Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.2010, Side 2
Rannsóknarnefnd Alþingis réð Elínu Jónsdóttur til
að starfa stuttu eftir að hún seldi eignarhaldsfélag sitt, Baðm, á
500 þúsund krónur en 117 milljóna króna kúlulán félagsins hjá
skilanefnd Glitnis er á gjalddaga árið 2011. Elín starfar nú sem
forstjóri Bankasýslu ríkisins.
HITT MÁLIÐ
ÞETTA HELST
- ÞESSAR FRÉTTIR BAR HÆST Í VIKUNNI
FORSETINN HAFNAR ICESAVE
Spennuþrunginni bið lauk með
því að Ólafur Ragnar Grímsson
forseti tilkynnti að hann myndi
ekki skrifa undir lögin um ríkis-
ábyrgð vegna Icesave heldur vísa
þeim til þjóðaratkvæðagreiðslu.
Þá tók við önnur spennuþrungin bið eftir
því hvort lögin verði samþykkt eða þeim
hafnað í þjóðaratkvæðagreiðslu. Við-
brögðin létu ekki á sér standa. Stjórn-
arliðar voru mjög ósáttir við forsetann,
andstæðingar Icesave-samkomulagsins
fögnuðu og sumir hvöttu til þess að sam-
ið yrði að nýju í stað þess að láta þjóðar-
atkvæðagreiðsluna fara fram. Erlendis
brugðust menn harkalega við og lýstu furðu sinni á því að forsetinn
hefði ekki staðfest lögin. Þar með væru Icesave-greiðslurnar í upp-
námi og vildu sumir ráðast í harkalegar aðgerðir gegn Íslendingum.
STÖÐVAÐUR Í LEIFSSTÖÐ
Jón Þorsteinn Jónsson fjárfestir
var stöðvaður af öryggisvörð-
um á Keflavíkurflugvelli 22.
desember. Hann var með 2,5
milljónir í erlendum gjaldeyri
á sér, en aðeins má flytja 500
þúsund krónur á milli landa.
Jón var nýbúinn að losna úr farbanni
hjá sérstökum saksóknara vegna
rannsóknarinnar á Exeter-málinu.
Tekin var skýrsla af Jóni Þorsteini í
Leifsstöð. Öryggisverðir í öryggishliðinu
á Keflavíkurflugvelli fundu peningana
í fórum Jóns Þorsteins. Jóni var sleppt
að lokinni skýrslutöku og hann fékk
að halda áfram ferð sinni til Bretlands
þrátt fyrir að upphæðin væri þetta miklu hærri en mátti vera með.
Skýringar Jóns á því af hverju hann var að flytja peningana úr landi
hafa því þótt fullnægjandi.
FERÐAGLAÐIR FULLTRÚAR
Kostnaður Orkuveitu Reykjavíkur og dótturfyrirtækja vegna ferðalaga
stjórnarmanna á tveimur árum er nærri sjö milljónir króna. Þeir hafa
ferðast til tólf
landa á tíma-
bilinu. Fimm
stjórnarmenn
Orkuveitur
Reykjavíkur
og dótturfélags hennar,
Reykjavík Energy In-
vestment, REI, ferð-
uðust til tólf landa á
síðustliðnum tveim-
ur árum. Sigrún Elsa
Smáradóttir, borgarfull-
trúi Samfylkingarinnar
og stjórnarmaður beggja félaganna, trónir á toppnum en hún ein á
nærri þriðjung alls kostnaðarins eða rúmar tvær milljónir.
Misjafnt er hvort stjórnarmenn hafi farið einir út, tveir saman eða
jafnvel þrír. Farið var til Bandaríkjanna, Djíbútí, Englands, Eþíópíu,
Filippseyja, Indónesíu, Japans, Jemen, Noregs, Slóvakíu, Svíþjóðar og
Ungverjalands.
