Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2010, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2010, Qupperneq 4
Tekur ásakanir Schilders alvarlega Gylfi Magnússon, efnahags- og við- skiptaráðherra, segist taka ásak- anir Arnolds Schilder, fyrrverandi yfirmanns innra eftirlits hollenska seðlabankans, mjög alvarlega. Á mánudag sagði Schilder íslenska embættismenn hafa veitt rangar upplýsingar um stöðu íslensku bankanna í að- draganda hruns fjármálakerfisins haustið 2008. „Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlitsstofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkun- um, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuð- ina fyrir hrunið,“ segir í yfirlýsingu sem Gylfi sendi frá sér. 4 MIÐVIKUDAGUR 3. febrúar 2010 FRÉTTIR Lögreglan á Húsavík hefur yfirheyrt íbjarnarbanann Ómar Vilberg Reyn- isson, bónda að Flögu í Þistilfirði, og lagt hald á skotvopn hans eftir að bóndinn banaði hvítabirni á dög- unum. Ómar Vilberg á yfir höfði sér ákæru og fjársektir vegna lögbrots. Ísbjörninn gekk á land í Þistil- firði í síðustu viku, nærri bænum sem Ómar Vilberg býr á. Dag einn er hann var að sinna rollum sínum gekk hann fram á hvítabjörninn og vildi þannig til að bóndinn var fyrir tilviljun með rifilinn sinn meðferð- is. Hann skaut ísbjörninn en vandi Ómars Vilbergs er sá að hann hef- ur ekki skotvopnaleyfi og braut því lög um meðferð skotvopna er hann felldi björninn. Ekkert leyfi Ragnar Brynjólfsson, yfirlögreglu- þjónn hjá lögreglunni á Húsavík, staðfestir að Ómar Vilberg hafi ekki leyfi til þess að eiga eða meðhöndla skotvopn. Hann segir rannsókn málsins lokið og aðspurður seg- ir hann bóndann hafa viðurkennt við yfirheyrslur að hafa ekki haft til- skilin leyfi. „Það er alveg laukrétt að viðkomandi aðili hefur ekki skot- vopnaleyfi. Við vissum það frá fyrstu mínútu og málið hefur fengið af- greiðslu hjá okkur eins og lög gera ráð fyrir. Við höfum tekið skýrslu af manninum og lagt hald á vopn- ið. Viðkomandi hefur viðurkennt verknaðinn og að hann hafi ekki haft leyfi til þess að gera þetta,“ seg- ir Ragnar. „Rannsókninni er lokið og málið hefur verið sent til ákæruvaldsins, sýslumannsins á Húsavík. Þar verð- ur tekin ákvörðun um framhaldið en því gæti lokið með sekt. Það ligg- ur fyrir að maðurinn hefur ekki skot- vopnaleyfi og má því náttúrlega ekki fara með skotvopn. Ekki var ólöglegt að bana dýrinu en meðferð skot- vopna án leyfis er ólögleg og verður væntanlega í kjölfarið einhver refs- ins í samræmi við það.“ Þetta er misskilningur Ómar Vilberg viðurkennir að hafa verið kallaður til yfirheyrslu en segir það hafi aðeins verið formsatriði þar sem um viðkvæmt dráp hvítabjörns hafi verið að ræða. Hann segir ein- hvern misskilning á ferðinni og ger- ir lítið úr hættunni við bjarnardráp- ið. „Þetta er ekki rétt því ég hef alveg skotvopnaleyfi. Annað er bara vitl- eysa. Það var bara formsatriði að ég var kallaður til af lögreglunni því ég drap hvítabjörn. Það er alveg sama hver hefði gert það hann hefði ver- ið kallaður til yfirheyrslu og því hef- ur þessi yfirheyrsla ekkert með leyfi mitt að gera,“ segir Ómar Vilberg. „Það er rangt að ég hafi ekki leyfi og þetta er því einhver misskilning- ur. Leyfið mitt er svipað ökuskírteini sem ég hef í veskinu hjá mér eða niðri í skúffu. Það er klárlega merkt mér og er enn í gildi. Auðvitað var þetta pínulítið merkilegt en maður hugsar ekkert þegar maður er kom- inn í návígi við hvítabjörn. Eftir á að hyggja hugsa ég að maður hafi verið í stórhættu. Þannig það var spurn- ingin; bangsi eða ég.