Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2010, Side 16
16 ERLENT 26. júlí 2010 MÁNUDAGUR
Hvergi annars staðar er gert jafn mik-
ið upptækt af amfetamíni og í Mið-
Austurlöndum. Stjórnvöld í lönd-
unum í Mið-Austurlöndum hafa þó
verið treg til að viðurkenna að eitur-
lyfjaneysla sé vandamál, sem kem-
ur í veg fyrir að öflugri forvörnum og
aðgerðum sé beitt. Öll vímuefni, þar
með talið áfengi, eru bönnuð í hin-
um íslamska heimi. Samt sem áður
er „gríðarlegt magn“ af ólöglegu
amfetamíni gert upptækt í Mið-Aust-
urlöndum, og þá sérstaklega í Sádi-
Arabíu, samkvæmt Matthew Nice,
sérfræðingi hjá Eiturlyfja- og glæpa-
stofnun Sameinuðu þjóðanna.
Sádiarabísk stjórnvöld gerðu
upptæk tæp þrettán tonn af amfet-
amíni árið 2008 samkvæmt skýrslu
frá stofnuninni. Til samanburðar
voru rúmlega tuttugu og fjögur tonn
gerð upptæk á heimsvísu. Þar af voru
rúmlega fimmtán gerð upptæk í Mið-
Austurlöndum. „Ég get ekki ítrekað
nóg umfangið á þessu,“ segir Nice,
sem sérhæfir sig í málum tengdum
amfetamíni og amfetamínskyldum
lyfjum, í samtali við CNN. „Fimm-
tán tonn eru gríðarlegt magn, það er
algjörlega ótrúlegt. Við erum samt í
vanda því upplýsingagrunnurinn er
svo takmarkaður. Þetta er klárlega
aðeins toppurinn á ísjakanum.“ Sér-
fræðingar sem vinna á svæðinu segja
að misnotkun á allskyns lyfjum fari
vaxandi. „Það dýpkar á vandamál-
um tengdum eiturlyfjanotkun á öllu
svæðinu, án undantekninga,“ seg-
ir prófessor Jallal Toufiq, stofnandi
samtaka sem berjast fyrir bættum
hag íbúa í Mið-Austurlöndum. Hann
segir þó takmarkaður aðgangur að
upplýsingum geri erfiðara um vik að
greina vandann. adalsteinn@dv.is
Erfitt er að greina vaxandi vanda vegna eiturlyfjaneyslu í Mið-Austurlöndum:
Tæp þrettán tonn gerð upptæk
Einn drepinn,
annar í haldi
Bandarískur hermaður sem hefur
verið týndur síðan 23. júlí var drep-
inn í Afganistan, en félagi hans er nú
í höndum talíbana, segir hátt settur
talíbani. Tvímenningarnir týndust á
föstudag. Fréttaritari Reuters sagðist
á laugardag hafa heyrt tilkynningar
Bandaríkjamanna á útvarpsstöðvum
en þar var tuttugu þúsund dölum
heitið fyrir upplýsingar sem gætu
leitt til þess að tvímenningunum
væri náð aftur úr höndum talíbana.
Stefna út í geim
Íranar ætla að senda mann út í geim
árið 2019. Mahmoud Ahmadinejad,
forseti Írans, sagði þetta við íranska
fjölmiðla um helgina. Ahmadinejad
sagði að geimferðaáætlun landsins
hefði verið flýtt vegna þess að Vest-
urveldin og öryggisráð Sameinuðu
þjóðanna hefðu ögrað Írönum með
því að herða viðskiptabann. Í febrú-
ar sendu Íranar geimfar með rottu,
skjaldböku og möðkum innanborðs
út í geim.
Rússar og NATO
funda
Rússar funduðu með embættis-
mönnum NATO í Moskvu á föstu-
daginn. Rússar hafa ekki verið par
sáttir við aukin umsvif NATO á
fyrrverandi áhrifasvæðum þeirra
í Austur-Evrópu en einhverskonar
samstarf á milli Rússlands og NATO
var þó ofarlega á dagskrá fundarins.
Rússland og NATO eru staðráðin í
að vinna í sameiningu að því að leita
lausna á vandamálum nútímans,
sagði hershöfðinginn Nikolay Mak-
arov á föstudag þegar hann ræddi
við blaðamenn eftir fundinn.
Myndband frá
Obama
Barack Obama, forseti Bandaríkj-
anna, sendi frá sér óvænt myndband
þar sem hann kallar eftir áfram-
haldandi stuðningi framfarasinna í
landinu. Í myndbandinu segir hann
meðal annars: „Breytingar hafa ekki
átt sér stað nógu hratt hjá of mörg-
um Bandaríkjamönnum. Ég veit
það.“ Obama sendi frá sér mynd-
bandið á Netroots Nation, árlegri
ráðstefnu í Las Vegas í Bandaríkj-
unum. „Við höfum ekki efni á því að
fara aftur á bak. Og það er það sem
Bandaríkjamenn standa frammi fyr-
ir í nóvember næstkomandi. Haldið
áfram baráttunni.“
Gert upptækt Mikið magn fíkniefna er gert upptækt ár hvert í Mið-Austurlöndum.
