Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.2010, Side 12
12 FÖSTUDAGUR 8. janúar 2010 FRÉTTIR
James Leitner, hjá Falcon-vogun-
arsjóðnum í Bandaríkjunum, fékk
verðlaun frá samtökum vogunar-
sjóða sem kallast Drobny árið 2006
fyrir að hafa tekið stöðu gegn ís-
lensku krónunni. Leitner þessi, sem
var hluthafi í Straumi-Burðarási og
sat í stjórn bankans, tók við þessum
verðlaunum á ráðstefnu samtak-
anna í Kaliforníu í apríl það ár. Talið
er að Leitner hafi haft frumkvæði að
því að vogunarsjóðir, meðal annars
þeir vogunarsjóðir sem eru í Drob-
ny-samtökunum, tækju stöðu gegn
krónunni sem var afar sterk á þess-
um tíma.
Stöðutaka gegn gjaldmiðli geng-
ur í einföldu máli út á það að veðja á
að gengi hans lækki. Slíkar stöðutök-
ur voru algengar á Íslandi á árunum
fyrir bankahrunið og voru það bæði
innlendir og erlendir aðilar sem tóku
stöðu gegn gjaldmiðlinum. Talið er
að stöðutökurnar hafi náð ákveðnu
hámarki á árinu 2006 en að þær hafi
tíðkast fram að bankahruninu.
Stöðutökurnar rannsakaðar
Páll Hreinsson, formaður rann-
sóknarnefndar Alþingis, hefur gef-
ið það út að stöðutökur gegn krón-
unni verði rannsakaðar og má reikna
með að fjallað verði um þær í skýrslu
nefndarinnar sem birt verður í byrj-
un febrúar. Í samtali við DV seg-
ist Páll ekki geta gefið það út hvort
fjallað verði um stöðutökurnar gegn
krónunni í skýrslunni og að menn
verði bara að bíða eftir henni. „Ég má
ekki fara út í inntak hennar. Menn
verða bara að bíta á jaxlinn og bíða
og leyfa okkur að klára. Við erum á
síðustu metrunum,“ segir Páll.
Sendi tölvupóst um stöðu-
tökuna
Ásgeir Jónsson, forstöðumaður
greiningardeildar Kaupþings, segir í
bók sinni um hrunið, Why Iceland,
að James Leitner hafi í febrúar sent
tölvupóst til þeirra vogunarsjóða
sem voru meðlimir í Drobny-sam-
tökunum og stungið upp á því að
þeir ættu að taka stöðu gegn íslensku
krónunni og öðrum gjaldmiðlum
með háu gengi. Gengi krónunnar á
þessum tíma var ofmetið að sögn Ás-
geirs en um þetta leyti kostaði doll-
arinn rúmar 60 krónur.
Meðlimir Drobny-samtakanna
tóku þessum ráðleggingum Leitners
og einhverjir þeirra tóku lán í krón-
um til að kaupa aðra gjaldmiðla.
Fljótlega eftir þetta byrjaði gengi
krónunnar að lækka og í byrjun maí
var dollarinn kominn upp í tæpar 72
krónur. Sá sem ákvað að taka fimm
mánaða stöðu gegn krónunni í jan-
úar gat því grætt um 12 krónur fyrir
hvern dollara sem keyptur var fyrir
krónurnar.
Ekki er vitað um einstök viðskipti
meðlima Drobny-samtakanna en
Leitner fékk svo verðlaun fyrir hug-
myndina á ráðstefnu þeirra sem
haldin var í apríl 2006, eins og sést á
myndinni.
Stærðu sig af árangrinum
Ásgeir segir í bók sinni að einhverj-
ir af vogunarsjóðstjórunum sem
tóku stöðu gegn krónunni á þenn-
an hátt hafi stært sig af því hversu
vel viðskiptin með krónuna hefðu
gengið, í stað þess að ræða ekki um
það eins og venjan er. „Það virðist
felast meiri sigur í því fyrir egóið að
knésetja heilt land en að leggja fyr-
irtæki að velli,“ segir Ásgeir í bók-
inni auk þess sem hann heldur því
fram að vogunarsjóðirnir hafi litið
á íslenska hagkerfið sem auðvelda
„bráð“.
