Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.2009, Side 2
Hjónin Ingibjörg Kristjánsdóttir og Ólafur Ólafsson
vöktu nágranna sína á haustmánuðum þegar búslóð þeirra var bor-
in út í flutningabíl um miðja nótt. Þau eru skráð til heimilis á Eng-
landi en búa í Lausanne í Sviss þar sem börn þeirra sækja skóla.
hitt málið
Þetta helst
- þessar fréttir bar hæst í vikunni
bauð banka huldufé
Þegar Jón Ger-
ald Sullenberger
bauð skuldabréf
frá Venesúela
fyrir 30 milljarða
króna í Landsbank-
anum árið 2006 var Baugs-
málið fyrir dómstólum.
Samtöl blaðamanns DV
við heimildarmenn benda
til þess að yfirmenn innan
gamla Landsbankans hafi
verið meðvitaðir um stöðu Jóns Geralds og að Björgólfur Guðmunds-
son, aðaleigandi Landsbankans, gæti hafnað í sérkennilegri stöðu
ef upplýst yrði opinberlega að bankinn gengist fyrir því að tilkynna
grunsamlegt tilboð Jóns Geralds í bankanum til efnahagsbrotadeild-
ar ríkislögreglustjóra. Heimildir segja bankann hafa tilkynnt þetta en
embætti ríkislögreglustjóra kannast ekki við að hafa fengið tilkynn-
ingu frá Landsbankanum um grunsamlegar tilraunir til peninga-
þvættis eða fjársvika seint í ágúst árið 2006.
skuldugur
fótbolta-
kappi
Eiður Smári Guðjohnsen,
knattspyrnumaður hjá Monaco,
skuldar rúmar 1200 milljónir
á móti rúmlega 800 milljóna
króna eignum. Meirihluti eigna
Eiðs er í söluferli. Hann tapaði
fé á fjárfestingaverkefnum á
Íslandi og í Hong Kong og Tyrk-
landi. Drjúgur hluti rúmlega
30 milljóna króna mánaðarlauna hans fer í að endurgreiða skuldir á
næstu árum. Skuldirnar eru meiri en launin sem hann fær hjá Mon-
aco. Talsmaður Eiðs Smára segist ekkert vita um fjármál hans og Eiður
Smári vill ekkert ræða um fjármál sín. Knattspyrnumaðurinn hefur
átt í viðræðum við lánardrottna sína um hvernig hann geti staðið í
skilum. Samkvæmt heimildum DV er Eiði Smára mikið í mun að ráða
fram úr þessum skuldavanda sínum og hefur hann meðal annars leit-
að eftir frekari lánveitingum til þess.
Jóhannes vill hannes burt
„Ég er búinn að biðja um fund
með rektor, út af þessu og öðru.
Mér finnst framganga háskóla-
prófessorsins furðuleg að vera
með svona útgáfustarfsemi þar
sem drullað er yfir fólk,“ segir
Jóhannes Jónsson, kaupmaður í
Bónus. Jóhannes sakar Hannes
Hólmstein Gissurarson, prófess-
or í stjórnmálafræði við Háskóla
Íslands, um að dreifa flugritum
innan háskólans. Á þeim koma
fram fullyrðingar um að vina- og
ættartengsl bjargi eignarhlut 1998
ehf., félags í eigu Jóns Ásgeirs Jó-
hannessonar, í Högum. „Það er
alrangt að ég hafi verið að dreifa
þessu. Ég fékk þetta vissulega sent í pósti og prentaði út eintak enda
þótti mér þetta fyndið. Ég sýndi einhverjum það en það er fráleitt að
halda því fram að ég hafi verið að dreifa einhverju,“ sagði Hannes.
1
2 mánudagur 30. nóvember 2009 fréttir
Jón Gerald Sullenberger, verslunarrek-
andi í Kópavogi, er sagður hafa verið
milliliður í meintri tilraun til umfangs-
mikils peningaþvættis í Landsbank-
anum seint í ágústmánuði árið 2006.
Skuldabréf, sem Jón Gerald bauð
bankanum, vöktu grunsemdir í starfs-
manna bankans og var málið stöðvað.
Samkvæmt áreiðanlegum heimild-
um DV innan Landsbankans vildi Jón
Gerald koma ríkisskuldabréfum frá
Venesúela, skráð í dollurum, í umsýslu
Landsbankans. Upphæð ríkisskulda-
bréfanna nam samtals um 30 millj-
örðum króna og vakti upphæðin sér-
staka athygli starfsmanna bankans.
Heimildir eru fyrir því að bank-
inn hafi átt að fá hálft til eitt prósent
í þóknun fyrir umsýslu með bréf-
in. Samkvæmt upplýsingum sem DV
hefur aflað hefur Jón Gerald varla átt
að fá minna en eitt prósent andvirðis
bréfanna í umboðslaun eða fyrir milli-
göngu sína. Sjálfur neitar hann því al-
farið að hafa átt að fá nokkuð í sinn
hlut.
Skuldabréfin vöktu tortryggni og
sáu starfsmenn Landsbankans tor-
merki á því að taka við þeim í umsýslu.
Við nánari athugun reyndist skulda-
bréfaflokkurinn útrunninn eða að
minnsta kosti megnið af bréfunum.
Einnig af þeirri ástæðu varð ekkert af
viðskiptunum með bréfin, en andvirði
þeirra eða bréfin sjálf, áttu samkvæmt
heimildum að fara áfram til banka í
Evrópu.
