Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2010, Síða 10
Jónína Benediktsdóttir athafna-
kona boðar stóruppgjör í væntan-
legri ævisögu sinni. Hún mun fjalla
ítarlega um frægt tölvupóstamál þar
sem Fréttablaðið birti pósta á milli
hennar og Styrmis Gunnarssonar,
fyrrverandi ritstjóra Morgunblaðs-
ins. Jónína dró stjórnendur blaðsins
og eigendur fyrir dómstóla en tapaði
því máli í Hæstarétti. Nú hyggst hún
fara mjög ítarlega ofan í það mál og
svipta hulunni af því sem gerðist að
tjaldabaki. Þetta kom fram í þættin-
um Ísland ögrum skorið á Útvarpi
Sögu, þar sem Jónína var í ítarlegu
viðtali, ásamt skrásetjara sínum,
Sölva Tryggvasyni, um væntanlega
bók. „Það verður farið mjög ítarlega
í það,“ sagði Sölvi um tölvupóstamál-
ið. Þáttastjórnandinn, Guðmund-
ur Franklín Jónsson, spurði þá Jón-
ínu hvort allir póstar hennar og
Styrmis myndu koma fram. „Ertu að
grínast?“ spurði Jónína á móti.
Tölvupóstamálið hafði áhrif
Í umræddum póstum var varp-
að ljósi á upphaf Baugsmálsins.
Þar komu við sögu þeir Jón Gerald
Sullenberger, Styrmir Gunnarsson,
Kjartan Gunnarsson, framkvæmda-
stjóri Sjálfstæðisflokksins, og Jón
Steinar Gunnlaugsson, núverandi
hæstaréttardómari, sem ræddu sín á
milli möguleika þess að koma af stað
því máli sem síðar var kallað Baugs-
málið. Jónína varðist í þættinum
fregna af því hvað yrði birt í bókinni
varðandi málið en sagði málið hafa
haft mikil áhrif í umræðunni.
„Þeir höfðu gríðarleg áhrif á gang
mála þegar upp er staðið,“ segir Jón-
ína. Hún sagði að tölvupóstarnir hafi
verið skrumskældir og birtir eins og
hentaði þeim sem stóðu að baki birt-
ingu þeirra. Hún kveðst birta aðra
pósta sem varpi ljósi á þá sem urðu
tilefni málaferlanna á sínum tíma.
„Það munu birtast tölvupóstar
á milli Jónínu og háttsettra manna
í viðskiptalífinu,“ sagði Sölvi. Hann
sagði að ekkert yrði dregið undan en
ætlar þó að halda nokkrum þeirra til
baka til að geta svarað væntanlegum
árásum þeirra sem telja sig fara illa út
úr bókinni.
„Ég mun nota tölvupósta til þess
að styðja frásögnina,“ sagði Sölvi
og kvaðst reyndar ætla að hafa ein-
hverja þeirra óbirta til þess að svara
árásum eftir að bókin kemur út.
„Það verður ekkert dregið undan,“
sagði Sölvi í þættinum.
Jónína var spurð um fleiri tölvu-
pósta og samband sitt við valda-
menn á Íslandi. Í bókinni verður
fjallað um póstsamskipti hennar við
Þorstein Pálsson, ritstjóra Frétta-
blaðsins. „Það var algjör ritskoðun
í gangi á Fréttablaðinu og er enn,“
sagði Jónína í þættinum.
Í bók Jónínu verður fjallað um
sambúð hennar og Jóhannesar í
Bónus. Jónína vitnaði til þess að Jó-
hannes hafi eitt sinn lýst því að einn
hennar stærsti ókostur væri að hún
gleymdi aldrei neinu.
Björn til umfjöllunar
Björn Bjarnason, fyrrverandi dóms-
málaráðherra, er til umfjöllunar í
bók Jónínu. Sölvi sagði að ítarlega
væri fjallað um samband hans og
Jónínu en Björn var ráðherra á þeim
tíma sem tölvupóstamálið gekk yfir.
