Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.2009, Qupperneq 36
36 föstudagur 4. desember 2009 helgarblað
Himinninn yfir
Þingvöllum
eftir Steinar
Braga
„Eitthvað yfirnáttúru-
legt við hana sem ég
fíla. Reyndar virðist
sú pæling vera í tísku
núna. Þema með
ský og drunga, sama stemning er á
fyrri bók höfundarins ásamt bókunum
Óvinafagnaður, Hyldýpi og áfram mætti
töluvert lengi telja. Dálítið spes tilviljun
ef maður pælir í því. Líklega það sem
selur núna.“
„Eitthvað öðruvísi og mjög frumlegt.“
„Fallegir litir sem grípa augað. Það er
hún Alexandra Buhl sem gerir hana
- hún er mjög auðþekkjanleg, alveg
svakalega fær.“
„Heillandi og fögur en um leið öfugsnúin
og pirrandi. Sameinar helstu einkenni
stílsins sem einkennir höfundinn.“
Heim til mínS
Hjarta: ilm-
SkýrSla um
árStíð á Hæli
eftir Oddnýju eiri
ævarSdóttur
„Smekklegir stælar
sem ganga upp.
Efaðist fyrst en þetta
er fallegt.“
„Sláandi frumleg. Bók með gati og
leynigöngum inn í sérstakan heim
Oddnýjar.“
„Útskornu hringirnir á kápunni grípa
augað og vekja forvitni um innihald bók-
arinnar sem og stafagerðin í titlinum.“
mynd af ragnari
í Smára eftir jón
karl HelgaSOn
„Svona mynd af mynd
er alltaf spennandi.
Óræð og falleg kápa
eins og þjóðsagna-
kennd aðalpersónan.“
„Tvöfeldni í kápunni sem vísar í störf
Ragnars. Góð hugmynd og snjöll
útfærsla.“
„Minna er alltaf meira. Veit ekki hvað það
er sem heillar mig en það er eitthvað.“
umSátrið
eftir Styrmi
gunnarSSOn
„Óþægilega sönn
lýsing á stöðu Íslands
í heiminum í dag.
Fall Íslands skýrlega
myndgert.“
„Þó mig langi ekkert að lesa bókina þá
gæti ég vel hugsað mér að stilla henni
upp í bókahillunni! Sérlega velheppnuð
kápa, hæfir viðfangsefninu vel. Stílhrein
og myndræn.“
„Tók strax eftir þessari. Ísland að detta út
af kortinu. Smekkleg leturframsetning.
Elegant.“
dóttir mæðra
minna eftir
Sindra freySSOn
„Svöl, eitthvað grúv í
henni.“
„Flott mynd sem prýðir
kápuna, varð til þess
að ég skoðaði hana
nánar.“
„Sá þessa úti í bókabúð og staldraði
strax við, falleg, rómantísk og dularfull
kápa sem laðar lesandann að og fær
hann til að langa að vita meira.“
vigdíS: kOna
verður fOrSeti
eftir Pál valSSOn
„Einföld og grípandi
kápa, aðallega vegna
þess að Vigdís er
glæsileg kona.“
„Hlý og falleg
mynd af Vigdísi prýðir kápuna og blár
bakgrunnurinn er djúpur eins og konan
sjálf er djúpvitur. Kápan er klassísk og
smekkleg. Hlakka mikið til að lesa þessa
bók um jólin.“
BókaSafn ömmu
Huldar
eftir Þórarin
leifSSOn
„Algjörlega frábær
mynd og gefur góða
von um ágætis horror
fyrir unga sem aldna.“
„Bókarkápan vekur áhuga á lestri
bókarinnar, það er greinilega eitthvað
spennandi um að vera.“
SnOrri eftir
óSkar guð-
mundSSOn
„Kápan er í svo
fallegum litum að
það vekur sérstaka
eftirtekt. Nútímaleg
kápa um ævaforna
ævisögu. Kveikti í
mér forvitnina og ég sé eiginlega eftir
að hafa ekki sett bókina á óskalista fyrir
jólin.“
„Einföld, stílhrein og fangar augað.“
ParadíSarBOrg-
in eftir óttar m.
nOrðfjörð
„Eitthvað undarlega
óhuggulegt við
þessa kápu, svörtu
línurnar minna á
götur í borg en um
leið á ókennilegt
æxli sem skríður fram og eirir engu.
Langbesta bókarkápan í ár.“
„Hefði aldrei trúað því að loftmynd af
úthverfi gæti virkað svona vel.“
Sjúddirarí rei:
endurminningar
gylfa ægiSSOnar
eftir Sólmund
Hólm
„Flott kápa sem segir
allt sem segja þarf
um manninn sjálfan
og bókina.“
„Flott mynd sem grípur augað. Gylfi er
svo flottur.“
alltaf Sama
Sagan
eftir Þórarin
eldjárn
„Ótrúlega flott
ljósmynd. Þarna eru
sennilega allar lausu
skrúfur þjóðarinnar.
Naglasúpa.“
fuglalíf á
framneSvegi
eftir ólaf Hauk
SímOnarSOn
„Og tíminn flýgur
áfram... saga um
tímann gæti staðið á
bókarkápu. Flott.“
Skuggamyndir
eftir óSkar árna
óSkarSSOn
„Myndin er svarthvít
og sjarmerandi af
börnum að leik hér frá
árum áður.“
HOrfðu á mig
eftir yrSu Sig-
urðardóttur
„Mjög flott kápa,
áhrifarík.“
köttur út í mýri
eftir Silju aðal-
SteinSdóttur
„Sérlega vel heppnuð.
