Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.2009, Blaðsíða 40
40 föstudagur 4. desember 2009 helgarblað
Hlynur Þór Sigurðsson fæddist í
Reykjavík og ólst þar upp. Hann
stundaði grunnskólanám við Öldu-
selsskóla, stundaði síðan nám við
Verzlunarskóla Íslands og var þar í
5. bekk.
Hlynur Þór hóf kornungur að æfa
knattspyrnu hjá ÍR og æfði og keppti
með öllum yngri flokkum félagsins.
Þá var hann aðstoðarþjálfari yngri
flokka hjá ÍR og starfaði við leikja-
námskeið félagsins á sumrin auk
þess hann sinnti dómgæslu í knatt-
spyrnuleikjum yngri flokka.
Fjölskylda
Bræður Hlyns eru Arnþór Sigurðs-
son, f. 3.10. 1988, nemi við HR; Krist-
ján Þór Sigurðsson, f. 16.2. 1996,
nemi við Ölduselsskóla.
Foreldrar Hlyns eru Sigurður B.
Arnþórsson, f. 9.6. 1954, löggiltur
endurskoðandi og framkvæmda-
stjóri Löggiltra endurskoðenda, og
Aðalheiður Diego Hjálmarsdóttir,
f. 6.4. 1966, aðstoðarskólastjóri við
Ölduselsskóla.
Ætt
Sigurður er sonur Arnþórs, húsa-
smiðs í Reykjavík Sigurðssonar,
verkamanns í Reykjavík Sigurðsson-
ar. Móðir Arnþórs var Kristín Frið-
riksdóttir.
Móðir Sigurðar er Arndís Árna-
dóttir, b. á Hellnafelli í Grundarfirði
Sveinbjörnssonar, og Herdísar Gísla-
dóttur.
Aðalheiður er dóttir Hjálmars Di-
ego flugumferðarstjóra Arnórsson-
ar Diego, yfirflugumferðarstjóra í
Reykjavík Hjálmarssonar Diego, full-
trúa tollstjóra í Reykjavík Johnson Di-
ego, skipstjóra á Gelti í Dýrafirði, frá
Boston á Englandi. Móðir Arnórs var
Halldóra, systir Jasonar kaupmanns,
föður Benedikts kristniboða. Móð-
ir Hjálmars var Guðfinna Vilhjálms-
dóttir, bæjarpósts á Ísafirði Jónsson-
ar og Sesselju, systur Péturs, afa Ólafs
Þ. Þórðarsonar alþm. og Kjartans Ól-
afssonar, fyrrv. alþm.
Móðir Aðalheiðar er Anna Krist-
jánsdóttir, verkamanns í Reykjavík
Arngrímssonar, b. á Höfða í Eyrar-
sveit Magnússonar. Móðir Önnu var
Aðalheiður Friðriksdóttir, b. á Litla-
teigi á Akranesi Bergssonar, í Bergs-
bæ í Ólafsfirði Jónssonar.
Hlynur Þór verður jarðsunginn
frá Seljakirkju föstudaginn 4.12. kl.
13.00.
Blóm og kransar eru vinsamlegast
afþakkaðir, en þeim sem vilja minn-
ast hans er bent á Minningarsjóð
Hlyns Þórs Sigurðssonar, kt. 411209-
0160, banki 115-05-60550.
Rögnvaldur Á.
Ólafsson
arkitekt
f. 5.12. 1874, d. 14.2. 1917
Rögnvaldur fæddist í Ytri-Hús-
um í Dýrafirði, sonur Ólafs
Zakaríassonar, bónda þar, og
Veróníku Jónsdóttur húsfreyju.
Rögnvaldur lauk stúdentsprófi
frá MR 1900 og stundaði nám
í Det Tekniske Selskaps Skole
í Kaupmannahöfn 1901-1904.
Hann var ráðunautur ríkisstjórn-
arinnar um húsagerð frá 1904 og
til æviloka 1917 og er almennt
talinn fyrsti íslenski húsameist-
arinn.
Rögnvaldur er án efa einn
merkasti íslenski arkitektinn.
Hann teiknaði mörg af glæsi-
legustu timburhúsunum sem
reist voru í Reykjavík á fyrsta
áratug aldarinnar, t.d. nokkur
við Tjarnargötuna og þar með
talinn Ráðherrabústaðinn. Þá
teiknaði hann turninn á Bern-
höftstorfunni við Amtmannsstíg
1, Húsavíkurkirkju og kirkjuna í
Hjarðarholti í Dölum. Auk þess
er hann höfundur að ýmsum
svipmestu fyrstu steinhúsunum,
s.s. Pósthúsinu i Pósthússtræti,
Vífilsstaðaspítala og skólahúsum
á Hvanneyri og á Hólum. Mörg
húsa Rögnvalds eru snilldarleg,
íslensk útfærsla á Sveitserstíl og
ný-klassík. Þá má sjá mansard-
þök á sumum húsa hans, s.s.
Pósthúsinu. En það sem einkum
einkennir persónulegan stíl hans
er afar næm tilfinning fyrir hlut-
föllum og vandaðar útfærslur.
