Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2010, Síða 19
HRAFNHILDUR ÓSK SKÚLADÓTTIR,
fyrirliði Íslandsmeistara Vals í
handbolta, varð um helgina
strandhandboltameistari með liði
Breiðholts. Strandhandboltamótið var
haldið í sjötta skipti í Nauthólsvík í
glimrandi sumarveðri.
LÍTIL MORGUNMATS-
KELLING
Sitja eftir með sárt ennið
Í bók sinni Íslenski draumurinn
segir Guðmundur Andri eitthvað
á þá leið að draumur hvers Íslend-
ings sé að slá í gegn á því sviði sem
hann hefur minnsta hæfileika til.
Það er mikið til í því. En þó er ekki
öll sagan sögð, því rétt eins og Ís-
lendingurinn vill geta montað sig
af hæfileikum sem hann hefur
ekki, vill hann ekki síður eyða pen-
ingum sem hann á ekki.
Í góðærinu gerðu Íslendingar
óspart grín að Norðmönnum sem
lögðu peninga sína inn í sjóði, á
meðan Íslendingar keyptu hall-
ir í útlöndum og splæstu í virkjun
uppi á hálendi þvert á alla heil-
brigða skynsemi jafnt sem spár
um ofþenslu. Örlæti er eitt ein-
kenni Íslendinga, rétt eins og í Ís-
lendingasögunum hafa þeir gam-
an af að halda miklar veislur þar
sem markmiðið er ekki síst að sýn-
ast. En eyðslusemin er hin hliðin á
málinu.
Í fljótu bragði virðist sem megi
rekja þetta þjóðareinkenni aftur
til verðbólguáranna, þar sem það
borgaði sig að eyða peningunum
sem hraðast áður en þeir misstu
verðgildi sitt. Sama lögmál liggur
líklega að baki bjórdrykkjunni, þar
sem það er um að gera að drekka
sem allra mest áður en maður snýr
aftur í bjórbannið, og helst sá siður
þó að bjórbanninu hafi löngu ver-
ið aflétt.
En líklega nær þetta þó mun
lengra aftur en í bjórbann og verð-
bólgu. Í sögunni af Sigurði Jórsala-
fara segir frá því þegar Sigurður
sækir Baldvin Jerúsalemkonung
heim, og vel fer á með þeim eins og
oftast þegar Íslendingar og kónga-
fólk mætast. Baldvin heldur veislu
og leysir Sigga út með gjöfum,
meðal annars hluta úr hinum heil-
aga krossi sem frelsarinn var negl-
dur á þar um slóðir. Í staðinn leggst
Sigurður í hernað ásamt konungi
og þeir leggja undir sig borgina
Sídon. Að innrás lokinni færir Siggi
konungi borgina að gjöf. Hér sjá-
um við þann alþekkta íslenska sið
að gefa einhverjum hluti sem hann
á ekki sjálfur, og voru bankarn-
ir duglegir við slíkt og eru líklega
enn.
Íslendingurinn kemur þó fyrst
upp í Sigga af krafti þegar konung-
ur ákveður að láta reyna á höfð-
ingjaskap hans. Lætur konungur
leggja rándýr föt á veginn, og seg-
ir sem svo að ef Siggi traðki fötin
niður á hesti sínum og „lætr ser lít-
ið umfinnast fyrirbúnað várn“, þá
sé hann af góðu fólki kominn. Ef
hann hins vegar snýr af veginum til
þess að traðka ekki niður verðmæt-
in, þá „þykki mér ván, at lítill mun
vera ríkdómr í hans landi“. Það þarf
varla að taka það fram að Sigurður
eyðileggur dýrgripina af mikilli fyr-
irlitningu, og segir mönnum sínum
að gera slíkt hið sama.
Æ síðan hefur það verið siður
Íslendinga, jafnt á heimavelli en þó
sérstaklega í útlöndum, að brenna
sem mest verðmæti sem hraðast til
þess að sýna öllum hvað þeir sjálf-
ir og þjóð þeirra séu mikil fyrir sér.
Minnir þetta reyndar á ættbálka
suma í Kyrrahafi sem mannfræð-
ingar segja frá, þar sem höfðingj-
arnir koma saman einu sinni á ári
til þess að henda verðmætum og
þykir sá mestur sem mestu hendir.
Ef til vill er þetta siður eyjar-
skeggja sem erfitt er að losna við.
Við getum þó huggað okkur við
það að íslenska þjóðin er sem slík
ekki gráðug. Til þess berum við allt
of lítið skynbragð á peninga.