Bankaumsýsla gerir
peninga hreina
Grunsemdir Landsbankamanna um
milljarðabréfin í fórum Jóns Geralds
sneru að tvennu. Í fyrsta lagi gátu
skuldabéfin verið fölsuð og tilraun til
að innleysa þau í banka væri í slíku til-
viki fullframið fjársvikabrot. Í öðru lagi
gátu skuldabréfin verið ófölsuð en ver-
ið væri að gera tilraun til þess að nota
Landsbankann til peningaþvættis á fé
sem upphaflega væri illa fengið. Einn
liður peningaþvættis, og oft sá erfiðasti,
er að koma illa fengnu fé inn í banka
með gott orðspor og fá hann til að taka
peningana í umsýslu. Þannig hefði til
dæmis stimpill og uppáskrift Lands-
bankans á skuldabréfin frá Venesúela
gert þau trúverðug og seljanlegri en
ella hefði verið. Til þessa kom aldrei
vegna viðbragða starfsmanna Lands-
bankans.
Kannast við skuldabréfin
Jón Gerald Sullenberger kannast
við að hafa boðið bréfin frá Venesúela
í Landsbankanum á umræddum tíma.
„Það passar að ég hafi komið með
þessi bréf og einnig að þetta hafi verið
há upphæð. Þetta voru bréf sem aðili
niðri á Miami var með og var að bjóða.
Ég sagði honum að ég gæti kannað
áhuga Landsbankans á bréfunum. Ég
ýtti þessu bara áfram en kom aldrei
neitt nálægt þessu. Ég sá aldrei þessi
bréf.“
Jón Gerald segist ekki heldur hafa
vitað hver upprunalegur eigandi bréf-
anna var. „Ég held að Landsbankinn
hafi haft samband beint við viðkom-
andi banka í Venesúela. Þeir fengu
bara öll gögnin og áttu að ráða þessu.
Ég fékk aldrei neina skýringu á því
hvers vegna þetta var stöðvað í bank-
anum. Ég kom aldrei nálægt þessu. Ég
spurði bara bankann hvort hann hefði
áhuga og lagði málið fyrir þá en kom
ekki nálægt þessu annars. Mig minnir
að bankanum hafi verið boðin bréfin
til kaups.“ Aðspurður bætir Jón Gerald
við að það hafi sennilega átt að vera
með umtalsverðum afföllum. Hann ít-
rekar að hann hafi enga þóknun átt að
fá fyrir að búa til verðmæti úr bréfun-
um. „Ekki krónu!“
Íslenskir bankar berskjaldaðir
Blaðamanni DV er bent á, að á þessum
tíma árið 2006 hafi íslensku bankarnir
verið á barmi lausafjárþurrðar og geng-
ið í gegnum litlu fjármálakreppunna
sem svo er nefnd. Þessu til áréttingar
má nefna að í mars 2006 var haldinn
neyðarfundur á heimili Davíðs Odds-
sonar, sem þá hafði verið seðlabanka-
stjóri í um fimm mánuði. Fram kemur
í Umsátrinu, nýrri bók Styrmis Gunn-
arssonar, að fundurinn var haldinn að
beiðni bankastjóra stóru bankanna
þriggja vegna mjög alvarlegrar stöðu
þeirra á þessum tíma. Sátu bankastjór-
arnir sjálfir fundinn með formanni
bankastjórnar Seðlabankans.
Á þessum tíma urðu íslenskir
bankamenn varir við meiri umferð
vafasamra fjármálagerninga og manna
sem reyndu fjársvik eða gerðu tilraunir
til peningaþvættis. Er það rakið til þess
að fjársvikamenn erlendis hafi metið
það svo, að íslensku bankarnir væru í
viðkvæmri stöðu og varnir þeirra því
minni og lakari en annars staðar.
Jón Gerald aldrei yfirheyrður
Lögum samkvæmt ber fjármálafyrir-
tækjum að tilkynna allar grunsemdir
sínar um meint peningaþvætti til lög-
reglu. Þegar fjármálafyrirtæki hefur
tilkynnt lögreglu um mál af þessum
toga ber lögreglu að staðfesta skriflega
móttöku slíkrar tilkynningar. Loks ber
Fjármálaeftirlitinu að fylgja því eftir að
bankar sinni skyldum sínum í þessu
efni.
Samkvæmt heimildum DV er yfir
vafa hafið að Landsbankinn tilkynnti
málið til embættis ríkislögreglustjóra í
samræmi við lög.
Efnahagsbrotadeild ríkislögreglu-
stjóra getur lögum samkvæmt hvorki
gefið upplýsingar um tilraunir Jóns
Geralds til þess að koma ríkisskulda-
bréfum frá Venesúela í umferð hjá
Landsbankanum né nokkurra ann-
arra.
Aðspurður kveðst Helgi Magnús
Gunnarsson, saksóknari efnahags-
brotadeildar ríkislögreglustjóra, ekki
geta fjallað um einstök mál, tilkynning-
ar eða kærur og vísar til þess sem ofan
greinir um lög og trúnað. - Þess má
geta að peningaþvættisskrifstofan og
upplýsingar sem þar eru meðhöndl-
aðar hafa svipaða stöðu og starfsemi
leyniþjónustu (Financial Intelligence
Unit).
DV hefur ekki borið málið und-
ir Harald Johannessen ríkislögreglu-
stjóra, en lögum samkvæmt átti
embættið að staðfesta móttöku til-
kynningarinnar frá Landsbankanum.
Jón Gerald segist aldrei hafa verið
boðaður til skýrslutöku hjá embætti
ríkislögreglustjóra vegna málsins.
Rík tilkynningaskylda
Samkvæmt lögum frá árinu 2006 um
aðgerðir gegn peningaþvætti og varn-
ir gegn hryðjuverkum er bönkum
skylt að kanna áreiðanleika viðskipta-
manna sinna. Jafnframt ber bönkum
að afla gagna um raunverulegan eig-
Jón Gerald Sullenberger
BANKINN STÖÐVAÐI HULDUFÉ JÓNS GERALDS
„Ég kom aldrei nálægt
þessu. Ég spurði bara
bankann hvort hann
hefði áhuga og lagði mál-
ið fyrir þá en kom ekki
nálægt þessu annars.“
PENINGAþVæTTI - SKILGREINING:
„Þegar einstaklingur eða lögaðili
tekur við eða aflar sér eða öðrum
ávinnings með broti sem er
refsivert samkvæmt almennum
hegningarlögum eða öðrum lögum.
