Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.2010, Blaðsíða 14
fékk til hlutabréfakaupa í bankan-
um. Hann var úrskurðaður í farbann
vegna rannsóknar sérstaks saksókn-
ara á málefnum Kaupþings.
Líkt og gildir um Ingólf má einn-
ig fullyrða að Steingrímur hafi ekki
verið lykilmaður í að ákveða snún-
inga Kaupþings heldur hafi hann fyrst
og fremst verið sá sem framkvæmdi
skipanir Hreiðars og Magnús-
ar. Steingrímur er frægur fyrir
analýtíska greind sína og var
afburðanámsmaður í skóla.
Hann lagði stund á vélaverk-
fræði í MIT-háskólanum í
Bandaríkjunum og var fyrst
og fremst í því að framkvæma
tæknilega gjörninga hjá Kaupþingi.
Fleiri sendir í leyfi
Björn Jónsson sem áður var aðstoð-
arbankastjóri Kaupþings í Lúxem-
borg og hélt áfram störfum hjá Ha-
villand-bankanum býr í stórglæsilegu
húsi í smábænum Gonderange um 20
kílómetrum fyrir utan miðbæ Lúxem-
borgar. Hús hans stendur við götuna
Op der Tonn þar sem hvert glæsihýs-
ið af öðru prýðir götuna. Rétt hjá Birni
býr líka Eggert J. Hilmarsson, fyrrum
yfirlögfræðingur Kaupþings í Lúxem-
borg, sem einnig fór til starfa hjá Ha-
villand-bankanum. Þeir hafa báðir
verið sendir í leyfi.
Hreiðar Már Sigurðsson og Ingólf-
ur Helgason fluttu til Lúxemborgar
sumarið 2009 nokkrum dögum eftir
að tilkynnt var um yfirtöku Rowland
fjölskyldunnar á Kaupþingi í Lúxem-
borg. Þeir höfðu stofnað félagið Cons-
olium stuttu eftir fall Kaupþings eða
í nóvember 2008. Í Lúxemborg
hafa umsvif Consolium að
mestu verið tengd Ha-
villand-bankanum sem
Magnús Guðmundsson
stýrði þar til Kaupþings-
klíkan var handtekin af
sérstökum saksóknara.
Hjá Consolium starfa í dag
þeir Hreiðar Már Sigurðsson, Ingólf-
ur Helgason, Steingrímur P. Kára-
son, Guðmundur Þór Gunnarsson og
Guðný Arna Sveinsdóttir. Þau gegndu
öll yfirmannastöðu hjá Kaupþingi
sáluga. Auk þess að reka Consolium
er félagið Vinson Capital einnig í eigu
sömu aðila en litlar upplýsingar er að
fá um félagið á heimasíðu þess.
Neita að tjá sig
,,Nei, nei alveg ómögulega,“ svaraði
Guðný Arna Sveinsdóttir, einn eig-
enda fyrirtækisins Consolium þegar
blaðamaður DV hringdi bjöllunni hjá
fyrirtækinu í Lúxemborg og bað um
viðtal við forsvarsmenn þess. Tjáði
hún blaðamanni að Hreiðar Már
Sigurðsson væri eini af þeim starfs-
mönnum fyrirtækisins sem hand-
teknir voru á dögunum sem nú væri
staddur í Lúxemborg. Consolium er
með skrifstofu við götuna Grand Rue
í miðbæ Lúxemborgar og er ljóst að
fermetraverðið þar er líklega með því
hæsta sem þekkist í heiminum.
Það vekur athygli að samkvæmt
fyrirtækjaskrá í Lúxemborg vilja þau
Guðný Arna og Guðmund-
ur Þór ekki bendla nafn
sitt við Consolium.
