Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.2009, Blaðsíða 17
fréttir 4. desember 2009 föstudagur 17
Orð Landsbanka gegn
ríkisLögregLustjóra
starfsemi Fjármálaeftirlitsins. Fjár-
málaeftirlitið telur sér því ekki fært að
veita þér upplýsingar um hvort og þá
hvaða mál eru til skoðunar hjá eftir-
litinu varðandi rekstur Landsbanka
Íslands, í þessu tilviki að því er varðar
aðgerðir gegn peningaþvætti og fjár-
mögnun hryðjuverka.“
Í vinnu hjá Jóni Gerald
Ingólfur Guðmundsson, þáverandi
framkvæmdastjóri einkabankasviðs
Landsbankans, rak erindi Jóns Ger-
alds og viðskiptafélaga hans í Miami
innan Landsbankans árið 2006.
Ingólfur gerir lítið úr viðskiptun-
um með bréfin frá Venesúela, aðeins
hafi verið um að ræða könnun á gildi
þeirra og markaðsvirði. Aldrei hafi
komið fram beiðni um viðskipti með
þau.
Þetta stangast á við aðrar heimild-
ir innan bankans þar sem fullyrt er að
viðskiptafélagi Jóns Geralds í Miami
hafi átt að fá 300 milljónir króna fyrir
að koma bréfunum í fjárstýringu hjá
Landsbankanum og að bankinn hafi
átt að fá þóknun fyrir.
Ingólfur var stjórnarformaður Ís-
lenska lífeyrissjóðsins, sem var í
vörslu Landsbankans. Í kjölfar slæmr-
ar afkomu og grunsemda Fjármálaeft-
irlitsins um lögbrot í starfsemi sjóðs-
ins var Ingólfi vísað úr starfi í júní
síðastliðnum og sérstökum saksókn-
ara falið að rannsaka hvort hann hefði
brotið lög, í félagi við samstarfsmenn
sína í stjórn sjóðsins. Rannsókninni er
ekki lokið og niðurstöður liggja ekki
fyrir. Engu að síður bauð Ingólfur sig
aftur fram til stjórnarsetu í sjóðnum
í október síðastliðnum og situr nú í
varastjórn.
Í kjölfar brotthvarfs frá Landsbank-
anum vann Ingólfur síðastliðið sum-
ar og fram á vetur við að koma á fót
Kosti, lágvöruverðsverslun Jóns Ger-
alds Sullenberger í Kópavogi. „Ég tók
að mér tímabundið starf fyrir Jón Ger-
ald. Ég annaðist fjármálin hjá honum
til að byrja með.“
Ingólfur situr nú í stjórn Kosts.
Hann vann 20 ár í Landsbankan-
um, meðal annars sem útibússtjóri
og framkvæmdastjóri viðskipta-
bankasviðs og síðar einkabankasviðs,
en þeirri stöðu gegndi hann þegar
skuldabréfin frá Venesúela rak á fjörur
hans í bankanum.
Úr Lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti
Og fjármögnun hryðjuverka:
17. gr. Almenn tilkynningaskylda.
Samkvæmt skriflegri beiðni lögreglu, sem rannsakar peningaþvætti eða
fjármögnun hryðjuverka, skulu tilkynningaskyldir aðilar láta í té allar upplýsingar
sem nauðsynlegar eru taldar vegna tilkynningarinnar.
18. gr. Skylda til að forðast viðskipti.
Forðast skal viðskipti þegar fyrir hendi er vitneskja eða grunur um að rekja megi
þau til peningaþvættis eða fjármögnunar hryðjuverka. Skal tilkynna um þau til
lögreglu og taka fram í tilkynningunni innan hvaða frests tilkynningaskyldum
aðilum er skylt að framkvæma viðskiptin.
19. gr. Meðferð tilkynninga o.fl.
Lögreglu ber að staðfesta skriflega móttöku tilkynningar skv. 17. og 18. gr.
22. gr. Tilnefning ábyrgðarmanns.
Tilkynningaskyldir aðilar bera ábyrgð á því að ákvæðum laga þessara og reglu-
gerða og reglna settra samkvæmt þeim sé framfylgt. Þeim er skylt að tilnefna
einn úr hópi stjórnenda sem sérstakan ábyrgðarmann sem að jafnaði annast
tilkynningar í samræmi við ákvæði 17. og 18. gr. og hefur skilyrðislausan aðgang
að áreiðanleikakönnun viðskiptamanna, viðskiptum eða beiðnum um viðskipti
ásamt öllum þeim gögnum er skipt geta máli vegna tilkynningar.
Þrátt fyrir þessa yfirlýs-
ingu virðist sá möguleiki
fyrir hendi að Lands-
bankinn hafi engu að
síður tilkynnt málið með
öðrum hætti.
Jón Gerald Sullenberger
Ingólfur Guðmundsson,
sá er aðstoðaði Jón Gerald
með Venesúelabréfin 2006 í
Landbankanum, situr nú í stjórn
Kosts, fyrirtækis Jóns Geralds.
Umboðs- og söluaðili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
www.birkiaska.is
Birkilauf
Njótum aðventunnar saman
Einstakar
lífsreynslusögur
„Stórfróðleg viðtöl og
ánægjuleg aflestrar.”
Jón Þ. Þór, DV.
Milli Mjalta og Messu
holabok.is
2 dálkar = 9,9 *10
Falleg jólavara
Nýjar vörur
Stærri búð
Opið: má-fö. 12-18, Opið á laugard. til jóla frá 12-16
Dalvegi 16a,
Rauðu múrsteinshúsunum
Kóp. 201 - S: 517 7727
www.nora.is
Fyrir bústaðinn og heimilið