Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2010, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2010, Blaðsíða 7
MÁNUDAGUR 26. júlí 2010 FRÉTTIR 7 Hluti þeirra fjárfesta sem töpuðu háum fjárhæðum á fjárfestingum í víxlum og skuldabréfum Milestone á haustmánuðum 2007 fjárfesti í bréf- unum að undirlagi eignastýringar- deildar Glitnis. 6,2 milljarðar króna söfnuðust í útboðinu. Starfsmenn einkabankaþjónustu Glitnis kynntu fjárfestingarkostinn fyrir fjárfest- unum og slógu þeir til í kjölfarið. Í öðrum tilfellum, líkt og komið hefur fram í DV, voru viðskiptavinir einka- bankaþjónustunnar ekki spurðir hvort fjárfesta ætti í bréfunum áður en starfsmenn Glitnis létu þá fjár- festa í þeim. Allmargir þeirra einstaklinga sem lýsa milljóna kröfum í þrotabú Mile- stone voru viðskiptavinir einka- bankaþjónustu Glitnis og fjárfestu í skuldabréfunum og víxlunum. End- urfjármagna þurfti Milestone á þess- um tíma en félagið hafði gert ár- angurslausa leit að fjármagni hjá erlendum fjármálafyrirtækjum sum- arið 2007. Því hefði átt að vera ljóst á þessum tíma að staða Milestone var ekki góð. Samt létu starfsmenn Glitn- is viðskiptavini sína fjárfesta í bréf- unum. Fjárfestingarnar námu allt frá nokkrum milljónum og upp í hundr- uð milljóna króna. Féð er tapað í dag. Þess skal getið að Milestone var einn af stærri hluthöfum Glitn- is í gegnum eignarhaldsfélagið Þátt Inter national og því héldust hags- munir félagsins og bankans í hendur á þessum tíma. Einhverjir þeirra einstaklinga sem látnir voru fjárfesta í þessum bréfum Milestone ætla að reyna að leita réttar síns gagnvart bankan- um vegna fjárfestingarinnar. Þetta á sérstaklega við um þá viðskiptavini einkabankaþjónustu Glitnis sem ekki voru með í ráðum þegar ákveð- ið var að fjárfesta fyrir þá í bréfun- um. Glitnir kynnti fjárfestingarkostinn Einn af viðskiptavinum einka- bankaþjónustu Glitnis sem gerði kröfu í þrotabú Milestone segir að hann hafi ekki íhugað að leita rétt- ar síns gagnvart Glitni. „Við höfum ekki tekið neina ákvörðun um það eða rætt það.“ Hann segir að ákvörðunin um að fjárfesta í skuldabréfunum hafi verið tekin í samráði við þá fjárfesta sem áttu félagið sem keypti bréfin. „Nei, þetta var allt gert í samráði við okk- ur. Það var ekki verið að misnota fjár- muni okkar. Það var ekkert svoleiðis í gangi. Þetta var gert með vitund og vilja stjórnar félags okkar,“ segir þessi fyrrverandi viðskiptavinur einka- bankaþjónustu Glitnis. „Ráðgjöfin kom hins vegar frá Glitni. Þetta voru bréf sem voru föl og verið var að selja og allar forsend- ur sem voru lagðar fyrir okkur á þeim tíma voru bjartar. Eigið fé Milestone var í háum hæðum og allt leit vel út á pappírunum. Þess vegna var nú ákveðið að kaupa þessi bréf. Þetta fór svo allt sinn veg. Við gerum svo þessa kröfu í þrotabú Milestone en við ger- um okkur engar vonir um að fá neitt til baka af þessu.“ Efasemdir um ráðgjöfina Viðskiptavinurinn fyrrverandi segir hins vegar að menn hafi spurt sig að því eftir efnahagshrunið hvað hafi verið að marka þær upplýsingar um stöðu Milestone sem skuldabréfa- og víxilútboðið var byggt á. „Menn spyrja sig að því hvað hafi verið að marka þær upplýsingar sem við fengum um stöðu Milestone þegar verið var að kynna þessa fjárfestingu fyrir okkur. Menn gerðu þetta í góðri trú og við byggðum þetta á þeim for- sendum sem okkur voru kynntar. En hvað hafa menn upp úr því að vera að fara í mál þegar það liggur fyrir að þetta er allt saman farið? Við vitum af því að fólk hefur verið að skoða stöðu sína og hugsa ýmislegt en við höfum ekki hugleitt það... Maður telur bara að þegar menn fara í skuldabréfa- útboð sé verið að segja satt og rétt frá. En það hefur komið í ljós síðar meir að þetta var allt að hruni komið þeg- ar farið var í skuldabréfaútboðið. En ég get ekkert sagt þar sem þessi fjár- festing var gerð með vitund minni og vilja.