Bæði minnir myndin
á margt hið óvænta
sem getur gerst og
gerist í ævintýrum
og teikningin hefur
einnig skemmtilega skírskotun í eldri
bækur.“
Blómin frá maó
eftir Hlín agnarS-
dóttur
„Kápa sem gaman
er að rýna í. Litirnir
gefa strax hugmynd
um sögusviðið og
krosssaumurinn er
makalaust skemmtileg
hugmynd, ekki síst nálin sem hefur verið
laumað neðst í ó-ið.“
landið Sem
aldrei Sefur
eftir ara trauSta
guðmundSSOn
„Mjög flott mynd,
svolítið dularfull.“
HyldýPi eftir
Stefán mána
„Maður fer strax
að spá í hvað muni
gerast í bókinni
þegar maður sér
þessa kápu. Virkar
spennandi.“
vOrmenn íSlandS
eftir mikael
tOrfaSOn
„Kúl kápa á flottri bók.
Hefði getað verið
ógeðslega lummó,
nafnsins vegna.“
færeySkur danS-
ur eftir Huldar
Breiðfjörð
„Falleg lýsandi
fyrir titilinn og gefur
fögur fyrirheit um
innihaldið.“
gáSagátan eftir
BrynHildi Þórar-
inSdóttur
„Einstaklega falleg og
þjóðleg bókarkápa.“
Byltingarmenn
Og BóHemar eft-
ir ólaf OrmSSOn
„Flottust. Eflaust
flestir ósammála
mér en sem hönnuði
finnst mér allt rétt
gert þarna.“
guSugangur í
graSinu eftir
erlu Sigurðar-
dóttur
„Björt og falleg
bókarkápa.“
alltaf Sama Sagan
eftir Þórarin
eldjárn
„Ódýr og plebbaleg
kápa. Grautarleg,
stefnulaus og vekur því
miður ekki áhuga.“
„Af virðingu við Þórarin
tekur það mig sárt að segja að kápa
bókarinnar er algjört flopp! Nærmynd af
naglahrúgu er ekki spennandi myndefni
og þá er borðinn með nafni höfundar
og titli bókar einkar sjoppulegur. Kápan
vekur upp vondar minningar um 80´s
tískuslys. Hér gildir þó líklega að ekki
skuli dæma bókina af kápunni.“
„Ljót kápa, pirrandi letur og ljótir litir.
Fælir lesandann frá og framkallar leiðann
sem maður fann fyrir í menntaskóla og
þegar átti að velja sér kjörbók.“
Prívat Og Per-
Sónulega eftir
Birgi SigurðSSOn
„Átta mig ekki á
svona trúarlegum
skírskotunum, gömlu
meistararnir og allt
það.“
„Það er vandasamt að hanna bókarkápu
en aðstandendur þessarar bókar virðast
hafa ákveðið að sleppa því bara alveg.
Svartur texti á hvítum grunni báðum
megin við brot úr kunnuglegri mynd.
Frumleiki er stundum ofmetið fyrirbæri
en þetta er allt of langt gengið í hina
áttina.“
„Hef séð þessar hendur áður. Þær eru því
miður hættar að minna mig á sköpun og
snilli heldur framkalla hjá mér leiðinleg
hugrenningartengsl við Da Vinci lykilinn.
Hvíti liturinn passar svo ekki nægilega
vel við myndina. Kann ekki við þetta.“
BankSter
eftir guðmund
óSkarSSOn
„Full einhæf og ekki
grípandi.“
„Virkilega óaðlaðandi
og óspennandi kápa,
greinilega ekki mikil
vinna verið lögð í þetta.“
„Ljótust en jafnframt dálítið áhugaverð
kápa er á hinni stórgóðu bók Bankster.
Hún er svo ótrúlega „boring“ að hún lítur
út eins og ársskýrsla. En kannski var það
pælingin.“
fuglalíf á
framneSvegi
eftir ólaf Hauk
SímOnarSOn
„Fantasían nær aldrei
flugi í þessari mynd.“
„Kápan fælir
beinlínis frá! Fljúgandi
veggklukka með Esjuna í bakgrunni?!
Á sennilega að vera frumlegt og út úr
kortinu listrænt en er einhvern veginn
sérlega ófrumleg og asnaleg hugmynd.
Jólabókaflóðið er samofið íslenskum jólaundirbúningi og fæst okkar lesa líklega í annan tíma jafn mikið
og um jólin. Helgarblað DV leitaði til fjölbreyttra álitsgjafa í leitinni að bestu og verstu bókakápunum. Sitt
sýnist hverjum og margar bókanna lenda í báðum flokkum. Kápa bókarinnar Himinninn yfir Þingvöllum
eftir Steinar Braga trónir á toppnum yfir þær kápur sem þykja best heppnaðar. Dæmi um bækur með káp-
um sem álitsgjöfum blaðsins þykja misheppnaðar eru Alltaf sama sagan eftir Þórarin eldjárn og Prívat og
persónulega eftir Birgi Sigurðsson.
Bestu og verstu
Bókakápurnar
gÓðar slæmar