MYND REUTERS
Staðfest hefur verið að Bretar og
Bandaríkjamenn notuðu skotfæri og
sprengjur sem innihalda rýrt úran
(Depleted Uranium) við innrásina
í Írak árið 2003. Embættismaður á
sviði varnarmála Breta hefur við-
urkennt að Bretar hafi notað skot-
færi sem innihalda þessa umdeildu
blöndu. Samkvæmt nýrri rannsókn
eru fæðingargallar algengari og tíðni
krabbameins og hvítblæðis hærri í
írösku borginni Fallujah en í Hiros-
hima skömmu eftir að kjarnorku-
sprengju var varpað á borgina undir
lok seinni heimsstyrjaldar.
Læknar í Fallujah hafa síðan árið
2005 vakið athygli á þessu, en nú
virðist þetta staðfest. Vísindamenn-
irnir sem gerðu rannsóknina telja
ástæðuna fyrir þessu einmitt vera þá
að innrásarherir Bretlands og Banda-
ríkjanna hafi notað skotfæri með
rýrðu úrani í árásum sínum. Írak er
eitruð eyðimörk, segir þekktur jarð-
fræðingur um málið.
2000 tonn af rýrðu úrani
„Breskar sveitir notuðu 1,9 tonn af
skotfærum með rýrðu úrani í Íraks-
stríðinu árið 2003,“ sagði Liam Fox,
varnarmálaráðherra Bretlands, í
skriflegu svari til öldungadeildar
breska þingsins á fimmtudaginn,
segir í frétt Kuwait News Agency um
málið. Yfirlýsingin kom fram í kjöl-
far rannsóknar umhverfis-, heilsu-
og vísindaráðuneyta Íraks sem hefur
leitt í ljós að fleiri en fjörutíu svæði í
og í kringum borgirnar, Najaf, Basra
og Fallujah, séu mjög mikið meng-
uð af völdum geislunar. Talið er að á
um 300 svæðum í landinu sé að finna
eitthvað magn af rýrðu úrani í lofti
eða jarðvegi. Þetta kemur fram á vef
Russia Today.
Notkun skotfæra sem innihalda
rýrt úran er mjög svo umdeild vegna
þeirra langvarandi áhrifa sem það
hefur á lífríki, fólk og allt umhverfi.
Fullyrt hefur verið að Bandaríkin
og Bretland hafi notað allt að 2.000
tonn af slíkum skotfærum í stríðinu,
en lengi vel neituðu þjóðirnar að
rýrt úran hefði verið notað. Liam Fox
sagði að rýrt úran hefði verið notað í
samræmi við umhverfisáætlun Sam-
einuðu þjóðanna, Írakar hafi verið
varaðir við úraninu: „Írakar voru var-
aðir við með skiltum og miðum sem
var dreift þar sem fram kom að þeir
ættu ekki að koma nálægt eða snerta
rústir sem þeir myndu finna á vígvell-
inum,“ sagði Fox.
Mengar grunnvatn
Þingmaður verkamannaflokksins,
Paul Flynn, hefur sagt að rýrt úran
valdi ennþá alvarlegum heilsukvill-
um í landinu. „Við vitum að í fyrra
Íraksstríði var rýrt úran notað í skot-
færi. Það er mjög líklegt að það hafi
verið notað aftur,“ sagði Flynn. „Það
er notað sem kjölfesta vegna þétt-
leika þess. Það er ekki eins geisla-
virkt og það gæti verið, þetta er úran
238 þar sem gammageislunin hef-
ur verið minnkuð og þar af leiðandi
er þetta ekki gjöreyðingarskotfæri,
en samt sem áður er þetta vopn al-
gjörrar eyðileggingar vegna þess að
það breytist í ryk og blandast þannig
við grunnvatn, kemst í loftið og get-
ur auðvitað valdið krabbameini, sem
og fæðingargöllum.“ Mannréttinda-
ráðuneyti Íraks ætlar í mál við Bret-
land og Bandaríkin vegna notkun-
ar skotfæra með rýrðu úrani í Írak
og sækist eftir skaðabótum til handa
fórnarlömbum slíkra vopna, segir í
umfjöllun Russia Today um málið.
Írak er eitruð eyðimörk
Þekktur jarðfræðingur og sérfræðing-
ur í rýrðu úrani, Leuren Moret, tel-
ur framtíðina fyrir Íraka vera svarta:
„Erfðamengi íraskra borgara fram-
tíðarinnar eru svo gott sem ónýt.“ Te-
hran Times fjallar um skrif Moret en
þar segir hún einnig þetta: „Lang-
tímaáhrif af rýrðu úrani eru hrein
dauðarefsing. Írak er eitruð eyði-
mörk. Hver sem þar er er líklegur til
að fá krabbamein eða hvítblæði. Í
JÓN BJARKI MAGNÚSSON
blaðamaður skrifar: jonbjarki@dv.is
Bretar og Bandaríkjamenn hafa notað skotfæri og sprengjur í Írak sem innihalda rýrt
úran, þetta staðfestir varnarmálaráðherra Bretlands. Þekktur jarðfræðingur segir
umhverfið í Írak nú vera fullkomlega geislavirkt. Tíðni krabbameins og hvítblæðis er
hærri í írösku borginni Fallujah en í Hiroshima skömmu eftir að kjarnorkusprengju
var varpað á borgina. Læknar í Írak segja að notkun rýrðs úrans hafi valdið þessu.
„ÍRAK ER
EITRUÐ
EYÐIMÖRK“
Langtímaáhrif af rýrðu úr-
ani eru hrein dauða-
refsing. Írak er eitruð
eyðimörk.