Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.2010, Page 21
FRÉTTIR 8. janúar 2010 FÖSTUDAGUR 21
„LOFTÁRÁSIR Á ÖSKJUHLÍГ
færslur sem sýna að afskaplega
grunnt er á svokallaðri frændsemi
Íslendinga og Norðmanna.
Engu að síður er auðvelt að skilja
þankaganginn á bak við þessa færslu
sem „óskráður“ setti inn: „Öll þjóð-
in tók þátt í kaupæðinu, ekki bara
bankarnir. Landið flaut yfir af bygg-
ingaframkvæmdum, dýrum jepp-
um, tískufatnaði og gjaldeyrislánum.
Hún gróf sína eigin gröf og neiti hún
nú að gera upp skuld sína munu
Vesturlönd og Evrópusamband-
ið fylla gröfina og Ísland mun
aldrei ná að grafa sig upp á
ný. Mátulegt á þá [Íslend-
inga].“
Fjandans flatskjáirnir
Eftir hrunið beindust sjónir um-
heimsins að því sem íslenska þjóð-
in var orðin samdauna. Jakkaklædd-
ir menn óku um á pikköpptrukkum,
sem nú standa ónýttir hjá garði,
en jeppaæðið var svo sem ekki ný-
lunda, tónlistar- og ráðstefnuhúsið
við höfnina var stækkað nánast dag
frá degi og merkjaæðið með tilliti til
klæða teygði anga sína allt niður í
leikskólana. Reyndar hafa flatskjáir
verið taldir til helstu myndbirtingar
neysluæðisins, sem verður að telj-
ast ómaklegt því nú hafa hefðbundin
gamaldags lampasjónvörp ekki stað-
ið Íslendingum, eða öðrum þjóðum
ef því er að skipta, til boða í fjölda
ára.
NOKKUR DÆMI UM FÆRSLUR Á
VEFSÍÐU AFTENPOSTEN
„Fá lánaða peninga og neita að borga til baka! Siga innheimtunni á allt
landið! Þessu hlýtur að fylgja refsing, viðskiptabann og ferðahöft í það
minnsta. Meiri bölvaðir asnarnir! Það er ekki lengur hægt að líta á þá
sem frændþjóð!!“
Óskráður
„Norðmenn ættu að kynna sér málið áður en þeir koma með sjálfum-
glaðar athugasemdir. Við vitum að þeim líkar að standa á hliðarlínunni
og sjá Íslendinga tekna í görnina! Heija, heija!“
Óskráður
„Hvenær varð trúverðugleiki hluti af viðskiptum? Ef maður setti
það sem skilyrði gæti maður ekki verið í sambandi við næstum alla
atvinnurekendur. Sérstaklega ekki banka, seðlabanka eða aðra.“
Óskráður
„Þetta er barátta fólksins. Mér finnst frábært að íslenska þjóðin veiti
þeim viðnám sem bera ábyrgð á skítnum. Kannski gætum við komið
í veg fyrir að svona gerist aftur ef allt fólk í heiminum krefðist þess að
bankar og fjármálageirinn tæki skellinn. Heija Ísland.“
Óskráður
„Vill nokkur eiga viðskipti við Ísland aftur? Land og þjóð sem ekki
standa við skuldbindingar sínar!“
Óskráður
„Ef íbúar annarra Norðurlanda gæfu Íslandi einn eða tvo hundraðkalla
nægði það til að greiða alla skuldina. Og litlir milljarðar að auki frá
ríkisstjórnunum gerðu þeim kleift að leggja grunninn að áframhald-
andi framgangi efnahagsins? Við hjálpum hvert öðru ef við viljum!“
Óskráður
„Þetta er augljós sigur fyrir íslenska lýðræðið – og fyrir fjárhag þjóðar-
innar til langs tíma litið. Grímsson gerði bara sína augljósu skyldu sem
þjóðarleiðtogi alvöru lýðræðisríkis (með elsta þing heimsins enn þá
