Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2010, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2010, Page 6
Þeir fimmtán karlar sem verða á næstunni ákærðir fyrir vænd- iskaup eiga eftir að geta lok- ið dómsmáli með því að greiða sekt. Samkvæmt heimildum DV er líklegt að sú sekt verði 500 þúsund krónur eða því sem nemur hámarki lögreglustjóra- sektar. Fyrir kaup á vændi eru heim- ildir í lögum um eins árs fangelsi en þar er líka heimild fyrir því að ljúka málum með sátt. Lögunum var breytt í apríl í fyrra sem gerir það að verkum að kaup á vændi eru refsiverð og ekki er hægt að ljúka málum utan réttar, til að mynda með lögreglustjórasekt svokallaðri. Hins vegar er heim- ilt samkvæmt lögunum að ljúka málum með dómssekt eftir að sakborningar eru ákærðir og færðir fyrir dóm. Viðmælend- ur DV úr refsivörslukerfinu bú- ast flestir við því að málinu verði lokið með slíkri sekt. Dómstólar leggja línuna Engin dómafordæmi eru hér á landi fyrir refsingu vændiskaup- enda og því er þess beðið með eftirvæntingu víða hver niður- staða dómara verður. Ákæru- valdið horfir til þess að í Svíþjóð, þar sem svipaðar reglur gilda, hefur málefnum vændiskaup- enda iðulega lokið með sekt. Samkvæmt heimildum DV bú- ast menn hjá embætti ríkissak- sóknara frekar við því að dóm- stólar stökkvi á þá sektarheimild sem er til staðar og ljúki mál- unum með svipuðum hætti og í Svíþjóð. Stærsta refsing mannanna fimmtán gæti legið í því að mál- ið yrði gert opinbert og að þing- haldið verði opið. Enn er óljóst hvort svo verði eða ekki en mál- ið er á leið frá lögreglu til ákæru- valdsins. Þrátt fyrir að málunum gæti lokið með dómssekt kemur brotið fram á sakavottorði hinna ákærðu. Kúnnar Catalinu Karlarnir voru allir kúnnar Cat- alinu Ncoco sem starfrækti vændishús skammt frá lögreglu- stöðinni á Hverfisgötu og hafa nokkrir þeirra þegar játað við- skiptin í yfirheyrslum lögreglu. Í viðtali við Vikuna lýsti hún því yfir að hún hafi haft þar tólf vændiskonur á sínum snærum og að kúnnarnir kæmu frá öll- um þjóðfélagsstigum. DV hef- ur heimildir fyrir því að margir þeirra sem ákærðir verða á næst- unni hafi millifært greiðslur fyrir vændisþjónustuna inn á banka- reikninga Catalinu. Catalina er íslenskur ríkis- borgari en er upphaflega frá Miðbaugs-Gíneu. Hún var ákærð fyrir fíkniefnainnflutning, man- sal og vændisstarfsemi og í desember síðastliðinn var hún dæmd í tveggja og hálfs árs fang- elsi fyrir innflutning á eiturlyfj- um og vændisstarfsemi. Catalina afplánar nú í kvennafangelsinu í Kópavogi. 6 MÁNUDAGUR 1. mars 2010 FRÉTTIR „Við vonum að þetta hafi keðju- verkandi áhrif, að aðrir sjái að allt er hægt,“ segir Birgir Konráðsson, fram- kvæmdastjóri Boot Camp, en hann ætlar ásamt Ágústi Guðmundssyni slökkviliðsmanni að skrá sig í 100 kílómetra eyðimerkurhlaup í Túnis sem fram fer í mars á næsta ári. Báð- ir eiga að baki nokkur 100 kílómetra hlaup. Þá hefur Birgir keppt í fjalla- maraþoni í Kína og hjólað viðstöðu- laust 410 kílómetra á hálendi Íslands. Birgir segir að þrátt fyrir að ekki verði hásumar um það leyti er hlaup- ið fer fram megi búast við miklum hita. „Ég á von á því að hitinn fari hæst í fjörutíu gráður. Þetta eru fjór- ar dagleiðir. Það er hlaupið tvo daga, hvílt einn daginn og svo hlaupið tvo í viðbót. Á lengsta kaflanum er hlaup- ið heilt maraþon. Við þurfum að vera mættir fjórum dögum fyrir til að und- irbúa okkur fyrir átökin.“ Birgir segir að ýmist sé hlaupið yfir sanda eyðimerkurinnar eða grýttar lendur sem á milli koma. „Á lengstu leiðinni, maraþoninu, er hlaupið nær eingöngu yfir sand og sandöldur,“ segir Birgir og bætir við að huga þurfi að réttum fótabúnaði þar sem sand- urinn sé brennheitur. „Það er eitt að geta hlaupið, en annað að vera rétt undirbúinn, tilbúinn fyrir aðstæð- ur. Sandstormur getur skollið á sem blindar mönnum sýn, rétt eins og í ís- kaldri íslenskri stórhríð.