Hér er einnig átt við það þegar
einstaklingur eða lögaðili umbreytir
slíkum ávinningi, flytur hann, sendir,
geymir, aðstoðar við afhendingu
hans, leynir honum eða upplýsingum
um uppruna hans, eðli, staðsetningu,
ráðstöfun eða flutningi ávinnings eða
stuðlar á annan sambærilegan hátt
að því að tryggja öðrum ávinning af
slíkum refsiverðum brotum.“ (Lög nr.
64/ 2006)
Jóhann hauKSSon
blaðamaður skrifar: johannh@dv.is
Skaut upp kollinum í Baugsmálinu Jón
Gerald Sullenberger er fluttur frá Miami á
Flórída og opnaði nýlega matvöruverslun í
Kópavogi. Hann reyndi að koma ríkisskulda-
bréfum frá Venesúela í verð hjá Landsbankan-
um fyrir nokkrum misserum en án árangurs.
mynd SiGtRyGGuR aRi
aðili frá miami „Þetta voru bréf sem aðili niðri á
Miami var með og var að bjóða. Ég sagði honum að
ég gæti kannað áhuga Landsbankans á bréfunum,“
segir Jón Gerald Sullenberger. mynd SiGtRyGGuR aRi
fréttir 30. nóvember 2009 mánudagur 3
BANKINN ST S GERALDS
Sérkennileg staða Landsbankaeigenda
Seint í ágústmánuði 2006, þegar Jón
Gerald Sullenberger bauð Lands-
bankanum ríkisskuldabréf frá Venes-
úela fyrir þrjátíu milljarða króna, var
Baugsmálið enn fyrir dómstólum.
Jón Gerald var sem kunnugt er upp-
haflegur kærandi, höfuðvitni og síðar
einnig sakborningur í því máli.
Samtöl blaðamanns DV við heim-
ildarmenn benda til þess að yfirmenn
innan gamla Landsbankans hafi ver-
ið meðvitaðir um stöðu Jóns Geralds
og að Björgólfur Guðmundsson, að-
aleigandi Landsbankans, gæti hafnað
í sérkennilegri stöðu ef upplýst yrði
opinberlega að bankinn gengist fyr-
ir því að tilkynna grunsamlegt tilboð
Jóns Geralds í bankanum til efna-
hagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra.
Fyrir þessu gátu verið ákveðnar
ástæður.
Davíð Oddsson hafði í hlutverki
forsætisráðherra hlutast til um að
Björgólfur gæti eignast bankann þeg-
ar hann var einkavæddur.
Í bankaráði Landsbankans sat
Kjartan Gunnarsson, framkvæmda-
stjóri Sjálfstæðisflokksins í 26 ár og
stór hluthafi í Landsbankanum. Hann
var náinn Davíð Oddssyni og átti eftir
að sitja sem framkvæmdastjóri Sjálf-
stæðisflokksins fram í október 2006.
Fjórum árum áður höfðu Kjart-
an og Styrmir Gunnarson, þáverandi
ritstjóri Morgunblaðsins, lagt á ráð-
in um liðsinni Jóns Steinars Gunn-
laugssonar hæstaréttarlögmanns
við að sækja mál Jóns Geralds gegn
Baugsfeðgum. Síðasti dómurinn
í Baugsmálinu síðara var kveðinn
upp snemmsumars 2008 í Hæsta-
rétti, löngu eftir að Jón Gerald bauð
Landsbankanum skuldabréfin frá
Venesúela.
Jónínupóstarnir
Fréttablaðið hóf birtingu svonefndra
Jónínupósta, 24. september 2005 þar
til sett var lögbann á frekari birtingu
að frumkvæði Jónínu Benediktsdótt-
ur. Tölvupóstarnir sýna samskipti
hennar og Styrmis Gunnarssonar,
þá ritstjóra Morgunblaðsins, frá maí-
mánuði til loka júlí árið 2002.
Húsleit var gerð í höfuðstöðvum
Baugs í lok ágúst sama ár.
Eftirfarandi stóð í tölvupósti sem
Styrmir sendi Jónínu að kvöldi 1. júlí
2002, um átta vikum fyrir húsleitina:
„Þið þurfið ekki að hafa áhyggjur
af þessu með Jón Steinar. Hann er al-
gerlega pottþéttur maður. Þegar ég
talaði um þetta mál við Jón Steinar
hafði ég Kjartan með. Þetta er eins
innmúrað og innvígt eins og nokk-
ur hlutur getur verið. Ég þekki hins
vegar ekki samband Jóns Steinars og
Tryggva og mun kanna það. En það
er alveg sama hvaða menn Jón Stein-
ar þekkir. Tryggð hans við ónefndan
mann er innmúruð og ófrávíkjanleg
og þess vegna þurfið þið Jón Gerald
ekki að hafa nokkrar áhyggjur.”
Styrmir staðfesti við Fréttablaðið
að þarna væri átt við Kjartan Gunn-
arsson en neitaði að gefa upp hver
ónefndi maðurinn væri.
Rík tengsl við Jón Gerald
og Baugsmál
Björgólfur Guðmundsson átti síðar
eftir að eignast ráðandi hlut í Árvakri,
útgáfu Morgunblaðsins. Landsbank-
inn, banki Björgólfs, tók auk þess veð
í húsi Styrmis í Kópavogi í apríl 2006
gegn 100 milljóna króna láni á trygg-
ingabréfi, sem bankinn veitti ritstjór-
anum í harðri glímu hans við per-
sónulegar skuldir.
