Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2010, Síða 3
MÁNUDAGUR 26. júlí 2010 FRÉTTIR 3
Það var félagsþjónusta Fjarða-
byggðar sem sá um rekstur föndursins
í Hulduhlíð á þessum tíma. DV hafði
samband við félagsþjónustuna en
vegna sumarleyfa fengust engar upp-
lýsingar um málið að sinni. Í Félags-
og tryggingarmálaráðuneytinu feng-
ust þær upplýsingar að eðlilegt væri
að slík mál kæmu á borð ráðuneytis-
ins, en vegna sumarleyfa var ekki hægt
að fá upplýsingar um þetta tiltekna
mál. Engar upplýsingar fengust að svo
stöddu frá Tryggingastofnun.
„Gleymdist að láta vita“
Árni segir að það sé alrangt að dreg-
ið hafi verið úr tryggingagreiðslum til
fólks vegna þess að hann skráði það
í dagvistun. „Nei nei, það er langur
vegur frá að þetta sé rétt.“ Hann seg-
ist ekki muna hversu lengi konurnar
voru skráðar í dagvistun í Hulduhlíð,
en telur það ekki hafa verið lengur en
í fjóra mánuði. Árni segist vera á leið í
sumarfrí og því hafi hann ekki tíma til
þess að fara yfir gögn, til þess að kom-
ast að því hversu langur tími þetta var,
og hversu oft konurnar voru skráðar
í dagvistun. Árni viðurkennir að það
sé ekki hægt að bjóða upp á föndur
og setja það undir dagvistun. „Það er
kannski ekki alveg hægt að segja að
þetta hafi verið dagvistun, en þetta
var svona viðvera sem að við fengum
sem húseigandi ekkert út úr,“ sagði
Árni.
Hann lýsir atburðarásinni þó eins
og Sigurborg. „Þegar þessi kona kem-
ur og fer að kvarta yfir þessu, þá kem-
ur náttúrulega í ljós að það hefur
gleymst að láta þau vita,“ segir hann.
Hann tekur fram að í kjölfarið hafi
hann hætt að skrá fólk óafvitandi í
dagvistun. „Þetta var í rauninni ekk-
ert mál, nema að það gleymdist að
láta vita,“ segir Árni og bætir við að
fólk hafi verið beðið afsökunar. Hann
segir að bærinn sé nú hættur með allt
föndur eins og tíðkaðist áður, en seg-
ir að það komi þessu máli ekkert við.
Hætt að fara í föndur
„Við hættum að fara í Hulduhlíð,“
segir Sigurborg sem kærir sig ekki
lengur um að vera skráð í föndur í
Hulduhlíð. Hún óskaði eftir því í kjöl-
far þessa máls að þær yrðu afskráð-
ar úr dagvistun á heimilinu. „Ég var
búin að fara í föndur í nokkur ár, og
maður hafði mjög gaman af þessu,“
segir hún og bætir við: „Við vissum
ekki annað en að við værum í rétti
okkar að sækja þetta því að Fjarða-
byggð rak þetta.“
Sigurborg segir að um hreina og
beina dægradvöl hafi verið að ræða.
„Það var mjög gaman að vera þarna
á þessum stað og við gerðum margt,
við vorum þarna í alls konar máln-
ingu og ýmsu,“ segir Sigurborg og tek-
ur fram að málið sé allt hið leiðinleg-
asta, enda hafi félagsskapurinn verið
góður á meðan á föndrinu stóð. Hún
segir að konurnar hafi allar steinhætt
að mæta í föndur, og að þangað hafi
þær ekki farið eftir að þetta kom upp.
Nú er búið að leggja föndrið í Huldu-
hlíð niður í þeirri mynd sem það var.
„Ég vona það að þessir peningar hafi
verið notaðir í Hulduhlíð frekar en
að aðrir hafi fengið þá,“ segir hún að
lokum.
FÖNDURKONUR
SKRÁÐAR Í DAGVISTUN
Tryggingastofnun Engar
upplýsingar fengust að svo
stöddu frá Tryggingastofnun.
Hulduhlíð Hópur ellilífeyrisþega
sem sótti föndurtíma á dvalar-
heimilinu Hulduhlíð var skráður í
dagvistun án þeirra vitneskju.
