Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2010, Blaðsíða 25
FIMMTI MAÐURINN BESTI KOSTURINN
En við vissum alveg hvaða mann
Guðmundur hafði að geyma og hvern-
ig þjálfari hann væri. Við vissum líka
að með Guðmundi værum við að
taka minnstu áhættuna,“ segir Einar.
Minnstu áhættuna? Hvað með niður-
túrinn 2004? „Ég var nú með honum
2001-2004 og við vorum alveg búnir að
greina það sem klikkaði. Menn höfðu
alveg lært af ýmsu það árið. Áhættan
var minnst með Guðmund, sérstak-
lega í ljósi þess að hann átti bara að fá
skammtímasamning fram yfir Ólymp-
íuleikana vegna vinnu sinnar. Svo viss-
um við líka hvernig leikmönnum lík-
aði við hann,“ segir Einar en eitt símtal
á fimmtudegi sem í raun átti aldrei að
verða kostaði þessa handboltageðveiki
sem Guðmundur og strákarnir okkar
verða sakaðir um.
„Við tókum upp símann og einfald-
lega spurðum Guðmund hvort hann
væri til. Hann var fljótur að ákveða
sig. Ég hringdi í hann á fimmtudegi
og þetta var orðið klárt á milli okkar á
laugardagsmorgni,“ segir Einar Þor-
varðarson.
Breyttur maður
Á sínu fyrsta stórmóti með landsliðinu,
EM í Svíþjóð 2002, þegar Guðmundur
stýrði liðinu í fyrra skiptið náði hann
frábærum árangri, fjórða sæti. Sjöunda
sætið á HM í Portúgal var heldur ekk-
ert slæmt, þannig tryggði liðið sig inn
á Ólympíuleikana í Aþenu 2004. Það
ár, 2004, var þó ekki gott. Ísland féll út
eftir riðlakeppnina á Evrópumótinu í
Slóveníu í byrjun árs og endaði svo í ní-
unda sæti á Ólympíuleikunum þar sem
liðið ætlaði sér stærri hluti.
Guðmundur var gagnrýndur, sér-
staklega eftir Ólympíuleikana, fyr-
ir störf sín. Bæði fyrir að taka jafnvel
meidda menn með á stórmót og síð-
an rúllaði hann afar lítið á liðinu þar
sem stressið virtist oft bera hann ofur-
liði. Þegar hann var ráðinn aftur 2008
sagði Guðmundur: „Ég held að ég hafi
þroskast nokkuð mikið. Mér fannst það
taka mig svolítinn tíma að verða góður
þjálfari. Til þess að verða góður í þessu
fagi þarftu að ganga í gegnum góða og
slæma tíma. Stundum tekur tíma að
upplifa hvort tveggja.“
Og bætti svo við: „Ég mun forð-
ast það að velja menn sem ekki eru í
standi. Stundum eru leikmenn það
mikilvægir að við þjálfarar neyðumst
til að velja menn sem skila ákveðnum
hlutverkum í liðinu.“
Dæmi um leikmann sem er það
mikilvægur er Logi Geirsson sem spil-
aði aðeins í þrjár mínútur í Austurríki.
Samkvæmt heimildum DV treysti Guð-
mundur Loga ekki til þess að spila þar
sem hann er svo hræddur um að meið-
ast aftur. Sömu heimildir herma þó að
Guðmundur hafi talið Loga of mik-
ilvægan fyrir hópinn til þess að skilja
hann eftir heima.
Ódæll en afburðakarakter
Fáir þekkja Guðmund Guðmunds-
son betur en Guðjón Guðmundsson,
íþróttafréttamaður og handbolta-
spekúlant. Guðjón var aðstoðarmað-
ur Guðmundar þegar hann þjálfaði
hjá Víkingi, aðstoðarmaður Bogdans
með landsliðið þegar Guðmundur lék
í því og það sem meira er hann þjálf-
aði Guðmund þegar hann var polli.
„Hann var erfiður og ódæll þegar ég
þjálfaði hann og kappsfullur,“ segir
Guðjón og skellir upp úr. „Hann var
samt frábær leikmaður, hornamaður í
heimsklassa.“
Guðmundur varð margfaldur
meistari með ósigrandi liði Víkings á
níunda áratugnum. Landsliðsþjálf-
arinn og sá maður sem er talinn hafa
breytt handboltanum á Íslandi, Bogd-
an Kowalczyk, þjálfaði þá Víkingslið-
ið. „Ég man þegar hann kom á fyrstu
æfinguna með Víkingi út í KR-heim-
ili þegar Bogdan var að þjálfa. Bogdan
leit á hann og sagði: „Þessi maður get-
ur ekki spilað handbolta. Hann er allt
of lítill.“ En hann var afburðaíþrótta-
maður eins og hann er afburðaþjálfari
og frábær karakter,“ segir Guðjón um
Guðmund.
