Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2010, Side 14
SVONA VARAST ÞÚ
NÍGERÍUSVINDLARA
Íslensk kona fékk á dögunum send-
an bréfpóst, þar sem henni er til-
kynnt að hún hafi unnið 130 milljón-
ir í lottói, eða rúmlega 800.000 evrur.
Um er að ræða svokallað „Nígeríu-
svindl“ þar sem háar fjárhæðir eða
mikilvægar persónuupplýsingar eru
sviknar út úr fórnarlambinu. Sam-
kvæmt vefsíðu Interpol eru glæpir
af þessu tagi algengir og talið er að
milljarðar evra tapist árlega vegna
pretta af ýmsum gerðum. Í bréfinu er
það ítrekað að þetta séu seinustu for-
vöð til að grípa þessa ógnarháu fjár-
hæð og er konan beðin um að segja
engum frá því. Menn sem semja
svindl á borð við þetta svífast einskis
og hefur fólk verið myrt á lokastigum
slíkra svikamylla.
Í boði fjármálaráðuneytis
Bréfið er hlaðið fölsuðum stimplum,
merkjum frá spænskum ríkisstofnun-
um, þar á meðal er stimpill spænska
fjármálaráðuneytisins, sem á að
standa fyrir lotteríinu. Spænska ríkið
er sem sagt að gefa pening til útlend-
inga í gríð og erg. Til að kóróna svo
kennivaldið er meira að segja undir-
skrift frá varaforstjóra „lottóstjórnar-
innar“. Í raun er merkjum og stimpl-
um svo ofaukið í bréfinu að auðséð er
að þetta eru prettir.
Það eru til nokkrar öruggar leiðir
til þess að sjá hvort þetta sé svindl. Ein
af þeim er að fletta einfaldlega nafn-
inu á lotteríinu sem þú átt að hafa
unnið í upp á netinu. Bréfið til dæmis
nefnir „Euromilliones“-lotteríið, en ef
leitað er á Google að slíku happdrætti
finnst það hvergi. Upp kemur hins
vegar „Euromillions“, sem er til. Þum-
alputtareglan er sú að enginn vinnur í
lottói sem spilar ekki í því. En það eru
fleiri leiðir til að glöggva sig á prettun-
um.
Sægur af málfarsvillum
Ein af þessum leiðum er að fylgjast
með málfarsvillum og óviðeigandi
notkun stórra stafa og er allt slíkt yf-
irstrikað í meðfylgjandi mynd. Sem
dæmi má nefna „Winning“ í stað
„winnings“, og notkun þriggja upp-
hrópunarmerkja, sem fáar ríkisstofn-
anir temja sér. Svo má benda á að í
bréfinu stendur „þitt heppna nafn“, en
venjulega teljast manneskjur heppn-
ar, en ekki nöfn. Benda má enn frem-
ur á tvær klisjur sem eru oft notaðar í
bréfum og tölvupóstum af þessu tagi.
Sú fyrri er að tala um einhvers
konar tölvudrátt nafna. Enginn slík- ur gagnagrunnur er til, sem myndi
innihalda öll nöfn heimsins, hann er
þá í það minnsta fremur leynilegur ef
hann er til. Sú seinni er að skrifa allt-
af upphæðina með bókstöfum eftir að
hún hefur verið skrifuð með tölustöf-
um. Þessu er svo oft víxlað, þar sem
tölustafir eru skrifaðir með bókstöf-
unum. Þetta er í besta falli misheppn-
uð tilraun til að líkja eftir formleg-
um bréfum. En það eru til allflóknari
svindl, sem auðveldara er að falla fyr-
ir.
Spænski fanginn
Netsvindl í dag er oft útgáfa af mun
eldri, klassísku svindli. Eitt hið elsta
í heimi kallast „Spænski fanginn“ og
er svindl af þeirri gerð þekkt alveg frá
19. öldinni. Í einni útgáfu Spænska
fangans felst að trúnaðarmaður ein-
hvers dularfulls, auðugs manns hef-
ur samband við fórnarlamb. Hann
segir að auðmaðurinn, sem er góð-
vinur hans, hafi verið fangelsað-
ur, oftast fyrir engar sakir, á Spáni.
Hann biður fórnarlambið að safna
fé fyrir einhvers konar kostnaði og
þá muni hann launa honum ríku-
lega. En auðvitað er ekki hægt að
láta í ljós hver dularfulli auðmaður-
inn sé, því að hann er í raun ekki til. Í
ofanálag fylgir oft loforð um að fórn-
arlambið fái að kvænast fagurri dótt-
ur auðmannsins. Vandamálin sem
fylgja því að fá féð greitt aukast alltaf
og fórnarlambið þarf sífellt að reiða
fram meira fé þangað til allt féð er
uppurið, eða þangað til fórnarlamb-
ið áttar sig á prettunum.
Almennt í svona svindli eru að-
stæður skáldaðar upp þar sem
höfðað er til góðmennsku, græðgi
eða trúgirni fórnarlambsins. Ágóð-
inn er gríðarlegur, og þannig freista
margir gæfunnar, í góðri trú um
gæsku svikarans. Auðvelt er að
koma auga á flest svindl, en nú-
tímasvindl er oftast hannað á mun
snilldarlegri hátt.