Þess í stað er Kristinn
Eiríksson, eiginmað-
ur Guðnýjar Örnu og
Jóhanna Kristín Gúst-
avsdóttir, eiginkona Guð-
mundar Þórs skráð sem stofn-
endur að Consolium en ekki þau
sjálf. Samkvæmt fyrirtækjaskrá nam
stofnfé Consolium 70 þúsund evrum
eða um ellefu milljónum íslenskra
króna.
Í Lúxemborg yfirtók Consolium
kennitölu fyrirtækisins Investum sem
þeir Sigurður Kiernan og Brandur
Thor Ludwig stýra ennþá. Investum
er einna þekktast fyrir að hafa veitt
tryggingafyrirtækinu Sjóvá ráðgjöf
við kaup á hinum frægu turnum í Ma-
cau sem DV fjallaði ítralega um vegna
tengsla Bjarna Benediktssonar við fé-
lagið Vafning.
14 fréttir 9. júlí 2010 föstudagur
n Rannsókn sérstaks saksóknara á málefnum Kaupþings tengist aðallega
hlutabréfakaupum í bankanum sjálfum og tengdum málum. Rauði þráðurinn
í rannsókninni er að kanna hvort viðskipti Kaupþings með bréf í bankanum
sjálfum hafi verið eðlileg.
Al -Thani-málið er þekktast þessara mála en það snýst um kaup katarska sjeiksins
Al-Thanis á 5 prósenta hlut í Kaupþingi um miðjan september árið 2008. Hugs-
anlegt er að Al-Thani-málið sé markaðsmisnotkunarþátturinn í rannsókn sérstaks
saksóknara. Kaupþing lánaði Al-Thani fyrir kaupunum að hluta til.
Rannsóknin á málinu gengur út á það að athuga hvort kaup sjeiksins á 5
prósenta hlutnum í Kaupþingi fyrir 25 milljarða króna hafi verið lögleg. Grunur
leikur á að um markaðsmisnotkun hafi verið að ræða og að tilgangurinn með
kaupunum hafi verið að hækka verð á hlutabréfum í Kaupþingi og auka tiltrú
markaðarins á bankanum. Viðskiptin áttu sér stað fjórum dögum áður en
íslenska ríkið leysti til sín 75 prósenta hlut í Glitni og tveimur vikum áður en
Fjármálaeftirlitið yfirtók Kaupþing, það er rétt fyrir hrun íslenska bankakerfisins.
Önnur mál sem eru undir í rannsókninni eru lánveitingar Kaupþings til Skúla
Þorvaldssonar, sonar Þorvaldar í Síld og fiski, og eins lán bankans til Kevins
Stanford til að kaupa skuldatryggingar á Kaupþing, sem og tilraunir Kaupþings
til að halda uppi verði á eigin hlutabréfum og að röng skilaboð hafi verið send út
til markaðarins um stöðu Kaupþings í aðdraganda bankahrunsins. Einnig kann
að liggja undir rannsókn á því hvort Kaupþing hafi átt of stóran hlut í sjálfum sér.
Hvað er til rannsóknar?
Rándýr skrifstofa Hér má sjá skrif-
stofu Consolium á annarri hæð í hvíta
húsinu fyrir miðju. Fermetrverðið við
Grand Rue götuna í Lúxemborg er með
því hæsta sem þekkist í heiminum.
Steingrímur nærri miðbænum
Steingrímur P. Kárason, fyrrum yfirmaður
áhættustýringar Kaupþings býr í Bertrange
hverfinu nærri miðbæ Lúxemborgar.
Ingólfur á Audi Ingólfur Helgason býr líkt og Hreiðar Már Sigurðsson í fjögurra
hæða raðhúsi í Lúxemborg. Á bílastæðinu hans stendur stórglæsileg Audi-bifreið.
Veldi á Hreiðari Má
Hreiðar Már Sigurðsson
býr í fjögurra hæða raðhúsi
nærri miðbæ Lúxemborgar.
Bílafloti hans samanstendur
af Audi-bifreið, BMW-jeppa
og Land Cruizer 200-jeppa.