3
1 F R J Á L S T , Ó H Á Ð D A G B L A Ð
FÉKK MILLJÓNIR
Í KÚLULÁN
HJÁ GLITNI
SKULDIN
ÚR 110%
Í 175%
n XXXXXXX
FRÉTTIR
HANN GERÐI ÞAÐ AFTUR
dv.is
MIÐVIKUDAGUR OG FIMMTUDAGUR 6. – 7. JANÚAR 2010 DAGBLAÐIÐ VÍSIR 2. TBL.100. ÁRG. – VERÐ KR. 395
S&
S U
M
ICE
SA
VE
ÚTLENDINGAR
ERU GÁTTAÐIR
STJÓRNIN
SITUR ENN
M
YN
D
R
Ó
BE
RT
R
EY
N
IS
SO
N
n RÁÐIN FORSTJÓRI BANKASÝSLU RÍKISINS
KULDINN MEIÐIR
n Á ÞREMUR ÁRUM
n ÞJÓÐIN Í ÓNÁÐ n ÍHUGAR KOSNINGAR
MAGMA
KEYPTI
AFLANDS-
KRÓNUR
NEYTENDUR
n Á SKRIFSTOFU VIÐ HLIÐ BJARNA
MÓTMÆLANDI
VENST BJARNA
ÁRMANNS
RÁÐ UM
ÆFINGAR
Í FROSTI
FYRIR
MILLJÓNIR
PÓLITÍKUSAR
FERÐUÐUST
2MÁNUDAGUR OG ÞRIÐJUDAGUR 4. - 5. janúar 2010 DAGBLAÐIÐ VÍSIR 1. TBL.100. ÁRG. – VERÐ KR. 395
Á LEIÐ ÚR
LANDI MEÐ
MILLJÓNIR
JÓN ÞORSTEINN STÖÐVAÐUR Í LEIFSSTÖÐ:
n TIL LONDON SAMA DAG
OG FARBANNI VAR AFLÉTT
n MEÐ MILLJÓNIR Í
REIÐUFÉ Í HANDFARANGRI
n ER TIL RANNSÓKNAR HJÁ
SÉRSTÖKUM SAKSÓKNARA
„EINN PLÚS EINN
VERÐI ÞRÍR“
n ÍSLENSKIR ÚTRÁSARSTJÓRNENDUR
ÚTSKÝRÐU EINSTAKAN ÁRANGUR SINN
„EINS OG VENJULEGIR ÍSLENDINGAR GERÐUM VIÐALLT SJÁLFIR!“
BESTU
ÚTSÖLURNAR
NEYTENDUR
VEGLEGT KVEÐJUHÓF
ÖGMUNDAR:
FÉLÖGIN
BORGA BRÚSANN
FRÉTTIR
ÞARF FRÍ
FRÁ KVENFÓLKI
n KALLI BERNDSEN
ER FLÚINN Í HITANN FÓLK
FRÉTTIR
ICESAVE OG
GJALDÞROT
SEÐLABANKA
KOSTA SEXTÍU
MILLJARÐA Á ÁRI
FRÉTTIR
2 FÖSTUDAGUR 8. janúar 2010 FRÉTTIR
2 MIÐVIKUDAGUR 6. janúar 2010 FRÉTTIR
Fimm stjórnarmenn Orkuveitu
Reykjavíkur og dótturfélags henn-
ar, Reykjavík Energy Investment,
REI, ferðuðust fyrir tæpar sjö millj-
ónir króna á síðustliðnum tveim-
ur árum. Sigrún Elsa Smáradóttir,
borgarfulltrúi Samfylkingarinnar
og stjórnarmaður beggja félag-
anna, trónir á toppnum en hún ein
á nærri þriðjung alls kostnaðarins
eða rúmar tvær milljónir.
Misjafnt er hvort stjórnarmenn
hafi farið einir út, tveir saman eða
jafnvel þrír. Ferðakostnaður stjórn-
armannanna fimm er að sjálf-
sögðu greiddur af Orkuveitunni
og REI en á þessum tveimur árum
ferðuðust fulltrúarnir til tólf landa,
Bandaríkjanna, Djíbútí, Englands,
Eþíópíu, Filippseyja, Indó nesíu,
Japans, Jemen, Noregs, Slóvakíu,
Svíþjóðar og Ungverjalands.