Ljóst er að tengsl milli aðaleig-
anda Landsbankans og manna sem
tengdust persónu Jóns Geralds með
beinum eða óbeinum hætti í einu
víðtækasta og umdeildasta dóms-
máli síðari tíma voru rík eins og
hér er rakið. Ekkert verður þó sagt
um hvort það hafi haft bein áhrif á
ákvarðanir um meðferð Landsbank-
ans eða embættis ríkislögreglustjóra
á grunsemdum sem tengdust Jóni
Gerald seint í ágúst 2006 í tengslum
við skuldabréfin frá Venesúela.
Jón Gerald Sullenberger
Baugsréttarhöld Myndin af
Styrmi Gunnarsyni og Jóni Gerald
Sullenberger er tekin í mars 2007.
Jónína Benediktsdóttir 24. september 2005 hóf Fréttablaðið birtingu
svokallaðra Jónínupósta sem vörpuðu ljósi á tilurð Baugsmálsins. Með henni á
myndinni eru Jón Gerald Sullenberger (t.v.) og Ivan Motta sem kallaður var frá
Miami sem vitni í Baugsmálinu.
anda verðbréfa og afla þarf upplýsinga
í hverra hendur peningar eða verð-
bréf eiga endanlega að komast. Einnig
er ætlast til þess að bankinn gangi úr
skugga um tilgang viðskiptanna.
Höfuðástæða þess að starfs-
menn og regluverðir Landsbankans
tóku ekki við ríkisskuldabréfunum
frá Venesúela sem Jón Gerald bauð
bankanum, mun hafa verið sú, að
þeir þóttust sjá að hann gengi hugs-
anlega erinda vafasamra og ónafn-
greindra fjársvikamanna. Hann gat
því hafa verið milligöngumaður eða
handbendi slíkra manna í ólöglegum
gjörningum. Jafnvel þótt svo hann
væri á eigin vegum með útrunnin
verðbréf að andvirði 30 milljarðar
króna töldu starfsmenn Landsbank-
ans málið grunsamlegt og vafasamt.
Mun Jóni Gerald hafa verið bent á
hættuna þessu samfara.
Í skýrslu peningaþvættisskrifstofu
ríkislögreglustjóra fyrir árið 2006
kemur fram að aðeins 5 tilkynning-
ar af 312 voru reistar á grunsemdum
um peningaþvætti yfir 10 milljónum
króna. Eins og áður greinir er ljóst að
Landsbankinn tilkynnti lögreglu um
bréfin á vegum Jóns Geralds. Því má
draga þá ályktun að framangreint
mál sé eitt af fimm stærstu málun-
um.
Í lögum og reglugerð um með-
höndlun tilkynninga um ætlað pen-
ingaþvætti eru skýr fyrirmæli um það
hvernig slík mál skuli meðhöndluð.
Það er enn allt á huldu hver eig-
andi bréfanna var.
ÚR REGLUGERÐ Um mEÐHÖNDLUN TILKyNNINGA
Um æTLAÐ pENINGAþVæTTI.
7.gr. Könnun.
Á grundvelli tilkynningar og eftir atvikum upplýsingaöflunar skal fara fram
könnun sem verður grundvöllur ákvörðunar samkvæmt 8. gr.
8. gr. Ákvörðun.
Könnun samkvæmt 7. gr. getur leitt til eftirfarandi:
1. að tilkynningu um grunsamleg viðskipti er eytt,
2. að tilkynning er skrásett sem rannsóknarupplýsingar í upplýsingakerfi lögreglu,
og skal ákvörðun um það rökstudd skriflega,
3. að ákvörðun er tekin um að hefja lögreglurannsókn,
4. að viðskipti verða ekki framkvæmd, sbr. 10. gr.
Ákvörðun samkvæmt 1. eða 2. tölulið tekur rannsakandi, en ákvörðun samkvæmt
3. eða 4. tölulið tekur ákæruvaldshafi. Ákvörðun skal tekin svo fljótt sem auðið er.
Saksóknari efnahagsbrota Helgi Magnús
Gunnarsson gefur ekki upplýsingar um einstaka
tilkynningar til efnahagsbrotadeildar um peninga-
þvætti enda er það óheimilt samkvæmt lögum.
3
4 mánudagur 30. nóvember 2009 fréttir
Talsmaður Arion banka, Berghild-
ur Erla Bernharðsdóttir, staðfestir að
launahækkanir hafi átt sér stað hjá
bankanum undanfarið. Hún kall-
ar hækkanirnar launaleiðréttingu því
nauðsynlegt hafi verið að leiðrétta
laun þeirra einstaklinga sem dregist
höfðu aftur úr sambærilegum launum
annarra fjármálastofnana.
DV óskaði eftir nánari upplýsing-
um um þessar launaleiðréttingar, öðru
nafni launahækkanir, en þær fást ekki
hjá bankanum þrátt fyrir ítrekaðar
beiðnir þess efnis. Svör bankans ein-
kenndust þess í stað af útúrsnúningum
og staðhæfingum um að launahækk-
unum hafi verið haldið í lágmarki. DV
óskaði eftir upplýsingum um hversu
margir einstaklingar fengu launa-
hækkun, hversu há hækkunin væri, á
hvaða sviðum hækkunin færi fram og
hversu mikið þær kosti bankann mán-
aðarlega. Frá Arion fengust engin svör.
Arion banki, áður Kaupþing banki,
neitar einnig að gefa upp heildarkostn-
að við nafnabreytingu bankans. DV
fór þess á leit og óskaði jafnframt eft-
ir sundurliðun á kostnaði en þau svör
fengust að slíkt fengist ekki gefið upp.
