
Ætt
Sturlaugur var sonur Haralds, kaup-
manns og útgerðarmanns á Akranesi
Böðvarssonar, kaupmanns á Akranesi
Þorvaldssonar, pr. á Stað í Grinda-
vík Böðvarssonar, prófasts í Gufudal,
bróður Þuríðar, langömmu Vigdísar
Finnbogadóttur. Systir Böðvars var
Sigríður, móðir Kristínar, langömmu
Matthíasar Johannessen, skálds og
fyrrv. Morgunblaðsritstjóra, föður
Haralds ríkislögreglustjóra. Böðv-
ar var sonur Þorvalds, pr. og skálds í
Holti Böðvarssonar, pr. í Holtaþing-
um, bróður Ögmundar, pr. í Krossi,
afa Tómasar Sæmundssonar Fjöln-
ismanns. Böðvar var sonur Högna,
prestaföður á Breiðabólstað Sigurðs-
sonar. Móðir Böðvars kaupmanns
var Sigríður Snæbjörnsdóttir, pr. í
Vestmannaeyjum Björnssonar. Móð-
ir Haralds var Helga Guðbrandsdótt-
ir, b. í Hvítadal Sturlaugssonar. Móðir
Guðbrands var Þórunn, systir Guð-
rúnar, ættmóður Svefneyjarættar, en
bróðir Þórunnar var Zakarías, langafi
Snorra skálds og Torfa ríkissáttasemj-
ara Hjartarsonar, föður Ragnheiðar,
fyrrv. rektors MR, og Hjartar hæsta-
réttardómara. Þórunn var dóttir Jó-
hanns, pr. í Garpsdal Bergsteinsson-
ar.
Móðir Sturlaugs var Ingunn Sveins-
dóttir, hreppstjóra og kaupmanns í
Mörk á Akranesi Guðmundssonar,
b. í Elliða í Staðarsveit Stefánssonar.
Móðir Sveins var Anna Sigurðardóttir.
Móðir Ingunnar var Metta, systir Elín-
borgar, móður Hans Hallgríms Hoff-
manns, pr. á Stað, föður Péturs Hoff-
manns, pr. á Stað. Metta var dóttir
Hans Hoffmanns, á Búðum.
Rannveig var dóttir Pálma, rektors
MR, bróður Péturs, föður Hannes-
ar skálds. Pálmi var sonur Hannesar,
b. á Skíðastöðum í Skagafirði Péturs-
sonar, b. í Valadal og á Álfgeirsvöll-
um Pálmasonar. Móðir Pálma var
Ingibjörg, systir Jósefs, afa Indriða G.
Þorsteinssonar, rithöfundar og Tima-
ritstjóra, föður Arnaldar rithöfund-
ar og Friðriks blaðamanns. Ingibjörg
var dóttir Jóns, b. á Þóreyjanúpi Ei-
ríkssonar, b. á Hólum í Reykjadal Ás-
grímssonar.
Móðir Rannveigar var Matthea
Kristín Pálsdóttir. Stjúpfaðir og kjör-
faðir Rannveigar var Christian Evald
Torp veitingamaður.
Haraldur heldur upp á daginn
með íslenskri frænku sinni og vin-
konu, Kristínu Björnsdóttur Daniel,
sem búsett hefur verið erlendis sl. 74
ár og sem verður 80 ára í dag. Kristín
og fjölskylda hennar heiðra Harald og
Ingibjörgu með nærveru sinni á sam-
eiginlegum afmælisdegi Haralds og
Kristínar.
Nils fæddist í Reykjavík og ólst þar
upp á Bergstaðastrætinu. Hann var
í Austurbæjarskóla, stundaði nám
við Iðnskólann í Reykjavík og lauk
þaðan sveinsprófi í húsasmíði 2002.
Nils var í unglingavinnunni á
sumrin. Hann hóf störf við smíðar er
hann var sautján ára og hefur stund-
að smíðar síðan. Hann starfar nú
sjálfstætt við húsasmíðar, viðhald og
nýbyggingar og er þessa dagana að
reisa sumarbústaði á Suðurlandi.
Nils starfaði í Hjálpræðishernum
í Reykjavík á unglingsárunum og
hefur starfað mikið með Krossinum
í Kópavogi.