Hefði mátt spara
Hjörleifur Kvaran, forstjóri Orku-
veitunnar, telur að allar ferðirnar
sem farnar hafa verið undanfarin
tvö ár séu innan eðlilegra marka
og lærdómsríkar. Hann segir
vissulega að í einhverjum tilvikum
hefði verið hægt að spara ferða-
lög. „Ferðirnar hafa án efa kom-
ið stjórnarmönnunum að miklu
gagni því þarna hafi fyrirtæki og
aðstaða verið skoðuð sem pen-
ingar hafa verið settir í. Stjórnar-
mennirnir voru því að kanna hvort
eitthvert vit hafi verið í því sem
gert hefur verið. Það er nauðsyn-
legt að skoða þau dæmi sem eru í
gangi,“ segir Hjörleifur.
Sigrún Elsa bendir á að aðeins
sé um tvær ferðir að ræða af henn-
ar hálfu á umræddu tímabili. Að-
spurð hvort nauðsynlegt hafi verið
að senda þrjár fulltrúa í sömu ferð-
ina telur hún að svo hafi verið. „Já,
ég held að það hafi verið gagnlegt
en ég var eini fulltrúi minnihlut-
ans og það var meirihlutans að
ákveða hversu marga hann sendi.
Við náðum að sjá vel starfsemina
og þessi verkefni sem unnið er í
eru oft á tíðum mjög langt í burtu.
Fyrir mína parta hefur það gagn-
ast mér mjög vel að ferðast út og
kynnast verkefnunum, það er bæði
mjög lærdómsríkt og gagnlegt fyrir
fyrirtækin,“ segir Sigrún Elsa.
Vernda spillinguna
Ólafur F. Magnússon borgarfull-
trúi er afar ósáttur við þennan háa
ferðakostnað og hefur barist fyrir því
að dregið sé úr slíkum ferðalögum.
Hans skoðun er sú að Orkuveitan
hafi í gegnum tíðina hagað sér eins
og eyland sem ekki sé hluti af borg-
inni. „Þessi ferðakostnaður er með
öllu óþolandi. Ég hef iðulega vilj-
að hafa þessa hluti uppi á borðin en
hef ávallt mætt harkalegri andstöðu
annarra borgarfulltrúa, þeim sem ég
kalla 14:1 flokkinn því allir fulltrúar
hinna flokkanna standa þétt sam-
an í að vernda fríðindi sín. Þannig er
staðið vörð um spillingu, svínarí og
sóun á almannafé,“ segir Ólafur.
„Með þessu er vísvitandi ver-
ið að sólunda fé borgarbúa. Ég hef
lengi barist gegn þessu en það hef-
ur reynst mér mjög erfitt að fá svör,
til að mynda frá Orkuveitunni og sem
borgarstjóri mætti ég mikilli hörku
þaðan þegar ég vildi fá ferðalögin
upp á borðið. Borgarfulltrúarnir líta
svo á að þeir hafi einhver fríðindi
langt umfram aðra.“
Ekki ferðafrek
Aðspurður segir Hjörleifur: „Það
má alltaf ræða fram og til baka hvar
TRAUSTI HAFSTEINSSON
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
Á toppnum Sigrún Elsa ferðaðist fyrir
rúmar tvær milljónir á tímabilinu en
segist alls ekki ferðafrek í störfum sínum
fyrir borgina.
Rúm milljón Guðlaugur fór til Englands,
Japans, Noregs og Svíþjóðar á vegum
Orkuveitunnar. Ferðalögin kostuðu 1,2
milljónir króna.
Berst gegn spillingu Ólafur segir
ferðakostnað stjórnarmannanna út í hött
þar sem verið sé að sóa almannafé.
Ein og hálf Kjartan ferðaðist fyrir eina
og hálfa milljón til Djíbútí, Eþíópíu,
Kaliforníu og Jemen.
OR og REI Ásta fór líka til Eþíópíu,
Djíbúti og Jemen ásamt því að fara á
ráðstefnu í Ungverjalandi. Samanlagður
kostnaður er rúmar 1,3 milljónir.
