Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2010, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2010, Side 4
Skuldir Finns lík- lega afskrifaðar Skuldir Finns Ingólfssonar, fyrrver- andi viðskiptaráðherra og seðla- bankastjóra, upp á 3,7 milljarða króna verða líklega afskrif- aðar, samkvæmt fréttum Stöðvar 2 á sunnudags- kvöld. Í fréttinni sagði að fram komi í ársreikn- ingi félagsins fyrir árið 2008 að eignir félagsins FS7 hafi numið 3,9 milljörðum í lok þess árs en skuldir 200 milljónum. Síðar hafi Finnur selt hlut sinn í Icelandair fyrir um 400 milljónir króna og greitt sér 385 milljónir króna í arð. Finnur er ekki í persónulegum ábyrgðum svo skuldirnar falla ekki á hann sjálfan. Fari félagið á hausinn verður því að afskrifa skuldirnar. 4 MÁNUDAGUR 1. mars 2010 FRÉTTIR Óljóst hvað fæst fyrir innbú og listmuni þrotabús Spron: Svanir Spron verða seldir Swopper vinnustóllinn • Bylting fyrir bakið • Styrkir magavöðvana • Frelsi í hreyfingum • Ánægja við leik og störf • Fæst í ýmsum litum www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25 Slitastjórn þrotabús Spron segist ekki hafa heildstæða mynd yfir þær fjár- hæðir sem fengust fyrir sölu inn- anstokksmuna bankans á útsölu á dögunum. Þetta kemur fram í svari slitastjórnarinnar við fyrirspurnum DV. Í svarinu kemur einnig fram að listmunir þrotabúsins hafi ekki verið metnir og því sé ójóst hvað fáist á end- anum fyrir innbú og listmuni Spron. Slitastjórnin gerir þó ráð fyrir því að, fyrir utan tölvur og tæknibúnað, sé verðmæti þess innbús sem enn er óselt nærri sjö milljónir króna. Magn- ús Steinþór Pálmarsson, sem starf- ar fyrir slitastjórnina, fullyrðir að allir innanstokksmunir Spron verði seldir þegar notkun þeirra lýkur. Í því safni er að finna fjölda verðmætra listaverka og meðal annars verðmæta svani eftir Georg Jensen. Aðspurður segir Magnús Steinþór að svanirnir verði seldir þó að óljóst sé hvernig staðið verði að sölu listmuna- safns þrotabúsins. „Það er engin leið að svara því að svo stöddu hvaða upp- hæðir fengust fyrir nýlega sölu innan- stokksmuna. Listmunir þrotabúsins hafa ekki verið metnir en allir innan- stokksmunir verða seldir eftir að notk- un þeirra lýkur,“ segir Magnús Stein- þór. trausti@dv.is Óljós verðmæti Slitastjórn Spron hefur ekki heildstæða mynd af verðmætum innan- stokksmuna en lofar að selja þá alla þegar notkun lýkur. Forsetaembættið hefur ekki svarað fyrirspurnum DV um aðkomu emb- ættisins að styrkveitingum Carneg- ie-stofnunarinnar til fyrirtækisins Global Center (Alþjóðavers) sem er í eigu Kristjáns Guy Burgess. Þá hefur embættið ekki svarað spurningu DV um hvort ráðning í stöðu umsjónar- manns fasteigna á Bessastöðum hafi talist eðlileg en skilyrði auglýsingar voru ekki höfð að leiðarljósi við ráðn- inguna, eins og fram hefur komið í DV. 64 milljóna styrkur Fram hefur komið að Global Center var veittur 64 milljóna króna styrkur frá Carnegie-stofnuninni til að rann- saka meinta bráðnun jökla í Hima- laya-fjöllum. Styrkurinn átti að renna til TERI,  rannsóknarstofnunar Ind- verjans Rajendra Pachauri, en sá er vinur Ólafs Ragnars Grímssonar, for- seta Íslands. Pauchari, sem gegnir formennsku í loftslagsnefnd Samein- uðu þjóðanna, hefur verið sakaður um að hafa ekki vísindaleg vinnu- brögð í hávegum eftir að upp komst að vísindalegar niðurstöður um bráðnun jökla í Himalaya reyndust á veikum grunni byggðar. Pauchari hefur