Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2010, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2010, Blaðsíða 30
Baggalútur hefur sett aftur af stað dagskráliðinn Heimsljós Baggalúts sem hefur verið fjarri góðu gamni í rúmt ár. Heims- ljósið eru fréttaskýringar Baggal- úts á málefnum líðandi stundar en í nýjasta Heimsljósinu, sem má finna á baggalutur.is, er með- al annars að finna umfjöllun um stofnstærð dverga í Breiðholti og ósátta blindingja eftir ferð á Ava- tar. Þá er Jimmy Hendrix spurð- ur út í Icesave. Einnig kemur fram í Heimsljósinu að kona hafi fattað brandara. „Sigur fyrir jafn- réttishreyfinguna.“ „Ég þurfti að komast af landi brott,“ seg- ir Sverrir Þór Sverrisson, sjónvarpsstjarna og leikari, aðspurður hvers vegna hann hafi ferðast með einkaþotu sem Mile- stone og Glitnir höfðu á leigu á árunum fyrir hrun. „Neeee,“ bætti Sveppi svo við þegar hann var spurður hvort hann vildi segja frá ferðum sínum og hvernig þær væru til komnar. Sveppi ætti að vera flestum lands- mönnum kunnur en hann hefur gert það gott í íslensku sjónvarpi og kvikmyndum undanfarin ár. Meðal annars í þáttun- um Auddi og Sveppi og Algjör Sveppi og nú síðast í kvikmyndinni Algjör Sveppi: Leitin að Villa en rúmlega 32.000 manns sáu myndina þegar hún var sýnd í kvik- myndahúsum á síðastliðnu ári. DV birti á mánudag lista yfir farþega sem ferðuðust með einkaþotu Milestone og Glitnis en á meðal þeirra sem eru á listanum eru til dæmis Bjarni Ármanns- son, Karl Wernersson, Lárus Welding og Tryggvi Þór Herbertsson. Á listanum er einnig Ingvar Sverrisson, bróðir Sveppa og núverandi aðstoðarmaður Kristjáns Möller samgönguráðherra. Ingvar starf- aði þá fyrir fyrirtæki í eigu Karls Werners- sonar, eiganda Milestone, en Ingvar vildi ekkert tjá sig um ferðir sínar með þotunni. Af þeim sem ferðuðust með þotunni má einnig nefna Boga Nilsson, fyrrver- andi ríkissaksóknara, en hann sagði í samtali við DV að hann hefði verið á leið- inni í frí en ekki vitað á vegum hvers þot- an var. SVEPPI Í EINKAÞOTU SVERRIR ÞÓR SVERRISSON Á MEÐAL ÞEIRRA SEM FLUGU MEÐ EINKAÞOTU MILESTONE OG GLITNIS: ALEXANDER PETERSSON: Helgi Seljan, fréttamaðurinn skeleggi í Kastljósi, hefur þann leiða vana að stela kaffibolla Brodda Broddasonar, frétta- manns á sömu stöð, þegar hann mætir til vinnu. RÚV skar niður plastglösin og lét gera bolla sér- merkta hverjum starfsmanni - það þótti ódýrara. Hver og einn á því sinn eigin bolla. Þegar Helgi mætir til vinnu er yf- irleitt það fyrsta sem hann gerir að fá sér kaffi. Hann veltir lítið fyrir sér nöfnum starfsmanna á bollunum en hefur þann vana að nappa bolla Brodda og skilja hann eftir hér og þar um Út- varpshúsið. Broddi tekur sér bolla Helga í staðinn og endar yfirleitt með tvo eftir vinnudag- inn - þar sem Helgi skilur bolla Brodda eftir á víðavangi. 30 MIÐVIKUDAGUR 3. febrúar 2010 FÓLKIÐ Sveppi Er einn vinsælasti skemmti- kraftur landsins. DVERGA STOFNSTÆRÐ „Hann náttúrlega bjó þessa stund nánast til með þessum varnartilburðum. Það er pínu leiðinlegt að hann sé ekki á myndinni,“ segir Logi Geirsson, ein af bronshetjum Íslands, en glöggir les- endur hafa væntanlega tekið eft- ir að Alexander Petersson vantar á myndirnar þar sem liðið fagnar bronsinu. Alexander var uppi í stúkunni þegar myndin var tekin að fagna með fjölskyldu sinni. Reyndu strákarnir okkar að kalla í hann en hávaðinn var mikill í höllinni og heyrði Alexander hvorki hróp né köll – og náði því ekki í myndatökuna. „Hann bara hvarf,“ segir Logi hress og kátur sem fyrr. Myndin verður væntanlega hengd upp á veggi víða um land og fer á sama stall og silfur- myndirnar frá Peking og heimsmeistaramyndirnar frá Frakklandi 1989. Það er því ákaflega leiðinlegt að maðurinn sem nánast tryggði Íslandi bronsið með varnartilburðum sínum skuli ekki vera með. Í stöðunni 28-26 og útlitið orðið nokkuð svart í bronsleik Íslands og Póllands gerðist eitt ótrúleg- asta atvik handboltasögunnar. Alexander bjargaði boltanum með mögnuðum og í raun undraverð- um hætti. Hann skutlaði sér fram og sló boltann burt þegar Tluczynski driplaði honum. Þögn sló á ellefu þúsund manns í höllinni, enda atvikið ótrúlegt. „Ég hef aldrei séð annað eins á ævinni. Þvílíkur karakt- er og að gera þetta löglega,“ sagði Guðmundur Guð- mundsson landsliðsþjálfari í samtali við DV eftir að bronsið var komið í hús. benni@dv.is HETJAN EKKI Á MYNDINNI Alexander Petersson er ekki á bronsmyndinni frægu sem tekin var af íslenska landsliðinu í handbolta. Það er grátbroslegt því eins og Logi Geirsson segir: „Hann náttúrlega bjó þessa stund nánast til með þessum varnartilburðum.“ Enginn Alexander Alexander var uppi í stúku þegar myndin var tekin. Varnartröll aldarinnar Alexander Petersson er nánast kominn í guðatölu eftir að hafa sýnt ótrúlega varnartilburði. Hann bara hvarf. BOLLUM BRODDA HELGI STELUR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.