„Samskipti mín við Björn Bjarna-
son ættu öllum að vera ljós í dag þar
sem hann hefur manna mest varað
við því í opinberu starfi sem hér var
að dynja yfir. Hann varð fyrir árásum
og honum var mokað út úr pólitík,
meira að segja af sínum samherjum,
sem var óþokkabragð, með pening-
um frá viðskiptalífinu,“ sagði Jónína.
Hún sagði að ráðherrann fyrrver-
andi væri heiðarlegur maður, gríðar-
lega vel gefinn og að hún treysti hans
dómgreind og myndi alltaf gera.
Þáttastjórnandinn spurði Jónínu
þá hvers eðlis samskipti hennar og
Björns hefðu verið. Hvort hann hefði
verið að kvarta undan slæmri með-
ferð í pólitík?
„Björn er enginn vælukjói, hann
er bara vinnumaður,“ sagði Jónína.
Valdamenn skjálfa
Sölvi sagðist verða var við óróleika á
meðal manna sem telja sig eiga von
á skelli vegna bókarinnar. „Nú eru
þegar tveir eða þrír aðilar farnir að
skjálfa,“ sagði Sölvi og kvaðst hafa
fengið skilaboð þess eðlis.
„Ég hef lent í ákveðnum meld-
ingum, nú þegar. Það er búið að hafa
samband við menn,“ sagði hann.
Sölvi sagði í þættinum að fólk ætti
að horfa á hans störf sem fjölmiðla-
manns í sex ár í stað þess að gefa
sér að hann færi fram með óhróð-
ur. Honum svíður að heyra,
jafnvel frá ráðherrum að
hann sé að dreifa ein-
hverjum sögum.
Sölvi sagði á Útvarpi
Sögu að sér þætti und-
arlegt að fólk gæfi sér
það nú þegar að eitthvað
verði í bókinni um það.
Það benti aðeins til þess
að umræddir aðilar hefðu
slæma samvisku.
Ekki var í þættinum fjall-
að um það hvernig tölvu-
póstar Jónínu og Styrmis kom-
ust til Fréttablaðsins. Reikna
má með að upplýst verði í bók-
inni hvernig þeir láku út. Bók
Jónínu kemur út í haust. Og þar
má búast við ýmsu ef marka
má orð skrásetjarans: „Það
verður ekkert dregið
undan.“
10 FRÉTTIR 26. júlí 2010 MÁNUDAGUR
JÓNÍNA GERIR UPP
STYRMISPÓSTANA
Jónína Benediktsdóttir boðar stóruppgjör í væntanlegri ævisögu. Tölvupóstar hennar og Styrmis Gunn-
arssonar verða gerðir upp. Skjálfandi valdamenn senda Sölva Tryggvasyni skrásetjara skilaboð. Björn
Bjarnason var „enginn vælukjói“. Í ævisögunni verða birtir nýir póstar til Jónínu frá háttsettum mönnum.
„Það verður ekkert dregið undan.“
Björn er enginn vælukjói, hann
er bara vinnumaður.
Björn Bjarnason
Dómsmálaráðherrann
og samskipti hans
og Jónínu verða
til umfjöllunar.
Björn fær góða
umsögn.
Styrmir
Gunnarsson
Frægir
tölvupóstar
milli Jónínu
og Styrmis
vöktu þjóð-
arathygli.
Jónína mun
fjalla um það
mál í ævisögu
sinni.
Jónína Benediktsdóttir
Titrings er þegar farið að gæta
vegna óútgefinnar ævisögu
hennar.
Jóhannes Jónsson í Bónus Var
sambýlismaður Jónínu um tíma og
sagði að Jónína hefði þann ókost að
gleyma engu. Það kemur sér væntan-
lega vel við vinnslu bókarinnar.
Sölvi
Tryggvason
Situr við að skrá
sögu Jónínu
Ben. Þar kennir
ýmissa grasa.