Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2010, Qupperneq 8
8 FRÉTTIR 26. júlí 2010 MÁNUDAGUR
Ólafur Johnsson, eigandi og skólastjóri Menntaskólans Hraðbrautar, ekur um á 15 milljóna króna Range
Rover-jeppa. Ríkisendurskoðun rannsakar fjármál Hraðbrautar en tugir milljóna runnu út úr skólanum í
formi lána og arðs. Skólinn er fjármagnaður af ríkinu að 80 prósentum. Skólameistari sem DV ræddi við
segist ekki eiga Range Rover og segist ekki vita til þess að margir skólameistarar í framhaldsskólum eigi
slíka bíla.
Ólafur H. Johnson, eigandi og skóla-
stjóri Menntaskólans Hraðbrautar,
ekur um á 15 milljóna króna Range
Rover-jeppa, árgerð 2008. Númer-
ið á bílnum er ML G53 og keypti
Ólafur hann árið 2008, samkvæmt
ökutækjaskrá Lánstrausts, Credit-
Info. Ólafur er fyrsti og eini eigandi
bílsins samkvæmt ökutækjaskránni
og keypti hann því nýjan, beint úr
kassanum. Um er að ræða Range
Rover af gerðinni Supercharged og
er bíllinn tæp 300 hestöfl.
Ríkisendurskoðun rannsakar
nú bókhald Menntaskólans Hrað-
brautar eftir að menntamálaráðu-
neytið sendi mál skólans til stofn-
unarinnar fyrir skömmu. Við
athugun á ársreikningum skólans í
menntamálaráðuneytinu kom í ljós
að skólinn, sem er fjármagnaður að
80 prósentum með fjárveitingum
frá íslenska ríkinu, hafði lánað háar
fjárhæðir út úr skólanum til Ólafs og
Nýsis, hins hluthafa hans, auk þess
sem greiddur hafði verið 105 millj-
óna króna arður út úr skólanum á
síðustu árum. Á síðustu sjö árum
hefur skólinn fengið rúman milljarð
króna frá ríkinu.
Samstarf menntamálaráðuneyt-
isins og Ólafs er í uppnámi vegna
þessa og hefur samningurinn við
hann einungis verið endurnýjaður
til rúmlega sex mánaða til að verja
hagsmuni nemenda skólans. Hinn
endurnýjaði samningur rennur út
næsta sumar. Afar ólíklegt verður að
teljast að menntamálaráðuneytið
endurnýi samninginn í ljósi þeirra
upplýsinga sem liggja fyrir um fjár-
mál skólans.
„Það er það allra flottasta“
Bílasali sem DV ræddi við segir að
bíll eins og sá sem Ólafur ekur um
á hafi kostað um 15 milljónir króna
árið 2008. „Um leið og númerin
voru sett á hann má segja að bíll-
inn hafi dottið niður í svona 11 eða
11,5 milljónir.“ Hann segir að í dag
kosti slíkur bíll um og yfir 10 millj-
ónir. „Ef þessi bíll væri seldur í dag
held ég að hann færi ekki á meira
en svona tæpar 10 milljónir. Þetta
er það allra flottasta en í dag myndi
enginn borga 13 eða 14 milljónir
fyrir hann,“ segir bílasalinn.
Mikið offramboð er á slíkum
Range Rover-bifreiðum á Íslandi
eftir íslenska efnahagshrunið. Slík-
ir bílar voru táknmynd peninga,
velgengni og ákveðinnar samfé-
lagsstöðu fyrir hrunið og var eng-
inn maður með mönnum nema
hann ætti Range Rover. Í kjölfar
hrunsins keppast menn hins veg-
ar við að losa sig við Range Rover-
bílana sem þykja táknmynd þeirr-
ar peningahyggju og þess glamúrs
sem einkenndi góðærið á Íslandi
meðal auðmanna.
Engin þjóð í heiminum keypti
jafn marga Range Rover-bíla og Ís-
lendingar miðað við höfðatölu og
var greint frá því í fjöl-
miðlum árið 2007
að Íslending-
ar hefðu keypt
jafn marga
slíka bíla og
Svíar og Danir
til samans.
Ólafur var
því hluti af
nokkuð stór-
um hópi Ís-
lendinga sem
pungaði út tíu
milljónum eða
meira fyrir Range
Rover. Full-
yrða má
hins vegar að hann sé einn af fáum
skólastjórum í framhaldsskólum
landsins sem keyptu sér slíkan bíl.
Hugsanlega rætt í skólameist-
arafélaginu
Skólameistari á framhaldsskóla-
stiginu sem DV ræddi við segir að-
spurður að hann eigi ekki Range
Rover. „Nei, ég á ekki þannig bíl og
ég veit ekki til þess að aðrir skóla-
stjórar en sá sem þú nefnir eigi
svona bíla. En það getur vel verið
að þessi einkarekni skóli sé svona
vel rekinn hjá honum að hann eigi
afgang. Þó að við rekum okkar rík-
isreknu skóla vel getum við ekki
leyft okkur að taka einhvern bón-
us út úr skólastarfinu,“ segir skóla-
meistarinn.
Hann segir að málefni Mennta-
skólans Hraðbrautar verði að öllum
líkindum tekin fyrir á fundi Skóla-
meistarafélags Íslands. „Hugsan-
lega munum við í skólameistara-
félaginu gera athugasemdir við
þetta,“ segir skólameistarinn.
Ólafur Johnson hefur ekki vilj-
að ræða við DV um málefni Hrað-
brautar.
INGI F. VILHJÁLMSSON
fréttastjóri skrifar: ingi@dv.is
SKÓLASTJÓRI Á 15
MILLJÓNA JEPPA
Fjárveitingar frá ríkinu til Menntaskól-
ans Hraðbrautar 2003 til 2010:
2003 55,0milljónir
2004 115,0milljónir
2005 156,0milljónir
2006 163,3milljónir
2007 163,0milljónir
2008 173,2milljónir
2009 168,2milljónir
2010 158,0milljónir
Samtals 1.151,7 milljónir króna
Arðgreiðslur út úr Hraðbraut ehf. 2003
til 2010:
2003 2004 2005 10milljónir
2006 14milljónir
2007 27milljónir
2008 6milljónir
Samtals 57 milljónir króna
Arðgreiðslur út úr Faxafeni ehf.:
2003 2004 0
2005 10milljónir
2006 30milljónir
2007 40milljónir
2008 25milljónir
Samtals 105 milljónir króna
ÚR BÓKHALDINU
Þetta er það allra flottasta en í dag
myndi enginn borga 13
eða 14 milljónir fyrir
hann.
Einn fárra Fullyrðamáað
ÓlafurJohnsonséeinnaffáum
skólastjórumlandsinssemhafa
efniáþvíaðakaumá15milljóna
krónaRangeRover-bifreið.
Við Hraðbraut RangeRover-bíllÓlafs
JohnsonsésthérviðMenntaskólann
HraðbrautíFaxafenisíðastliðinnföstudag.