Sigurður Ólafsson
söngvari og hestamaður
Fæddur 4.12. 1916,
dáinn 13.7. 1993
Sigurður var sonur Ólafs Jón-
atanssonar frá Kolbeinsstöð-
um, verkamanns í Reykjavík, og
Þuríðar Jónsdóttur frá Elliða í
Staðarsveit. Dóttir Sigurðar er
Þuríður söngkona.
Sigurður stundaði bif-
reiðaakstur á yngri árum, var
rannsóknarmaður á Rann-
sóknarstofu HÍ og á Keldum,
gærumatsmaður hjá SÍS, kjöt-
matsmaður á vegum yfirdýra-
læknis og sá um talningu búfjár í
borgarlandinu á vegum Reykja-
víkurborgar.
Sigurður sótti ungur söng-
tíma hjá Sigurði Birkis og Guð-
mundi Jónssyni, söng með
Karlakór Reykjavíkur frá tuttugu
og þriggja ára aldri og síðar með
eldri félögum kórsins. Hann
söng í Rigoletto, fyrstu óperunni
sem hér var færð upp, í óperett-
unum Leðurblökunni og Bláu
kápunni og lék og söng í fjölda
leikrita. Hann hélt marga tón-
leika, var söngvari með ýmsum
danshljómsveitum og söng dæg-
urlög inn á fjölda hljómplatna.
Þá var Sigurður einn þekkt-
asti hestamaður sinnar kyn-
slóðar, stundaði hestamennsku
frá fermingaraldri og átti fjölda
hrossa en þekktasta skeiðhross
hans var Gletta sem átti Íslands-
met í skeiði í tuttugu og átta ár.
Sigurður var kvæntur Ingu Val-
fríði Einarsdóttur frá Miðdal,
systur Guðmundar frá Miðdal,
föður Errós, Ara Trausta og Egils
arkitekts.
minning
Hlynur Þór Sigurðsson
nemi við vÍ og knattspyrnumaður hjá Ír
merkir
Íslendingar
Fæddur 17.7. 1991, dáinn 25.11. 2009
Eftirmæli
Elvar Lúðvík Guðjónsson, fyrir-
liði knattspyrnuliðs ÍR
„Hlynur var góður félagi og félag-
inu til sóma. Hann átti framtíðina
fyrir sér í fótboltanum og var mjög
áhugasamur.
Hann var gegnheill ÍR-ingur og
vildi félaginu allt hið besta. Var til-
búinn að fórna tíma sínum fyrir fé-
lagið hvenær sem var í hvers kyns
störfum og í þjálfun. Í þjálfun náði
hann til guttanna og var þeim innan
handar og mikil fyrirmynd. Hann
sinnti þjálfuninni af kostgæfni og
vandvirkni með bros á vör. Þegar
hann kom á æfingu breyttust jafn-
vel mestu skeifur á munnum sumra
drengjanna í skært og fallegt bros.
Hans verður svo sannarlega sárt
saknað af öllum ÍR-ingum og öll-
um þeim sem þekktu hann. Sjálfur
sendi ég mínar dýpstu og innileg-
ustu samúðarkveðjur til fjölskyldu
Hlyns og allra ÍR-inga. Minning
hans verður okkur styrkur fyrir
komandi sumar.“
Hörður Heiðar Guðbjörnsson,
framkvæmdastjóri ÍR
„Hlynur Þór var uppalinn ÍR-ing-
ur sem byrjaði að æfa hjá félaginu
fimm ára gamall. Svo um leið og
hann hafði aldur til fór hann að að-
stoða við þjálfun hjá félaginu. Hann
var búinn að vera aðstoðarþjálf-
ari síðustu tvö til þrjú ár og í sum-
ar var hann að starfa hjá okkur við
íþróttanámskeið hjá yngri flokkun-
um. Þá hafði hann einnig verið að
dæma hjá yngri flokkunum. Öllum
þeim störfum sem hann tók að sér
hjá ÍR skilaði hann af sér eins vel og
mögulegt var.
Hlynur var heiðarlegur, prúður
og samviskusamur drengur sem
hugsaði nánast númer eitt um fé-
lagið. Það var honum kærast og
hann vildi leggja sig allan fram við
að ÍR dafnaði eins og hann óskaði
sér. Hlynur var toppfélagi og algjör
reglumaður. Þó að hann hafi verið
ungur að aldri var hann mjög góð
fyrirmynd fyrir alla ÍR-inga, sama
hversu gamlir þeir voru. Hlynur
var svo kurteis og prúður drengur
og ég veit hreinlega ekki hvernig
ég á að lýsa þessari viku sem hef-
ur liðið frá fráfalli hans. Vikan hef-
ur verið mjög erfið en við höfum
gert okkar besta til að halda áfram
starfi félagsins. Við hugsum öll
hlýtt til fjölskyldu hans á þessum
tímum.“
515 55 50
smáauglýsingasíminn er
smaar@dv.is
Hafðu samband
í síma 515-5555eða sendu tölvupóst á askrift@dv.is
- inn í hlýjuna
Fáðu DV heim
í áskrift