Á tveimur árum er kostnaður Orkuveitu Reykjavíkur og dótturfyrirtæk
ja nærri sjö
milljónir króna vegna ferðalaga stjórnarmanna. Þeir hafa ferðast til tólf
landa á tíma-
bilinu en mestur kostnaður hefur hlotist af ferðalögum Sigrúnar Elsu Smáradóttur
,
borgarfulltrúa Samfylkingarinnar.
FERÐAST VÍÐA
FYRIR MILLJÓNIR
Hvert hafa þau farið?
Ár Nafn Áfangastaður Tilefni ferðar
2008 Ásta Þorleifsdóttir Jemen, Djíbútí, Eþíópía Farið með iðnaðarráðherra
2008 Kjartan Magnússon Jemen, Djíbútí, Eþíópía Farið með iðnaðarráðherra
2008 Sigrún Elsa Smáradóttir Filippseyjar, Indónesía og Djibútí Kynnisferð á virkjunarsvæði
2008 Ásta Þorleifsdóttir Búdapest Ráðstefna
2008 Guðlaugur G. Sverrisson Osló/Stokkhólmur Ráðstefna
2009 Hrólfur Ölvisson Kalifornía Fundur með Iceland America Energy
2009 Kjartan Magnússon Kalifornía Fundur með Iceland America Energy
2009 Kjartan Magnússon Galanta í Slóvakíu Aðalfundur Galantaterm
2009 Sigrún Elsa Smáradóttir Kalifornía Fundur með Iceland America Energy
2009 Guðlaugur G. Sverrisson Japan Í viðskiptasendinefnd utanríkisráðuneytisins
2009 Guðlaugur G. Sverrisson London Fundir um rafvæðingu samgangna
FERÐIR Á VEGUM ORKUVEITUNNAR
2008 2009 Samtals:
Ásta Þorleifsdóttir 259.414 0 259.414
Guðlaugur G. Sverrisson 161.732 1.029.242 1.190.974
Samtals: 421.146 1.029.242 1.450.388
FERÐIR Á VEGUM REI
2008 2009 Samtals:
Ásta Þorleifsdóttir 1.086.500 0 1.086.500
Hrólfur Ölvisson 0 464.503 464.503
Kjartan Magnússon 840.127 701.217 1.541.344
Sigrún Elsa Smáradóttir 1.694.960 464.503 2.159.463
Samtals: 3.621.587 1.630.223 5.251.810
London
Kalifornía
Galanta
Búdapest
Osló
Stokkhólmur
Eþíópía
Djíbútí
Jemen
hefði mátt spara og hvort í ein-
hverjum tilvikum hefði verið hægt
að senda færri fulltrúa. Fyrir það
verða stjórnarmennirnir sjálfir að
svara en í flestum tilfellum hefur
þetta eflt víðsýni þeirra. Hjá okkur
er núna allt á bremsunni og við eyð-
um ekki neinu í ferðir nema þær séu
bráðnauðsynlegar. Hvað þessi tvö ár
varðar hefði hugsanlega í einhverj-
um tilvikum verið hægt að spara
peninga.“
Sigrún Elsa gefur lítið fyrir topp-
sæti sitt og ítrekar að hún sé síður en
svo ferðafrek í starfi sínu sem borgar-
fulltrúi og stjórnarmaður. Hún segir
þessi ferðalög erfið og telur nauð-
synlegt að spara ferðalög á þess-
um erfiðu tímum. „Þetta er hrika-
leg keyrsla og mikil vinna sem fylgir
þessum ferðum. Á meðan gengið er
eins og það er þurfa menn klárlega
að spara í ferðakostnaði. Í sjálfu sér
hef ég sem fæst orð um toppsæti
mitt en sé horft til starfa minna þá
er ég alls ekki ferðafrek hjá borg-
inni. Á öllu kjörtímabilinu hef ég far-
ið í þrjár ferðir á vegum borgarinnar,
og fyrirtækjum hennar, að þessum
ferðum meðtöldum. Ferðirnar hafa
verið gagnlegar og peningunum vel
varið,“ segir Sigrún Elsa.
