Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2010, Page 2
2 FRÉTTIR 26. júlí 2010 MÁNUDAGUR
„Mér finnst þetta bara mjög ósann-
gjarnt. Þetta kom mér mjög á óvart
og mér fannst þetta ekki rétt,“ seg-
ir Sigurborg Einarsdóttir en hún var
í fyrra, ásamt hópi ellilífeyrissþega á
Eskifirði, skráð í dagvistun á dvalar-
heimilinu Hulduhlíð án sinnar vitn-
eskju. Sigurborg hafði ásamt fleiri
konum nýtt sér föndurnámskeið
sem Hulduhlíð bauð upp á, en þar
greiddu þær efniskostnaðinn sjálfar,
og borguðu einnig fyrir kaffið sitt.
Árni Helgason, forstöðumaður
Hulduhlíðar, segir að það hafi verið
mistök að láta þær ekki vita af því að
þær væru skráðar í dagvistun. Hann
viðurkennir að dvalarheimilið hafi
þegið greiðslur frá Tryggingastofn-
un en segir að um smáræði hafi ver-
ið að ræða. Hann tekur fram að fólk
sem kom í föndurtíma hafi ekki þurft
að greiða neina leigu eða rafmagns-
kostnað, en það geti verið miklir út-
gjaldaliðir.
Allar skráðar í dagvistun
Sigurborg fékk bréf í fyrrasumar
þess efnis að hún fengi ekki leng-
ur greiddan lífeyrissjóð út á mann-
inn sinn. Hún fór í kjölfarið á sýslu-
skrifstofuna á Eskifirði. Það var í
þessari ferð á sýsluskrifstofuna sem
í ljós kom að búið var að skrá Sig-
urborgu án hennar vitneskju í dag-
vistun á dvalarheimilið Hulduhlíð á
Eskifirði. Sigurborg hafði í kjölfarið
samband við Tryggingastofnun sem
staðfesti að samkvæmt þeirra skrám
væri hún í dagvistun. Þetta var í júlí
í fyrra. „Þetta var náttúrulega mjög
mikið sjokk,“ segir Sigurborg aðspurð
um það hvernig henni hefði orðið við
þegar hún komst að því að hún hefði
verið skráð í dagvistun.
Í kjölfar þessa vildi Sigurborg at-
huga hvort fleiri konur af föndur-
námskeiðinu hefðu verið skráðar í
dagvistun. Við nánari skoðun virtist
svo vera. Hún segir að þær hafi far-
ið beint til forstöðumanns Huldu-
hlíðar, Árna Helgasonar, en þar hafi
hann viðurkennt fyrir þeim að hafa
skráð þær í dagvistun. Þær hafa ekki
ennþá, þrátt fyrir fyrirspurnir, feng-
ið formleg svör við því, hversu lengi,
eða hve oft slíkt var gert. Sigurborg
hafði aftur samband við Trygginga-
stofnun í ágúst en var þá sagt að enn-
þá væri verið að innheimta fyrir dag-
vistun hennar. „Ég veit ekkert um
þetta meir,“ segir Sigurborg.
Leirofn tekur mikið rafmagn
„Þetta voru bara mistök sem leiðrétt-
ust fljótt,“ segir Árni Helgason. „Það
var ekkert greitt fyrir neina húsaleigu
eða neitt slíkt. Við fáum aldrei neinn
rafmagnskostnað eða neitt. Þarna er
dýr og mikill ofn, svona leirofn sem
að tekur mikið rafmagn, þannig að
það er margt í þessu,“ segir Árni þeg-
ar hann er spurður um hvort kon-
urnar hafi verið skráðar í dagvistun
vegna einhvers aukakostnaðar sem
lagðist á dvalarheimilið vegna fönd-
urtímanna.
Árni viðurkennir að Hulduhlíð
hafi fengið fjármagn fyrir dagvist-
un kvennanna: „Jú jú, ef þau eru
í dagvistun, þá fáum við út á það
náttúrulega.“ Hann segir þó að í til-
felli föndurfólksins hafi það ekki
verið mikið. „Við fengum eitthvað
smávegis út á þetta svona, sem að
við þurfum vafalaust að borga aft-
ur,“ segir Árni en ekki er búið að
borga Tryggingastofnun til baka
þær upphæðir sem dvalarheimil-
ið sótti. „Það er allt komið á hreint,
en það á eftir að reikna það út,“ seg-
ir Árni og tekur fram að þetta hafi
ekkert komið við buddu einstakl-
inganna sem um ræðir. Árni getur
ekki svarað því hvenær fjárhæð-
irnar verða greiddar til baka: „Það
á eftir að ræða það við Trygginga-
stofnun.“
Erfitt að fá upplýsingar vegna
sumarleyfa
„Mér finnst að hann hefði átt að ræða
það við okkur,“ segir Sigurborg varð-
andi það að ákveðinn kostnaður af
leigu og rafmagni hafi verið grund-
völlur þess að skrá konurnar í dag-
vistun. „Allt efni sem við notuðum
til föndursins greiddum við úr eig-
in vasa, og við fengum þarna kaffi og
við greiddum ákveðið gjald fyrir það
líka. En við vissum ekki til þess að við
skulduðum neitt þarna,“ segir Sigur-
borg sem er vel kunnugt til dagvistun-
ar en hún var hjúkrunarfræðingur og
ljósmóðir í 34 ár, og segist vita það að
til þess að vera í dagvistun þurfi fólk
að sækja sérstaklega um, en það hafði
hún hvergi gert.
JÓN BJARKI MAGNÚSSON
blaðamaður skrifar: jonbjarki@dv.is
Við hættum að fara í Hulduhlíð.
Hópur ellilífeyrisþega sem sótti föndur-
tíma á dvalarheimilinu Hulduhlíð á Eski-
firði var skráður í dagvistun á heimilinu.
Kona sem sótti föndurtímana komst að
þessu þegar hún sá að ellilífeyrisgreiðslur
til hennar höfðu verið skertar. Forstöðu-
maður Hulduhlíðar segir það ekki rétt að
skráning í dagvistun hafi áhrif á greiðslur
frá Tryggingastofnun. Það voru mistök að
láta ekki vita, segir hann, en tekur fram að
rafmagnskostnaðurinn á heimilinu sé hár.
FÖNDURKONUR
SKRÁÐAR Í DAGVISTUN
Mikið sjokk „Þettavarnáttúrulegamjögmikiðsjokk,“segirSigurborgaðspurðum
þaðhvernighennihefðiorðiðviðþegarhúnkomstaðþvíaðhúnhafðiveriðskráðí
dagvistun.MYND HREFNA