Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2010, Blaðsíða 22
22 ÚTTEKT 26. júlí 2010 MÁNUDAGUR
NÓG
af íslenskum sjónvarpsþáttum í vændum
Steindinn okkar
Steindi Jr., kom sá og sigraði heldur betur nú á vormánuðum, með sjónvarpseríunni
Steindinn okkar. Nú er önnur serían í smíðum og segir sagan að hún verði mun
glæsilegri en sú fyrri. Meðal annars er búið að bæta við einum föstum handritshöf-
undi og til stendur að fjárfesta í betri tækjabúnaði, svo það er greinilega til margs að
hlakka. Steindinn verður á dagskrá Stöðvar 2 eftir áramót og leikstjóri er Ágúst Bent
Sigbertsson.
Mér er gamanmál
Hinn eini sanni Frímann Gunnarsson úr Sigtinu snýr aftur, nú til að fræða nágranna-
þjóðir okkar um hvað sönn kímni er. Gunnar Hansson og félagar sprella með öllum
helstu grínistum Norðurlandanna, meðal annars Jóni Gnarr og Frank Hvam. Sex
þátta sería sem hefur göngu sína í september og hefur þegar verið seld til allra helstu
sjónvarpstöðva í Skandinavíu.
Spaugstofan í óvissu
Ekki hefur enn verið gengið frá samningum við Spaugstofuna, og því óvíst hvort hún verði á skjánum næsta vetur. Í samtali við DV, sagði Örn Árnason ekkert liggja fyrir ennþá,
og að allt væri opið. Spaugstofan er elsti gamanþáttur þjóðarinnar og hafa Spaugstofumenn undanfarin ár tekið virkan þátt í þjóðfélagsumræðunni með hárbeittu gríni.
Hlemmavideo
Pétur Jóhann Sigfússon bregður
sér í hlutverk Sigga Hlemms, sem
rekur vídeóleigu á Hlemmi. Siggi
er dagdraumamaður, og gefur
leigunni lítinn gaum. En umfram
allt dreymir hann um að verða
einkaspæjari. Um er að ræða
12 þátta seríu, úr smiðju
ekki minni spámanna en
Sigurjóns Kjartanssonar,
Hugleiks Dagssonar, Ara
Eldjárns, Maríu Reyndal
og Péturs Jóhanns.
Leikstjóri þáttanna er
Styrmir Sigurðsson
og hefjast þeir á Stöð
2 í október.
Íslensk kvikmyndagerð á undir högg að sækja um þessar mundir. Nóg virðist þó vera í gangi í sjónvarps-
þáttaframleiðslu. Að minnsta kosti níu splunkunýir sjónvarpsþættir líta dagsins ljós næsta vetur.