FRÉTTIR 6. janúar 2010 MIÐVIKU
DAGUR 3
„Fyrir mína parta hefur
það gagnast mér mjög
vel að ferðast út og
kynnast verkefnunum,
það er bæði mjög lær-
dómsríkt og gagnlegt
fyrir fyrirtækin.“
F
F I
Kanadíska fyrirtækið Magma Energy keypti 2,5 milljarða króna á aflan
dsmarkaði í
gegnum íslenskt fyrirtæki í Lúxemborg. Krónurnar voru líklega notaðar
til að greiða
fyrir hlutabréf í HS Orku. Slík viðskipti eru ekki ólögleg en leiða ekki t
il styrkingar
krónunnar á innanlandsmarkaði og fara þvert gegn markmiðum Seðlaba
nka Íslands.
Kanadíska fyrirtækið Magma
Energy keypti íslenskar krónur á
aflandsmarkaði í Lúxemborg fyrir
um 20 milljónir dollara árið 2009,
samkvæmt heimildum DV. Upp-
hæðin nemur tæplega 2,5 millj-
örðum króna á núverandi gengi
og er afar líklegt að krónurnar hafi
verið notaðar til að greiða fyrir
hluta af rúmlega 40 prósenta hlut
í HS Orku sem fyrirtækið keypti á
síðasta ári.
Líklegt er að krónurnar hafi ver-
ið notaðar til að greiða Geysi Green
Energy fyrir 8 prósenta hlut félags-
ins í HS Orku en Magma keypti
hann á um 2,5 milljarða króna síð-
astliðið sumar. Magma bætti svo
við sig rúmlega 32 prósenta hlut í
HS Orku í desember fyrir rúma 12
milljarða króna.
Með þessu móti hefur Magma
náð að verða sér úti um krónur á
lægra verði en ef fyrirtækið hefði
keypt þær hér á landi.
Tekið skal fram að ekki er ólög-
legt að kaupa krónur með þessum
hætti en ef krónurnar hefðu ver-
ið keyptar hér á landi hefðu við-
skiptin getað styrkt opinbert gengi
krónunnar. En vegna þess að að
viðskiptin áttu sér stað á aflands-
markaði urðu kaupin ekki til þess
að styrkja opinbert gengi gjald-
miðilsins. Ekki er hins vegar vitað
á hvaða gengi Magma keypti krón-
urnar né af hverjum var keypt.
Magma er í eigu kanadíska
auðmannsins Ross Beaty sem
jafnframt er stofnandi, stjórnar-
formaður og forstjóri fyrirtækis-
ins. Hann kom meðal annars til Ís-
lands síðastliðið sumar og fundaði
með Steingrími J. Sigfússyni fjár-
málaráðherra út af kaupum Mag-
ma á hlutabréfunum í HS Orku.
Arena milliliður
Samkvæmt heimildum DV var ís-
lenska eignastýringarfyrirtækið,
Arena Wealth Management, milli-
liður í þessum krónuviðskiptum
Magma Energy.
Viðskiptablaðið greindi frá því
í apríl á síðasta ári að fyrirtækið
hefði verið stofnað í Lúxemborg af
nokkrum fyrrverandi starfsmönn-
um Landsbankans og Kaupþings
þar í landi. Í Viðskiptablaðinu var
sagt frá því að þeir Þorsteinn Ól-
afsson, Arnar Guðmundsson,
Guðjón Sigurðsson og Einar Bjarni
Sigurðsson væru meðal þeirra sem
stæðu að Arena. Fyrirtækið er eitt
af fjölmörgum eignastýringar- og
ráðgjafafyrirtækjunum sem stofn-
að hefur verið af íslenskum banka-
mönnum eftir bankahrunið 2008.
Heimildir DV herma jafnframt
að ráðgjafafyrirtækið Capacent
Glacier, sem Magnús Bjarnason
stýrir, hafi haft milligöngu um að
leitað var til Arena vegna viðskipt-
anna með krónurnar.
