Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2010, Síða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2010, Síða 3
FRÉTTIR 1. mars 2010 MÁNUDAGUR 3 HAFA 6 MÁNUÐI TIL AÐ NÁ EIGNUM AUÐMANNA Breytt eignarhald 101 hótel Stöð 2 greindi frá því fyrir helgi að 101 hótel hefði verið skráð á Jón Ásgeir Jóhannesson og Ingibjörgu Pálmadóttur. Það var áður skráð á IP studium sem er skuldsett félag. Þar kom fram að skilanefnd Landsbank- ans var ekki kunnugt um breytt eignarhald á hótelinu. Þó eru veð á því vegna lána hjá skilanefndinni. Lyf og heilsa Milestone seldi Lyf og heilsu til eign- arhaldsfélaga í eigu Wernersbræðra. Síðan þá er Milestone fallið. Aurláki heitir félagið sem yfirtók skuldirnar. Hagar Verslanaveldið Hagar, þar sem eru margar helstu verslanakeðjur landsins, voru löngum í eigu Baugs. Skömmu fyrir hrun var félagið hins vegar flutt undir eignarhaldsfélagið 1998 og kaupverðið notað til að greiða skuldir hluthafanna. Húsið á Flórída Jóhannes keypti hús á Flórída sumarið 2008. Í fyrra flutti hann húsið yfir á bandarískt félag eins og Morgunblaðið greindi frá. Samkvæmt því er ekki hægt að ganga að húsinu hér. Jóhannes segir þetta engu breyta þar sem enginn sé að innheimta hjá honum persónulega. Fréttaflutningur sem tengist hruninu er áberandi í tilnefningum til Blaða- mannaverðlauna Íslands sem veitt eru fyrir bestu blaðamennskuna á síðasta ári. Blaðamenn DV fengu tvær tilnefn- ingar, aðra fyrir umfjöllun um kúlulán og viðskiptahætti auðmanna og stór- fyrirtækja og hina fyrir leiðandi um- fjöllun um fall og myndun ríkisstjórna og fréttaskýringar um mikilvæg þjóðfé- lagsmál. Þeir blaðamenn DV sem fengu til- nefninguna eru þeir Ingi Freyr Vil- hjálmsson, sem er tilnefndur í flokkn- um rannsóknarblaðamennska ársins, og Jóhann Hauksson, sem er annað árið í röð tilnefndur í flokknum blaða- mannaverðlaun ársins. Í tilkynningu dómnefndar kemur fram að Ingi er tilnefndur fyrir skrif um kúlulán og fjölmargar afhjúpandi fréttir um viðskiptahætti auðmanna og stór- fyrirtækja í aðdraganda og eftirmála hrunsins. og Jóhann er tilnefndur fyrir leiðandi umfjöllun um fall og myndun ríkisstjórna og fréttaskýringar um mik- ilvæg þjóðfélagsmál. Alls eru veittar níu tilnefningar í þremur flokkum. Tilnefnd í flokkn- um Rannsóknarblaðamennska ársins 2009 eru auk Inga Guðný Helga Her- bertsdóttir, Stöð 2, og Þórður Snær Júlíusson, Viðskiptablaðinu (áður Morgunblaðinu). Tilnefnd fyrir bestu umfjöllun ársins eru Magnús Halldórs- son og Ragnar Axelsson, Morgunblað- inu, Lóa Pind Aldísardóttir, Stöð 2, og Svavar Hávarðsson, Fréttablaðinu. Þeir sem eru tilnefndir auk Jóhanns í flokknum blaðamannaverðlaun árs- ins eru Gunnar Karlsson, Fréttablað- inu, og  Halldór Baldursson, Morgun- blaðinu, og Þóra Arnórsdóttir, RÚV. Hrunið áberandi í tilnefningum til Blaðamannaverðlauna: DV fær tvær tilnefningar Tilnefnd skrif Skrif blaðamanna DV um kúlulán og stjórnarslit eru meðal tilnefnds efnis. MÁNUDAGUR OG ÞRIÐJUDAGUR 1. – 2. mars 2010 DAGBLAÐIÐ VÍSIR 25. TBL. 100. ÁRG. – VERÐ KR. 395 EIGNUM KOMIÐ UNDAN YFIRVÖLD HAFA SEX MÁNUÐI TIL AÐ RIFTA: n FYRIRTÆKI, EINBÝLISHÚS OG BÍLAR Á NÝJAR KENNITÖLUR n LYF OG HEILSA UNDAN MILESTONE n HAGAR UNDAN BAUGI n MARGIR FÆRA EIGNIR Á MAKA n KAUPÞINGSSTJÓRAR FLYTJA HÚS „NÓG PLÁSS Á SKENKNUM“ n ÞRJÁR EDDUR ÞÓRU KÚNNAR CATALINU FÁ SEKT GUNNAR Í KROSSINUM OG JÓNÍNA BEN: ÞAU ERU ÓAÐSKILJANLEG „VATNSBERINN“ ÞÓR ÓLIVER HRÆDDUR VIÐ FRELSIÐ FRÉTTIR FÓLK FRÉTTIR LÍF STJÓRNARINNAR HANGIR Á BLÁÞRÆÐI STJÓRNENDUR SJÓVÁR: ÞRÝSTU Á RÁÐHERRA VEGNA BÓTASJÓÐS Minnisblað vegna fjárfestingaheimilda vátryggingarskulda h já tryggingafélögum. Fundur