Ráðningin fjölmiðlum að þakka
„Munurinn er nánast enginn,“ svarar
Guðjón Guðmundsson spurður um
muninn á Guðmundi árið 2004 og svo
í dag. „Þetta snýst bara um reynslu.
Það dettur enginn inn alskapaður sem
landsliðsþjálfari og býr til lið á heims-
mælikvarða. Það þarf reynslu í það og
í dag er Guðmundur reynslunni ríkari.
Í dag er hann einn sá besti ef ekki bara
besti þjálfari í heimi. Það þori ég alveg
að segja tæpitungulaust,“ segir Guðjón
sem hefur fylgst afar náið með heims-
handboltanum í tugi ára.
„Maðurinn er einfaldlega gríðar-
lega fær á sínu sviði. Það er kannski
bara Talant (Dujshebaev, þjálfari Ciu-
dad Real) sem er í sama gæðaflokki en
þeir eru ekki mikið fleiri. Bara hvernig
hann leggur upp sína vinnu segir allt
sem segja þarf,“ segir Guðjón.
Hann segir ráðningu Guðmund-
ar hafa ekki síst verið fjölmiðlum að
þakka. „Ég veit að Einar Þorvarðarson
er eflaust ósammála mér en ég tel að
HSÍ geti þakkað fjölmiðlum fyrir það
að Guðmundur var ráðinn. Þá sérstak-
lega fréttastofu Stöðvar 2 og Morgun-
blaðsins. Áður en þeir miðlar bentu á
Guðmund var nafnið hans ekki í hatt-
inum, tel ég,“ segir Guðjón.
Lykilmenn treysta Guðmundi
„Það var mikið happaspor að ráða
Guðmund aftur. Það var samt jafn-
mikill feill að láta hann fara 2004. Þá
var liðið ekki jafnvel samansett. Það
var ekki Guðmundur sem var ekki
nægilega góður,“ heldur Guðjón Guð-
mundsson áfram. „Hann horfir líka
til framtíðarinnar sem varð honum
kannski að falli 2004. Í Slóveníu 2004
fór hann nýjar leiðir og var til dæm-
is með ungan leikstjórnanda (Snorra
Stein, son Guðjóns) sem náði ekki að
ráða við verkefnið eins og eðlilegt er.
Þarna var hann að horfa til framtíðar
og þetta sýnir hvernig augum hann lít-
ur á allt saman.“
Það er fleira sem gerir Guðmund
að þeim þjálfara sem hann er að mati
Guðjóns. „Guðmundur hefur alltaf,
og þetta er algjört lykilatriði, notað sitt
besta lið. Bestu leikmennirnir spila!
Það skiptir engu máli hvað þú heitir,
þeir bestu spila alltaf. Svo lætur hann
heldur ekki utanaðkomandi menn
segja sér hvað hann eigi að gera. Hann
fer eftir eigin sannfæringu og eðlisávís-
un. Við Íslendingar erum oft svolítið að
elta umtalið og ég er viss um að í gegn-
um tíðina hefur það náð til einhverra
landsliðsþjálfara. Guðmundur hefur
einnig náð leikmönnunum á sitt band.
Lykilmenn liðsins treysta honum út í
hörgul því þeir vita hvað hann hefur
upp á að bjóða,“ segir hann.
Guðjón vonast til þess að Guð-
mundur fái starf nú þegar liðið hans,
GOG, er farið á hausinn. „Fyrst og
fremst vona ég að hann fái að halda
starfinu hjá landsliðinu fram yfir
2012. Og ég verð að segja að ég vor-
kenni þeim manni sem þarf að taka
við landsliðinu á eftir honum. Hann
á eftir að fá tilboð núna en ég held að
Guðmundur muni velja vandlega úr
þeim tilboðum sem hann fær. Eitt er
þó víst með Guðmund. Forystumenn
knattspyrnuhreyfingarinnar geta lært
mikið af honum. Hann getur kennt
mönnum hvernig eigi að búa til lið og
liðsheild og hvernig eigi að fá hálaun-
aða atvinnumenn til þess að spila fyr-
ir íslenska þjóð og berjast upp á líf og
dauða,“ segir Guðjón Guðmundsson.