Loforð um skjótfenginn gróða
Það er ekki allt svindl þannig að fyrr-
verandi nígerískur bankastjóri vilji
hjálp þína til að leysa út milljarðana
sína og lofi ríkulegum launum fyr-
ir. Oft er notast við vel þekktar og ör-
uggar heimasíður á borð við eBay og
Amazon, og stór fyrirtæki á borð við
Western Union og TNT-sendingar-
þjónustuna. Sem dæmi um svindl á
eBay er að einhver reynir að selja vöru
á mjög lágu verði, en dregur svo upp-
boðið til baka. Þá er haft samband
við þá sem buðu í vöruna með tölvu-
pósti og þeim boðið að kaupa hana án
milligöngu eBay, jafnvel á enn lægra
verði. Þá er oft sendingarseðill frá fyr-
irtækjum á borð við TNT sýndur, sem
á að sýna fram á að varan sé á leið-
inni. Eftir það er fórnarlambið beðið
um að borga með pósti, en varan er
í raun ekki á leiðinni. Fórnarlambið
endar þá uppi með enga vöru og létt-
ari buddu.
Ef grunur leikur á slíku svindli er
gott að hafa samband við fyrirtækin
sem eiga að standa að sendingunni,
til að sannreyna að rétt sé að mál-
um staðið. Annað ráð er að stunda
DÍSILOLÍA
Algengt verð VERÐ Á LÍTRA 193,4 kr. VERÐ Á LÍTRA 190,4 kr.
Algengt verð VERÐ Á LÍTRA 193,1 kr. VERÐ Á LÍTRA 190,1 kr.
Algengt verð VERÐ Á LÍTRA 194,5 kr. VERÐ Á LÍTRA 194,5 kr.
BENSÍN
Algengt verð VERÐ Á LÍTRA 193,0 kr. VERÐ Á LÍTRA 190,0 kr.
Algengt verð VERÐ Á LÍTRA 193,1 kr. VERÐ Á LÍTRA 190,1 kr.
Algengt verð VERÐ Á LÍTRA 193,4 kr. VERÐ Á LÍTRA 193,4 kr.
EKTA BELGÍSKAR
VÖFFLUR
Á Þingeyri fyrirfinnst kaffihús sem
selur ósviknar belgískar vöfflur.
Það er rekið í nýuppgerðu húsi á
Fjarðargötu 5 í bænum, sem eig-
endurnir sjálfir unnu hörðum
höndum við að gera upp. Það er
ekki nóg með að vöfflurnar séu
ósviknar, heldur er staðurinn í eigu
Belga. Vöfflujárnið er einnig frá
Belgíu, og segir eigandinn upp-
skriftina hafa fylgt járninu. Hvað
sem því líður er þetta hugguleg-
ur staður sem er þess virði að vera
heimsóttur. Þar kostar ein vaffla
með sultu 650 krónur, en kaffibolli
kostar 300 krónur.
RÁNDÝRT PRÓTEIN
n Lastið fær Laugardalslaug fyrir
óvenju hátt verðlag. Óánægður við-
skiptavinur Laugardalslaugarinnar
hafði sambandi við DV. Hann hafði
ætlað að kaupa sér próteindrykk
í verslun laugarinnar, en blöskr-
aði heldur betur verðið þar á bæ. Í
Bónus kostar umræddur drykkur,
Hámark, 169 krónur, en í
Laugardalslaug er hann
rúmlega 90 prósentum
dýrari. Hann kost-
ar þar 330 krónur, og
bætti viðskiptavinur
við að þetta væri hæsta verð
á þessari vöru sem hann
hefði séð.
SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS
TOPP TÍAN
n Lofið að þessu sinni fer til veit-
ingastaðarins Tian á Grensásvegi.
Ánægður viðskiptavinur hafði sam-
band við DV og sagði reynslu sína
þar hafa verið mjög ánægjulega.
Gott andrúmsloft og framúrskarandi
matur er á Tian, og verðlagið
er ekki of hátt. Þjónustan var
fín og áreiðanleg. Viðskipta-
vinurinn greiddi 1.350 krónur
fyrir máltíðina, sem
voru margir mismun-
andi réttir, en það er
tilboð fyrir tvo eða
fleiri.
LOF&LAST
14 NEYTENDUR UMSJÓN: SÍMON ÖRN REYNISSON simon@dv.is 26. júlí 2010 MÁNUDAGUR
TÖLVUR FRAMTÍÐARINNAR GÆTU
HUGSAÐ SJÁLFSTÆTT Rannsóknir við Ply-
mouth-háskóla í Bandaríkjunum gætu skapað algjörlega nýja
kynslóð af tölvum. Verkefnið snýst um að skapa tölvu sem
hermir eftir samskiptum taugafrumna. Þetta hefur áður verið
gert, en aldrei fyrr á eins flókinn máta. Ef verkefnið heppnast
vel gæti það leitt af sér tölvur sem hugsa, taka ákvarðanir og
hafa jafnvel tilfinningar. Tölvan á að herma eftir hegðun heil-
ans og gæti fært tölvutækni í algjörlega nýjan búning.E
L
D
S
N
E
Y
T
I
SÍMON ÖRN REYNISSON
blaðamaður skrifar: simon@dv.is
...stundum er treyst á hjarta-
gæsku og trú fórnar-
lambsins á mannkynið.
Svikabréf Viðtakandi er beðinn
um að skrá allar sínar persónulegu
upplýsingar á plaggið og senda.
Persónuþjófnaður Nethrappar reyna oft að narra kreditkortanúmer og aðrar
persónulegar upplýsingar út úr fórnarlömbum.