Íslenski draumurinn
MEST LESIÐ á dv.is MYNDIN
Hver er konan? „Hrafnhildur Skúladótt-
ir, eldgömul handboltakona.“
Hvar ertu uppalin? „Í Breiðholtinu í
Reykjavík. Stolt af því.“
Hvað drífur þig áfram? „Handboltinn
og fjölskyldan.“
Hvar vildirðu helst búa ef ekki á
Íslandi? „Ég er svo mikill Dani. Ég bjó
þar í sex ár og á hús í Árósum.“
Hvað borðarðu í morgunmat? „Ég
er rosalega lítil morgunmatskelling. Ég
reyni svona að setja í mig einn disk af
Cheerios.“
Ertu búin að skoða eða gera
eitthvað nýtt í sumar? „Ég er búin að
fara til Flórída, Spánar og í útilegu. Hef
bara virkilega notið sumarsins.“
Er strandhandbolti mjög frábrugð-
inn venjulegum handbolta? „Nei,
ég segi það nú ekki. Það munar samt
mikið um að geta ekki dripplað og
stungið niður. Þetta er mun meiri taktík
því markmaðurinn fær tvö mörk fyrir að
skora og það byggist allt upp á því að
láta hann skjóta. Eða þá taka sirkus eða
skora með hringskoti. Maður fær tvö
mörk fyrir það líka.“
Hvernig heppnaðist mótið al-
mennt? „Þetta var ótrúlega gaman. Það
var alveg frábært veður eins og öll hin
sex árin sem þetta hefur verið haldið.“
Hefurðu tekið þátt áður í þessu
móti? „Tók í fyrsta skipti þátt í fyrra, þá
með Framstelpunum.“
Var ekki Íslandsmeistaratitillinn
með Val töluvert sætari en þessi?
„Jú, hann var öllu mikilvægari. Mér fannst
ég líka eiga meiri þátt í honum.“
Sumir hafa talað um litla strand-
handboltadeild á sumrin, er það
málið eða er ein svona helgi nóg?
„Ég held að ein helgi sé alveg nóg. Við
ættum frekar að fara að senda landslið
út. Það væri ekki leiðinlegt ef ÍS-land yrði
heimsmeistari í strandhandbolta.“
MAÐUR DAGSINS
KJALLARI
„Auðvitað styð ég hana.“
HAUKUR GUÐNASON
39 ÁRA DÚKALAGNINGARMAÐUR
„Ekki spurning.“
JÓN ÁRSÆLL ÞÓRÐARSON
59 ÁRA FRÉTTAMAÐUR
„Ég styð hana fullkomlega.“
FRIÐFINNUR KRISTINSSON
30 ÁRA STARFSMAÐUR Á
ENDURSKOÐENDASKRIFSTOFU
„Já, heilshugar.“
ÓLAFUR S. K. ÞORVALDZ
30 ÁRA LEIKARI
„Já, ég styð hana.“
SIGURÐUR ÞÓR BALDVINSSON
43 ÁRA SKJALAVÖRÐUR
STYÐUR ÞÚ KJARABARÁTTU SLÖKKVILIÐSMANNA?
DÓMSTÓLL GÖTUNNAR
MÁNUDAGUR 26. júlí 2010 UMRÆÐA 19
„Í góðærinu gerðu Ís-
lendingar óspart grín
að Norðmönnum
sem lögðu peninga
sína inn á sjóði.“
VALUR GUNNARSSON
rithöfundur skrifar
Bátur sökk í höfninni Þessi úr sér gengni bátur sökk þar sem hann var bundinn við landfestar í Reykjavíkurhöfn á sunnudaginn.
Reynt var að dæla vatninu upp úr bátnum en án árangurs. Ekki er vitað nákvæmlega hvað olli því að báturinn sökk.
MYND RÓBERT REYNISSON
1 BORGUÐU BÓNUSA Í MIÐRI KREPPU Samkvæmt skýrslu
um launagreiðslur fjármálafyrirtækja
í Bandaríkjunum greiddu sautján fyr-
irtæki yfirmönnum hundrað milljónir
dala í bónusa í lausafjárkreppunni.
2 ANNAR HANDSÖMUÐU HER-MANNANNA LÁTINN Annar af
tveimur bandarískum hermönnum
sem handsamaðir voru af talibönum
í Afganistan er látinn.
3 SNÓKERMEISTARINN HIGGINS LÁTINN Snókerspilarinn Alex
Higgins fannst látinn á heimili sínu á
Norður-Írlandi í fyrradag.
4 „ÞETTA ER BÚIÐ FYRIR ÁSTAR-GÖNGUNA.“ Nítján eru látnir og
hundruð slasaðir eftir troðning á
hátíðinni um helgina. Rainer Schaller
segir að að atburðurinn muni setja
stóran skugga á hátíðarhöldin
5 TVÆR LÍKAMSÁRÁSIR Í NÓTT Tilkynnt var um tvær líkamsárásir
á höfuðborgarsvæðinu í fyrrinótt,
báðar á Hverfisgötu.
6 CASTRO Í EIGIN PERSÓNU FYRIR UTAN HAVANA Fyrrum forseti Kúbu,
Fidel Castro, birtist opinberlega fyrir
utan Havana í fyrradag, í fyrsta skipti
síðan hann lét af embætti forseta.