“ Ómar Vilberg Reynisson, ísbjarnarbani og bóndi að Flögu í Þistilfirði, hefur verið yfirheyrður af lögreglu þar sem hann hafði ekki skotvopnaleyfi og braut því lög er hann skaut hvítabjörn á dögunum. Vopnið er í haldi lögreglu og málið er í höndum ákæruvaldsins. LEYFISLAUS SKYTTA DRAP ÍSBJÖRNINN TRAUSTI HAFSTEINSSON blaðamaður skrifar: trausti@dv.is Nr. 16/1998 n Í12. gr. segir: Enginn má eignast eða nota skotvopn nema að fengnu skotvopnaleyfi. Leyfið veitir lögreglustjóri í umdæmi þar sem umsækjandi á lögheimili. Lögreglu- stjóra er heimilt að veita undanþágu frá skilyrði um að hafa skotvopnaleyfi fyrir þann sem er á æfingum á vegum viðurkenndra skotfélaga á viðurkenndu æfingasvæði. Vopnalög Það er rangt að ég hafi ekki leyfi og þetta er því einhver mis- skilningur. Leyfið mitt er svipað ökuskírteini sem ég hef í veskinu hjá mér eða niðri í skúffu. Það er klárlega merkt mér og er enn í gildi. Stoltur bóndi Ómar Vilberg gæti átt yfir höfði sér sekt eða ákæru eftir að hafa skotið hvítabjörn til bana nýverið. Páll Magnússon útvarpsstjóri hefur enn ekki gengið frá uppgjöri vegna uppsagnar Þórhalls Gunnarssonar, fyrrverandi dagskrárstjóra og rit- stjóra Kastljóssins, en útilokar að gerður verði við Þórhall sérstakur starfslokasamningur. Í ráðningar- samningi ritstjórans fyrrverandi er getið um ákveðin uppsagnarkjör sem útvarpsstjórinn mun virða. DV óskaði eftir upplýsingum um hver þau kjör væru en Páll vildi ekki svara því. DV spurði Pál einnig um bílinn sem hann hefur haft sem launa- hlunnindi í nærri þrjú ár og hve- nær honum yrði skilað. Páll ætl- ar að skila bílnum á næstu dögum eða vikum en segir óljóst hvernig samningar takist um skil bílsins. DV spurði útvarpsstjóra hvort lík- ur væru á því að RÚV gæti lent í að greiða upp rekstrarleigusamning og þá hver heildarkostnaður stofn- unarinnar væri vegna leigu bílsins en Páll segir hann óljósan að svo stöddu. Greiðslur RÚV vegna rekstrar- leigu bílsins sem Páll hefur haft til umráða hafa verið tæpar 200 þús- und krónur á mánuði. Sé upphæð- in tekin saman það tímabil sem út- varpsstjóri hefur verið með bílinn nemur hún rúmum sex milljón- um króna en bílafnotin eru hluti af launasamningi Páls hjá RÚV. trausti@dv.is Páll útvarpsstjóri skilar bílnum á næstu dögum eða vikum: Starfslok Þórhalls ófrágengin Óljóst um kostnað Páll segir óljóst hvernig samningar takist um að skila bíln- um og því liggur heildarkostnaður RÚV ekki fyrir vegna bifreiðar útvarpsstjórans. Héraðsdómur þyrmir Icelandair Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljóna króna stjórn- valdssekt Icelandair á mánudag. Samkeppniseftirlitið og síðar áfrýjunarnefnd samkeppnismála sektuðu flugfélagið árið 2007 fyrir brot á samkeppnislögum. Brotið fólst í því að Icelandair bauð upp á netsmelli til Kaup- mannahafnar og Lundúna árið 2004 undir kostnaðarverði. Árið áður hafði Iceland Express hafið áætlunarflug til borganna. Héraðsdómur Reykjavíkur staðfesti sök Icelandair en felldi niður sektina því brotið var ekki talið eins alvarlegt og samkeppn- isyfirvöld töldu í úrskurði sínum. Stöð 2 afhjúpaði uppljóstrara Óskar Hrafn Þorvaldsson, frétta- stjóri Stöðvar 2 og Vísis, segir að fólk sem komi með upplýsingar um fréttamál inn á borð frétta- stofu Stöðvar 2 þurfi ekki að óttast að trúnaðar við það verði ekki gætt. Á mánudag greindi fréttastofan hins vegar frá því að ungur piltur hefði boðið henni upplýsingar sem sagt er að hafi verið stolið frá lögfræðingnum Gunnari Gunnarssyni. Frétta- blaðið birti í gær gögnin sem Stöð 2 voru boðin. Þar kom fram úr hvaða netfangi þetta hefði verið sent á Stöð 2. Fylgst með rekstri Reykjanesbæjar Eftirlitsnefnd með fjármálum sveit- arfélaga hefur tilkynnt yfirstjórn Reykjanesbæjar að nefndin muni fylgjast með rekstri sveitarfélagsins á næstu mánuðum og varar bæjar- stjórnina við óvissu í rekstrarfor- sendum og fjárhagsstöðu. „Það kemur mér ekkert á óvart miðað við hvernig fjármálastefna Árna Sigfússonar hefur verið hér,“ segir Ólafur Thordersen, bæjarfull- trúi minnihlutans í Reykjanesbæ. „Þetta er óábyrg stjórn og ég hef áhyggjur af þessu. Það er mín skoð- un að Reykjanesbær standi mjög illa.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.