í iðnaðar- og viðskiptaráðuneytinu 2006. Iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið Fjármálaeftirlitið Sjóvá Fjárfestingaheimildir vátryggingaskuldar Fjárfestingaheimildir sem tryggingafélaga til að jafna eignum á móti (ávaxta) vátryggingaskuld hafa verið nær óbreyttar frá árinu 1995 en þá tók í gild i reglugerð nr. 646/1995. Margt hefur breyst frá þessum tíma og teljum við þörf að endurskoða fjárfestingaheimildir og færa þær í nútímalegra horf 11 árum síðar. Skynsamleg dreifing innlendra, erlendra, skráðra og óskráðra verðbréfa er lykillinn að árangursríkri fjárfestingastefnu. Mikilvægt er að búa við einfaldar leikr eglur varðandi fjárfestingar sem eru í samræmi við það sem helst er að gerast á fjárfestingam arkaði sem er í stöðugri þróun. Óbreytt ástand í nær 11 ár hlýtur að kalla á að þörf sé á breytin gum. Í þessu sambandi má benda á að frá því að reglurnar voru settar hefur Íslan d gerst aðili að Evrópska efnahagssvæðinu og undirgengist skyldur um innleiðingur tilskipan na sem gilda á sviði vátryggingarstarfsemi og jafnframt skuldbundið sig til að ryðja úr ve gi hindrunum á frjálsum fjármagnsflutningum og opna fyrir þjónustufrelsi. Skoða þarf hv ort hindranir á erlendum fjárfestingum vátryggingafélaga samræmast reglum um innri markaðinn og jafnframt hvaða svigrúm íslendingar hafa samkvæmt reglum til þess að h eimila erlendar fjárfestingar í ríkara mæli og eftir atvikum með því að verja sig gegn ge ngisáhættu með öðrum hætti. Að mörgu leyti má líkja ávöxtun á vátryggingaskuld við ávöxtun á lífeyrissjó ðum því hér er um áunnin réttindi einstaklinga og fyrirtækja að ræða sem gæta þarf að rýr ni ekki í vörslu tryggingafélaga eða lífeyrissjóða. Ólíkt fjárfestingaheimildum lífeyrissjóða má segja að þessar heimildir hafa ekk i að neinu leyti breyst hjá tryggingafélögum frá því þær voru fyrst settar. Á móti hafa aðilar passað upp á að aðlaga fjárfestingaheimildir lífeyrissjóða reglulega til samræmis við þær bre ytingar sem átt hafa sér stað í fjárfestingaumhverfinu. Við teljum brýna þörf á endurskoðun í það minnsta til samræmis við þær heimildir sem lífeyrissjóðir hafa. Hér fyrir neðan er tafla þar sem núverandi fjárfestingaheimildir tryg gingafélaga og lífeyrissjóða eru borin saman í stórum dráttum: Tryggingafélög Lífeyrissjóðir 1. Verðbréf m/ábyrgð ríkisins, 100% 1. Sama 2. Innlánum í bönkum og sparisjóðum, 100% 2. Sama 3. Veði í líftryggingum 3. Á ekki við 4. Verðbr. m/ábyrgð sveitafélaga, max 50% 4. Sama FRÉTTIR dv.is F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð ÞRIÐJUdagUR 20. JanúaR 2009 dagblaðið vísir 13. tbl. – 99. árg. – verð kr. 347 dRaUmURInn sem RættIst n baRack obama veRÐUR valdamestI m aÐUR heIms í dag Samfylking á Suðupunkti vegna StjórnarSamStarfS : VILJA STJÓRN MEÐ VG hvítlIÐI áttI aÐ veRJa mótmælanda fRéttIR atvInnUlaUs aÐ hJálpa böRnUm n leIkskólakennaRI YfIRheYRÐUR fYRIR aÐ mótmæla. sótt fYRIRvaRalaUst í vInnUna. n ÞReIfIngaR Um RaUÐgRænt samstaRf n kRafa Um tafaRlaUst UppgJöR vegna bankahRUnsIns n fRamsókn gætI vaRIÐ mInnIhlUtastJ óRn vantRaUstI, segIR sIgmUndUR davíÐ n fJaRveRa IngIbJaRgaR tRUflaR flokk sstaRfIÐ n vIlJa aÐ foRmaÐURInn mInnkI vInnUá lagIÐ Litir: Grænn: pa ntone 356cvu Rau•ur: pa ntone 485cvu fRéttIR eRlent fólk óskaR vIll moggann Halldór Halldórsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, hefur verið sakaður um að hafa haldið veislu 12. febrúar síðastliðinn fyrir menntaskólanema þar sem ungt fólk sem ekki hefur náð áfengiskaupaaldri á að hafa setið að sumbli. Sumir hafa ásakað Halldór og konu hans, Guðfinnu M. Hreið- arsdóttur, um að hafa haldið