Næsta ráðstefna sem Drobny-
samtökin héldu á eftir ráðstefn-
unni í Kaliforníu þar sem Leitner
var verðlaunaður fór fram á Íslandi
í október 2006. Þar veittu samtökin
Arnóri Sighvatssyni, yfirhagfræð-
ingi Seðlabankans, verðlaun fyrir
bestu gjaldeyrisvarnirnar. Einung-
is nokkrum mánuðum áður hafði
Leitner fengið verðlaun fyrir að
stinga upp á stöðutöku gegn krón-
unni.
Júlíus Vífill 2. sæti
Kæru sjálfstæðismenn í Reykjavík
Ég og stuðningsmenn mínir höfum opnað
kosningaskrifstofu í Borgartúni 6, á 4. hæð.
Af því tilefni langar mig að bjóða ykkur í
opnunarhóf laugardaginn 9. janúar kl. 15-17.
Mér þætti afar vænt um að sjá sem flesta en
ég sækist eftir 2. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins
í prófkjörinu sem fram fer 23. janúar.
Með kærri kveðju,
Júlíus Vífill Ingvarsson
INGI F. VILHJÁLMSSON
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
Vogunarsjóðstjóri fékk verðlaun fyrir að stinga upp á stöðutöku gegn krónunni 2006. Rannsóknarnefnd
Alþingis hefur skoðað stöðutökur gegn krónunni. Páll Hreinsson gefur ekki upp hvort fjallað verður um
þær í skýrslu nefndarinnar. Hagfræðingur hjá Kaupþingi segir Ísland hafa verið auðvelda „bráð“.
HLAUT VERÐ-
LAUN FYRIR
ATLÖGU AÐ
KRÓNUNNI
„Ég má ekki fara út í
inntak hennar. Menn
verða bara að bíta
á jaxlinn og bíða og
leyfa okkur að klára.“
n Bandarísk samtök um 50 vogunarsjóða. Greiningarfyrirækið Drobny Global
Advisors í Kaliforníu stendur á bak við samtökin. Hver meðlimur í samtökunum
þarf að greiða 50 þúsund dollara til að gerast meðlimur. Meðlimir í samtökunum
fá fréttabréf einu sinni í mánuði þar sem greint er frá stöðunni á markaðnum og
áhugaverðum fjárfestingarkostum. Samtökin halda einnig ráðstefnur nokkrum
sinnum á ári, meðal annars hér á Íslandi í október 2006.
Drobny-samtökin
n Gengur út á að veðja á að gengi tiltekins gjaldmiðils lækki gagnvart gengi
einhvers annars. Algengt var að tekin væri staða gegn íslensku krónunni á
árunum fyrir bankahrun.
n Viðskiptin ganga út á það að fjárfestir fær lán hjá lánastofnun í ákveðnum
gjaldmiðli og kaupir fyrir það gjaldeyri í annarri mynt. Ef gjaldmiðillinn sem lánið
var veitt í lækkar getur fjárfestirinn selt gjaldmiðilinn sem hann keypti og fengið
hærri upphæð til baka í gjaldmiðlinum sem hann fékk lán í. Svo getur hann greitt
lánið til baka og haldið mismuninum.
n Dæmi: Fjárfestir fær 100 krónur að láni frá banka og kaupir fyrir þær 3 evrur.
1 evra jafngildir þá 33,33 krónum. Gengi krónunnar lækkar svo og verður 50
krónur fyrir 1 evru. Þá getur fjárfestirinn selt evrurnar sínar 3 og fengið fyrir þær
150 krónur. Hann getur þá greitt 100 króna lánið til baka og haldið eftir 50 króna
hagnaði.
Stöðutaka gegn gjaldmiðli
Verðlaunaður fyrir hugmyndina Á ráðstefnu Drobny-samtakanna í Kaliforníu
í apríl 2006 var James Leitner verðlaunaður fyrir þá hugmynd að vogunarsjóðir
tækju stöðu gegn íslensku krónunni árið 2006. Hann sést hér með verðlaunagrip-
inn. Glærukynningu með myndinni má finna á heimasíðu Drobny-samtakanna.
Skoða stöðu-
tökurnar Páll
Hreinsson hefur
gefið það út að
rannsóknarnefnd
Alþingis muni skoða
stöðutökur gegn
krónunni fram að
bankahruni. Talið er
að Bandaríkjamaðurinn
James Leitner hafi haft
frumkvæði að
stórfelldum
stöðutökum
vogunarsjóða
gegn
krónunni
2006.