Bankinn gefur hins vegar aðeins upp
áætlaðan heildarkostnað vegna breyt-
ingarinnar. Sú áætlun gerir ráð fyrir
ríflega sautján milljóna króna kostnaði
við breytinguna en það telja þeir sér-
fræðingar sem DV leitaði til útilokað.
Þeirra mat er að kostnaðurinn hlaupi
á mörgum tugum milljóna, fimmtíu
milljónir að lágmarki, og jafnvel yfir
hundrað milljónir. Til viðbótar sé síð-
an hægt að reikna þann mikla fórnar-
kostnað sem liggur í glötuðu markaðs-
efni. trausti@dv.is
Arion svarar engu
Loðin svör Talsmenn Arion
gefa ekki upp heildarkostnað
við nafnabreytinguna og
launahækkanir.
„Ég er búinn að biðja um fund með
rektor, út af þessu og öðru. Mér finnst
framganga háskólaprófessorsins
furðuleg að vera með svona útgáfu-
starfsemi þar sem drullað er yfir fólk,“
segir Jóhannes Jónsson, kaupmaður í
Bónus.
Jóhannes sakar Hannes Hólmstein
Gissurarson, prófessor í stjórnmála-
fræði við Háskóla Íslands, um að dreifa
fluguritum innan háskólans. Á þeim
koma fram fullyrðingar um að vina- og
ættartengsl bjargi eignarhlut 1998 ehf.,
félagi í eigu Jóns Ásgeirs Jóhannesson-
ar, í Högum. Þar er Jón Ásgeir nafn-
greindur og myndbirtur og einnig tveir
bankastarfsmenn, þau Helga Jóns-
dóttir, stjórnarmaður Arion banka, og
Sigurjón Pálsson, starfsmaður Arion
banka. Bæði eru þau sögð vinna hörð-
um höndum að því að fá milljarða
skuldir félagsins niðurfelldar.
Dreift á göngunum?
„Hann var að dreifa þessu á göngum
skólans og vitni að því hafa haft sam-
band við mig. Þau segja mér að Hann-
es Hólmsteinn hafi verið að rétta nem-
endum þennan snepil. Sjálfur hef ég
séð þessa auglýsingu og mér þykir hún
ákaflega lágkúruleg,“ segir Jóhannes.
Hannes Hólmsteinn vísar því aft-
ur á móti á bug að hann hafi verið að
dreifa þessum blöðum á göngum skól-
ans. Hann viðurkennir að hafa prent-
að þetta út og sýnt nokkrum samkenn-
urum enda eigi myndin erindi við
almenning því hún sýni vel íslenska
klíkusamfélagið. „Það er alrangt að ég
hafi verið að dreifa þessu. Ég fékk þetta
vissulega sent í pósti og prentaði út
eintak enda þótti mér þetta fyndið. Ég
sýndi einhverjum það en það er fráleitt
að halda því fram að ég hafi verið að
dreifa einhverju. Þó svo að ég væri að
dreifa einhverju væri það ekkert mál
því elskulegir samkennarar mínir hafa
oft verið að prenta út og dreifa ýmsu,“
segir Hannes Hólmsteinn.
Allt saman satt
„Það getur verið að ég hafi gleymt
þessu einhvers staðar en ég hef ekki
dreift neinu flugriti neins staðar. Hins
vegar tel ég mig alveg hafa haft fullan
rétt til að dreifa þessu því þær upplýs-
ingar sem þarna koma fram eru hár-
réttar. Aðalatriðið í þessu er að það
sem er á blöðunum er allt rétt,“ bæt-
ir Hannes Hólmsteinn við. Á sunnu-
dag ritaði hann síðan færslu á blogg-
svæði sitt þar sem hann birti myndina
sem sýni vel klíkusamfélagið á Íslandi.
Hann sagði myndbirtinguna á netinu
sárabót fyrir að hafa ekki dreift henni á
göngum háskólans.
Jóhannes vonast til þess að há-
skólarektor sjái að framgana Hannesar
sæmi ekki stofnuninni. Hann útilokar
ekki að grípa til annarra ráða taki rekt-
or ekki hart á málinu. „Mér finnst þetta
alveg ótrúlega ósmekklegt. Að vera
með þennan óhróður í bloggheim-
um er eitt, en að nýta sér opinberan
vinnustað til að bera svona lagað út
er hámark ósvífninnar. Rektor þarf að
taka afstöðu til mögulegrar brottvikn-
ingar því þetta er klárlega ekki stofn-
uninni til framdráttar. Ég er búinn að
fá algjörlega nóg af því hvað þessi op-
inberi starfsmaður hefur lagt sig fram
við að niðurlægja fjölskyldu mína. Ég
er búinn að fá mig fullsaddan,“ segir
Jóhannes.
Jóhannes Jónsson
Hólmsteins Gissurarsonar
Flugrit Hannesar
„Hins vegar tel ég mig
alveg hafa haft fullan
rétt til að dreifa þessu
því þær upplýsingar
sem þarna koma fram
eru hárréttar.“
TrAusTi HAfsTeinsson
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
fundar með rektor Hannes
Hólmsteinn er sagður dreifa
óhróðurspésum á göngum
Háskóla Íslands en sjálfur segist
hann aðeins hafa sýnt nokkrum
samkennurum myndina.
Alrangt Hannes þvertekur fyrir að
hafa dreift myndinni þó svo hann
telji sig hafa fullan rétt til þess.
ekki hrifinn Jóhannes segist hafa
fengið sig fullsaddan á ósmekklegri
framgöngu í garð fjölskyldu sinnar.
Klíkuskapur í bönkunum Hannes
segir myndina eiga erindi við almenning
því hún sýni vel íslenskt klíkusamfélag.
síðasti séns
Frestur Kaupþings til að eignast 87
prósenta hlut í Arion banka renn-
ur út í dag, mánudag. Fari svo að
Kaupþing eignist hlutinn verður
ríkið aðeins aðaleigandi Lands-
bankans að því er fram kemur á
vef Ríkisútvarpsins en ríkið á nú
fimm prósent hlut í Íslandsbanka.
