Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.2010, Síða 34
UMSJÓN: KJARTAN GUNNAR KJARTANSSON, kgk@dv.is
Guðríður Oktavía Egilsdóttir
KENNARI
Guðríður fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp í vaxandi bæ. Hún lauk
ljósmæðraprófi 1941, kennaraprófi
1963 og kenndi síðan við Hagaskóla
í Reykjavík.
Fjölskylda
Guðríður giftist 22.4. 1943, Adolf
Guðmundssyni, f. 7.7. 1917, d. 25.8.
1965, yfirkennara í Reykjavík. Hann
var sonur Soffiu Baldvinsdóttur, frá
Stakkahlíð í Loðmundarfirði og Ad-
olfs Guðmundssonar, loftskeyta-
manns og dómtúlks í Reykjavík.
Adolf Guðmundsson kennri var
fóstursonur séra Friðriks Friðriks-
sonar, æskulýðsleiðtoga og stofn-
anda KFUM.
Synir þeirra Guðríðar Egilsdótt-
ur og Adolfs Guðmundssonar eru
Friðrik Adolfsson, f. 6.6. 1944, d.
5.4. 2007, verkfræðingur í Reykja-
vík, var kvæntur Miriam Öddu Rub-
ner frá Ísrael og eignuðust þau þrjú
börn. Friðrik og Miriam skildu;
Þórður Adolfsson, f. 29.11. 1952,
framkvæmdastjóri, kvæntur Sig-
rúnu Ástu Haraldsdóttur deildar-
stjóra. Þórður var áður kvæntur El-
ínu Guðmundsdóttur kennara frá
Bolungarvík. Þau eignuðust 3 börn.
Systkini Guðríðar: Agla Þórunn
Egilsdóttir, f. 29.6. 1921, d. 21.6.
1959; Þórunn Egilsdóttir, f. 15.8.
1912, d.12.03. 2000; Guðbjörg Eg-
ilsdóttir, f. 20.6. 1911, d. 4.5. 1997;
Þórður Egilsson, f. 20.2. 1909, d. 7.7.
1921.
Foreldrar Guðríðar voru hjónin
Egill Þórðarson, f. 2.11. 1886, d. 6.1.
1921, skipstjóri, frá Ráðagerði á Sel-
tjarnarnesi, og Jóhanna H. Lárus-
dóttir, f. 9.12. 1886, d. 22.12. 1962,
húsfreyja.
Ætt
Egill skipstjóri í Ráðagerði var son-
ur Þórðar, b. og hafnsögumanns í
Ráðagerði á Seltjarnarnesi Jóns-
sonar, og Þórunnar Jónsdóttur, frá
Mýrarhúsum. Afi og amma afmæl-
isbarnsins í móðurætt voru bænd-
ur að Gerðubergi í Eyjahreppi í
Hnappadalssýslu. Jóhanna móðir
Guðríðar var dóttir Lárusar bónda
á Gerðubergi Gíslasonar og Guð-
bjargar Kristjánsdóttur frá Rauða-
mel.
90 ÁRA Á SUNNUDAG 80 ÁRA Á SUNNUDAG
Unnur I. Arngrímsdóttir
DANSKENNARI OG FRAMKVÆMDASTJÓRI
Unnur fæddist í Reykjavík 10.1.
1930 og ólst þar upp. Hún lauk
barnaskólaprófi frá Skildinganes-
skóla í Skerjafirði, gagnfræðaprófi
frá Gagnfræðaskóla Austurbæjar
1947, stundaði nám við Dansins-
titude Carlsen í Kaupmannahöfn og
lauk þaðan danskennaraprófi 1960,
auk þess sem hún stundaði nám við
módelskóla í Kaupmannahöfn og í
Boston í Bandaríkjunum.