Capacent Glacier hefur unnið
náið með Magma hér á landi og
til að mynda sagði Magnús, þegar
gengið var frá kaupum félagsins
á 32 prósenta hlutnum í HS Orku
í desember síðastliðinn: „Sam-
starf Glacier og Magma er ekki til-
viljunum háð. Sýn Ross J. Beaty á
uppbyggingu jarðhitavirkjana fell-
ur vel að stefnu Íslendinga í þess-
um efnum en starfsmenn Glaci-
er, sem hafa margra ára reynslu á
sviði jarðhitaviðskipta, störfuðu
margir áður fyrir Íslandsbanka,
og höfðu því góða þekkingu til að
velja réttan aðila fyrir þetta verk-
efni,“ sagði Magnús en hann var
framkvæmdastjóri hjá Glitni fyr-
ir bankahrunið og átti að leiða
orkuútrás bankans í gegnum útibú
hans í New York.
Segist ekki svara fyrir Magma
Magnús Bjarnason segir að-
spurður að Magma Energy hafi
fjármagnað kaupin á hlutnum í
HS Orku sem keyptur var af Geysi
Green með eigin fé. „Ég ætti ekki
að vera að svara þessu en ég ætla
að gera það vegna þess að ég
veit það: Það var með eigin fé ...
Þeir fóru í nokkur hlutafjárút-
boð á síðasta ári og meðal annars
voru þeir fjármunir notaðir til að
kaupa þessi bréf,“ segir Magnús.
Aðspurður hvort krónurn-
ar sem notaðar voru til kaup-
anna hafi verið keyptar hér á Ís-
landi eða erlendis segir Magnús:
„Magma er almenningshlutafé-
lag skráð í Kanada og ég get ekki
svarað fyrir þá. Talaðu við þá,“
segir Magnús.
Aðspurður hvort Magma
hafi keypt krónurnar í gegnum
Arena Wealth Management seg-
ir Magnús: „Nú get ég ekki tal-
að fyrir þeirra hönd. Ég get ekki
verið að segja þér nákvæmlega
hvað þeir gerðu,“ segir Magnús
sem aðspurður segist kannast við
umrætt eignastýringarfyrirtæki,
Arena. „Já, ég hef heyrt þeirra
getið.“
Aðspurður um hvort hann
hafi haft milligöngu um að koma
Magma í samband við Arena seg-
ir Magnús: „Ég er ekki on-record
með þetta ... Þetta er valid spurn-
ing hjá þér en þú ert ekki að spyrja
réttan aðila,“ segir Magnús.
INGI F. VILHJÁLMSSON
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
KEYPTU MILLJARÐA
Á SLIKK Í ÚTLÖNDUM
Krónuviðskipti á aflandsmarkaði
Sérfræðingur í gjaldeyrismálum sem DV ræddi við segir að viðskipti
með krónur á aflandsmarkaði (off-shore) hafi verið mjög algeng áður en
Seðlabanki Íslands herti reglur um gjaldeyrisviðskipti í kjölfar bankahrunsins
árið 2008. Hann segir að tvö gengi séu á krónunni: opinbert gengi (on-shore)
og svo gengið á aflandsmarkaði. Hann segir að viðskipti með krónur á
aflandsmarkaði styrki gengið á þeim markaði en leiði hins vegar til þess að
fyrir vikið styrkist opinbert gengi krónunnar ekki.
Hann segir að viðskipti með krónuna á aflandsmarkaði hafi verið miklu
meiri en viðskiptin á on-shore markaðnum en að þetta hafi breyst eftir að
Seðlabankinn þrengdi reglur um gjaldeyrisviðskipti.
Sérfræðingurinn segir að markmið Seðlabanka Íslands með gjaldeyris-
haftalögunum hafi verið að reyna að styrkja gengi krónunnar á on-shore
markaðnum og slík viðskipti með krónuna á aflandsmarkaði grafi vissulega
undir þessari viðleitni. Því má segja að krónuviðskipti á aflandsmarkaði fari
gegn anda gjaldeyrishaftalaganna. Seðlabankinn vilji helst að öll viðskipti
með krónuna fari fram á on-shore markaðnum. Hins vegar sé erfitt að eiga
við slíka viðskiptahætti þar sem ekki sé ólöglegt að kaupa krónur á þennan
hátt.