Skilanefnd Kaupþings hefur fund-
að með kröfuhöfum Kaupþings í
London um helgina. Átta spari-
sjóðir hafa sótt um stofnfjárfram-
lög til ríkisins og ef ríkið verður við
því renna þeir eignarhlutar einnig
til Bankasýslunnar sem fer með
hluti ríkisins í fjármálafyrirtækj-
um. Einnig verður athugað hvort
Landsbankinn geti orðið hæfur
til að fara aftur inn á hlutabréfa-
markað og er stefnt að því að ríkið
hafi losað um sitt eignarhald á
bönkunum eftir fimm ár en þá lýk-
ur starfstíma Bankasýslu ríkisins
lögum samkvæmt.
Par tekið með
fíkniefni
Karlmaður á fimmtugsaldri og
kona á þrítugsaldri voru hand-
tekin grunuð um aðild að fíkni-
efnainnflutningi eftir húsleit í
Grafarvogi fyrir helgi. Hálft kíló
af kókaíni og 300 grömm af amf-
etamíni fundust við húsleitina.
Frá þessu var greint í kvöld-
fréttum Stöðvar 2 á sunnudag.
Þar kom fram að fólkið hafi verið
úrskurðað í gæsluvarðhald fram
á miðvikudag.
Fíkniefnalögreglan hefur
farið í alls fimm húsleitir vegna
málsins og fundust einhver
fíkniefni í þeim.
Kærleikskúla
fyrir börnin
„Markmið okkar er að gefa
fleiri börnum tækifæri á að
njóta sumar- og helgardval-
ar í Reykjadal,“ segir Berglind
Sigurgeirsdóttir, markaðsstjóri
Styrktarfélags lamaðra og fatl-
aðra, sem nú fyrir jólin selur
Kærleikskúluna í sjöunda sinn.
Á hverju ári efnir Styrktar-
félagið til samstarfs við nýjan
listamann um hönnun Kær-
leikskúlunnar, en allur ágóði
af sölu hennar rennur óskiptur
til fatlaðra barna og starfsins í
Reykjadal. Í ár er það listamað-
urinn Hreinn Friðfinnsson
sem skreytir kúluna. Kúlunni
er síðan pakkað af starfsmönn-
um á vinnustofunni Ás, sem
er verndaður vinnustaður. Líkt
og síðustu ár verður kúlan seld
í takmörkuðu upplagi frá 5. til
19. desember.
Línubátur fékk
tvö brot á sig
Línuveiðibátur lagðist á hlið-
ina á sunnudag er hann fékk
tvívegis á sig brotsjó austur af
Horni. Það var við fyrra brotið
sem báturinn lagðist á hliðina
og strax eftir að skipstjóra tókst
að rétta hann við reið síðara
brotið yfir. Frá þessu var greint
í kvöldfréttum Sjónvarpsins.
Talsverður sjór flæddi niður í
vistarverjur skipverja og urðu
talsverðar skemmdir á eigum
þeirra. Tveir menn slösuðust
lítillega og þurftu að leggjast
undir læknishendur við kom-
una í land.
2 föstudagur 4. desember 2009 fréttir
Ólafur Ólafsson, fjárfestir og fyrrver-
andi forstjóri Samskipa, flutti á dögun-
um út úr húsi sínu í skjóli nætur. Ná-
grannar Ólafs vöknuðu um hánótt er
búslóðin var borin út.
Ólafur flutti ásamt eiginkonu sinni,
Ingibjörgu Kristjánsdóttur, út úr húsi
þeirra við Huldubraut 28 í Kópavogi.
Flutningurinn vakti athygli nágranna
sem vöknuðu að næturlagi við skar-
kala frá húsinu. Eftir því sem DV kemst
næst var gámaflutningabíl bakkað upp
að húsinu og búslóðin borin út í gám.
Hjónin fluttu því endanlega úr húsinu
og eru skráð í þjóðskrá með lögheimili
á Englandi. Fjölskyldan býr hins veg-
ar í Sviss þar sem börn þeirra ganga í
skóla.
Sérkennileg
tímasetning
Gísli Jón
Höskulds-
son, ná-
granni
Ólafs og
Ingibjargar,
staðfestir að
flutning-
urinn hafi
átt sér stað
um miðja nótt.
Hann segir
ná-
granna hafa undanfarið velt tímasetn-
ingunni fyrir sér. „Já, nágrannarnir
urðu varir við þetta og hafa velt þessu
fyrir sér,“ segir Gísli Jón.
Sigrún Einarsdóttir, annar nágranni
Ingibjargar og Ólafs, segir nágrannana
tala um flutningana í skjóli nætur. Hún
tekur það fram að sjálf hafi hún ekki
verið heima þegar flutningarnir stóðu
yfir og að eðlilegar skýringar geti leg-
ið að baki flutningum að næturlagi.
„Sjálf vaknaði ég ekki við þetta því ég
var stödd erlendis. En nágrannarn-
ir tala um að þarna hafi komið flutn-
ingabíll um miðja nótt. Ég heyri þá tala
um þetta og segja þetta hafa verið sér-
kennilegt. Það var tekið eftir þessu en
það sá enginn almennilega hvað var
sett í bílinn því honum var bakkað al-
veg að. Það getur hins vegar verið að
hentugt hafi verið fyrir þau að fá bílinn
að næturlagi,“ segir Sigrún.
