Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.2009, Síða 64
n Leikarinn Magnús Guðmunds-
son og kærasta hans, Gullý, eiga
von á sínu fyrsta barni í lok ágúst.
Turtildúfurnar hafa verið saman
um dágott skeið og er þetta þeirra
fyrsta barn saman. Fyrir á Gullý
lítinn strák en þau Magnús eiga
einmitt von á litlum leikarapjakki.
Magnús útskrifaðist úr Listaháskóla
Íslands árið 2007 og með honum í
bekk voru Vignir Rafn Valþórsson,
Tinna Lind Gunnarsdóttir, Hall-
grímur Ólafsson og Kristín Þóra
Halldórsdóttir sem öll hafa gert
það gott í leiklistinni. Magnús gefur
þeim ekkert eftir og sló rækilega í
gegn í uppfærslu á leikritinu Fool
for Love. Hann heillaði einnig kven-
þjóðina í Fólkinu í blokkinni í Borg-
arleikhúsinu þar sem
hann dillaði mjöðm-
unum frygðarlega í
eftirminnilegri kög-
urskyrtu. Magnúsi er
margt til lista lagt þar
sem hann er einnig
hárgreiðslumaður
og fegrar hár
Íslendinga á
hársnyrtistof-
unni Ónix.
Voru þeir sáttir
með Seljan?
Fréttaskot 512 70 70
DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til fréttar. fyrir fréttaskot sem Verður
aðalfrétt á forsíðu greiðast 25.000 krónur. fyrir besta fréttaskot Vikunnar greiðast allt
að 50.000 krónur. alls eru greiDDar 100.000 krónur fyrir besta fréttaskot hVers mánaðar.
Kastljósmaðurinn geðþekki Helgi
Seljan ákvað að taka sér frí frá
sviðsljósinu í byrjun mánaðarins
og skellti sér á sjóinn á dallinn Að-
alstein Jónsson SU-11. Þetta er þó
ekki í fyrsta sinn sem Helgi tekur
upp á því að heiðra skipverja með
nærveru sinni því hann fór líka á
veiðar með skipinu í fyrra.
Hægt er að fylgjast með ævin-
týrum uppsjávarskipsins á blogg-
síðunni aðalsteinnjonsson.blog.
is. Í fyrra var Helgi ekki kallaður
neitt annað en sjónvarpskvikindið
eða Kastljóskvikindið. Þá hélt Helgi
því fram að reimt væri í klefa sín-
um. Í túrnum núna var hann hins
vegar kallaður konungur spjallsins
en einnig „fíflið og dóninn Helgi
Seljan“ með vísan í fræg orð Geirs
Haarde, sem hélt að væri slökkt á
öllum upptökutækjum.
Í ár hefur Helgi haft gríðarlega
góð áhrif á áhöfnina þó svo að síld-
veiðarnar hafi farið fremur hægt af
stað. Á bloggsíðunni er sagt frá því
að öll ágreiningsefni hafi verið leyst
eftir að „celeb“ kom um borð. Þau
hafi verið leyst við hringborð inni
í setustofu skipsins þar sem Helgi
setti sig í Kastljósstellingar og
gerði sjómönnum kleift að grafa
stríðsöxina. Þessum uppákom-
um var síðan sjónvarpað með
vefmyndavél um allt skip og ljóst
að andrúmsloftið á Aðalsteini Jóns-
syni hefur sjaldan eða aldrei verið
betra, eftir að sáttasemjarinn Helgi
Seljan beitti þar töfrum sínum.
Leikarabarn
á Leiðinni
Sjónvarpsmaðurinn Helgi Seljan stillir til friðar í beinni ústendingu:
„Dóninn“ Leysir DeiLur
n Söngkonan Íris Kristinsdóttir, oft-
ast kennd við hljómsveitina Butter-
cup, leggur nú stund á nám í leiklist
fyrir kvikmyndir í Kvikmyndaskóla Ís-
lands. Um er að ræða tveggja ára nám
og ætlar Íris að reyna fyrir sér í leik-
listarheiminum þegar náminu er lok-
ið. Hún er samt sem áður byrjuð að
pota sér áfram í þessum harða heimi
og tekur að sér verkefni sem aukaleik-
ari, eða svokallaður statisti. Þá er hún
nýbúin í tökum sem statisti í mynd-
inni Bjarnfreðarson sem verið er að
taka upp þessa dagana. Myndin er í
leikstjórn Ragnars Braga-
sonar og er kvikmynd
í fullri lengd um ævin-
týri félaganna Georgs,
Ólafs Ragnars og
Daníels sem sjón-
varpsáhorfendur
þekkja úr þáttaröð-
unum Næturvakt-
inni, Dagvaktinni
og Fangavaktinni
sem sýnd verður í
haust.
stjarna á
skóLabekk
n Leikmenn Íslandsmeistara FH
kynntust alveg nýjum aðstæðum
þegar þeir fóru til Kasakstan í vikunni
til að leika seinni leik sinn í Evrópu-
keppni. Mikil öryggisgæsla var í kring-
um leikinn og fylgdi lögreglan þeim
hvert fótmál. Ekki nóg með það held-
ur voru hermenn með alvæpni komn-
ir til að vernda þá hvar sem þeir stigu
út úr rútunni. Þetta var ekki eini við-
búnaðurinn. Ekki var hætt á að þeir
snæddu mat heima-
manna heldur var all-
ur matur og vatn flutt
með þeim frá Íslandi,
fyrir utan að þeir
bættu á sig ávöxtum í
Danmörku. Og til að
sjá til að allt væri á
hreinu var Ingvar á
Salatbarnum með
í för til að sjá um
matseldina.
FH-ingar Fengu
HervernD
Vanur sjóari helgi er
ættaður frá reyðarfirði og
var talsvert á sjó á sínum
yngri árum.
DV0905044292_02.jpg
SET er framsækið og vaxandi iðnfyrirtæki með fjögurra áratuga reynslu af
framleiðslu og þjónustu við íslenska lagnamarkaðinn.
SET framleiðir foreinangruð hitaveiturör og plastpípur fyrir vatnsveitur,
fráveitur, raforku og fjarskiptakerfi.
Fyrirtækið gegnir mikilvægu hlutverki við virkjun jarðhitaorku og nýtingu ferskvatns til
neyslu og útflutnings, ásamt verkefnum á sviði fráveitumála og fjarskiptavæðingar.
Gæðamál, þekking og fræðsla skipar veglegan sess í menningu fyrirtækisins sem og
öflug nýsköpun og framþróun í tækni. SET á samvinnu við tugi evrópskra fyrirtækja á
sviði tækni, hráefna, rannsókna og staðalmála.
Allar afurðir röraverksmiðju SET eru framleiddar samkvæmt evrópskum framleiðslu-
stöðlum og fyrirtækið hefur vottað gæðastjórnunarkerfi skv. ISO-EN-IS 9001 staðli.
Gæði til framtíðar