Atvinnulaus með vinnu
Á Evrópumótinu fékk Guðmundur
þær slæmu fregnir að lið hans í Dan-
mörku, GOG Svendborg, væri gjald-
þrota. Er Guðmundur því án atvinnu.
Hann hætti hjá Kaupþingi til að taka
við GOG en nú er það búið. Má fast-
lega reikna með að tilboðum rigni inn
á borð Guðmundar eftir árangurinn
með landsliðinu. Þó er Guðmundur
með eitt starf öruggt, starf landsliðs-
þjálfara Íslands. Fékk hann áframhald-
andi samning eftir Ólympíuleikana og
var ráðinn til fjögurra ára, fram yfir Ól-
ympíuleikana í London árið 2012.
Sem dæmi um framtíðarsýn Guð-
mundar er undirbúningur nú þegar
hafinn fyrir það mót, það er að segja
utan landsliðsins. Er HSÍ byrjað að
spila á svokölluðu 2012-liði þar sem
framtíðarmenn Íslands fá að spreyta
sig á alþjóðavettvangi.
Næsta verkefni með landsliði Ís-
lands eru tveir æfingaleikir gegn besta
liði heims og kannski sögunnar, ný-
krýndum Evrópumeisturum Frakka, í
Laugardalshöll í mars. Segja gárung-
arnir að Guðmundur ætli sér þar að
læra að vinna Frakka svo þeir hætti
að stöðva Ísland á stórmótum. Ekki
ósvipað og hann gerði með Spánverja
sem Ísland gat aldrei unnið. Ekki fyrr
en leiknir voru við þá fjórir æfingaleik-
ir fyrir Ólympíuleikana. Það endaði
með sigri í undanúrslitum á ÓL sem
á endanum skilaði silfrinu. Öðru af
tveimur stórum verðlaunum Íslands í
handbolta en þau á Guðmundur Guð-
mundsson bæði.
3. febrúar 2010 MIÐVIKUDAGUR 25
BRONSIÐ Guðmundur skilaði nú síðast bronsi með strákunum okkar í Austurríki.
SILFRIÐ Guðmundur þjálfaði liðið sem náði besta árangri í íslenskri íþróttasögu.
2001-2004
n Febrúar 2001: Tekur við íslenska landsliðinu í handbolta.
n Maí 2001: Fyrsti leikurinn undir hans stjórn endar með svekkjandi jafntefli
gegn Hollandi, 21-21.
n Júni 2001: Kemur landsliðinu á EM 2002 með sigri á Hvíta-Rússlandi í tveimur
leikjum, heima og að heiman.
n Febrúar 2002: Jafnar besta árangur Íslands á stórmóti með fjórða sætinu á EM
í Svíþjóð.
n Febrúar 2003: Nær sjöunda sætinu á HM í Portúgal. Tryggir þar með sæti á ÓL
í Aþenu 2004.
n Janúar 2004: Ísland fellur úr leik eftir riðlakeppnina á EM í Slóveníu.
n Ágúst 2004: Ísland endar í níunda sæti á Ólympíuleikunum í Aþenu.
n September 2004: Guðmundur hættir sem landsliðsþjálfari og Viggó Sigurðs-
son tekur við.
2008-2010
n Febrúar 2008: Ráðinn aftur landsliðsþjálfari Íslands fram yfir Ólympíuleikana
sama ár.
n Júní 2008: Kemur Íslandi á ÓL í Peking með fræknum sigri á Svíum í lokaleik
undanriðils sem leikinn var í Póllandi.
n Júní 2008: Kemur Íslandi ekki á HM í Króatíu 2010 eftir samanlagt tap gegn
Makedóníu í tveimur leikjum.
n Ágúst 2008: Nær öðru sætinu á Ólympíuleikunum í Peking.
n Júní 2009: Tryggir Íslandi sæti á EM í Austurríki með sigri í undanriðli.
n Janúar 2010: Nær bronsinu á EM í Austurríki.
Landsliðsþjálfaraferill Guðmundar
2001–2004
n EM 2002: 4. sæti
n HM 2003: 7. sæti (tryggði sæti á
ÓL 2004)
n EM 2004: 13. sæti
n ÓL 2004: 9. sæti
Kom liðinu á öll stórmót sem í boði
voru.
2008–2010
n ÓL 2008: 2. sæti
n EM 2010: 3. sæti
Komst ekki á HM 2009.
Sæti á stórmótum