MySpace frá Lausanne
Ólafur, gjarnan kenndur við Samskip,
er í hópi íslenskra útrásarvíkinga þar
sem hann hefur verið í forsvari fyrir
mörg fjárfestingafyrirtæki og leiddi
hópinn sem keypti Búnaðarbank-
ann af íslenska ríkinu. Hann hefur
staðið í deilum við nágranna sína
við sumarhús hjónanna á Snæ-
fellsnesi og um mitt ár voru gerðar
húsleitir á heimili hans vegna rann-
sóknar á kaupum hlutabréfa í Kaup-
þingi.
Samkvæmt heimildum DV stefnir
Ólafur á að sækja um svissneskt rík-
isfang enda fjölskyld-
an al-
flutt til Sviss. Börnin þeirra tvö, fjórtán
og sautján ára, sækja skóla í Laus-
anne í Sviss. Yngra barnið heldur úti
MySpace-síðu frá Lausanne í Sviss.
Passa húsið
Samkvæmt frásögnum nágranna Ingi-
bjargar og Ólafs er hús þeirra síður en
svo tómt þó svo hjónin hafi flutt búslóð
sína á brott að næturlagi. Þar býr fyrr-
verandi þjónustufólk þeirra og au-pair
stúlka, öll ættuð frá Filippseyjum. Þeg-
ar sérstakur saksóknari framkvæmdi
húsleitina í sumar bjuggu fjórir ein-
staklingar í einbýlishúsi hjónanna
sem þurftu að gefa skýringar á tengsl-
um sínum við eigendur hússins. Einn
af íbúunum, Mirasol Lucanas Asayas,
sagði þá í samtali við DV að hún hefði
áður starfað hjá Ingibjörgu og Ólafi.
„Ég var au-pair stúlka hjá þeim,“ sagði
Mirasol.
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir náðist
hvorki í Ingi-
björgu né
Ólaf til að
fá þeirra
við-
brögð
við
vinnslu
frétta-
rinnar.
FLUTTU ÚT
Í SKJÓLI NÆTUR
TrauSTI hafSTeInSSon
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
flott hús Að næturlagi bakk-
aði flutningabíll að húsinu og
búslóðin var borin út í bíl.
Búa í Sviss Ingibjörg og Ólafur eru
skráð með lögheimili á Englandi en
búa í Lausanne í Sviss. Þar heldur
sonur þeirra úti MySpace-síðu.
„En nágrannarnir tala um að
þarna hafi komið flutningabíll
um miðja nótt. Ég heyri þá tala
um þetta og segja þetta hafa
verið sérkennilegt.“
2
2 mánudagur 2. nóvember 2009 fréttir
Barnalán Glitnis og Byrs Flest af
barnalánunum tíu í stofnfjáraukning-
unni í Byr í desember árið 2007 fóru frá
Glitni og til barna í Nóatúnsfjölskyldunni
svokölluðu, eiganda fjárfestingafé-
lagsins Saxhóls sem var stór hluthafi í
báðum fjármálafyrirtækjunum.
BARNALÁN NÓATÚNS-
FJÖLSKYLDUNNAR
Foreldrarnir sem ákváðu að skuld-
setja börn sín hjá Glitni til að fjár-
magna stofnfjárbréfakaup ófjárráða
barna sinna í sparisjóðnum Byr árið
2007 koma flestir úr systkinahópn-
um í Nóatúnsfjölskyldunni svoköll-
uðu. Viðskiptablaðið greindi frá því
á fimmtudaginn að Glitnir hefði lán-
að tíu börnum peninga til að kaupa
stofnfjárbréf í Byr í stofnfjáraukning-
unni í desember 2007 og að Íslands-
banki, áður Glitnir, ætlaði sér að inn-
heimta lánin.
Blaðið greindi hins vegar ekki frá
því hverjir foreldrar barnanna tíu
væru en alveg ljóst var af fréttinni
að það voru foreldrar barnanna sem
tóku ákvörðunina um að leita eft-
ir lánveitingunni til stofnfjárbréfa-
kaupanna fyrir hönd barna sinna þar
sem þau voru ekki fjárráða á þeim
tíma sem lánin voru veitt.
Síðan fréttin birtist í Viðskipta-
blaðinu hefur Íslandsbanki gefið
það út að hann muni ekki innheimta
lánin til barnanna og munu þau þá
væntanlega verða afskrifuð í bank-
anum. Börnin munu því væntanlega
ekki bíða fjárhagslegt tjón af lántök-
unni.
Lánað til barna systkina
Systkinahópurinn sem um ræðir eru
börn Jóns Júlíussonar, fyrrverandi
eiganda Nóatúnsverslananna, sem
seldi verslanirnar inn í Kaupás árið
2000. Samkvæmt heimildum DV eru
flest af börnunum úr fjölskyldum
systkinanna. Fjárfestingafélag syst-
kinanna, Saxhóll, átti um 7,5 pró-
senta hlut í Byr og félag sem var að
hluta til í eigu þess, Saxbygg, keypti 5
prósenta hlut í Glitni í apríl 2007 fyrir
um 20 milljarða króna. Saxhólssystk-
inin voru því stórir hluthafar í báðum
fjármálafyrirtækjunum, Byr og Glitni,
þegar stofnfjáraukingin fór fram.
Þegar lánveitingarnar voru veitt-
ar í stofnfjáraukningunni átti sér stað
mikil valdabarátta innan Byrs um
framtíðaryfirráð yfir sparisjóðnum
og má reikna með að lánveitingarnar
til barnanna hafi verið liður í þessari
baráttu.
Stofnfjáreignin sú sama
Í nær öllum tilfellum er stofnfjáreign
barnanna sú sama: rúmlega 14 millj-
ónir króna. Öll áttu börnin stofnfjár-
bréf fyrir stofnfjáraukninguna í Byr
en höfðu einungis rétt á að kaupa
ákveðið magn bréfa til viðbótar, upp
að ákveðinni upphæð, og skýrir það
þá staðreynd að flest þeirra eiga jafn-
mikið af stofnfjárbréfum.
