Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2010, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2010, Qupperneq 10
10 MIÐVIKUDAGUR 3. febrúar 2010 FRÉTTIR Einkahlutafélagið Sólin skín ehf., sem er í eigu Baugs, Fons, Glitnis og Kevin Stanfords, skilur eftir sig skuldir sem nema á annan tug milljarða króna, að minnsta kosti. Félagið var úrskurðað gjaldþrota í lok síðastliðins árs. Glitn- ir á stærstu kröfuna í búið, um átta milljarða króna. Þrotabú Baugs mun einnig hafa lýst kröfu í búið upp á milljarða króna. Kröfulýsingarfrestinum í þrotabú- ið lýkur í lok þessa mánaðar. Fyrsti kröfuhafafundur félagsins verður í byrjun næsta mánaðar. DV hefur gengið erfiðlega að verða sér úti um það nákvæmlega hver til- gangurinn var með stofnun félagsins. Í ársreikningi félagsins árið 2007 kem- ur fram að félagið hafi verið stofnað í lok júní það ár til að fjárfesta í inn- lendum og erlendum verðbréfum. Félagið var skráð til húsa í höfuð- stöðvum Baugs að Túngötu 6. Samkvæmt heimildum DV var upphaflegur tilgangur félagsins þó að fjárfesta í bresku verslanakeðjunni Marks & Spencer. Fallið mun hafa ver- ið frá þessu og herma heimildir DV að skuldin við Glitni sé tilkomin vegna afleiðusamninga sem gerðir hafi ver- ið við bankana. Ekki er því um hefð- bundin útlán til fjárfestinga að ræða. DV hefur ekki náð að verða sér úti um upplýsingar um hvers konar afleiðu- samninga félagið gerði. Engar eignir Skiptastjóri þrotabús Sólarinnar skín, Páll Kristjánsson, segir að kröfulýsing- ar sem hafi borist í búið séu geysilega háar: „Þetta eru rosalega háar fjárhæð- ir,“ segir Páll og bætir því við að eign- irnar sem séu inni í búinu séu af afar skornum skammti. Páll vill annars ekki ræða nánar um félagið. Þó má alveg búast við frekari kröfulýsingum í búið á næstu vikum. Félagið er því sem stend- ur hálfgert huldufélag þar sem lítið er vitað um það. Félagið hefur ekki skilað ársreikn- ingi fyrir árið 2008. Í ársreikningi þess fyrir árið 2007 kemur hins vegar fram að tap þess á árinu hafi numið nærri 9 milljónum punda, rúmum milljarði króna, á árinu og var tapið tilkomið vegna fjárfestinga. Eiginfjárhlutfall félagsins var neikvætt um sem nam þessari upphæð. Félagið hafði þá með- al annars fjárfest í 0,70 prósenta hlut í Marks & Spencer. Heildareignir félags- ins voru skráðar þrjú þúsund pund, á Eignarhaldsfélagið Sólin skín skuldar á annan tug milljarða. Félagið var í eigu Baugs, Fons, Glitnis og Kevin Stanfords. Fé- lag þetta, Sólin skín, var upphaflega stofnað 2007 til að kaupa hluti í verslanakeðjunni Marks & Spencer en fór svo út í afleiðuvið- skipti. Glitnir hefur gert 8 milljarða kröfu í bú félagsins. Pálmi Haraldsson kannast ekki við afleiðuviðskipti félagsins. MILLJARÐAR Í MÍNUS Í HULDUFÉLAGI n Eignarhaldsfélagið Sólin skín, sem skráð var í höfuðstöðvum Baugs að Túngötu 6, var stofnað til að kaupa í bresku verslanakeðjunni Marks & Spencer. Skuldir félagsins eru á annan tug milljarða króna en engar eignir hafa fundist í búinu. Félagið fór á hausinn í lok árs 2009. SÓLIN SKÍN – BARA SKULDIR SKULDIR: 11 MILLJARÐAR EIGNIR: 0 KR. INGI F. VILHJÁLMSSON blaðamaður skrifar ingi@dv.is n Baugur Group 39,5% n Fons 39,5% n Glitnir banki 10,5% n Kevin Stanford 10,5% Eignarhald í Sól- in skín árið 2007: Fjárfesti