Unnur stofnaði, ásamt manni
sínum, Dansskóla Hermanns Ragn-
ars og kenndi þar dans og starfaði
við skólann frá 1958. Þá stofnaði
hún Snyrti- og tískuskólann 1963
og stofnaði Módelsamtökin 1967 og
hefur verið framkvæmdastjóri þeirra
um langt árabil auk þess að hafa
verið aðalkennari á námskeiðum
Módel samtakanna og þjálfað og út-
skrifað fjölda nemenda sem starfað
hafa við sýningarstörf hér á landi og
erlendis.
Unnur varð síðan deildarstjóri í
Félagsmiðstöðinni Árskógum.
Unnur hefur kennt dans og hald-
ið námskeið víða um land og leið-
beint með snyrtingu, hárgreiðslu,
fataval, framkomu og fleira um ára-
tuga skeið. Þá fór hún nokkrar ferðir
sem skemmtanastjóri á vegum Sam-
vinnuferða-Landsýnar til Spánar og
Írlands.
Unnur var stofnandi Danskenn-
arasambands Íslands og var for-
maður þess í tvö ár, sat í stjórn Kven-
skátafélags Reykjavíkur um tíma og
hefur gegnt fjölda trúnaðarstarfa
innan Oddfellowreglunnar.
Unnur hefur skrifað greinar í blöð
og tímarit um framkomu og snyrt-
ingu. Hún átti hlut að útkomu bókar-
innar Litirnir mínir og ritaði kaflann
um Arngrím Kristjánsson skólastjóra
í bókina Faðir minn skólastjórinn.
Fyrir ári síðan skrifaði hún og gaf út
bók um framkomu og siðvenjur.
Unnur hlaut Exit-verðlaun Félags
kvenna í atvinnurekstri, árið 2001, og
er heiðursfélagi Dansráðs Íslands.
Fjölskylda
Eiginmaður Unnar var Hermann
Ragnar Stefánsson, f. 11.7. 1927, d.
10.6. 1997, danskennari. Hann var
sonur Stefáns Sveinssonar, verk-
stjóra á Kirkjusandi, og Rannveig-
ar Ólafsdóttur húsmóður. Foreldr-
ar Hermanns Ragnars bjuggu fyrst
á Hvammstanga og síðar á Siglufirði
en fluttu til Reykjavíkur 1920.
Börn Unnar og Hermanns Ragn-
ars eru Henny, f. 13.1. 1952, dans-
kennari en maður hennar er Bald-
vin Berndsen framkvæmdastjóri og
á hún tvö börn, Unni Berglindi Guð-
mundsdóttur sem býr í Suður-Afríku
en maður hennar er Daníel Franic-
es Jeppe lögmaður og eiga þau son-
inn Daníel Franices, og Árna Henrý
Gunnarsson viðskiptaráðgjafa en
sonur hans er Alexander Svav-
ar; Arngrímur, f. 1.12. 1953, fram-
kvæmdastjóri, kvæntur Önnu Hall-
grímsdóttur fjármálastjóra og eiga
þau þrjú börn, Hallgrím Örn jarð-
verkfræðing sem er kvæntur Ástu
Sóllilju og eiga þau tvö börn, Sunnu
Dís og Snorra Snæ, Hermann orku-
tæknifræðing, og Hauk atvinnuflug-
mann; Björn, f. 26.8. 1958, rekstr-
arfræðingur, kvæntur Helgu Bestlu
Njálsdóttur, fjármálastjóra Skjásins,
og eru þeirra börn Guðbjörg Birna,
BS í verkfræði, Hermann Ragnar,
laganemi og handboltamaður í FH,
og Jóhann Ívar nemi.
Sambýlismaður Unnar er Gunn-
ar Valgeirsson, f. 30.6. 1930, flugvirki.
Systir Unnar er Áslaug Helga, f.
27.8. 1934, húsfrú í Hveragerði, gift
Baldri Maríussyni garðyrkjufræðingi
og eiga þau fjögur börn, Unni, Arn-
grím, Birgi og Andreu.
Foreldrar Unnar voru Arngrím-
ur Kristjánsson, f. 28.9. 1900, d.
5.2. 1959, skólastjóri Melaskólans í
Reykjavík, og k.h., Henny Othelie f.