verið sakaður um að safna vís- indastyrkjum um allan heim í gróða- skyni. Styrkurinn ekki greiddur út Carnegie-stofnunin tjáði vefmiðlin- um Eyjunni að styrkurinn til Global Center hefði ekki verið greiddur út. Var þess getið að það hefði verið að ósk forseta Íslands. DV spurði forsetaembættið ann- ars vegar hvort forseti Íslands hefði haft milligöngu um styrkveitinguna til Alþjóðavers. Hins vegar var spurt í sama bréfi hvort forseti Íslands hefði stöðvað fyrrnefnda styrkveitingu, eins og menn hjá Carnegie-stofnun- inni halda fram. Ekkert svar hefur borist við fyrirspurninni, þrátt fyrir að sá tími er embættið gefur sér til að svara slíkum fyrirspurnum sé liðinn. Hefur ekki meirapróf Þá hefur DV tvívegis sent fyrirspurn til forsetaembættisins um ráðningar- ferlið um stöðu umsjónarmanns fast- eigna á forsetasetrinu á Bessastöð- um. Embættið vék frá kröfu sem sett var fram í opinberri auglýsingu um starfið þegar nýr umsjónarmaður var ráðinn. Í auglýsingunni sem birtist í fjöl- miðlum síðastliðið haust var skrifað að krafa væri gerð um að umsækjandi væri handhafi meiraprófsskírteinis. Nærri 200 manns sótt um stöðuna. Mánuður liðinn Ráðið var í stöðuna í kringum ára- mótin og hóf nýi umsjónarmaðurinn störf skömmu eftir það. Síðar kom í ljós að umsjónarmaðurinn nýi upp- fyllir ekki kröfu auglýsingarinnar um meirapróf en það gerðu hins vegar fjölmargir aðrir umsækjendur. Íhuga nokkrir umsækjendur að kæra ráðn- inguna til umboðsmanns Alþingis. DV hefur sent tvær fyrirspurn- ir um málið þar sem spurt var hvort ekki hefði verið rangt staðið að ráðn- ingu umsjónarmannsins, þar sem hann uppfyllti ekki skilyrði auglýs- ingarinnar. Engin svör hafa borist við fyrirspurnunum, þrátt fyrir að mán- uður sé liðinn frá því er fyrra bréfið var sent. Embætti forseta Íslands hefur ekki svarað fyrirspurnum DV um tengsl forsetans við styrkveitingar til Global Center. Engin svör hafa heldur borist við fyrirspurnum um ráðningu umsjónarmanns á Bessastöðum. ÞÖGN Á BESSASTÖÐUM HELGI HRAFN GUÐMUNDSSON blaðamaður skrifar: helgihrafn@dv.is Forsetaritari svarar ekki Örn- ólfur Thorsson forsetaritari hefur ekki svarað spurningum DV. Beðið eftir svörum Mánuður er frá því að DV sendi fyrirspurn til forsetaembættisins.  Dýrasta málþóf Íslandssögunnar „Nú reynir á hvort Icesave-málið sé eitthvað annað og meira en lengsta og dýrasta málþóf Íslandssögunn- ar,“ segir Bjarni Harðarson, bóksali á Selfossi og fyrrverandi þingmaður Framsóknarflokksins. Vísar Bjarni þarna í Icesave- málið og þá töf sem orðið hefur á afgreiðslu málsins að undanförnu. Hann segir að ef til væru þeir stjórn- málamenn sem héldu því fram að við ættum ekki að borga væri hægt að tala um efnisleg pólitísk átök. Munurinn á afstöðu stjórnar og stjórnarandstöðu í málinu felist í tækifærum og aðstöðumun manna til að „slá pólitískar keilur“ eins og hann orðar það. Treysta illa stjórnvöldum Meirihluti landsmanna treystir íslenskum stjórnvöldum illa til að gæta hagsmuna þjóðarinn- ar í umsóknarferlinu um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Þetta er niðurstaða skoðana- könnunar sem Capacent gerði fyrir Bændasamtökin. Alls sögð- ust tæp 58 prósent vantreysta stjórnvöldum í þessum málum en aðeins tæp 27 prósent sögðust treysta stjórnvöldum í ferlinu. Fimmtán prósent voru óákveðin. Rúmlega fimmtungur sagðist alls ekki treysta stjórnvöldum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.