í afleiðum Samkvæmt heimildum DV er skuld Sólarinnar skín við Glitni tilkomin vegna afleiðusamninga. Stefán Hilmar Hilmarsson var stjórnarformaður félagsins en það var að stærstum hluta í eigu Baugs og Fons, félaga Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og Pálma Haraldssonar. Þetta eru rosalega háar fjárhæðir. Ekki búnir að skila Sjálfstæðisflokkurinn og Frjálslyndi flokkurinn hafa ekki enn skilað Rík- isendurskoðun reikningum fyrir árið 2008. Stjórnmálasamtök skulu árlega skila Ríkisendurskoðun reikn- ingum sínum og skal í kjölfarið birta útdrátt úr þeim. Meðal þeirra upplýsinga sem þar eiga að koma fram eru nöfn allra lögaðila sem veittu flokkunum fram- lög til starfseminnar. Framsóknarflokkurinn var rek- inn með tæplega 58 milljóna króna tapi árið 2008. Samfylkingin var rek- in með rúmlega 26 milljóna króna hagnaði en hagnaður Íslandshreyf- ingarinnar og VG nam 7,2 og 10,4 milljónum króna á sama tíma. Björgvin G. Sigurðsson veitti Landsbankanum verðlaun í september 2008: Bókhald Landsbankans verðlaunað Landsbankinn hlaut verðlaun fyrir besta íslenska ársreikninginn um miðj- an september 2008, eða um tveimur vikum áður en Glitnir var yfirtekinn. Við það tilefni veitti Björgvin G. Sig- urðsson, þáverandi viðskiptaráðherra, Landsbankanum verðlaunin en Sig- urjón Árnason tók við þeim úr hendi Björgvins. Markmiðið með verðlaun- unum var að vekja athygli á nauðsyn þess að vandað væri til verka við gerð ársskýrslna og undirstrika mikilvægi þeirra í upplýsingagjöf fyrirtækja. Björgvin veitti verðlaunin þar sem viðskiptaráðuneytið fór með yf- irstjórn Fjármálaeftirlitsins (FME). FME hefur einmitt sætt gagnrýni í vik- unni frá Hollandi fyrir að hafa logið til um stöðu Landsbankans í septem- ber 2008 þegar verðlaunin voru veitt. Það hlýtur því að skjóta skökku við að Björgvin hafi á sama tíma veitt Lands- bankanum verðlaun fyrir ársreikning bankans. Árshlutareikningur Lands- bankans fyrir annan ársfjórðung 2008 hefur verið harðlega gagnrýndur eft- ir bankahrunið. Hafa forsvarsmenn bankans verið ásakaðir um að fegra stöðu bankans stuttu fyrir banka- hrunið. Á mánudaginn ásakaði Arnold Schilder, sem stýrði innra eftirliti hol- lenska seðlabankans, FME um að hafa logið að sér um Icesave og stöðu Landsbankans. Í gær sendi Jónas Fr. Jónsson, fyrrverandi forstjóri FME, frá sér yfirlýsingu þar sem hann hafnar ásökunum Schilders. FME hafi gefið upplýsingar um stöðu Landsbankans sem þeir töldu réttar hverju sinni. Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskipta- ráðherra, sendi frá sér yfirlýsingu í gær og sagðist taka ásökunum Hollend- inga alvarlega. „Ársskýrsla Landsbankans er stíl- hrein og vönduð að allri gerð,“ segir í áliti dómnefndarinnar um ársskýrslu Landsbankans. Sagt er að skýrslan gefi greinargóða mynd af stöðu bank- ans og starfsemi rekstrarsviða, fjár- mögnunar og áhættustýringar. Reikn- ingar bankans séu skýrir og vel fram settir. Auk þess var Landsbankanum sérstaklega hrósað fyrir að tilgreina launakjör stjórnenda bankans í árs- skýrslunni. as@dv.is Glæsilegir ársreikningar Björgvin G. Sigurðsson, þáverandi viðskiptaráðherra, veitir Sigurjóni Árnasyni og Landsbankanum verðlaun fyrir besta íslenska ársreikninginn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.