Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2010, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2010, Síða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 3. febrúar 2010 FRÉTTIR Bjarni Benediktsson, þáverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins og núverandi formaður flokksins, var beinn þátttakandi í viðskiptum eignarhaldsfélagsins Vafnings sem miðuðu að því að safna 45 milljörð- um króna í íslenska hagkerfinu í árs- byrjun 2008. Milljarðarnir 45 voru síðan notaðir til að greiða erlend lán tveggja eignarhaldsfélaga í eigu ættingja hans, og viðskiptafélaga í Milestone. Peningarnir voru teknir að láni hjá Glitni, tryggingafélaginu Sjóvá og Kaupþingi. Bjarni var einn þriggja stjórnar- manna í eignarhaldsfélaginu BNT sem skrifaði upp á umboð sem veitti honum heimild til að veðsetja hluta- bréf félagsins í eignarhaldsfélaginu Vafningi þann 8. febrúar 2008. Hinir tveir voru stjórnarmennirnir Gunn- laugur Sigmundsson og Jón Bene- diktsson. BNT er móðurfélag olíu- félagsins N1 sem er í meirihlutaeigu fjölskyldu Bjarna. Þessi staðreynd sýnir að Bjarni, sem var stjórnarformaður BNT á þeim tíma, tók þátt í þeirri ákvörðun að skuldbinda BNT í Vafningsvið- skiptunum sem snérust um endur- fjármögnun á hlutabréfum í Glitni og sænska fjármála- og trygginga- fyrirtækinu Invik. Glitnisbréfin voru í eigu Sjóvár, sem aftur var í eigu Karls og Steingríms Wernerssona í gegnum Milestone, og Benedikts, föður Bjarna, og Einars, föðurbróð- ur hans. Þessi Glitnisbréf áttu þeir saman í eignarhaldsfélaginu Þætti International. Bréfin í Invik voru aft- ur í eigu dótturfélags Milestone sem heitir Racon Holding. Bjarni tók beinan þátt Með undirskrift sinni tók Bjarni þátt í því, ásamt Gunnlaugi og Jóni, að veita sjálfum sér umboð til að veðsetja hlutabréfin í Vafningi, en helstu eignir félagsins voru breski fjárfestingarsjóðurinn KCAJ og lúxusturninn í Makaó, sem færð- ir höfðu verið inn í félagið frá öðru dótturfélagi Sjóvár. Þetta var gert til að búa til veðhæfi til að fá lán út á eignir Vafnings. Bjarni hefur þráfaldlega neitað að hafa komið að þessari ákvörðun og sagt að eina þátttaka sín í Vafn- ingsviðskiptunum hafi verið að veð- setja bréfin í Vafningi fyrir hönd ættingja sinna og félaga þeirra, BNT, Hrómundar og Hafsilfurs, þar sem þeir hafi verið staddir erlend- is. „Ég tók engar ákvarðanir fyrir hönd þessa félags [Vafnings, innsk. blaðamanns]. Ég kom ekkert nálægt þeim ákvörðunum sem áttu sér stað þennan dag,“ sagði Bjarni í sam- tali við DV í desember þegar blaðið byrjaði að skrifa fréttir um Vafnings- málið. Undirskrift Bjarna sýnir hins vegar að hann átti þátt í því sem stjórnarmaður í BNT að heimila veðsetningu á hlutabréfum félags- ins í Vafningi. Sú staðreynd passar betur við önnur orð sem Bjarni lét falla í samtali við DV í desember: „Ég skýst aldrei undan ábyrgð á því sem ég skrifa undir fyrir hönd þess félags sem ég sit í stjórn fyrir,“ sagði Bjarni þá en hugsanlegt er að eng- in mótsögn felist í þessum tveim- ur staðhæfingum Bjarna þar sem heimildir DV herma að Bjarni hafi ekki vitað mikið um þau flóknu við- skipti í kringum Vafning sem áttu sér stað um þetta leyti. Ótvírætt er hins vegar að Bjarni kom að þeirri ákvörðun BNT að veita honum sjálfum umboð til að veðsetja hlutabréf félagsins í Vafn- ingi sama hversu mikið hann vissi um viðskipti þess. 45 milljarða viðskipti Milljarðalánin til að endurfjár- magna hlutabréfin í Glitni og In- vik komu svo frá Sjóvá og Glitni og runnu meðal annars í gegnum Vafn- ing í viðskiptum sem verða að teljast nokkuð flókin. Í gegnum þau félög runnu þau til bandaríska fjárfest- ingarbankans Morgan Stanley sem hafði hótað að leysa til sín hlutabréf Sjóvár og Þáttar International í In- vik og Glitni. Því má segja að Vafn- ingsviðskiptin hafi snúist um að ná til sín miklu fjármagni úr íslenska fjármálakerfinu – um 45 milljörð- um króna – og nota það síðan til að greiða upp erlendar skuldir sem stofnað hafði verið