virkt)
Óskráður
FÆRSLUR HOLLENDINGA Á
VEFSÍÐU DE TELEGRAAF
„Frábært frumkvæði hjá forseta Íslands. Af hverju ætti íslenska þjóðin
að borga fyrir hegðunina í hollensku spilavíti með mikla peninga?“
JMC Vandijk frá Antwerpen
„Ó, frábært. Þannig að núna þurfa skattgreiðendur í Hollandi að
borga fyrir lélega bankastjórn á Íslandi? Ekki fjármálaheimurinn, ekki
Ísland, ekki fólkið sem lagði peningana sína inn, heldur ég sem lagði
peningana mína ekki þarna inn vegna þess að ég var varkár. Hvenær
eru skattpeningarnir mínir notaðir á skynsamlegan hátt?“
Ed frá Adam
„Það eru allir alltaf að kvarta undan löndunum í Suður-Evrópu. En
stærsta bananalýðveldið virðist vera Ísland! Hollendingar lenda í öðru
sæti því þeir héldu að peningarnir myndu endurheimtast!“
Peter frá Utrecht
„Mun eftirlaunaaldurinn vera hækkaður upp í 72 ár núna?“
Crazy Henkie
„Bos og vinir hans eru mjög barnalegir í hugsun, hvernig ætti 360.000
manna þjóð, þar af gamlingjar og börn, að geta borgað 3,8 milljarða
skuld með vöxtum? Þarna eru margir flottir hverir og mikið grjót.
Landið gæti orðið fínt fjórtánda hérað. Ég styð stækkun konung-
dæmisins. Englendingar voru með fanganýlendu í Ástralíu, við gætum
kannski notað Ísland.“
The Admiral frá Vlissingen
„Fyrir mér mun Holland lýsa yfir stríði á hendur Íslandi. En JP [Balken-
ende forsætisráðherra] mun líklega ekki þora, frekar en venjulega.“
The Vakantieman frá Roosendaal
SKOÐUN BRETA VIÐRUÐ Á
VEFSÍÐU THE GUARDIAN
„Þetta er hneyksli. Fyrst stela þeir fiskinum okkar og núna ríghalda þeir
í afrakstur erfiðis okkar.“
Dick Hardon
„Ég lái þeim ekki. Gordon Brown beitti nýjum hryðjuverkalögum til að
frysta fé íslensks banka og ætlar nú að neyða þá með tuddaskap til að
greiða 50% af vergri þjóðarframleiðslu þeirra. Getið þið ímyndað ykkur
hvað Daily Mail segði ef þessu væri öfugt farið???
„Greiðið stóran hluta tekna ykkar eða við hleypum ykkur ekki inn í
ESB“ HAHAHAHAHA!“
mboy
Allt í lagi, leggjum hald á allar eignir Íslendinga hér. Það sem vantar
upp á getum við bætt með því að ræna og selja einstaka Íslendinga.
Eins og í Íslendingasögunum.“
PeterHCT
„Sendum herskipin á þá! Gordon Brown ætti að stilla upp hinni
konunglegu Ark Royal-herdeild, með hollenskum stuðningsskipum,
við sjóndeildarhring Reykjavíkur – einangra alla eyjuna frá umheimin-
um, svelta íbúana og gera síðan nokkrar loftárásir og flugskeytaárásir
á Öskjuhlíð og Skólavörðuholt, svona til að sýna aflið.
Þeir gefast upp innan mánaðar og borga í topp... með vöxtum. Virkar
alltaf. Bestu kveðjur – frá Columbus, Ohio – Bandaríkjunum.“
psygone
„Íslendinga svíður enn að við sýndum þá dirfsku að stöðva þá í að fylla
skjalatöskur þeirra með meiru af fjármunum breskra viðskiptavina
Icesave og stinga af til Íslands. Gangi ykkur vel með nýja rusllánshæfis-
matið, Ísland, AGS og ESB munu ekki bjóða ykkur nokkuð núna.
