Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2010, Page 28
UM HELGINA
SAGAN AF ÞRIÐJUDEGI FRUMFLUTT
Nýtt leikrit verður frumflutt á sunnudaginn 14. febrúar í Útvarpsleik-
húsinu á Rás 1. Það er verkið Sagan af þriðjudegi í leikgerð Bjarna
Jónssonar eftir rithöfundinn Steinar Braga en þetta er í fyrsta skipti
sem verk eftir Steinar Braga er flutt í leikritsformi. Lesturinn hefst
klukkan 14.
JAZZHÁTÍÐ Í
FULLUM GANGI
Hljómsveit Kristjönu Stefánsdóttur
mun leika á Café Kúltúru á laugar-
dagskvöld. Tónleikarnir eru hluti af
Jazzhátíð í Reykjavík 2010 en fjöl-
margir atburðir eru í boði þetta árið,
ýmist í Norræna húsinu, á Café Kúlt-
úru eða í Þjóðmenningarhúsinu.
Hátíðin stendur fram á mánudag
og má nálgast dagskrána á reykja-
vikjazz.is. Með Kristjönu á Kúlt-
úru leika Ólafur Jónsson á saxófón,
Andrés Þór Gunnlaugsson á gítar og
Þorgrímur Jónsson á bassa. Tónleik-
arnir hefjast klukkan 22.00.
Í ÞJÓÐMENNING-
ARHÚSINU
Í tilefni af útkomu plötu Sigurð-
ar Flosasonar, Það sem hverfur,
verður efnt til tónleika í Þjóð-
menningarhúsinu sunnudag-
inn 14. febrúar. Platan, sem fékk
mjög góða dóma, er dramatísk
tónlist Sigurðar við eyðibýla-
ljóð Aðalsteins Ásbergs Sigurðs-
sonar. Ragnheiður Gröndal og
Egill Ólafsson syngja, Kjartan
Valdemarsson spilar á píanó og
hljómborð, Matthías Hemstock
á trommur og fleira og Sigurð-
ur sjálfur á ýmis blásturshljóð-
færi. Tónleikarnir hefjast klukkan
20.00.
GERPLA HALLDÓRS
LAXNESS FRUMSÝND
Leikritið Gerpla eftir sögu Halldórs
Laxness verður frumsýnt á Stóra
sviði Þjóðleikhússins á föstudag.
Þetta er í fyrsta skipti sem þessi saga
er sett á svið en það er Baltasar Kor-
mákur sem ræðst í þetta verkefni.
Hann stjórnar leikgerð ásamt Ólafi
Agli Egilssyni. Gerpla er sögð sprell-
fjörug og bráðfyndin, hörð ofbeldis-
og stríðsádeila um mikilmennsku-
hugmyndir á öllum tímum. Miðar
fást á midi.is og hjá Þjóðleikhúsinu.
Safnanótt 2010 verður föstudaginn 12. febrúar:
Menning og músík fyrir alla
28 FÖSTUDAGUR 12. febrúar 2010 FÓKUS
Söfn Íslands verða opin almenningi
föstudagskvöldið 12. febrúar í til-
efni af Safnanótt 2010. Þetta er árleg-
ur viðburður og nýtur alltaf mikilla
vinsælda. Menningarunnendur fara
á milli staða og drekka í sig þá tón-
list, myndlist og leiklist sem í boði er.
Dagskráin hefst klukkan 18 á Aust-
urvelli. Borgarstjóri opnar hátíðina
og tónlistarmenn taka lagið. Að því
loknu hefst formleg dagskrá víðs veg-
ar um bæinn. Flest söfn á höfuðborg-
arsvæðinu verða með leiðsögn um
sýningar.