Fjölskylda
Eiginkona Nils er Hekla Hrönn
Pálsdóttir, f. 21.9. 1979, bankakona
við Landsbankann í Reykholti.
Dætur Nils og Heklu eru Sunn-
eva Kristín Nilsdóttir, f. 16.12. 2006;
Silja Hrönn Nilsdóttir, f. 17.9. 2008.
Bróðir Nils er Ási Guðjónsson, f.
16.3. 1977, bifvélavirki í Noregi.
Foreldrar Nils eru Áslaug Haug-
land, f. 6.1. 1945, sjúkraliði við
vistheimilið Bjarg, og Guðjón
Guðlaugsson, f. 5.3. 1926, fyrrv.
borgarstarfsmaður.
Kjartan Gunnar Kjartansson rekur
ættir þjóðþekktra Íslendinga sem hafa verið í
fréttum í vikunni, rifjar upp fréttnæma
viðburði liðinna ára og minnist horfinna
merkra Íslendinga. Lesendur geta sent inn
tilkynningar um stórafmæli á netfangið
kgk@dv.is
30 ára á föstudag
Nils Guðjón Guðjónsson
Húsasmiður í Brekkuskógi
Sigurður K. Óskarsson
Bifvélavirki og sölumaður í reykjavík
Sigurður Kristinn
fæddist í Reykja-
vík og ólst þar upp.
Hann stundaði
nám við Iðnskól-
ann í Reykjavík og
lauk þaðan próf-
um 1970, lærði
bifvélavirkjun hjá
Heklu hf. og lauk
sveinsprófi í þeirri
grein. Þá stund-
aði hann nám við
Fjölbrautaskól-
ann í Breiðholti og
lauk verslunarprófi
1984.
Sigurður starf-
aði hjá Heklu hf.
á árunum 1966-79, hóf síðan störf
hjá Bílaborg, var verkstjóri þar
um skeið og síðan þjónustustjóri
1980-90. Hann stofnsetti eigið bif-
vélaverkstæði, Fólksbílaland, sem
hann starfrækti til 2000, ásamt Jóni
Trausta Harðarsyni. Þá hóf Sigurður
störf hjá VÍS og vann þar í nokkur ár.
Sigurður hóf síðan störf hjá Kraft-
vélum ehf. 2006 og hefur verið þar
sölumaður síðan.
Fjölskylda
Sigurður kvæntist 4.2. 1972 Mál-
fríði Björnsdóttur, f. 16.8. 1948,
starfsmanni við vistheimili barna.
Hún er dóttir Björns Stefánsson-
ar, f .2.10. 1896, d. 7.7. 1988, bónda
og landpósts
á Kálfafelli í
Vestur-Skafta-
fellssýslu,
og Valgerð-
ar Pálsdóttur,
f. 7.10. 1909,
d. 20.2. 2005,
húsmóður.
Börn Sig-
urðar og Mál-
fríðar eru Ár-
mann Atli
Sigurðsson, f.
13.12. 1971 en
kona hans er
Guðrún Ólafs-
dóttir og eru
börn þeirra
Kári, Karitas, Þór og Orri; Bjartmar
Ingi Sigurðsson, f. 14.9. 1975 en
börn hans og Lindu Hólm eru Ósk-
ar Andri og Anita en sambýliskona
hans er Auður Ósk Guðmundsdótt-
ir og er sonur hennar Dagur Hauks-
son; Svava Björk, f. 25.7. 1978.
Systkini Sigurðar eru Júlíus
Gunnar Óskarsson, f. 13.3. 1948;
Trausti Bergmann, f. 4.8. 1950; Jó-
hann Sævar Óskarsson, f. 14.11.
1951; Jón Albert Óskarsson, f. 4.1.
1954; Jens Viborg, f. 9.9. 1957.
Foreldrar Sigurðar voru Ósk-
ar Albert Sigurðsson, f. 16.6. 1917,
d. 11.4. 1981, leigubifreiðarstjóri í
Reykjavík, og Svava Júlíusdóttir, f.
22.12. 1927, d. 13.6. 1966, húsmóðir.
60 ára á laugardag
42 föstudagur 24. júlí 2009 ættfræði