Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.2010, Síða 20
20 FÖSTUDAGUR 8. janúar 2010 FRÉTTIR
Fréttin af ákvörðun forseta Íslands um að synja Icesave-lögun-
um staðfestingar fór eins og eldur í sinu um heimsbyggðina.
Ráðamenn í Bretlandi og Hollandi hafa farið mikinn í fullyrð-
ingum um óáreiðanleika Íslendinga, en sé horft til almennings í
þeim löndum og öðrum sýnist sitt hverjum um ábyrgð íslensks
almennings í Icesave-málinu.
„LOFTÁRÁSIR Á ÖSKJUHLÍГ
Engan skyldi undra að sú frétt að
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Ís-
lands, hafi synjaði Icesave-lögunum
staðfestingar hafa vakið athygli utan
landsteinanna. Áhuginn er mismikill
eftir löndum, eins og gefur að skilja,
og hefur ákvörðun forsetans vak-
ið mikla athygli hjá frændum okkar
Dönum og svipaða sögu er að segja
um Norðmenn sem margir hverjir
hafa tjáð sig um málið. Bretar hafa,
eðli málsins samkvæmt, farið mik-
inn á vefsíðum þarlendra miðla sem
á annað borð leyfa athugasemdir.
Íslendingar hafa ekki látið sitt eftir
liggja og Bretar hafa haft á orði að Ís-
lendingar hafi lagt undir sig athuga-
semdasvæðið. Inn í umræðuna hafa
blandast þorskurinn, orkan, auð-
lindir af ýmsum toga, víkingar, rupl
og rán, konunglegi breski flugher-
inn, innrás, frysting eigna og litli og
stóri, svo eitthvað sé nefnt. Ísland
er annars vegar kallað land glæpa-
manna og óáreiðanlegs fólks og hins
vegar land alvörulýðræðis, og þjóð-
inni annaðhvort hampað eða óskað
góðrar ferðar til heljar.
Hótanir og misskilningur
Hollenskir fjölmiðlar hafa, líkt og
enskir, verið harðorðir í garð ís-
lensku þjóðarinnar, enda hafa þar-
lendir ráðamenn hótað riftun frí-
verslunarsamnings við Íslendinga og
skírskotað til samstarfs við Englend-
inga um að koma Íslendingum á kné
og því ekki að undra að athugasemd-
ir á vefsíðum dagblaða í Hollandi og
Bretlandi litist af þeirri matreiðslu
sem þarlendir ráðmenn hafa boðið
upp á.
Sem fyrr segir hafa íslenskir les-
endur blandað sér í umræðuna og
hafa margir hverjir verið málefnaleg-
ir og reynt, meira og minna án árang-
urs, að koma á framfæri þeirri stað-
reynd að spurningin snúist ekki um
hvort Íslendingar hyggist borga eða
ekki borga, heldur um þá afarkosti
sem stórum hluta íslensku þjóðar-
innar standa til boða til langs tíma
litið vegna Icesave-myllunnar.
Frændur vorir Norðmenn
Vissulega má sjá í athugasemdum á
vefsíðu norska Aftenposten að fjöldi
fólks hefur samúð með málstað Ís-
lendinga en misskilur hvað málið
snýst um. En þar er einnig að ,finna
KOLBEINN ÞORSTEINSSON
blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is
Range Rover í rúst
Dýrir jeppar blandast í
umræðuna um Icesave.
Víkingaskip PeterHVT vill ræna
Íslendingum og selja þá, „eins og
í Íslendingasögunum.“
Litli og stóri í slag „Fyrst
stela þeir fiskinum okkar.“
Breskar herflugvélar Konung-
legi breski flugherinn er nefndur
til sögunnar vegna Icesave.