Hann segir að fyrirtæki geti sparað sér allt frá 10 til 40 prósent á kaupverði
gjaldeyris með því að kaupa hann á aflandsmarkaði. Fyrirtæki sem þurfa að
kaupa sér krónur geta því sparað sér umtalsverðar upphæðir með því að
gera það á aflandsmarkaði.
„Nú get ég ekki talað fyrir þeirra
hönd. Ég get ekki verið að segja þér
nákvæmlega hvað þeir gerðu.“
Keyptu krónur á aflandsmarkaði Ross Beaty, fyrir
miðju, og Magnús Bjarnason hjá Capacent Glacier sjást
hér ásamt Steingrími J. Sigfússyni fjármálaráðherra sem
þeir funduðu með í ágúst vegna kaupa Magma Energy
á hlutabréfum í HS Orku.
Japan
Filippseyjar
Indónesía
Lín Design, gamla sjónvarpshúsið Laugavegi 176 Sími 533 2220 www.lindesign.is
Rannsóknarnefnd Alþingis birtir
skýrslu sína um bankahrunið, sem
flestir Íslendingar hafa beðið eftir í
ofvæni, þann 1. febrúar næstkom-
andi. Í vikunni birti DV frétt af því að
Elín Jónsdóttir, sem nú er forstjóri
Bankasýslu ríkisins hefði, ásamt
eiginmanni sínum, fengið 54 millj-
óna króna kúlulán þegar hún var
framkvæmdastjóri Arev verðbréfa
hjá Glitni til hlutabréfakaupa í Arev.
Elín lét af stöfum hjá Arev í mars árið
2009 og starfaði eftir það fyrir rann-
sóknarnefndina og fékk góð með-
mæli fyrir störf sín þar.
Í samtali við DV vildi Tryggvi
Gunnarsson, nefndarmaður í rann-
sóknarnefnd Alþingis, ekkert láta
hafa eftir sér um störf Elínar fyr-
ir rannsóknanefndina. Hann vísaði
á Pál Hreinsson og vildi ekki tjá sig
um það hvort það væri viðeigandi
að ráða starfsmann til rannsókna-
nefndarinnar sem hefði fengið kúlu-
lán til hlutabréfakaupa. Auk þess gat
hann ekki tjáð sig um það hvort fleiri
starfsmenn rannsóknarnefndarinn-
ar hefðu fengið kúlulán. Ekki náðist í
Pál Hreinsson, formann nefndarinn-
ar, í gær þrátt fyrir ítrekaðar
tilraunir.
Frægt var árið 2008
þegar Jónas Fr. Jónsson,
fyrrum forstjóri Fjármála-
eftirlitsins, óskaði eftir því
að Sigríður Benediktsdótt-
ir, sem situr í rannsókn-
arnefndinni, ásamt Páli og
Tryggva, myndi víkja
vegna vanhæfis. Var tilefnið um-
mæli sem hún viðhafði í viðtali við
Yale Daily News um íslensku bank-
ana. Samkvæmt heimildum DV ósk-
aði Páll Hreinsson eftir því við Sigríði
að hún viki úr nefndinni vegna þessa
sem hún gerði ekki. Ummæli Sigríð-
ar um bankana virðast því hafa verið
talin mun alvarlegri en 117 milljóna
króna kúlulán Elínar Jónsdóttur.
117 milljóna kúlulán
Elín Jónsdóttir var framkvæmda-
stjóri Arev verðbréfa á árunum 2005
til 2009. Árið 2007 fékk félagið Baðm-
ur sem Elín átti, ásamt eiginmanni
sínum, Magnúsi Gottfreðssyni
lækni, 54 milljóna króna kúlulán hjá
Glitni sem greiða átti árið 2011. Var
lánið tekið til að kaupa 10 prósenta
hlut í eignarhaldsfélaginu JST Hold-
ing. Jón Scheving Thorsteinsson átti
síðan 90 prósenta hlut í félaginu en
keypti hlut Elínar og eiginmanns
hennar þegar hún lét af stöfum hjá
Arev í mars 2009.