“ Líkt og áður segir er ýmislegt sem bendir til að staða félagsins hafi alls ekki verið góð. Í endurskoðendaskýrslu Ernst & Young um starfsemi Milestone, sem unnin var fyrir þrotabú félagsins og kynnt var kröfuhöfum snemma á þessu ári, kemur til dæmis fram að Milestone leitaði til tuga erlendra banka eftir fyrirgreiðslu sumarið og haustið 2007 þegar fyrir lá að félag- ið þyrfti að verða sér úti um lausafé til að standa við skuldbindingar fé- lagsins á árinu 2008. Meðal annars endurfjármögnun á láni frá Morgan Stanley sem veitt hafði verið árið 2007 til að kaupa hlutabréfin í Glitni í Þætti International. Í skýrslu Ernst & Young kem- ur fram að Milestone hafi notað 1,7 milljarða króna til að greiða upp aðra víxla og að 3 milljarðar hafi verið notaðir til að greiða inn á lánið hjá Morgan Stanley vegna fjárfesting- arinnar í Glitni. Meirihluti fjármun- anna sem safnaðist frá viðskipta- vinum Glitnis var því notaður beint til að tryggja stöðu félags sem átti stóran hlut í Glitni. Góður árangur í skuldabréfaútboðinu þjónaði því hagsmunum Glitnis. Fróðlegt verður að sjá hvort af þessu hljótist einhver dómsmál á næstuni. En það hefur komið í ljós síðar meir að þetta var allt að hruni komið þegar farið var í skuldabréfaútboðið. Viðskiptavinir í einkabankaþjónustu Glitnis skoða nú réttarstöðu sína vegna fjárfest- inga Glitnis í bréfum Milestone fyrir þeirra hönd. Glitnir lét þá fjárfesta fyrir millj- arða í skuldabréfum og víxlum Milestone þrátt fyrir að staða félagsins væri orðin slæm haustið 2007. Viðskiptavinur segir að Glitnir hafi ráðlagt sér að fjárfesta í bréfunum. FJÁRFESTU Í MILESTONE AÐ UNDIRLAGI GLITNIS INGI F. VILHJÁLMSSON fréttastjóri skrifar: ingi@dv.is Gæti dregið dilk á eftir sér Skulda- bréfa-ogvíxilútboðMilestonehaustið 2007gætidregiðdilkáeftirsér. Barnadagurinn Barnadagurinn í Viðey fór fram um helgina. Um árlegan viðburð er að ræða. Öllum börnum var boðið á hestbak og alls kyns afþreyingu var að finna á þar til gerðu leiksvæði í eynni. Lalli töframaður skemmti gestum auk þeirra Gunna og Felix sem flest börn þekkja. Í Viðeyjar- kirkju var svo barnamessa. Nær öll börn sem tóku þátt í barnadeginum fengu íspinna í tilefni dagsins. Skólastarf heldur áfram Fjárhagslegri endurskipulagningu á Snyrtiakademíunni er lokið og er rekstur hennar tryggður. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Snyrti- akademíunni og Sparisjóðabanka Íslands. Áframhaldandi skólahald hefur verið tryggt með þessu og hefst skólahald á haustönn sam- kvæmt áætlun í ágúst og september. Inga Kolbrún Hjartardóttir, skóla- stjóri Snyrtiakademíunnar, og flestir aðrir starfsmenn skólans hafa tekið við rekstrinum sem hluthafar, ásamt Ingu Þyri Kjartansdóttur snyrtifræð- ingi. Inga Þyri stofnaði Snyrtiaka- demíuna árið 2002 og var meðeig- andi í fyrri hluthafahópi félagsins. Thelma Hansen viðskiptafræðingur verður framkvæmdastjóri Snyrtiaka- demíunnar. Náttúruvika Náttúruvika á Reykjanesskaga hófst um helgina. Boðið verður upp á ýmsa dagskrárliði tengda náttúr- unni eins og gönguferðir, hjólaferðir, fjöruskoðun, fuglaskoðun og margt fleira. Náttúruvikan er samstarfs- verkefni menningarfulltrúa Grinda- víkur, Garðs, Sandgerðis, Voga, Reykjanesbæjar og sjf menningar- miðlunar. Náttúruvikan á að vera ódýr og góð skemmtun fyrir alla fjöl- skylduna en á jafnframt að minna á hvað náttúran hefur upp á margt að bjóða.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.