Þrjú af börnunum sem fengu lán
frá Glitni til að kaupa stofnfjárbréf í
sparsijóðnum eru dætur Jóns
Þorsteins Jónssonar,
fyrrver-
andi stjórnarformanns Byrs. Þær eru
sautján, fjórtán og fjögurra ára í dag.
DV hefur ekki náð tali af Jóni Þor-
steini sem búsettur er í Bretlandi um
þessar mundir.
Freistandi ef áhættan er engin
Börn systkina Jóns Þorsteins fengu
einnig lán til að taka þátt í stofnfjár-
aukningunni, meðal annars tvö börn
Einars Arnar Jónssonar. Þau eru fædd
árin 1991 og 1999. Einar Örn stað-
festir að börn hans hafi fengið lán hjá
Glitni til að fjármagna stofnfjárkaup-
in. Hann segir að þegar viðræðurnar
um lánveitingarnar hafi átt sér stað
við Glitni hafi bankinn kynnt lánin
sem svo að veð væri tekið í bréfun-
um og að önnur áhætta væri ekki fyr-
ir hendi. „Forsendan á bak við þetta
hjá okkur var sú að bankinn ætlaði
bara að ganga að þessum bréfum
ef þetta gengi ekki upp og punktur,“
segir Einar Örn.
Aðspurður hvort hann telji að
þetta réttlæti þá ákvörðun foreldr-
anna að taka lán fyrir hönd barnanna
og skuldsetja þau þar með segir Ein-
ar: „Ef það er engin áhætta í þessu,
hvort sem það eru börn eða aðrir,
hlýtur að vera ákaflega freistandi að
taka slík lán... Við fengum svo bara
fjármálakerfið á hliðina en á þessum
tíma voru menn öðruvísi stemmdir
og töldu ekki mikla áhættu í þessu,“
segir Einar og bætir því við að auðvit-
að sé það siðferðileg spurning hvort
menn hefðu átt að taka þessi lán fyr-
ir börn sín eða ekki. Hann telur hins
vegar að áhættuleysi lántökunnar
hafi réttlætt þá ákvörðun. „Það hlýt-
ur alltaf að spila stóran þátt í þessu
hversu mikil áhættan var fyrir börnin.
Þetta var kynnt sem áhættulaus lán-
taka og að ekki yrði gengið á börnin,“
segir Einar þegar hann er spurður að
því hvort honum finnist skuldsetn-
ing barna ekki vera siðlaus óháð því
hvort í henni felist áhætta eða ekki.
Lánveitingarnar voru kynnt-
ar þannig fyrir hönd bankans að
arðgreiðslurnar af stofnfjárbréfa-
eigninni myndu greiða lánin upp á
árunum 2008 og 2009. Íslenska fjár-
málakerfið fór hins vegar á hliðina og
varð því ekkert af því að lántakend-
urnir fengju arð af stofnfjárbréfunum
og greiddu hann til Glitnis nú í sum-
ar. Lánin eru því enn útistandandi í
bankanum, bæði hjá börnunum og
þeim lögráða einstaklingum sem
tóku lánin. Viðskiptin hefðu því get-
að gengið upp ef íslenska fjármála-
kerfið hefði ekki farið á hliðina. „Það
vissi auðvitað enginn hvað myndi
gerast,“ segir Einar Örn og vísar til ís-
lenska efnahagshrunsins.
Enginn lét hann
vita í bankanum
Einar segir að ef hann hefði vitað að
hugsanlega væri það lögbrot að taka
slík lán í nafni barnanna hefði hann
ekki tekið lánin fyrir hönd barna
sinna tveggja. Hann segist ekki hafa
vitað það á þeim tíma að ekki væri
heimilt að láta ólögráða einstaklinga
taka lán til að kaupa hlutabréf og að
enginn í bankanum hafi sagt hon-
um það. Aðspurður hvort hann hafi
ekki fengið bréf frá sýslumanninum
í Reykjavík þar sem hann lét foreldr-
ana vita að þeir mættu ekki skuldsetja
börn sín á þennan hátt til að kaupa
hlutabréf segir Einar Örn að bréfið
frá sýslumanni hafi borist í október
2008, tíu mánuðum eftir stofnfjár-
aukninguna. „Þá var þetta orðinn
hlutur... Maður fer niður í banka og
býst þá við að þeir segi: Þetta geng-
ur ekki. Þú verður að fá samþykki hjá
sýslumanni fyrir þessu. Þá kannski
hefði ég stoppað. Bankinn var ekk-
ert að benda okkur á þetta... Ég hefði
viljað fá ábendingu um að þetta
mætti ekki,“ segir Einar Örn og bætir
því við að fólk hafi verið með falskar
væntingar um að þetta væri í lagi þar
sem bankinn hefði gefið grænt ljós á
lánveitingarnar.
Hundruð í sömu sporum
Barn bróður þeirra Jóns Þorsteins og
Einars Arnar, Júlíusar Þórs Jónsson-
ar, fékk einnig lán í Glitni. Það var
17 ára þegar lánin voru veitt. Annað
barn Jóns er einnig stofnfjáreigandi
en var orðið fjárráða þegar lánveit-
ingarnar voru veittar. Í þeirra tilfell-
um er stofnfjáreignin í Byr sú sama
og rætt var um hér að ofan.
Júlíus vildi ekki ræða um lánveit-
„Ef það er engin áhætta í þessu, hvort sem það
eru börn eða aðrir, þá hlýtur að vera ákaflega
freistandi að taka slík lán.“
InGI F. VILHjáLmSSon
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25
Rafknúnir
hæginda-
stólar
•
standa upp
• Einfaldar stillingar
og fjölbreytt úrval
Opið laugardaga til jóla kl. 11-16