til vegna hluta- bréfakaupa. Einar og Benedikt Sveinssynir skrifuðu undir hin umboðin tvö, frá Hafsilfri og Hrómundi, sem veittu Bjarna heimild til að veðsetja bréf félaganna tveggja í Vafningi. Bjarni skrifaði jafnframt undir umboð Ein- ars sem vitundarvottur, auk Her- manns Guðmundssonar, forstjóra N1. Fjórar undirskriftir Bjarna Vegna þriggja áðurnefndra umboða gat Bjarni skrifað undir veðsamn- inginn fyrir hönd félaganna þriggja. Í veðsamningnum kemur fram að verið var að veðsetja eignir Vafn- ings fyrir láni frá Glitni upp á tæp- lega 104 milljónir evra, rúmlega 10 milljarða króna, sem veitt var sama dag, þann 8. febrúar 2008. Aðrir sem skrifuðu undir veðsamninginn voru Guðmundur Ólason, fyrir hönd dótturfélaga Sjóvár, og Lárus Weld- ing og Guðmundur Hjaltason fyrir hönd Glitnis. Í lánasamningnum var tek- ið fram að nota ætti Glitnislánið til að endurfjármagna lán frá Morgan Stanley. Athygli vekur að Vafningur átti að greiða lánið til baka fyrir 31. mars og var því um ætlað skamm- tímalán að ræða. Undir lánasamn- inginn skrifuðu Guðmundur Ólason fyrir hönd Vafnings og Lárus Weld- ing og Guðmundur Hjaltason fyrir hönd Glitnis. Af þessu að dæma má því ætla að eigendur Vafnings hafi verið að kaupa sér frest til skamms tíma til að verða sér úti um annars konar endurfjármögnun. Bjarni og Guðmundur Ólason skrifuðu enn fremur undir bréf til Glitnis þar sem þeir lýstu því yfir með undirskriftum sínum að þeir hefðu veðsett hlutabréfin í Vafningi. Með veðsetningunni á Vafnings- bréfunum var veði Morgan Stanley í Glitnisbréfunum aflétt. Í stað þess færðist veðið fyrir láninu vegna fjár- INGI F. VILHJÁLMSSON blaðamaður skrifar ingi@dv.is FÉKK UMBOÐ FRÁ SJÁLFUM SÉR Bjarni Benediktsson tók þátt í að ákveða að veita sjálfum sér umboð fyrir hönd BNT til að veðsetja hlutabréf í Vafningi 2008. Bjarni hefur þráfaldlega neitað því að hafa tekið þátt í þeim ákvörðunum sem teknar voru í Vafningsviðskiptunum. Vafningur var notaður til að losa 45 milljarða út úr íslenska fjármálakerfinu mánuðum fyrir hrun. n Bjarni Benediktsson var hluthafi í BNT, móðurfélagi olíufélagsins N1, um það leyti sem hann tók þátt í að veita sér umboð til að veðsetja hlutabréf félagsins í Vafningi. Á hluthafalista BNT frá því í ársbyrjun 2007. Þá var Bjarni skráður fyrir 0,8 prósent hlut sem metinn var á rúmar 80 milljónir króna. n Athygli vekur sömuleiðis að Björn Bjarna- son, dómsmálaráðherra og frændi Bjarna, er skráður fyrir 0,12 prósenta hlut sem metinn var á um 12 milljónir króna. Margir ættingjar Bjarna og Björns eru á hluthafalistanum. Bjarni og Björn hluthafar Í BNT SJÓVÁ ALMENNARRACON AB Endurgreiðsla á 217 milljónum evra til Morgan Stanley Upphaflega: 52 milljónir evra Endurgreiðsla: 30 milljónir Lánið: 22 milljónir evra INVIK & CO AB 16 milljónir evra (lán) 12 milljónir evra (lán) 30 milljónir evra (lán) 70 milljónir evra (lán) 67 milljónir evra (lán) SVARTHÁFUR ehf Upphaflega: 41 milljón evra Endurgreiðsla: 30 milljónir Lán: 11 milljónir evra 16 milljónir evra (skuldabréf ) Myndin sýnir hvernig Milestone- menn litu á Vafningsviðskiptin og þá endurfjármögnun á hlutabréfum sem þessi viðskipti gengu út á Þau snerust um lánveitingar út úr Sjóvá, Glitni og Kaupþingi til eigenda Milestone og Engeyinganna. Þessi lán runnu á endanum til fjárfesting- arbankans Morgan Stanley í gegnum Racon AB og Þátt International. Sam- tals voru þetta um 45 milljarðar króna sem runnu út úr íslenska hagkerfinu í þessum viðskiptum. 70,7 milljónir evra (lán) 119,4 milljónir evra (lán) MILESTONE ehf 56 milljónir reiðufé 106 milljónir SPA/Lán: KACJ/Makaó Upphaflega: 50 milljónir evra Endurgreiðsla: 30 milljónir (frá Svartháfi) Lán: 20 milljónir evra 11 milljónir evra (skuldabréf ) GLITNIR BANKI Lykilmenn Guðmundur Ólason, forstjóri Milestone, var lykilmaður í Vafningsflétt- unni og er hann sá sem hvað mest kom að Vafningsfléttunni. Karl Wernersson var eigandi Milestone.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.