Helgesen, f. 2.11. 1899, d. 16.9. 1967,
húsmóðir.
Ætt
Henny Othelie fæddist í Bergen en
flutti með manni sínum til Íslands
1928. Hún var dóttir Helmer Helge-
sen, starfsmanns við Rafveituna í
Bergen, og k.h., Ingeborg Helgesen
húsmóður.
Foreldrar Arngríms voru Krist-
ján, b. á Sigríðarstöðum í Ljósavatns-
skarði, bróðir Helgu, móður Jóns
Péturssonar, prófasts á Kálfafells-
stað í Suðursveit. Kristján var sonur
Skúla, b. á Sigríðarstöðum Kristjáns-
sonar, og Elísabetar Þorsteinsdóttur,
systur Rósu, ömmu Margrétar Thor-
lacius lækningamiðils og Magnúsar
Thorlacius hrl. Önnur systir Elísa-
betar var Guðrún, móðir Sigtryggs,
föður Karls, skálds á Húsavík.
Móðir Elísabetar var Guðrún Jó-
hannesdóttir, b. í Leyningi Halldórs-
sonar, b. á Reykjum í Fnjóskadal
Jónssonar, b. á Reykjum Péturssonar,
ættföður Reykjaættarinnar.
Móðir Arngríms var Unnur Jó-
hannsdóttir, b. á Skarði í Grýtu-
bakkahreppi Bessasonar.
Unnur fagnar 80 ára afmæli sínu
með fjölskyldu og vinum að Árskóg-
um 4, Reykjavík, sunnudaginn 10.1.
kl. 16.00.
Steinunn fæddist í Reykjavík en ólst
upp í Mosfellsbæ. Hún var Varmár-
skóla og Gagnfræðaskóla Mosfells-
bæjar, lauk stúdentsprófi frá MA,
BS-prófi í byggingaverkfræði við HÍ
2005 og hefur stundað nám í mynd-
list við Myndlistaskólann í Reykjavík
sl. þrjú ár.
Steinunn var fyrsti kvenneminn
hjá Ístaki og starfaði þar við mæl-
ingar og fleira 2002-2005, starfaði
hjá Íslenskum aðalverktökum um
skeið og hjá teiknistofunni Batterí-
inu 2006-2009.
Steinunn hefur unnið að eigin
hönnun skartgripa sl. ár. Þá var hún
stigavörður í spurningaþáttunum
Gettu betur 2004-2009.
Steinunn var formaður Félags
framhaldsskólanema 2001, sat í
stúdentaráði HÍ fyrir Vöku, sat í
stjórn SUS, sat í jafnréttisnefnd
Reykjavíkurborgar og er nú gjald-
keri í foreldrafélagi leikskólans Ásar
í Garðabæ.
Fjölskylda
Eiginmaður Steinunnar er Stefán
Eiríks Stefánsson, f. 7.5. 1980, verk-
fræðingur og forstöðumaður gjald-
eyrismiðlunar hjá Íslandsbanka.
Synir Steinunnar og Stefáns
eru Snorri Þór, f. 31.3. 2005; Friðrik
Trausti, f. 25.10. 2006; Nikulás Flosi,
f. 30.7. 2009.
Systkini Steinunnar er Niku lás
Árni Sigfússon, f. 8.1. 1980, verk-
fræðingur í Hafnarfirði; Guðrún
Mist Sigfúsdóttir, f. 14.7. 1986, nemi
í lögfræði við HÍ; Þorkell Helgi Sig-
fússon, f. 17.6. 1988, söngnemi við
Listaháskóla Íslands; Sindri Sigfús-
son, f. 22.5. 1995, grunnskólanemi í
Kópavogi.
Foreldrar Steinunnar eru Sigfús
Þór Nikulásson, f. 6.12. 1957, lækn-
ir og meinafræðingur í Kópvogi,
og Hulda Sigríður Jeppesen, f. 2.4.
