Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.2010, Blaðsíða 36
36 FÖSTUDAGUR 8. janúar 2010 HELGARBLAÐ
Birgir fæddist á Hesteyri í Sléttu-
hreppi í Norður-Ísafjarðarsýslu.
Hann lauk stúdentsprófi frá MR
1954, kennaraprófi frá KÍ 1955 og
stundaði nám í félagsráðgjöf við The
University of Chicago 1965.
Birgir hóf kennslu við Langholts-
skólann í Reykjavík 1955 og starf-
aði þar til 1998. Samhliða rak hann,
ásamt systkinum sínum og móður,
verslunina Guðmundur H. Alberts-
son á Langholtsvegi 42.
Birgir var virkur í starfi KFUM,
var m.a. skólastjóri kvöldskóla fé-
lagsins og einn stofnenda sunnu-
dagaskólans á Holtavegi. Þá var
hann umsjónarmaður barnaefnis
Sjónvarpsins á upphafsárum þess.
Birgir og Edda, kona hans, stofn-
uðu heimili í Álfheimum og bjuggu
þar í rúm tuttugu ár en árið 1981
flutti fjölskyldan í Lækjarás í Selás-
hverfi.
Birgir var góður íslenskumað-
ur og átti gott með að koma fyrir sig
orði. Hann hafði ríka þörf fyrir hreyf-
ingu og stundaði blak til fjölda ára.
Virðing og væntumþykja fyrir
náttúrunni einkenndi hann, enda
undi hann sér best á æskuslóðum
innan um fjöll og óspillta náttúru á
Hesteyri og Hornströndum þaðan
sem hann flutti tíu ára gamall.
Hann hóf hins vegar að koma
þangað reglulega til sumardvalar
með fjölskyldu sinni upp úr 1960 og
átti sína síðustu ferð þangað í sum-
ar. Birgir var fararstjóri gönguhópa
á þessum slóðum nokkur sumur.
Hann bar sterkar taugar til Noregs,
en móðir hans var norsk og frænd-
garðurinn þar stór. Þau tengsl skip-
uðu ávallt stóran sess í lífi hans.
Fjölskylda
Eiginkona Birgis er Evlalía Krist-
ín Guðmundsdóttur (Edda) , f. í
Reykjavík 21. 12. 1935, húsmóðir.
Foreldrar hennar voru Guðmundur
Gíslason, f. 1900, sjómaður, og Guð-
björg Kristinsdóttir, f. 1904, hús-
móðir. Birgir og Evlalía voru gefin
saman þann 19.7. 1959 í Vatnaskógi
og fögnuðu gullbrúðkaupi á sl. ári.
Börn Birgis og Evlalíu: 1) Borg-
hildur, f. 27.5. 1960, kennari, gift
Agli Steinari Gíslasyni, f. 1956, húsa-
smið. Börn þeirra: a) Steinunn Eik,
b) Kristín Edda, c) Dagný Björk,
d) Ingileif, e) Aldís Helga, f ) Ægir
Sölvi. 2) Guðmundur Albert, f. 1.7.
1961, bóndi, en kona hans er Unn-
ur Jóhannsdóttir. Barn þeirra: a)
Edda Sonja. Börn Unnar og fóstur-
börn Guðmundar eru Anna Birna
og Kári. 3) Gunnar Friðrik, f. 16.5.
1967, viðskiptafræðingur, kvæntur
Erlu Sesselju Jensdóttur, f. 1966, við-
skiptafræðingi. Börn þeirra: a) Há-
kon Freyr, b) Ester Elísabet, c) Bald-
vin Bjarki. 4) Guðbjörg Helga, f. 15.1.
1969, hjúkrunarfræðingur, gift Hlyni
Sævarssyni, f. 1965, prentsmið. Börn
hennar og Jóhanns Guðnasonar, f.
1965, d.1994, og fósturbörn Hlyns
a) Birgir Daði, b) Agnes, c) Rebekka.
Dóttir Hlyns og fósturdóttir Guð-
bjargar d) Katrín Melkorka. Börn
Guðbjargar og Hlyns e) Ísabella, f )
Tómas Orri.
Systkini Birgis voru Dagný G. Al-
bertsson, f. 31.5. 1925, kennari, og
Reidar G. Albertsson, f. 10.7. 1928,
d. 1982, kennari en eftirlifandi eig-
inkona hans er Oddrún Jónasdóttir
Uri f. 1939.
Foreldrar Birgis voru Borghild
Berntsdóttir Albertsson (f. Årseth), f.
í Noregi 8.7. 1900, d. 1989, húsmóð-
ir, og Guðmundur H. Albertsson, f.
á Marðareyri í Veiðileysufirði 20.5.