Meðal atburða sem verða á Safn-
anóttinni má nefna að tónlistarmað-
urinn KK mun leika á gítar á Gljúfra-
steini, heimili Halldórs Laxness,
fjölskylduleiðsögn í tali og tónum á
Ásmundarsafni þar sem leikkonan
Guðrún Ásmundsdóttir mun bregða
á leik, innsetningu með tónlist eft-
ir Rúnar Magnússon á sama stað og
leikin mynd eftir bókinni Palli var
einn í heiminum sem sýnd verður
á Þjóðminjasafninu klukkan 19 og
20:30.
Í Þjóðmenningarhúsinu verða ís-
lenskar kvikmyndir í hávegum hafð-
ar og sýnd verða brot úr íslenskum
kvikmyndum á borð við Sólskins-
dreng, Sveitabrúðkaup og Brúðgum-
ann. Einnig mun Ólöf Arnalds verða
með sólótónleika klukkan 22:30. Í
Grafíksafni Íslands munu Soffía Sæ-
mundsdóttir og Kristín Gunnlaugs-
dóttir kynna grafíkverk en Soffía er
jafnframt að opna sýningu. Einnig
má nefna bryggjuball þar sem Harm-
onikufélag Reykjavíkur leikur fyr-
ir dansi frá klukkan 22 og sýningu á
veggspjöldum Helga Hóseassonar í
Norræna húsinu.
Nánari dagskrá má fá á vefslóð-
inni: www.vetrarhatid.is.
asdisbjorg@dv.is
„Það má alveg segja að þetta sé svip-
að og að sigra Real Madrid. Ég hef
haldið mikið upp á Gyrði og tek-
ið mér hann til fyrirmyndar að ein-
hverju leyti,“ segir Guðmundur
Óskarsson sem hlaut Íslensku bók-
menntaverðlaunin í flokki fagurbók-
mennta fyrir bókina Bankster. Þar
hafði hann betur en ekki ómerkari
maður en Gyrðir Elíasson sem Guð-
mundur hefur haldið mikið upp á.
„Maður passar sig bara að segja sem
minnst en hlusta sem mest þeg-
ar maður hittir hann. En það er líka
mikilvægt að skapa sér sjálfstæði -
ekki vera eitthvert afrit.“
Önnur bókin var
ekki verðlaunabók
Guðmundur sendi frá sér bók-
ina Vaxandi nánd – orðhviður árið
2007. Í bókinni eru smásögur og
örprósi í bland. Bókin þótti undir
áhrifum frá Gyrði en það var ljóst
að efnilegur og sjálfstæður rithöf-
undur var í fæðingu. Í sögunum er
litið til hinna smávægilegu atburða
hversdagsins og varpað ljósi á feg-
urðina í þeim ótal smáatriðum sem
mynda tilveruna í stærra samhengi.
Árið 2008 gaf Guðmundur út
bókina Hola í lífi fyrrverandi gol-
fara, og vakti sú bók nokkra eft-
irtekt. „Það er ekki góð bók, það
er enginn verðlaunagripur,“ seg-
ir Guðmundur og hlær. Gagnrýn-
endur tóku henni samt vel og þótti
hann sýna eftirtektarverða rithæfi-
leika.
Í fyrra kom síðan út Bankster,
verðlaunabókin, en þar beinir Guð-
mundur sjónum sínum að íslenska
efnahagshruninu síumtalaða á
einlægan og persónulegan hátt en
EINS OG AÐ SIGRA
Guðmundur Óskarsson hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin í flokki fagurbókmennta
fyrir bókina Bankster. Guðmundur kom fyrst fram á sjónarsviðið árið 2007. Bankster
fjallar um það hvernig fótunum er kippt undan bankamanni í Landsbankanum þegar allt
hrynur. Sjálfur vinnur Guðmundur í bankanum.
Real Madrid
Guðmundur Óskarsson
„Maður passar sig bara
að þegja sem mest þegar
maður hittir hann.“ Skrifstofustarfið er í föstum skorðum,
ég er búinn hér um fimm.
Þá er maður með kvöldin
og helgarnar og þá er
hægt að skrifa.