MYND HREFNA
HELDUR ÁFRAM
Á 70 FERMETRUM
Ómar Ragnarsson tók á laugardaginn við veglegri afmælisgjöf
frá gjafmildum Íslendingum, en það var ávísun upp á 12.5 millj-
ónir króna. Hann segist vera þakklátur og hrærður. DV birti ný-
lega viðtal við Ómar þar sem hann sagðist hafa fórnað öllu og
hófst söfnunin í kjölfarið.
Á laugardaginn tók Ómar Ragnar-
son, fréttamaður og kvikmynda-
gerðarmaður, við óvæntri og veg-
legri afmælisgjöf. Gjöfin var 12,5
milljóna króna ávísun, en þúsundir
manns standa að henni ásamt Frið-
riki Weisshappel athafnamanni. Þeg-
ar blaðamaður náði tali af Ómari á
sunnudag sagðist hann vera ákaflega
þakklátur og hrærður. „Mér finnst
þetta mjög mikils virði, að ég sé að
gera eitthvað sem fólk vill.“ En gjöfina
segir hann hafa komið sér algjörlega
á óvart. „Þetta kom mér algjörlega á
óvart, ég hefði aldrei getað trúað að
neitt svona gæti gerst.“ Ómar og Frið-
rik þekktust ekkert, og aðeins er rúm
vika síðan að fram kom í DV að Ómar
væri í miklum skuldavanda.
Átta þúsund afmælisgjafir
Friðrik stofnaði þá Facebook-hóp
þar sem að lagt var til að hver myndi
gefa Ómari 1.000 krónur í afmæl-
isgjöf. Viðbrögðin stóðu ekki á sér,
því að tæplega átta þúsund manns
gengu til liðs við hópinn. Hann segist
aldrei hafa hitt Friðrik áður, og hafa
verið spenntur að hitta hann loks.
Friðrik sagði svo að hann hafi
upplifað augnablikið sem þeir hitt-
ust sem: „Svona „Dr. Livingstone,
I presume“- augnablik“. Þar er átt
við hinn fræga fund Dr. Livingstone
nokkurs og Henrys Morton Stanley, í
frumskógum Afríku.
Ómar var ekki einungis styrktur
af einstaklingum, því að Landsvirkj-
un gaf honum tvær milljónir. Skuld
Ómars hljóðaði upp á fimm milljón-
ir, og því borgar afmælisgjöfin upp
skuldina og rúmlega það. Hann mun
geta haldið ótrauður áfram við kvik-
myndagerð sína í nánustu framtíð.
Vildi aldrei græða
Hann segist aldrei hafa lagt upp
úr því að græða á kvikmyndagerð
sinni, en drifkrafturinn sé að skapa
málefnalega umræðu um nýtingu
landsins. „Það vita allir hvernig ál-
ver líta út, þau eru öll eins, en það
er eins og enginn vilji vita hvernig
landið sem þarf að fórna fyrir þau
sé.“ Hann segir samfellt ójafnvægi
vera í umræðunni um þessi mál,
og þörf sé á aukinni upplýsingu
um þau. Tilgangurinn er að fræða,
fremur en að græða. Hann segir þó
að þessi drjúgi styrkur muni ekki
breyta hans lifnaðarháttum. „Ég
mun halda áfram að búa í minni 70
fermetra íbúð í blokk,“ segir Ómar
við blaðamann.
Heldur ótrauður áfram
Ómar hyggst halda ótrauður áfram
við kvikmyndagerð. „Ég held áfram
þeim verkefnum sem ég var í, nú er
ég ekki stopp eins og ég var,“ segir
hann við blaðamann. Hann er með
mörg járn í eldinum, en hann er
með níu heimildarmyndir í vinnslu.
Aðspurður um hvaða verkefni liggi
næst fyrir segir hann að kvikmynd-
in „Sköpun jarðarinnar“ verði von-
andi frumsýnd í febrúar eða mars á
næsta ári.
Hann mun ekki koma til með að
borga mikinn skatt af upphæðinni,
þar sem um margar litlar gjafir er að
ræða. Líklegt er þó að skatturinn fái
sinn skerf af stóru styrkjunum, líkt
og þeim frá Landsvirkjun.
SÍMON ÖRN REYNISSON
blaðamaður skrifar: simon@dv.is
Ég hefði aldrei getað trúað að
neitt svona gæti gerst.
Með mörg járn í eldinum Ómar er með níu
heimildarmyndir í vinnslu.