Ísland hefur alltaf verið land sjóræningja, sjáið bara þorskastríðið.“
Abil975
„Við ættum að nota Íslendinga sem æfingaskotmörk eins og Frakkar
gerðu á Bikini-eyjum á sjötta áratugnum. Kjarnorkuvopn okkar þarf að
prófa endrum og eins [...] Síðan þegar við höfum þurrkað þá út getum
við gert hreint fyrir okkar dyrum með því að segja að aðgerðir okkar
hafi ekki verið af kynþáttalegum toga [...] Þetta tel ég að ylji manni í
hjartastað, en þið? KALDHÆÐNI!!!!!!“
VladDrakul
„Ef þeir borga ekki eigum við að fresta greiðslum til þróunaraðstoðar
okkar í útlöndum þar til umræddri upphæð verður náð. Auðvelt.
Vandamálið leyst.“
Dipper72
ATHUGASEMDIR Á VEFSÍÐU THE TIMES
„Hlýtur að vera indælt að búa í landi þar sem stjórnmálamenn hlusta
á fólkið. Getum við ekki bara haldið Íslandi utan ESB og ég flyt þangað
án tafar.“
K R
„Íslendingar voru hamingjusamir þegar þeir nutu ágóða uppvaxtar-
tímans, en nú ættu þeir að undirbúa sig til að taka á kostnaðinum.
Kannski hefðu þeir átt að spyrja ríkisstjórnina réttu spurninganna fyrir
ári.“
Chris Mitchell
AF VEFSÍÐU POLITIKEN
Þetta sýnir kapítalismann í hnotskurn. Græðgin hafði yfirtekið alla
heilbrigða skynsemi, og svo skilja þeir ekkert í því að áhætta fylgir
fjárhættuspili. Sjáið hvernig pólitíkusarnir hér heima biðu í röð til að
bjarga bönkunum.. þeir geta haldið áfram með sínar vangaveltur í
þeirri fullvissu að samfélagið (skattgreiðendur) muni bjarga þeim
aftur.“
J Jensen frá Óðinsvéum
ÍSLENSKAR FÆRSLUR
Bretar og Hollendingar er jú gömul nýlenduveldi og þekktir fyrir mis-
beitingu valds gagnvart íbúum nýlendna þeirra. Nú eiga þeir engar
nýlendur eftir. Þess vegna sýna þeir vald sitt miklu minna og veikburða
landi, Íslandi, til að undirstrika metnað sinn. ESB og Norðurlöndin leika
síðan á aðra fiðlu í þessari valdamelódíu yfir Íslandi.“
Örn Jónasson frá Mosfellsbæ, á vefsíðu Politiken
„Hér er ein hugmynd. Flestir þeirra Íslendinga sem bera ábyrgð á
kreppunni, þeirra á meðal eigendur helstu íslensku bankanna (sem að
sjálfsögðu voru lítið annað en Ponzi-myllur) hafa falið stóran hluta síns
illa fengna fjár á Bresku Jómfrúareyjum og Ermarsundseyjum. Síðast
þegar ég gáði voru Tortóla og Guernsey undir bresku flaggi. Það er
kominn tími til að Bretar geri eitthvað varðandi þá „fjármálaþjónustu“
sem býðst erlendum fyrirtækjum á þessum stöðum. Gerið svo vel að
hirða þar það sem þið teljið ykkar.“
Broddi, á vefsíðu Guardian
„Gott að ég er íslenskur og ég skulda ykkur Bretum ekki krónu, við
Íslendingar viljum ekki ganga í hið fasíska Evrópusamband og við
viljum ekki lán frá AGS, fjöldi stjórnmálamanna hefur lýst því yfir að
það ætti að sparka AGS úr landinu.“
Butcher, á vefsíðu Guardian
„Við ættum að nota
Íslendinga sem æf-
ingaskotmörk, eins og
Frakkar gerðu á Bikini-
eyjum á sjötta áratugn-
um. Kjarnorkuvopn
okkar þarf að prófa
endrum og eins ...“
Hollenskur hermaður
Einn Hollendingur vill
hernema Ísland.