Jón Scheving keypti félagið Baðm
á 500 þúsund krónur en skuldir fé-
lagsins nema 125 milljónum króna.
Eiga 117 milljónir af því að greið-
ast til skilanefndar Glitnis árið 2011.
Þess skal getið að Arev er enn í full-
um rekstri og því er alls óvíst hvort
skilanefndin þurfi að afskrifa lánið.
Ekki vanhæf
Þann 30. desember síðastlið-
inn var tilkynnt um ráðn-
ingu Elínar í starf for-
stjóra Bankasýslu
ríkisins. Í sam-
tali við Press-
una sagði Þor-
steinn
Þorsteinsson, stjórnarformaður
Bankasýslu ríkisins, að stjórn banka-
sýslunnar hefði komist að því að
kúlulán hennar ylli ekki vanhæfi
hennar til að gegna starfi forstjóra.
Þess skal getið að íslenska ríkið á
fimm prósenta hlut í Íslandsbanka
og tilnefnir einn mann í stjórn.
Bankasýslunni er ætlað að fara með
eignarhluti ríkisins í fjármálafyrir-
tækjum og því má segja að Elín sé yf-
irmaður stjórnarmanns ríkisins í Ís-
landsbanka. Undirmaður Elínar gæti
því orðið í þeirri aðstöðu árið 2011
að hafa ákvörðunarvald um hvernig
farið verður með 117 milljóna króna
kúlulán félagsins Baðms sem Elín
átti áður.
Vonbrigði að fá ekki starfið
Alls sóttu 16 um stöðu forstjóra
Bankasýslu ríkisins. Þeirra á meðal
var athafnamaðurinn Guðmundur
Franklín Jónsson. Umsóknarfrestur
rann út þann 2. nóvermber síðastlið-
inn en var framlengdur. Í samtali við
DV segist Guðmundur Franklín hafa
orðið fyrir vonbrigðum með að fá
ekki starfið. Bankasýslan hafi dreg-
ið það mjög að tilkynna hver fengi
starfið. „Enginn sem ég veit um var
tekinn í viðtal vegna ráðningarinnar,“
segir hann.
Guðmundur Franklín segist óska
Íslandsbanka til hamingju með að
hafa fengið Elínu sem yfirmann eins
stjórnarmanna bankans. Eins og
áður var nefnt fer ríkið með 5 pró-
senta hlut í bankanum. Hann von-
ar að það komi ekki til þess árið
2011 að Íslandsbanki þurfi að
afskrifa 117 milljóna króna lán
eignarhaldsfélagsins Baðms
sem Elín náði að selja á 500
þúsund krónur þegar hún
hætti hjá Arev verðbréfum í
mars árið 2009. Vonsvikinn
Athafna-
maðurinn
Guðmundur
Franklín
Jónsson
segist hafa
orðið fyrir
vonbrigðum
með að vera
ekki ráðinn for-
stjóri Bankasýslu
ríkisins. LJÓSMYNDARI:
RÓBERT REYNISSON
KÚLULÁNADROTTNING
RANNSAKAÐI HRUNIÐ
ANNAS SIGMUNDSSON
blaðamaður skrifar: as@dv.is
Réðu kúlulánadrottningu Rannsóknarnefnd Alþingis réð Elínu Jónsdóttur stuttu eftir að hún losnaði við 117 milljóna króna
kúlulán sitt hjá skilanefnd Glitnis. LJÓSMYNDARI: SIGTRYGGUR ARI JÓHANNSSON
Forstjóri bankasýslunnar
Elín Jónsdóttir var ráðin
forstjóri Bankasýslu
ríkisins og var
ekki vanhæf
þrátt fyrir að
hafa fengið
kúlulán til
hlutabréfa-
kaupa árið
2007.