“ Aðeins 150 manns eru skráð- ir í eyðimerkurhlaupið í Sahara á ári hverju. Aðeins vanir garpar fá að taka þátt enda væri þátttaka óreyndra lík- lega töluvert hættuspil. Birgir segir að nú hefjist undirbúningur fyrir hlaup- ið og ætla þeir félagarnir að taka þátt í Laugavegshlaupinu í sumar til að byggja sig upp en það er 55 kílómetra leið. Aðspurður segir Birgir að ekki sé ætlunin að þeir félagarnir skelli sér á bak úlfalda til að létta sér leiðina en hann segist þó dást að skepnunni. „Bara að maður gæti hlaupið eins hratt og úlfaldinn og þolað hitann jafn vel og hann.“ helgihrafn@dv.is Íslenskir ofurhlauparar á leið til Túnis í eyðimerkurhlaup: Hlaupa 100 kílómetra í Sahara Á leið til Sahara Birgir og Ágúst ætla að hlaupa 100 kílómetra í steikjandi hita Sahara-eyðimerkurinnar. Sjálfstæðisflokkur í stórsókn Sjálfstæðisflokkurinn fengi 26 þing- menn ef kosið væri nú, samkvæmt skoðanakönnun sem Plúsinn gerði fyrir útvarpsþáttinn Sprengisand á Bylgjunni. Það er tíu þingmönn- um meira en flokkurinn hefur í dag. Framsóknarflokkur færi úr níu þing- mönnum í ellefu og saman gætu flokkarnir því myndað ríkisstjórn. Samfylking og vinstri-græn tapa fylgi. Samfylkingin færi úr 20 þing- mönnum í fjórtán og vinstri-græn úr fjórtán í tólf. Hreyfingin kæmi ekki að manni. Samkvæmt sömu könnun treysta 30 prósent Steingrími J. Sigfússyni, 28 prósent Bjarna Benediktssyni, 21 prósent Jóhönnu Sigurðardóttur og tuttugu prósent Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni. Tíðir árekstrar í snjókomunni Þung færð vafðist fyrir ökumönn- um á höfuðborgarsvæðinu á laugardag. Þá voru átján árekstr- ar tilkynntir til lögreglunnar frá klukkan sjö um morguninn og fram að kvöldmat, að sögn varð- stjóra hjá lögreglunni á höfuð- borgarsvæðinu. Af þessum átján óhöppum urðu fimmtán eftir hádegi en þá byrjaði að snjóa aftur í borginni. Fleiri kunna að hafa lent í óhöppum án þess að tilkynna það til lögreglu. Að sögn varðstjóra hjá lögregl- unni þurfti að kalla til sjúkrabíl eftir að þriggja bíla árekstur varð á gatnamótum Bústaðavegar og Háaleitisbrautar rétt fyrir klukkan þrjú. Einn var fluttur á slysadeild. Að öðru leyti urðu engin slys á fólki í þeim árekstrum sem orðið hafa í borginni. Fimm stútar Fimm ökumenn voru stöðvaðir á höfuðborgarsvæðinu aðfaranótt sunnudags vegna ölvunaraksturs. Þá voru tveir ökumenn til við- bótar stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna, að sögn varðstjóra hjá lögregl- unni á höfuðborgarsvæðinu. Nóttin var einkar róleg í höf- uðborginni og komu engin stór- mál inn á borð lögreglu, að sögn varðstjóra. Ólína í frí til að hjálpa dótturinni Ólína Þorvarðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, tók sér tveggja vikna leyfi frá þingstörfum fyrir skemmstu og hefur varaþingmaður- inn Arna Lára Jónsdóttir tekið sæti hennar. „Fjölskylduaðstæður eru hins vegar þær að yngsta dóttir mín sem er fátækur námsmaður í Danmörku, væntir síns fyrsta barns á hverri stundu. Hún bað mömmu sína að koma og vera hjá sér á þessum tíma- mótum – og ég er nú komin út til hennar til að standa með henni og aðstoða eftir föngum. Pabbi hennar er svo væntanlegur til okkar strax að loknu prófkjöri Í-listans á Ísafirði,“ skrifaði Ólína á bloggi sínu og bætti við að hún afsali sér þingfararkaupi á meðan á dvöl hennar stendur í Danmörku. KÚNNAR CATALINU SLEPPA MEÐ SEKT Viðmælendur DV úr refsivörslukerfinu búast flestir við því að ákærum á hend- ur 15 vændiskaupendum verði lokið með dómssekt. Engin dómafordæmi eru til hérlendis í þessa veru en sé horft til Svíþjóðar, þar sem svipaðar reglur gilda, má búast við því að málunum ljúki með sekt. TRAUSTI HAFSTEINSSON blaðamaður skrifar: trausti@dv.is Stærsta refs-ing mannanna fimmtán gæti legið í því að málið yrði gert opin- bert og að þinghaldið verði opið. Þrátt fyrir að málunum gæti lokið með dómssekt kemur brotið fram á sakavott- orði hinna ákærðu. Situr inni Catalina afplánar nú í kvennafangelsinu í Kópavogi en hún var fundin sek um fíkniefna- innflutning og vændisstarfsemi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.