Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.2009, Blaðsíða 54
54 föstudagur 4. desember 2009 helgarblað
Sviðsframkoma söngvarans
og American Idol-stjörn-
unnar Adams Lambert á
American Music Awards-
hátíðinni, sem send var
út hjá sjónvarpsstöðinni
ABC, hefur valdið miklu
fjaðrafoki vestanhafs, enda
Bandaríkjamenn afar við-
kvæmir fyrir nekt, slæmu
orðbragði og kynferðisleg-
um tilburðum á sjónvarpsskjánum.
Það sem Adam Lambert gerði, og
fór fyrir brjóstið á mörgum Banda-
ríkjamanninum, var að hann smellti
kossi á karlkyns hljómborðsleikara,
fór höndum um dansara og setti
andlit sitt í örstutta stund í klofið á
þeim sama dansara.
Vissulega má setja spurninga-
merki við þetta allt saman ef maður
er þannig innstilltur, en ætla mætti
að Lambert hefði verið merktur skar-
latsrauða stafnum ef sumir fengju
einhverju um það ráðið.
Slæm hegðun í sjónvarpi
Skemmtikraftar hafa hagað sér illa,
eða verið sakaðir um það, í sjónvarpi
í fjölda áratuga og löngu áður en um-
ræddur Adam Lambert fæddist. Þó
erfitt sé að fullyrða hver reið á vaðið
má ætla að rokkkonungurinn Elvis
Presley hafi verið með þeim fyrstu,
og sennilega var enginn meira hissa
á moldviðrinu en hann sjálfur.
Til að vernda æsku landsins fyrir
áhrifum mjaðmahnykkja konungs-
ins var hann í árdaga ferils síns að-
eins sýndur frá mitti og upp úr í sjón-
varpinu.
Það kúnstuga var þó að áður en
þessi þaulhugsaða myndatökuað-
ferð var tekin upp hafði konungur-
inn verið sýndur í allri sinni dýrð í
sjónvarpinu við ýmis tækifæri. Þessi
tökuaðferð var meðal annars notuð
í þætti Eds Sullivan þann 6. janúar
1957, þegar Presley kom þar fram í
þriðja skipti. Í hin tvö fyrri skiptin
var engum slíkum aðferðum beitt, en
sviðsframkomu Presleys var líkt við
nektardans.
Doors og Sullivan
Um áratug síðar nýtti Jim Morrison,
söngvari hljómsveitarinnar Doors,
listrænt frelsi sitt í þætti áðurnefnds
Eds Sullivan. Ed þessi var að segja
má holdgervingur banda-
rísks siðferðis og gilda þar
að lútandi og honum, og
framleiðendum þáttarins,
hugnaðist ekki texti lags-
ins Light My Fire, þar sem
segir „Girl, we couldn’t get
much higher“ því í þeirra
eyrum hljómuðu orðin líkt
og skírskotun til fíkniefna-
neyslu. Þeir kröfðust þess að
Jim Morrison breytti textan-
um, sem hann og gerði og á
æfingu var lagið sungið með
breytingunni.
En í beinni út-
sendingu söng Jim
Morrison lagið með
upphaflega og rétta
textanum. Hljóm-
sveitinni var ekki boð-
ið að koma aftur fram
í þætti Eds Sullivan og
segir sagan að Ed hafi
neitað að taka í hönd
Morrisons að flutn-
ingi lagsins loknum.
Ögrar kaþólsku
kirkjunni
Víkur nú sögunni
að bandaríska sjón-
varpsþættinum Sat-
urday Night Live og
söngkonunni Sinead
O’Connor. Sinead
ákvað, þegar hún
kom fram í honum 3.
október 1992, að nota
þáttinn til að koma á
framfæri áliti sínu á
kaþólsku kirkjunni.
Hún söng lag
Bobs Marley, War, og að flutningi
loknum hélt hún á loft ljósmynd af
Jóhannesi Páli II páfa, reif hana í
tætlur og sagði: „Berjumst við hinn
raunverulega óvin.“ Síðan fleygði hún
sneplunum í átt að myndavélinni.
Í kjölfar útsendingarinnar lýstu
fjölmargir almennir sjónvarpsáhorf-
endur og kirkjunnar menn hneyksl-
an vegna framferðis Sinead O’Conn-
or.
Kossar og hægra brjóst
Söngkonan Madonna setti mark sitt
á Video Music Awards-hátíð MTV-
sjónvarpsstöðvarinnar 28. ágúst
2003. Líkt og henni virðist einni lag-
ið tókst henni að hneyksla og gleðja í
sömu andránni, ekki þó
sama fólkið vel að merkja.
Madonna tók sig til og
kyssti bæði söngkonuna
Christinu Aguilera og Britn-
ey Spears á opinn munn-
inn.
En þess var ekki langt að
bíða að Madonnukossarn-
ir hyrfu nánast í gleymsku
og dá, því nokkrum mán-
uðum síðar komu söngv-
ararnir Janet Jackson og
Justin Timberlake fram í
hálfleik á Super Bowl 1.
febrúar 2004.
Í miðju atriði skötuhjú-
anna tókst Justin Timber-
lake, fyrir mistök eða ekki,
að bera hægra brjóst Janet.
Í málshöfðun konu
nokkurrar á hendur Janet
vegna uppákomunnar var
lýst alvarlegum áhrifum
uppátækisins á málshöfð-
anda og fleiri Bandaríkja-
menn og ítrekað að fjöldi
barna hefði séð atvikið og
beðið verulegan skaða af.
Nú hefur uppátæki Adams Lamb-
ert sýnt og sannað að enn er grunnt
á móðursýkinni þegar siðferði al-
mennings er misboðið með þessum
hætti.
Það er ekkert nýtt að listamenn nýti beinar útsendingar
til að koma skoðunum sínum á framfæri. Skoðunum
er hægt að lýsa með orðum eða athöfnum. Einnig
kann að vera að um engar skoðanir sé að ræða
heldur eingöngu að siðapostulum hugnist ekki
sviðsframkoma listamanna.
Óþekk í beinni
Hljómsveitinni var ekki boðið að
koma aftur fram í þætti Eds Sulli-
van og segir sagan að Ed hafi neit-
að að taka í hönd Morrisons að
flutningi lagsins loknum.
Hægra brjóst í beinni Þegar
þarna var komið sögu var ekki að sjá
nokkra undrun á Janet og Justin.
Britney Spears og Madonna
Koss þeirra féll fljótt í skuggann af
„mistökum“ Justins og Janet.
Karlmaður kyssir karlmann Adam
Lambert gekk fram af bandarískum
sjónvarpsáhorfendum. MynD AFP
Beindi spjótum sínum að kaþólsku
kirkjunni Hneykslaði kirkjunnar menn
og almenning í beinni útsendingu.
Ed Sullivan Varð nokkrum sinnum
fórnarlamb óþekktar listamanna.