1896, d. 1952, kaupmaður, útgerðar-
maður og oddviti Sléttuhrepps.
Útför Birgis fer fram frá Áskirkju í
Reykjavík í dag, föstudaginn 8.1., og
hefst kl. 15:00.
Guðrún
Lárusdóttir
SKÁLD OG
ALÞINGISMAÐUR
f. 8.1. 1880, d. 20.8. 1938
Guðrún fæddist á Valþjófs-
dal í Fljótsdal, dóttir Lárusar
Halldórssonar, prests og alþm.
á Valþjófsdal, og k.h., Kristínar
Katrínar, dóttur Péturs Guð-
johnsen, alþm.,
dómorgan-
ista, kór-
stjóra og
ættföður
Guð-
johnse-
nættar.
Krist-
ín átti
þrjár syst-
ur sem gift- ar
voru þingmönnum; Mörtu,
konu Indriða Einarssonar,
skálds og alþm., og tengda-
móður Ólafs Thors forsætisráð-
herra, sem aftur var tengda-
faðir Péturs Benediktssonar
alþingismanns en tengdasonur
hans er Ólafur Hannibalsson
sem varð varaþingmaður; Guð-
rúnu, sem gift var Jens Pálssyni
alþm. en þau voru langafi og
langamma Katrínar Fjeldsted,
læknis og fyrrv. alþm, og Önnu
Lovísu sem var gift Þórði Thor-
oddsen, lækni og alþm. Þá var
fjórða systirin Kristjana, móðir
Péturs Halldórssonar, alþm. og
borgarstjóra.
Guðrún naut góðrar barna-
og unglingamenntunar í
heimahúsum. Hún var bæjar-
fulltrúi í Reykjavík 1912-1918
og varð önnur konan sem var
kjörin til Alþingis, þingmað-
ur fyrir Sjálfstæðisflokkinn frá
1930 og til æviloka.
Guðrún drukknaði í Tungu-
fljóti i Biskupstungum 20. ágúst
1938, ásamt tveimur dætrum
sínum, er bifreið sem fjölskyld-
an hafði farið með í ferðalag
rann út í fljótið.
Eiginmaður Guðrúnar var
Sigurbjörn Á. Gíslason, ritstjóri,
rithöfundur og prestur í Reykja-
vík.
Börn þeirra: Lárus, f. 22.5.
1903, d. 5.8. 1974, rithöfundur
og borgarminjavörður Reykja-
víkur og öðrum fremur stofn-
andi Árbæjarsafnsins; Hall-
dór Ástvaldur, f. 30.1. 1905, d.
20.4. 1983, verslunarmaður í
Reykjavík; Kristín Guðrún, f.
15.3. 1906, d. 15.11. 1908; Gísli
Sigurbjörn, f. 29.10. 1907, d. 7.1.
1994, forstjóri Elli- og hjúkrun-
arheimilisins Grundar í Reykja-
vík og Elli- og dvalarheimilis-
ins Áss/Ásbyrgis í Hveragerði;
Kristín Sigurbjörg f. 17.10. 1909,
d. 2.2. 1919; Friðrik Baldur, f.
14.7. 1911, d. 15.6. 1988, stór-
kaupmaður í Reykjavík; Kirstín
Lára, f. 28.3. 1913, kennari í
Reykjavík; Guðrún Valgerð-
ur, f. 26.10. 1915, d. 20.8. 1938,
húsmóðir í Reykjavík; Sigrún
Kristín, f. 12.2. 1921, d. 20.8.
1938; Gústaf, f. 10.8. 1924, d.
26.2. 1925.
MINNING
Birgir G. Albertsson
KENNARI
MERKIR
ÍSLENDINGAR
Guðmundur fæddist á Dvergasteini
á Skagaströnd og ólst upp hjá for-
eldrum sínum á Skagaströnd og víð-
ar í Vindhælishreppi en lengst af
bjuggu þau að Bergsstöðum, Þverá
og Sæunnarstöðum í Hallárdal á
Skagaströnd.
Guðmundur hóf búskap með for-
eldrum sínum og bræðrum að Sæ-
unnarstöðum og bjuggu þau þar
til 1944 er þau fluttu að Vindhæli
á Skagaströnd. Þar bjó Guðmund-
ur síðan í félagi við bræður sína, þá
Guðmann sem nú er látinn, og Pál,
sem nú er búsettur á Dvalarheim-
ilinu á Blönduósi. Magnús, sonur
Guðmanns er nú bóndi á Vindhæli.
Guðmundur hætti búskap á Vind-
hæli 1997 og flutti þá á Dvalarheimil-
ið á Blönduósi þar sem hann var bú-
settur til dánardags.