1958, sjúkraþjálfari í Hafnarfirði.
Eiginkona Sigfúsar er Mist Þor-
kelsdóttir, f. 2.8. 1960, deildarfor-
seti tónlistardeildar Listaháskóla Ís-
lands.
Maður Huldu Sigríðar er Guð-
mundur Jón Stefánsson, f. 12.4.
1963, húsgagnasmiður. Sonur hans
er Daði Már Guðmundsson, f. 7.4.
1991.
KJARTAN GUNNAR KJARTANSSON rekur
ættir þjóðþekktra Íslendinga sem hafa verið í
fréttum í vikunni, rifjar upp fréttnæma
viðburði liðinna ára og minnist horfinna
merkra Íslendinga. Lesendur geta sent inn
tilkynningar um stórafmæli á netfangið
kgk@dv.is
30 ÁRA Á FÖSTUDAG
Steinunn Vala Sigfúsdóttir
VERKFRÆÐINGUR OG SKARTGRIPAHÖNNUÐUR
Hrafnkell Gunnarsson
SJÓMAÐUR Í HAFNARFIRÐI
Hrafnkell fæddist í Brekku í Garða-
hreppi og ólst upp í Garðahreppi.
Hann fór ungur til sjós, var fyrst
á togaranum Maí frá Hafnarfirði
og var lengst af sjómaður á bát-
um og togurum frá Hafnarfirði. Þá
gerði Hrafnkell út báta frá Breið-
dalsvík um nokkurra ára skeið.
Hann stundaði auk þess fisk-
vinnslu í Hafnarfirði í nokkur ár en
er nú bensínafgreiðslumaður hjá
Skeljungi í Garðabæ.
Fjölskylda
Hrafnkell kvæntist 13.7. 1975 Krist-
ínu Ellen Hauksdóttur, f. 4.5. 1950,
stöðvarstjóra. Hún er dóttir Hauks
Gíslasonar og Ragnheiðar Ragnars-
dóttur, bænda i Holti í Breiðdalsvík.
Sonur Hrafnkels frá því áður er
Bjarni, f. 5.5.1972, sjómaður í Hafn-
arfirði.
Börn Hrafnkels og Kristínar El-
lenar eru Daði, f. 11.2. 1977, tann-
læknir í Reykjavík en kona hans
er Herborg Jónasdóttir húsmóðir
og eiga þau tvö börn auk þess sem
hann á dóttur frá fyrri sambúð;
Ragnheiður Diljá, f. 10.12. 1984,
nemi.
Fóstursonur Hrafnkels og son-
ur Kristínar Ellenar er Gauti Brynj-
ólfsson, f. 6.4. 1973, starfsmaður hjá
ALCOA á Reyðarfirði, búsettur á
Egilsstöðum en kona hans er Þórdís
Kristvinsdóttir og eiga þau tvo syni.
Systkini Hrafnkels eru Sveinn
Gunnarsson, sjómaður á Hvamms-
tanga; Sveinbjörn Pálmi Gunnars-
son, nú látinn, var verkamaður í
Hafnarfirði; Ingvar Gunnarsson,
fórst með Hólmari frá Sandgerði,
sjómaður; Jón Ragnar Gunnarsson,
sjómaður í Hafnarfirði; Kolbrún
Kristín Gunnarsdóttir, verslunar-
maður í Reykjavík; Hjörtur Laxdal
Gunnarsson, verkmaður í Hafn-
arfirði; Torfhildur Rúna Gunnars-
dóttir, skrifstofumaður í Reykjavík;
Gunnþórunn Inga Gunnarsdóttir,
verslunarmaður í Hafnarfirði.
Foreldrar Hrafnkels: Gunnar
Sveinbjörnsson, f. 1915, nú látinn,
bifvélavirki, og Ingigerður Ingv-
arsdóttir, f. 23.8. 1920, verkakona í
Hafnarfirði.
60 ÁRA Í DAG
34 FÖSTUDAGUR 8. janúar 2010 ÆTTFRÆÐI