gleð- skapinn til að safna atkvæðum fyrir prófkjör sjálfstæðismanna sem fram fór daginn eftir. Veislan fór fram í veislusal í stjórnsýsluhúsinu en það hýsir bæjarstjórnarskrifstofur Ísa- fjarðar auk ýmissar starfsemi og fyr- irtækja. Halldór Halldórsson vísar þess- um ásökunum á bug. Hann segist hafa mætt í tvítugsafmæli tveggja vina sonar síns meðal annars til að standa vakt á staðnum og sjá til þess að allt væri í lagi. Hann hafi ásamt eiginkonu sinni, Guðfinnu M. Hreið- arsdóttur, verið á staðnum og með- al annars séð til þess að krakkar sem ekki höfðu náð áfengiskaupa- aldri þegar afmælisveislan fór fram drykkju ekki. Ekki viðeigandi „Þetta er salur sem meðal annars hefur verið leigður út fyrir ferm- ingarveislur og ekki verið notaður hingað til fyrir partísamkomur,“ seg- ir Jóna Benediktsdóttir, kennari á Ísafirði og bæjarfulltrúi Í-listans. „Í febrúar eru ekki margir orðnir tví- tugir í menntaskólanum Þetta var daginn fyrir prófkjör sjálfstæðis- manna og fóðrað sem tvítugsafmæli. Sagt er að bæjarstjórinn og konan hans hafi verið ábyrg fyrir þessu. Mér finnst þetta alls ekki viðeig- andi,“ segir Jóna og bendir á að Ísa- fjarðarbær hafi stutt við bakið á Vá- Vest  vímuvarnahópnum sem unnið hafi gott starf í forvarnamálum. Stóðu ekki að veislunni „Við heyrðum að konan mín, sem tók þátt í prófkjöri daginn eftir, hefði verið að halda fyllirísveislu þarna. Það er náttúrlega alrangt. Þarna héldu tveir strákar upp á tvítugsaf- mæli. Tengslin eru aðeins þessi að sonur okkar var veislustjóri og bað okkur að aðstoða sig,“ segir Halldór Halldórsson, bæjarstjóri Ísafjarð- ar. Hann segist ekki einu sinni hafa staðið að veislunni. „Þarna er sal- ur til útleigu, til allra sem vilja leigja hann. Hann var leigður undir tvöfalt tvítugsafmæli. Þetta voru tveir strák- ar sem eru vinir sonar okkar sem var veislustjóri og við konan mín vorum beðin um að vera hálfgerðir dyra- verðir þarna,“ segir Halldór . „For- eldrar eins stráksins gátu ekki verið þarna vegna alvarlegs slyss svo við hjálpuðum til.“ Innan skynsamlegra marka Halldór segist meðal annars hafa kynnt sér reglur um veisluhöld af þessu tagi. „Við leyfðum öllum 18 ára og eldri að koma inn en þeir yngri þurftu að vera í fylgd foreldra sinna. Svo var þetta búið klukkan 12 og þá fóru krakkarnir á skemmtun hjá menntaskólanum. Þau skemmtu sér auðvitað vel, sýndu video og hlógu mikið, eins og krakkar gera. Eftir að krakkarnir fóru var þrifið og allt var búið fjörutíu mínútum eftir að gestirnir fóru. Ég held að allt hafi verið innan skynsamlegra marka þarna og það er ekki hægt að tala um unglingadrykkju því krakkarn- ir sem voru undir aldri voru ekki að drekka.“ Halldór segir ásakanirnar um að hann hafi staðið að partíi fyr- ir unglinga í atkvæðaveiðum með konu sinni fjarstæðukenndar. „Það er ótrúlegt að reynt sé að klína ein- hverju svona á mann. Eina tenging- in okkar við þetta var að við komum þarna að beiðni til að standa þarna vakt. “ Bæjarstjórahjónin á Ísafirði, Halldór Halldórsson og Guðfinna M. Hreiðarsdóttir, eru sögð hafa staðið að veislu daginn fyrir prófkjör sjálfstæðismanna á Ísafirði. Halldór vísar því á bug, hann hafi aðeins verið beðinn um hjálpa til í tvöföldu tvítugsafmæli vina sonar síns. Bæjarstjórinn og konan hans voru ábyrg fyrir þessu. Mér finnst þetta alls ekki viðeigandi. HELGI HRAFN GUÐMUNDSSON blaðamaður skrifar: helgihrafn@dv.is „VORUM BEÐIN UM AÐ STANDA VAKT“ Hélt ekki partí Halldór segist ekki hafa haldið gleð- skapinn, heldur aðeins aðstoðað son sinn og vini hans þegar tvítugsafmæli var haldið í veislusal. MYND BB.IS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.