Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2010, Page 29
SVIÐSLJÓS 17. maí 2010 MÁNUDAGUR 29
Tila Tequila nánast nakin:
Söngkonan Tila Tequila er þekkt fyrir fátt annað en að vera eins léttklædd og leyfilegt er á almannafæri. Hún er alltaf að finna
nýjar leiðir til þess að vekja á sér athygli og
sjokkera fólk. Henni tókst það svo sannarlega
þegar mætti í útgáfupartí fyrir nýju plötuna
sína í síðustu viku. Það eina sem huldi brjóst
söngkonunnar voru leðurbelti sem voru
spennt yfir svartan fjaðravæng.
Þegar inn var komið fór Tila svo í ný föt
sem huldu litlu meira af líkama hennar og
söng lög af plötunni Welcome to the Dark-
side. Tila gerðist nýlega slúðurbloggari til þess
eins að velta hinum samkynhneigða Perez
Hilton úr sessi.
Róleg, Tila! Spurning um
að tóna þetta aðeins niður.
Kynþokki Er helsta
vörumerki söngkon-
unnar smágerðu.
BELTI SEM
BRJÓSTAHÖLD
Brooklyn Decker er ung og upprennandi leikkona. Hún hefur
nú fengið stóra tækifærið
í væntanlegri mynd sem
heitir Just Go With It. Þar
leikur hún aðalhlutverk-
ið á móti stórstjörnunum
Adam Sandler og Jenni-
fer Aniston. Sandler leikur
lýtalækni í myndinni sem
þykist vera giftur og eiga
börn vegna þess að hann
vill ekki að samband sitt
við konu sem er helmingi
yngri en hann verði of al-
varlegt.
Decker leikur ástkon-
una ungu og á þessum
myndum sést hún leika í
einu atriði myndarinnar.
HANDAHLAUP Á
STRÖNDINNI
Handahlaup í sandinum
Unglingspilturinn í bakgrunnin-
um fylgist áhugasamur með.
Brooklyn Decker Er ung
og upprennandi leikkona.
Brooklyn Decker í mynd með Adam Sandler og Jennifer Aniston:
Söngkonan Jessica Simpson varð
fyrir barðinu á graðnaglanum
Jeremy Piven þegar hún lék lít-
ið gestahlutverk í þættinum En-
tourage í síðustu viku. Í þáttunum
leikur frægt fólk jafnan sjálft sig en
þættirnir fjalla um fjóra vini sem
lifa og hrærast í Hollywood. Piven
er frægur fyrir að vera ágengur
þegar kemur að kvenfólki og hef-
ur komið sér í ýmiss konar kland-
ur í gegnum tíðina.
Starfsmaður á setti þáttanna
sagði tímaritinu UsMagazine að
Piven hefði komið heldur bet-
ur á óviðeigandi átt við Jessicu.
„Á milli atriða starði hann á rass-
inn á Jessicu og á mjög áberandi
hátt. Hann var alls ekki að reyna
að vera laumulegur við það. Hann
fylgdist með henni hvert fótmál,“
segir vitnið sem greinilega þekk-
ir til Pivens. „Hann daðrar við
ljótar stelpur þannig að þið getið
ímyndað ykkur hvernig hann lét
við Jessicu. Hún lét þetta þó ekki
slá sig út af laginu og reyndi eigin-
lega bara að brosa út í annað.“
STARÐI
Á BOSSA
JESSICU
Jeremy Piven úr Entourage:
Jeremy Piven Er frægur fyrir
að vera ágengur graðhundur.
Jessica Simpson Reyndi
að brosa út í annað.