Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2010, Qupperneq 20
HVAÐ VEISTU?
1. Í helgarblaði DV var sagt frá miklum nágrannadeilum. Í hvaða götu
eiga deilurnar sér stað?
2. Þekktur leikstjóri mun fá heiðursviðurkenningu á Reykjavík
International Film Festival, hver?
3. Grínistinn Steindi Jr. veiddi máv á dögunum. Hvað ætlaði hann að
veiða upphaflega?
SVÖR: 1. ARATÚNI. 2. JIM JARMUSCH. 3. MAKRÍL.
ERFÐASKRÁIN
SÝND
Götuleikhús Kópavogs setur upp
lokasýningu sína síðustu vikuna í
júlí. Verkið ber nafnið Erfðaskrá-
in og er frumsamið. Götuleikhús
Kópavogs samanstendur af ungl-
ingum úr Kópavogi fæddum 1994
og 1995. Sumarvinna þeirra þetta
árið er við Götuleikhúsið. Sýningar
á leikritinu verða þriðjudaginn 27.
júlí klukkan 19 og miðvikudaginn
28. júlí klukkan 19. Leikstjórar eru
Anna Margrét Ásbjarnardóttir og
Daníel Þór Bjarnason. Frítt er inn á
sýningarnar.
SÓLA SÖGU-
KONA LES
Borgarbókasafn Reykjavíkur
býður börnum á upplestur í Fjöl-
skyldu- og húsdýragarðinum í
dag, á þriðjudag og á miðviku-
dag. Tveir upplestrar eru á dag –
klukkan 14 og 15. Sóla sögukona
sér um upplesturinn að þessu
sinni. Hún mætir á sögubíln-
um Æringja og segir börnunum
sögur.
SÝNING Á MOKKA
Myndlistarmaðurinn Tómas Malm-
berg heldur sýningu á Mokka um
þessar mundir. Sýningin ber nafnið
Draumsýnir og stendur hún frá 23.
júlí fram til 19. ágúst. Sýningin er
opin daglega frá klukkan 9.00-18.30.
Tómas Malmberg er fjöllistamaður
sem unnið hefur bæði að myndlist
og tónlist. Áhugasamir eru hvattir
til þess að kíkja á sýninguna og ekki
skemmir fyrir að fá sér sjóðandi heitt
kakó í leiðinni.
20 FÓKUS 26. júlí 2010 MÁNUDAGUR
RAGGI BJARNA Á INNIPÚKANUM Einn
ástsælasti söngvari þjóðarinnar, Raggi Bjarna, hefur tilkynnt
komu sína á Innipúkann um verslunarmannahelgina. Hann fetar
þannig í fótspor ekki ómerkari manna en Bjartmars Guðlaugs-
sonar, Ómars Ragnarssonar, Gylfa Ægis og fleiri góðra sem hafa
verið sérstakir gestir á Innipúkanum. Hátíðin verður haldin
um verslunarmannahelgina á stöðunum Venue og Sódómu í
Hafnarstræti í Reykjavík. Mikið húllumhæ verður á hátíðinni og
dagskráin glæsileg.
Leikarahópur The Avengers var kynntur á dögunum:
Glæsilegar ofurhetjur
Stórleikarinn Samuel L. Jackson til-
kynnti ásamt félaga sínum Robert
Downey Jr. glæsilegan leikarahóp
kvikmyndarinnar The Avengers á
Comic-Con ráðstefnunni um helg-
ina. The Avengers byggir á sam-
nefndri teiknimyndasögu þar sem
allar helstu hetjur Marvel-sam-
steypunnar taka höndum saman.
Meðal leikaranna eru Clark Gregg,
Scarlett Johansson og Chris Hems-
worth úr Thor, en kvikmynd sem
byggir á myndasögum um þrumu-
guðinn er væntanleg. Þá var það
Chris Evans sem fer með hlutverk
Captain America, Jeremy Renner
sem leikur Hawkeye og Mark Ruff-
alo sem bregður sér í hlutverk Bruce
Banner, en talið var að Edward Nort-
on myndi leika hann, eins og í síð-
ustu kvikmyndinni um kappann.
Myndin er væntanleg árið 2012 og
verður ekkert til sparað við gerð
hennar. Leikstjóri myndarinnar er
Joss Whedon en hann leikstýrir einn-
ig kvikmynd um Captain America,
sem kemur út á næsta ári.
Jeremy Renner Fer með hlutverk
Hawkeye í Avengers.
Um þessar mundir er heim-ildarmyndin Babies sýnd í kvikmyndahúsum. Það er kvikmyndargerðarmað-
urinn Thomas Balmés sem leikstýr-
ir myndinni, en í henni er fylgst með
fyrstu 12 mánuðum fjögurra barna
víðsvegar að úr heiminum. Börn-
in eru Ponijao sem býr ásamt fjöl-
skyldu sinni nærri Opuwo í Nam-
ibíu, Bayarjargal sem býr nálægt
Bayanchandmani í Mongólíu, Mari
sem býr í Tókíó og Hattie sem fædd-
ist í San Francisco í Bandaríkjunum.
Í myndinni er ekki stuðst við neinn
sögumann, heldur einungis mynd-
efni af börnunum sjálfum. Hvernig
fyrstu skref manneskjunnar eru og
hvar gleði hennar og sorgir liggja.
Þá er sýnt að sama hvar barn fæðist
þá verða fyrstu mánuðir þess, eða ár,
sama ferðalagið. Myndin hefur hlot-
ið mjög góða dóma og hefur unnið
til verðlauna víða. Leikstjóri hennar,
Thomas Balmés, er franskur og á að
baki margar merkilegar heimildar-
myndir. Þar á meðal má nefna How
Much Is Your Life Worth og A Decent
Factory. Myndin kom út í Frakklandi
í fyrra, en annars staðar á þessu ári.
Myndin er sýnd í Smárabíói og Há-
skólabíói.
UNGABÖRN
Í AÐALHLUTVERKI
Heimildarmyndin Babies hefur farið sigurför um heiminn:
Mari Fylgst er með fjórum ungbörnum víðsvegar að úr heiminum.
Hattie Hattie frá San Francisco leikur sér
með farsíma. Ponijao Kemur frá Namibíu.
Bayarjargal Enginn sögu-
maður er í myndinni, bara
svipmyndir af börnunum.