Fjölskylda
Systkini Guðmundar: Steingrímur,
bóndi á Eyvindarstöðum í Blöndu-
dal, nú látinn; Sigurður, lengst af
verkstjóri hjá Kaupfélagi Skagfirð-
inga á Sauðárkróki, nú látinn; María,
áður ljósmóðir á Sauðárkróki, síðar
búsett í Hafnarfirði, nú látin; Guð-
mann, bóndi á Vindhæli, nú látinn;
Páll, fyrrv. bóndi á Vindhæli, nú á
dvalarheimilinu á Blönduósi.
Foreldrar Guðmundar voru
Magnús Steingrímsson, f. 3.4. 1881,
bóndi á Bergsstöðum, og k. h., Guð-
rún Einarsdóttir, f. 8.8. 1879, hús-
freyja.
Ætt
Systkini Magnúsar voru Páll, ritstjóri
Vísis, Páll, b. á Njálsstöðum á Skaga-
strönd, og Friðrika, húsmóðir á Kag-
aðarhóli á Ásum.
Magnús var sonur Steingríms,
b. á Njálsstöðum á Skagaströnd,
bróður Þorgríms, afa Önnu Sigurð-
ardóttur, forstöðumanns Kvenna-
sögusafnsins, og Valborgar, fyrrv.
skólastjóra Fósturskólans, móður
Sigríðar Snævarr sendiherra, Sig-
urðar Snævarr borgarhagfræðings,
Stefáns Snævar heimspekings og
Árna Snævar, fyrrv. fréttamanns.
Annar bróðir Steingríms var Dav-
íð, afi Brynleifs Steingrímssonar,
læknis á Selfossi, og langafi Davíðs
Oddssonar, ritstjóra Morgunblaðs-
ins. Steingrímur var sonur Jónatans,
b. á Marðarnúpi í Vatnsdal Davíðs-
sonar, b. í Hvarfi í Víðidal Davíðs-
sonar, hreppstjóra á Spákonufelli á
Skagaströnd Guðmundssonar. Móð-
ir Jónatans var Ragnheiður Friðriks-
dóttir, pr. á Breiðabólstað í Vestur-
hópi Þórarinssonar, sýslumanns á
Grund og ættföður Thorarensen-
ættar Jónssonar. Móðir Friðriks var
Sigríður Stefánsdóttir, móðir Jóns
Espólín sagnaritara og systir Ól-
afs, stiftamtmanns í Viðey, ættföður
Stephensenættar. Móðir Ragnheiðar
var Hólmfríður Jónsdóttir, varalög-
manns í Víðidalstungu Ólafssonar,
lögsagnara á Eyri og ættföður Eyra-
rættar Jónssonar. Móðir Hólmfríð-
ar var Þorbjörg Bjarnadóttir, sýslu-
manns á Þingeyrum Halldórssonar,
og Hólmfríðar Pálsdóttur, lögmanns
í Víðidalstungu Vídalín.
Móðir Magnúsar var Anna Guð-
rún, dóttir Carls Friðriks Schram, b.
á Kornsá í Vatnsdal, Christiansson-
ar Schram, verslunarstjóra í Höfða-
kaupstað, ættföður Schramættar.
Móðir Önnu var Margrét Stefáns-
dóttir, frá Hofi í Vatnsdal, amma
Árna Pálssonar prófessors.
Systkini Guðrúnar voru Gísli, sjó-
maður á Skagaströnd, og Sigþrúður,
húsmóðir á Skagaströnd.
Guðrún var dóttir Einars, b. á Haf-
urstaðakoti í Vindhælishreppi Gísla-
sonar, b. í Köldukinn á Ásum Jóns-
sonar, b. á Höllustöðum í Blöndudal
Halldórssonar, frá Fossum í Svartár-
dal, af Harðabóndaætt.
Móðir Guðrúnar var María Guð-
mundsdóttir, systir Guðmundar á
Torfalæk, föður Páls Kolka læknis og
Elínborgar á Kringlu í Torfalækjar-
hreppi, móður Guðrúnar Teitsdótt-
ur, ljósmóður á Skagaströnd. Móðir
Maríu var Guðrún Guðmundsdóttir,
smiðs á Síðu í Víðidal, Guðmunds-
sonar, og k.h., Guðrúnar Sigfúsdótt-
ur Bergmann, b. og hreppstjóra á
Þorkelshóli í Víðidal, Sigfússonar,
ættföður Bergmannsættarinnar.
MINNING
Guðmundur Bergmann Magnússon
BÓNDI AÐ VINDHÆLI Á SKAGASTRÖND
Fæddur 27.5. 1935, dáinn 26.12. 2009